Þjóðviljinn - 21.09.1975, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. september 1975.
Ef þér eigið leið til höfuðborgarinnar, i verslunarerindum,
í leit að hvíid eða tilbreytingu, þá býður Hótel Esja gott
tækifæri til þessara hluta. Gisting á Hótel Esju er ekki
munaður, heldur miklu fremur sjálfsögð ráðstöfun, Hótel
Esja er I allra leið. Strætisvagnaferðir I miðbæinn á 10
mlnútna fresti, svo að segja frá hóteldyrunum. Opinberar
stofnanir, sundlaugarnar og fþróttahöllin I Laugardal,
skemmtistaðir og verslanir eru I nágrenninu, og síðast en
ekki síst: Við bjóðum vildarkjör að vetri tij.
Velkomin á Hótel Esju
n
Suðurlandsbraut 2, Sími 82200.
Þröstur Magnússon
Nei, þetta er nú
íþaðgrófasta..!
Golf garn er ný tegund garns frá
Gefjun, grófari en aðrar geróir handprjóna-
garns, sem framleiddar hafa verið.
Golf garn er vinsæit efni í jakkapeysur,
hekluð teppi og mottur.
Mjúkt og þægilegt viðkomu og sérlega
fljótlegt aö prjóna úr því. Úrval lita.
Golf garn, það grófasta frá Gefjun.
AKUREYRI
» 1 áðt' I ’• i I »• ; ''Afe? „
Afsakið kæru hjón, hafið þið séð
grimmt Ijón fara fram hjá.
ESBBBIO HHH I
ALFNAÐ ER VERK
ÞÁ HAFIÐ ER
K SAMVINNUBANKINN
Frá búnaðarþingi. „Ekki geta konur verið svo lengi að heim an”!
Að loknum Stéttarsambandsfundi:
Konur inn í
bændastétt
Nú hefur bændastéttin
loksins sýnt konum virð-
ingarvott í verki. Auðvitað
hafa bændakonur sem aðr-
ar konur fengið að heyra
um ágæti sitt í ræðum í
stílnum móðir-kona-
meyja, en þær hafa ekki
haft aðgang að stéttarfé-
lagi sem gætti hagsmuna
þeirra.
Á fundi Stéttarsambands
bænda, sem haldinn var ekki alls
fyrir löngu, var samþykkt að
makar bænda fengju kosninga -
rétt og kjörgengi til Stéttarsam-
bandsfunda. Til þess að geta not-
að þennan rétt verða bændakonur
að vera i búnaðarfélögum. Næsta
skrefið er þvi, að Búnaðarþing á-
kveði, að bændakonur fái aðild og
full réttindi innan búnaðarfélaga.
t dag geta konur gengið i búnað-
arfélög, en ef þær eru giftar
bændum hafa þær ekki kosn-
ingarrétt, með undantekningum
þó, þvi að það ku finnast félög,
sem leyfa bændakonum að greiða
Agústa. Ekki var það tal beinlinis
málefnalegt.
atkvæði, ef sannað er að bændur
þeirra séu fjarverandi.
Ég tel að töluvert vinnist með
þessari samþykkt, ýtt verður á
Búnaðarþing og einnig munu um-
ræður vakna i sveitum um málið.
bóttist ég heyra það á Laugar-
vatni á Stéttarsambandsfundin-
um, að fjöldi fólks i sveitum hefði
aldrei hugsað um stöðu bænda-
kvenna i nútimalandbúnaði. Ekki
þóttu mér allar þessar umræður
málefnalegar — til gamans læt ég
fylgja nokkrar setningar.gripnar
upp í einkasamtölum og á fundin-
um:
Framhald 'á 22.
