Þjóðviljinn - 17.08.1975, Side 17

Þjóðviljinn - 17.08.1975, Side 17
Sunnudagur 17. ágúst 1975 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 17 Hún sat i litilli stofunni og mændi út i loftið. Það brakaði i stólnum við minnstu hreyfingu. Ósköp venjulegum körfustól, sem þau höfðu keypt vegna þess hve ódýr hann var. Það eru svgleiðis stólar i öðru hverju húsi. „Hvað mundir þú gera ef ég færi i burtu einn góðan veðurdag? Ef ég bara hyrfi og færi eitthvað út i lönd, — ein og skildi þig og Siggu liglu eftir?” Hann leit upp úr blaðinu sem hann hafði verið niðursokkinn i. Svo hló hann litillega. „Ja, ég veit það ekki. Ertu að hugsa um það?” Hann beið ekki eftir svari. Hann var með hugann við það sem stóð I blaðinu. „Nei, nei, ekki þannig. Það gæti samt verið að ég kysi að lifa ein- hvern veginn öðru visi. Ef til vill er eitthvað á öðrum stað, eitthvað sem mér finnst biða eftir mér, eitthviaðtakmark þú veist. Það er ekkert sérlega merkilegt sem ég er að gera núna.” „Nei, finnst þér það ekki?” Hann leit aðeins upp, en það sem stóð i blaðinu heillaði hann meira. Hún hélt áfram að mæna á ein- hvern punkt i loftinu. Henni fannst næstum þvi að ef hún héldi áfram að tala svona og tala, þá gæti hún talað sig út úr tilgangs- leysinu. „Þó ég færi þá væri það ekki vegna þess að ég elskaði ekki þig og Siggu litlu lengur. Auðvitað mundi ég lika koma til með að sakna ykkar. En kannski væri ég tilbúin til þess að fórna ykkur fyrir þetta markmið, eða þetta eitthvað, — ég veit ekki hvað ég á að kalla það, — en þú skilur hvað ég á við er það ekki...?” Hann leit aftur upp og nú geisp- aði hann. „Hvað er klukkan eigin- lega orðin? Cff ég þarf að vakna snemma i fyrramálið.” Hann stóð upp og teygði úr sér. „Komdu, við skulum fara að lúlla”, sagði hann i gælutón. Hann rétti henni hönd- ina og hún stóð upp eins og hlýðið barn. „Punkturinn” var horfinn, gufaður upp, og tómleysið skein úr svip hennar. Blaðið datt i gólf- ið. Hún hélt áfram að hugsa um þennan möguleika að fara i burtu. Með sjálfri sér kallaði hún það flótta. Það var bara ekki alltaf timi til þess að ihuga flóttann. Klukkan hringdi á slaginu hálf sjö. Þá staulaðist hún fram úr rúminu og slökkti á klukkunni. Sigga litla var oftast vöknuð. Hún þurfti lýsið sitt og mjólk. Hún gaf henni hvorttveggja. Siðan klæddi hún sjálfa sig, fór fram i eldhús og setti pott með vatni i á eldavél- ina. Þau höfðu enn ekki haft efni á að fá sér hraðsuðuketil. A meðan hún beið eftir þvi að vatnið syði klæddi hún Siggu. Hún hló og hjalaði og hún reyndi árangurs- laust að fá hana til þess að segja mamma og stundum pabbi. Svo bullsauð vatnið i eldhúsinu. Hún hentist fram og bjó sér til kaffi i glas. A meðan byrjaði hún að kalla á hann. Hann svaf ennþá og það tók hana að minnsta kosti kortér að fá hann til þess að vakna. Hún gerði það á meðan hún maulaði kringlu og sötraði kaffið. Loksins komst hann fram úr rúminu og paufaðist i fötin. Hann var geðvondur á morgnana. Henni leiddust þessar stundir. Var eiginlega fegnust þvi þegar hún var loks sest við ritvélina á vinnustaðnum. Hann ók henni þangað og fór svo með Siggu litlu i gæsluna. Hún sat eftir við ritvél- ina. Þessi ritvél var hennar vinna, og henni fannst allur lifs- kraftur og lifslöngum siast smátt og smátt úr