Þjóðviljinn - 02.09.1975, Síða 9
Þriöjudagur 2. september 1975. ÞJÓDVILJINN — StÐA 9
ÍA íslandsmeistari
Sigraði ÍBK í síðasta
leik sínum með
einu marki gegn engu
Akurnesingar nældu sér í
islandsmeistaratignina í
síðustu umferð einhvers
mest spennandi íslands-
móts sem menn muna.
Þeir sigruðu ÍBK með einu
marki gegn engu og skor-
aði Matthías Hallgrímsson
eina mark leiksins á 10.
mín. síðari hálfleiks úr
vítaspyrnu.
Þefta er í níunda sinn
sem lið ÍA hlýtur þennan
titil og núna annað árið í
röð sem bikarinn f er upp á
Skipaskaga. ÍA tapaði 9
stigum á þessu keppnis-
tímabili, hlaut 19 stig í 14
leikjum en í fyrra hlaut lið-
ið 23 stig. Úr fyrstu f jórum
umferðunum fengust ekki
nema 4 stig og 3 stig töpuð-
ust í 9. og 10. umferð. Síðan
kom óvænt tap fyrir Val í
13. umferð mótsins og sig--
urinn i ár var því naumari
en oftast áður. Hefur ís-
landsmótið ekki unnist á
minna en 20 stigum f rá því
f jölgaðvar Í8 lið í deildinni
enda var mótið tvísýnna og
skemmtilegra en oftast áð-
ur.
Það viðraði ekki vel til knatt-
spyrnuiðkunar á Akranesi sl.
laugardag. Rok og grenjandi
rigning gerði leikmönnum erfitt
fyrir og fyrri hálfleikurinn leið án
nokkurra verulegra tækifæra. Þó
var tA allan timann sterkari,
meira með boltann og skapandi
sér þau færi sem á annað borð sá-
s ust.
Eina markið kom eftir umdeilt
atvik á 10. min. eftir hlé. Fyrir-
gjöf kom fyrir mark ÍBK og Gisli
Torfason kastaði sér fram til að
skalla frá. Mörgum til nokkurrar
furðu flautaði dómarinn, Bjarni
Pálmason, og benti á vitapunkt-
inn. Taldi hann og linuvörðurinn
einnig að boltinn hefði snert hendi
Gisla. Matthias tók spyrnuna og
skoraði af öryggi.
Þrisvar sinnum oftar lá boltinn
i marki ÍBK en i öll skiptin voru
mörkin dæmd af. Þótti ógilding
a.m.k. eins þeirra nokkuð vafa-
samur dómur en þá skoraði Jón
Alfreðsson með skalla og var
dæmdur rangstæður.
1 liði Islandsmeistaranna áttu
landsliðsmennirnir allir góðan
dag. Mest bar á fyrirliðanum,
Jóni Alfreðssyni auk þeirra Karls
Þórðarsonar, Matthiasar og Jtns
Gunnlaugssonar.
Keflvikingarnir voru með Þor-
stein ólafsson sem langbesta
mann og varði hann oft meistara-
lega. Einnig kom Gisli Torfason
vel frá sinu en óheppni hans i
sambandi við vitaspyrnudóma
hefur verið með fádæmum i sum-
ar.
—gsp
KR-ingar fljóta
með í 1. deild
Sigruðu IBV í botnleiknum með einu marki
gegn engu og tryggðu Tony Knapp um leið
farseðil með landsliðinu
Enn einu sinni náðu KR-ingar
að forða sér úr fallhættunni á ell-
eftu stundu og ekki er óliklegt að
margur landsliðsmaðurinn og
forystumenn knattspyrnumála
hafi varpaö öndinni léttar þegar
Magbnús Pétursson fiautaði 1-0
leik KR og IBV af. A þessum leik
valt það hvort iandsliösþjálfar-
inn, Tony Knapp, kæmist með
landsliðinu i kcppnisferðina sem
lagt var upp i i gærmorgun. KR
varð að vinna til þess að forða sér
frá aukaleik við Þrótt um 1. deild-
arsæti og það tókst þótt vissulega
gengi á ýmsu undir lok siðari
hálfleiks. Vestmannaeyingar
sóttu þá stift, en ekki skipulega að
sama skapi og þvi án árangurs. 1
héild verða KR-ingar að teljast
betri aðilinn, þeir léku af meiri
Skynsemi og taugarnar stóðust
það sem á þær var lagt á siðustu
minútunum.
Eina mark leiksins kom á 18.
min. fyrri hálfleiks. KR lék á und-
an vindi og hafði komið öllu sterk-
ara út. Leikið var stift til þess að
skora mörk og hafa forystu og
þótt IBV leggði áherslu á að halda
Víkingur skoraði
en FH spilaði!
Tvö mörk á fyrstu fimm mínútum
síðari hálfleiks dugðu til sigurs
Tvö mörk á fyrstu fimm minút-
unum i siðari hálfleik FH og Vik-
ings ráðu úrslitum I þeim leik.