ORÐ
í
BELG
Ihohlspiegeu
Ein Gcricht im US-Bundesstaat Massa-I
chusctts sprach cincn dcr Prostitutionl
angcklagtcn Masscur mit der Begriin-'
dung frcí: „Ein Mann kann wegen Pro- y
stitution nicht vcrurteilt wcrdcn, wcil J
das rcinc Fraucnarbcit ist.“
Orðabelgi hafa borist tvö
bréf frá Rauðsokkum. Hið
fyrra er á þessa leið:
„HREINT KVENNA-
STARF"
Þýska ritið Spiegel birtir i
hverju hefti á sérstökum stað,
sérkennilegar eða fyndnar
auglýsingar, fréttir og þvi um
likt, nokkurskonar „Klippt og
skorið” þeirra Spigelmanna.
1 heftinu frá 28. júli 1975 var
stórkostleg frétt.
Sagt varfrá þvi, að dómstóll
einn i Massachusetts, Banda-
rikjunum, hafi sýknað karl-
mann nokkurn, sem var nudd-
ari að atvinnu, af þvi að
stunda vændi.
Röksemdin fyrir sýknuninni
var sú, að það væri ekki hægt
að dæma karlmann fyrir að
stunda vændi, þar eð vændi
væri kvennastarf (weil das
reine Frauenarbeit ist). Já,
það virðist sv > sannarlega
vera erfittá ölluö vigstöðvum
að hrófla við hugmyndum um
hvað séu kvennastörf og hvað
karlastörf!
„GULLFALLEGAR
NEGRASTÚLKUR"
Þann 28. ágúst sl. hljómaði
þessi eftirtektarverða auglýs-
ing i útvarpi:
„Tvær gullfallegar negra-
stúlkur i Festi”.
Hvaða stúlkur voru þetta?
Hvað skyldu þær heita? Hvað
voru þær að gera i Festi?
Hvaða starf skyldu þær
stunda?
í auglýsingunni koma fram
þessar upplýsingar:
1. Hér er um kvenkynsverur
að ræða
2. Þær eru svartar
3. Þær eru gullfallegar.
Að vera gullfallegur er i
okkar samfélagi. metið fyrst
og fremst sem kvenlegur eig-
inleiki. Enda rökrétt að karl-
mannasjónhorn riki I karl-
mannaveldi.
Ég held að auglýsing sem
þessi gæti aldrei hljómað i út-
varpinu:
„Tveir gullfallegir negra-
strákar i Festi, Grindavik”.
Enn óliklegri virðist mér
auglýsingin svona:
„Tveir gullfallegir hvitir
strákar i Festi, Grindavik”.
En stenst auglýsingin
svona?
„Tvær gullfallegar hvítar
stelpur i Festi, Grindavik”
Þetta minnir mig nú bara á
hvita þrælasölu. Og skyldi
svona auglýsing geta hljómað
i útvarpinu? Ég veit ekki.
Mundi hvitum stelpum vera
boðið upp á svona nokkuð?
Astæðan fyrir þvi, að þessar
stúlkur eru auglýstar á svo
niðurlægjandi hátt sem starfs-
lausar, nafnlausar kynverur
tel ég vera þessar:
1. Þær eru þeldökkar
2. Þær eru kvenmenn.
Ég ætla að láta lesendur
hornsins um frekari hugleið-
ingar og niðurstöður af orðum
minum. En vil segja I lokin:
Það er rikisútvarpinu til
skammar að láta auglýsingu
sem þessa fara i gegn. En i
rauninni undrar mig það ekki
svo mjög, að hún skuli hafa
heyrst úr útvarpi. Hún skaðar
engan peningalega séð, hún er
hinsvegar skaðvaldur á
manneskjum.
TILBRIGÐI VIÐ
ÞRÓUNARKENN-
INGUNA
Og áður en við setjum botn i
orðabelg að þessu sinni skul-
um við vitna i ummæli ein-
hvers spakvitrings i danska
blaðinu Berlingske Tidende:
„Ég held að mörg vandamál
hafi orðið til vegna þess, að
konurnar risu upp á afturfæt-
urnar”.