sér út i ritvélina. Við það blómstraði ritvélin og henni fannst hún verða stærri og stærri dag frá degi. Hún 'nataði þessa fjárans ritvél. En stundum gleymdi hún sér við ritvélina. Hún gleymdi lika skýrslunum sem hún átti að vélrita allan daginn. Hún horfði út um gluggann og hún hugsaði. Hún sá sjálfa sig á fjarlægum stöðum. Þar voru engar ritvélar, þar voru engar blautar bleyjur, engin súr mjólk i pela, engin ljót orð og enginn körfustóll: — í raun og veru þá langaði hana ekkert i hús. Hana langaði heldur ekkert i bil. Hana langaði ekki að vinna og vinna hvern einasta dag, og hún var hætt að skilja hvers vegna hún var að þvi. Henni leiddist að koma heim til þess eins að kafa ofan i óhreint tau, pissublautar bleyjur og gúmmibuxur. Leirtauið beið óhreint, og hún sá það i liki púka sem sat á borðinu og hló að henni. Þegar hún ætlaði að reyna að ná honum til þess að fleygja honum i burtu tókst henni það ekki. Hann hélt bara áfram að sitja á borðinu og hlæja að henni. — — Hún var orðin hundleið á þvi að sjóða egg, stappa það saman við barnamjöl og búa til graut handa Siggu litlu. Loks þurfti hún að baða hana og hátta hana en svo var hún lika sofnuð. Þá var klukkan orðin of margt og hún orðin of þreytt til þess aö hafa löngun til að gera eitthvað. I mesta lagi þvoði hún hár sitt og fór i bað. Þegar hann kom heim fengu þau sér kaffisopa saman og sögðu eitthvað sem virtist engu máli skipta. Stundum var eins og allt umræðuefni væri uppurið. Samt höfðu þau aðeins búið sam- an i tvö ár. — Glugginn skelltist aftur. Það var farið að hvessa. Yfirmaður- inn gekk framhjá og leit til henn- ar. Hún varð hrædd. Hún hafði verið að svikjast um. Fingurnir tókust á loft og ærandi glamrið lék um skrifstofuna á nýjan leik. Hún danglaði með teskeiðinni utan i kaffiglasið sitt. Hún drakk alltaf kaffi úr sama glasinu þegar hún var heima. Hann var að lesa nýtt blað sem hann hafði fengið i póstkassann i dag og hann tók ekki augun af þvi þó hann fengi sér sopa úr bollanum. Hann drakk kaffið úr bolla og hann átti sér engan uppáhaldsbolla. „Við ætlum kannski að halda partý i vinnunni á laugardaginn”, sagði hún. „Þú verður heima er það ekki? Einhver verður að passa Siggu litlu.” „Jú, ég verð heima”, sagði hann og hélt áfram að lesa. Hon- um fannst hann ekki þurfa að bæta neinu við þetta svar. Þetta var nóg. Allt i einu fylltist hún reiði. Hún var sár og reið. Honum var and- skotans sama hvað hún gerði, hvar hvar hún var eða hvert hún fór. Hann sýndi henni aldrei neinn áhuga i raun og veru. Hann vildi bara hugsa um sitt og það var honum nóg. Hún fann hjá sér löngun til þess að rifast og hún lét það eftir sér. Hún byrjaði hægt og hægt. „Æi, farðu nú ekki að byrja á þessu nöldri”, sagði hann i kvörtunartón. Það nægði til þess að hann lokaði blaðinu, og hann leit á hana. En hann horfði uppgefinn á hana með vonleysi i svipnum. Svo stóð hann upp, fór fram úr eldhúsinu og gekk inn i herbergið þar sem skrifborðið stóð. Þar settisthann niður, opnaði blaðið á nýjan leik og fór að lesa. Hún fann hvernig tárin reyndu að brjótast fram. Henni varð þungt um mál og hún var með grátstafinn i kverkunum þegar hún æpti. „Þú ert andlaus asni. Þú hugsar ekki um neitt nema sjálfan þig. Annað skiptir þig ekki máli, ekki einu sinni lifið, lifið