Þjóðviljinn - 17.08.1975, Síða 20

Þjóðviljinn - 17.08.1975, Síða 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 17. ágúst 1975 ERTU MEÐ ÞRIFNAÐARÆÐI? Við teljum vist flest að þrifnaður sé hinn mesti kostur, enda hefur a.m.k. kvenfólk lengi verið metið eftir þvi hvort það er „myndalegt”, „húslegt”, eða „snyrtilegt”, og hvort heimili þess sé ryklaust og hvitskúrað. En þrifnaður er ekki alltaf dyggð, heldur getur hann verið einkenni mjög. alvarlegrar tauga- veiklunar, sem á sér orsakir ein- hvers staðar annars staðar, og brýst fram i ódrepandi þrifnaðar- æði. Það er sænski sálfræðingur- inn Eva Káre sem heldur þessu fram, en hún hefur kynnst mörg- um slikum tilfellum i starfi sinu. „Þrifnaðaræði hefur alltaf verið til, en þjóðfélagið hefur ákveðið á hverjum tima hvað er eðlilegt og hvað ekki i þvi sam- bandi. Það er þó óhætt að segja, að til þess að fólk geti gert sér grein fyrir hvort það sé haldið þessari tegund taugaveiklunar, eða hvort einhver andleg veikindi þess brjótist fram á þennan hátt, þurfi það fyrst og fremst að spyrja sjálft sig, hvort þrifnaður þess valdi þvi sjálfu eða einhverj- um öðrum óþægðindum. Ef maður sjálfur eða aðrir liða beinlinis fyrir þrifnaðinn, t.d. börnin eða makinn, þá er vissara að fara að athuga sinn gang. Þess eru dæmi að konur hafi sópað mönnunum I bókstaflegri merkingu út úr hjónabandinu og hvitþvegið sjálf- stæði og athafnaþrá gersamlega af börnunum,” segir Eva og bætir við: „Auðvitað er þetta ekki kynbundið vandamál að öðru leyti en þvi, að það er algengara ennþá að konur sjái um heimilin og að heimilið sé þeirra „stöðutákn”. Konur, sem eru ósjálfstæðar og óánægðar með sjálfar sig, fá þvi oft mikla útrás i þvi að finna sig ómissandi i baráttunni við rykkornin og það getur á endanum orðið mjög sjúklegt. Það er hins vegar algengara að karlmenn fái útrás i að pússa bilinn sinn. Það er hreint ekki óalgengt að menn sýni bilun- Gættu þín, því þrifnaður er ekki alltaf sú sanna dyggð sem við höldum að hann sé heldur kannski einkenni alvarlegrar taugaveiklunar um sinum meiri umhyggju en börnunum.” Mörgum finnst mjög leiðinlegt að taka til og nota það sem eins konar refsingu á sjálfa sig, þegar þeir hafa samviskubit, t.d. vegna heimilisins. Tiltektir eru kannski svona leiðinlegar vegna þess hversu tilgangslausar þær virðast. Það kemur jú alltaf nýtt og nýtt ryk og Eva segir að þetta starf sé þess vegna illa til þess fallið að byggja upp sjálfsvitund fólks. Þar að auki eru heimilis- störf ólaunuð og starfið litils metið á vinnumarkaðinum, þótt það sé launað (hreingerningar hjá fyrirtækjum o.s. frv.) En enginn kemst þó hjá þvi að taka til eða á fólk bara að láta allt drabbast upp i skit og volæði? „Nei,” segir Eva. „Það sem skiptir mestu máli er að fólk læri að lita á þetta sem nauðsynlegt starf sem þarf að vinna. Ekki vegna þess að starfið eigi að sýna einhverjum dulda hæfileika manns eða að maður standi jafnfætis nágrannanum og ekki heldur til þess að fá útrás fyrir andlega ófullnægingu. Hana- verður að takast á við á öðrum vettvangi. Þess vegna á þetta ekki að vera starf einnar mann- eskju á heimilum, heldur allra, barnanna lika. Þau hafa ekki betra af að lita á móður sina sem þjónustu, en maðurinn á eigin- konuna. Ef allir skipta þessu með sér, verður verkið mun léttara og óliklegra að það valdi þeim erfið- leikum, sem þaö getur valdið einni manneskju.” þs Montserrat Caballé; óperustjórarnir munu alltaf láta undan Stórstjörnurnar syngja ekki nema fyrir miljón króna Fyrir nokkru komu óperuforstjórar frá ýms- um þjóðlöndum saman í Flórens. Á fundi þeirra var grátur og gnístran tanna. Þeir kvörtuðu sáran yfir því, að mafía heims- frægra söngvara væri al- veg að leggja þá í gröfina með miklum kaupkröfum. Tölur þær sem nefndar eru i þessu sambandi eru reyndar mjög háar. Sópransöngkonurnar Birgit Nilsson og Joan Sutherland vilja fá sem svarar 20 þúsund þýskum mörkum fyrir eitt ein- asta kvöld. Miðað við núverandi gengi eru þetta 1,3 miljónir króna. Það ætti að nægja fyrir salti i grautinn. A lista yfir hæstlaunaða söng- vara eru sópransöngkonur i sex efstu sætum — m.a. Leontyne Price, (18 þúsund mörk á kvöldi) og Montserrat Caballé. (18 þúsund). I 16—18 þúsund marka flokki eru tenórarnir Placido Doming og Nicolai Gedda og bassinn Ghaiurov er metinn á 15—17 þúsundir marka. óperustjórarnir samþykktu að koma á hámarksverðskrá, en fróðir menn telja, að hún muni að engu höfð þegar til kastanna kemur. Það er mikil eftirspurn eftir stórstjörnum söngsins og þær geta ráðið kjörum sinum. Stærsta sjúkrahúsið fyrir krabbameins- sjúklinga í Moskvu Moskvu (APN) Byggingu stærsta sjúkrahúss i heimi fyrir krabbameinssjúklinga er nú svo langt komið i Moskvu, að það mun taka á móti fyrstu sjúkling- unum á þessu ári. Á sjúkrahúsinu verða yfir 1000 sjúkrarúm, og þar verður einnig hægt að taka á móti þúsundum sjúklinga til skoðunar og daggöngumeðferðar. Stofnun- in verður búin öllum nauðsynleg- um rannsóknarstofum til þjónustu við sjúklinga og til rann- sóknarstarfa. Starfslið stofnunarinnar mun leggja höfuðáherslu á fyrirbyggj- andi aðgerðir og timanlega greiningu sjúkdómsins. Meira en hálf miljón manna i Sovétrikjun- um hefur fengið meðferð við krabbameini með jákvæðum árangri, en það eru þvi miður enn margir, sem þá fyrst leita læknis- hjálpar, er þróun sjúkdómsins er komin á of hátt stig. Bygging nýja sjúkrahússins er fjármögnuð með tekjum af eins dags frjálsu vinnuframlagi alls þorra allra vinnufærra manna i landinu. Krabbameinsmiðstöðin mun fá senda sjúkl. til meðferðar frá alls um 300 krabbameinseftirlits- stöðvum, dreifðum um öll Sovét- rikin. Rannsóknarstarfsemi sem fram fer á vegum Meinafræði- stofnunarinnar. Snar þáttur i þessari starfsemi verða rann- sóknir á lyfjum tii notkunar gegn krabbameini. A rannsóknarstofum stofnunar- innar mun starfa alls um 700 manns að þvi að framleiða og gera tilraunir með mótefni gegn krabbameini, á fyrsta stigi með frumu- og vefjaræktun, á næsta stigi með tilraunasýrum og á lokastigi með tilraunum á mönn- um.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.