Stefán Halldórsson skoraði fyrra
mark Vikings á fyrstu min. og
Gunnar örn það siðara á fimmtu
minútu.
Vikingur lék undan sterkum
vindi i fyrri hálfleik og er
skemmst frá þvi að segja að ná-
kvæmlega ekkert markvert gerð-
ist á þeim tima. Það var ekki fyrr
en eftir hlé að til tiðinda dró.
Óskar Tómasson sendi boltann
frá miðju i átt að marki. Fyrir fá-
dæma misskilning varnarmanns
og ómars markvarðar skoppaði
boltinn i gegnum fætur þeirra
beggja og inn að vitapunkti þar
sem Stefán Halldórsson, sem
fylgdi vel eftir, þurfti ekki annað
en að ýta honum i netið.
Fimm min. siðar sendi Gunn-
laugur Kristfinnsson boitann frá
hægra kanti inn að marki FH. Þar
var Gunnar örn fyrir og skoraði
með skalla 2-0 og fannst manni að
ómar hefði e.t.v. getað blandað
sér i málið af meira harðfylgi.
FH-ingar sóttu eftir þetta mun
meira en Vikingur enda á undan
vindi og andstæðingurinn farinn
að draga sig i vörn. Framlinu-
menn hafnfirðinga voru oft léttir
á sér og léku skemmtilega saman
á köflum. Sýndu þeir það eina af
samspili sem sást i þessum leik.
—gsp
hreinu út hálfleikinn tókst ekki að
koma i veg fyrir eitt mark sem
átti siðan eftir að verða sigur-
markið i þessum þýðingarmikla
leik.
Það var Halldór Björnsson,
besti maður KR i þessum leik
sem markið gerði. Hann fékk
boltann töluvert fyrir utan vita-
teig og skaut þrumuskoti i átt að
marki. Boltinn stefndi i hægra
markhornið og Ársæll fleygði sér.
Á miðri leið rakst hann hins vegar
i varnarmann IBV, gjörbreytti
stefnu og skoppaði i vinstra
markhorn án þess að Arsæll hefði
nokkur tök á að koma vörnum
við.
Vesturbæingarnir fögnuðu á-
kaft en hefðu þót trúlega gert enn
betur ef þeir hefðu vitað að þetta
yrði eina mark leiksins. Þeir
sóttu án afláts undan vindinum,
staðráðnir i að bæta fleiri mörk-
um við áður en þeir þyrftu að
glima við veðurguöina lika. Hálf-
dán örlygsson átti skot ofan á
þverslá úr hornspyrnu og Guð-
mundur Jóhannesson var i góðu
færi á 34. min. en skaut yfir. Vest-
mannaeyingar áttu siöasta orðið
fyrir hlé. örn Óskarsson fékk
boltann inn fyrir og stóö á mark-
teigshorni með Magnús einan fyr-
ir framan sig. Magnús hikaði i út-
hlaupinu en tókst þó að verja á
siðustu stundu.
KR byrjaði af miklum krafti
eftir hlé og sótti mun meira en
vestmannaeyingar. Atli Þór átti
gullfallegt skot úr erfiðri aðstöðu
sem Arsæll varði naumlega. En
ekkert lið getur keyrt stanslaust
af þeim krafti sem KR notaði i
byrjun og smám saman snerist
dæmið við. Hver sóknarlotan rak
aðra hjá IBV og Ólafur Sigurvins-
son, langbesti maður eyjamanna
i siðari hálfleiks byggði upp þung-
ar og hættulegar sóknarlotur.
Stefán örn Sigurðsson bjargaði
á marklinu fyrir KR eftir að Har-
Framhald á bls. 10.
GSP til Frakk-
lands og
í gærmorgun lagði Gunnar
Steinn Pálsson upp I ferð til
Frakklands og Belgiu á veguni
Þjóðviljans til að fvlgjast þar
með leikjum Islands i Evrópu-
keppni landsliða. Mun liann senda
Belgíu
frétir heim frá Frakklandi og
landsleiknuni þar. sem fram fer
anúaðkvöld. Einnig er ráðgert að
fá hringingu frá Belgiu á föstudag
um landsleikinn sem þar fer fram
nk. laugardag.
Segir Erlendur Valdimarsson
sem náöi Ol-lágmarkinu
Erlendur Valdimarsson náði Olympiulágmarkinu i kringlukasti á
kastmóti Skautafélags Reykjavikur sem fram fór á Laugardalsvelli
i siðustu viku. Kringlan flaug 59 metra sem er einum og hálfum
metra lengra en lágmarkið.
A þessu móti kepptu margir aörir kastarar og náðist viöa ágætur
árangur og þar á meöal persónuleg met hjá Óskari Jakobssyni og
Guðna Halldórssynri kringlukasti.
„Vonast til að
ná yfir 60
metra í haust”