sjálft! Þú veist ekki hvað það er! ” Hún stóð upp, hljóp inn i svefn- herbergið og kastaði sér á rúmið. Hún grét ofan i rúmteppið þangað til hún varð bólgin og rauð og ljót i framan. Hún beið og vonaðist eft- ir þvi að hann kæmi og stryki um höfuð hennar. Hann gerði það ekki. Það var komið kvöld aftur og hann var að koma heim. Það var hljótt i ibúðinni. Svo heyrði hann barn skrikja og hjala við sjálft sig. Það var Sigga litla. Hún sat i rúminu sinu og lék sér að lvklum móður sinnar. Hún lánaði henni þá stundum þegar hún var óvær. En móðirin var hvergi. Hann var undrandi. Hún var vön þvi að vera heima, hún var það alltaf. Hún skildi heldur ekki Siggu litlu eftir eina. Hann fór fram i eldhús. A borðinu var kaffiglasið hennar. Það var kaffi i þvi sem enn var heitt. Við vaskinn stóð óhreint leirtauið. Inniskórnir hennar stóðu snyrtilega hlið við hlið i fataheng- inu. Kápan hennar var horfin. skórnir og taskan. A skrifborðinu fann hann loks miða: „Ég sagði þér að ég elskaði ykkur ennþá þó ég færi”. Ekkert meira. Hún hafði þá lagt á flótta. Hún hafði þá verið að hugsa um það i alvöru sem hann hafði stundum heyrt hana rausa eitthvað um. Hann hringdi I móður hennar. Honum fannst það eina ráðið. Einhver varð að hugsa um Siggu litlu. Á meðan hún æpti upp yfir sig af undrun i gegnum svart sim- tólið, talaði um lögreglu og leit og eitthvað þvi um likt, dró hann upp nýtt blað sém hann hafði keypt fyrr um daginn, og byrjaði að fletta þvi. Skýrsla um kynóra kvenna: MEÐ TARSAN í RÚMINU - Gott og vel. Úrleppunum ineð þig, Naflajón. Hinn þekkti bandariski rithöf- undur, sjálfur mjög kynósa, Henry Miller, segir að sig hafi alltaf grunað, að konur hefðu enn sterkara og æsilegra hugarflug um kynferðismál en karlar. Hann lét svo um mælt þegar út komu bækur sem Nancy Friday, blaða- kona, hefur tekið saman og heita „My Secret Garden” (Minn leyndi garður) og „Forbidden Flowers” (Forboðin blóm). t bók- um þessum hefur Nancy Friday skráð játningar 266 kvenna um það, hvernig þær láta hugann reika sér til eflingar i samförum. Sú elsta er 75 ára og sú yngsta 14 ára og þær eru úr öllum þjóðfé- lagshópum. Dæmi. Þritug eiginkona segir: Meðan við maðurinn minn erum að gera hitt imynda ég mér að aðrir menn og konur horfi á okkur og verði svo æst, að þau frói sjálf- um sér. Margar konur imynda sér, að maðurinn sem þær eru með i rúmi sé Tarsan, Hinrik átt- undi, James Bond eða Frank Sin- atra. Lesbur hugsa gott til Elke Sommer Margar játninganna eru mjög ýtarlegar 26 ára gömul eiginkona lýsir þvi, hvernig hún magnar samfarir við mann sinn með leið- angri til fortiðarinnar: „Þetta er um 1800 og ég er ung, falleg og fá- tæk stúlka um borð i skipi á leið til Ameriku. Ég er eina konan um borð. meðal grófra og lostafullra karla. En skipstjórinn vill hafa mig fyrir sjálfan sig einan. Af þvi hann veit að ég er hrein mey bið- ur hann mig bara um að ég setjist hjá honum, svo hann geti farið höndum um siðan kjól minn og spilað á mig með fingrunum. meðan hann stýrir skipinu með hinni hendinni". Viðbrögð við þessari bók eru misjöfn. Sum blöð telja að hér sé um ..sérlega lystilega innpakkað klám” að ræða. Nancy Friday telur sig hinsvegar vera að vinna endurleysandi fræðastörf.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.