Þjóðviljinn - 21.09.1975, Blaðsíða 20
20 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2t. september 1975.
glens
Eitt atómorkuver
og tvær þjóöir
Belgisk áætlun um uppbygg-
ingu atómorkustöðva hefur nú
stöðvast um hrið vcgna deilna
milli vallóna og flæmingja, hinna
tve8gja Þjóða landsins.
Svo er mál með vexti, að rikis-
stjórnin hafði, til þess að verða
við kröfum umhverfisverndar-
manna, áformað að reisa atóm-
raforkuver úti á eyju einni.
Ströndin er svæði sem er byggt
flæmingjum, og þvi segja vallón-
ar, að atómstöðin muni fyrst og
fremst verða þeim til atv.bóta.
Hinsvegar er atvinnuleysi um
þessar mundir meira i suðurhluta
landsins, sem byggður er vallón-
um, og fulltrúar þeirra kröfðust
þvi þess, að byggt yrði á tveim
eyjum en ekki einni, til þess að
með framkvæmdum þessum
sköpuðust jafnir atvinnumögu-
leikar fyrir flæmingja og vallóna.
Andstæðingar þessarar hug-
myndar héldu því hinsvegar
fram, að þar með væri boðið upp
á tviverknað og tvöföld útgjöld i
mörgum greinum. Sunnlendingar
komu þá með þá gagntillögu, að
mannvirkinu yrði skipt i tvennt
með múrvegg, og skyldu flæm-
ingjar vinna öðrummegin en
vallónar hinummegin.
Kennarinn: Hvers vegna get ég
staðhæft,. að þessir þrir punktar
myndi rétta linu?
— Af þvi að þú ert reiknings-
kennari.
Sveinbjörn Guðmundsson send-
ir okkur linu og segist hafa farið
ásamt eiginkonu sinni, henni
Þóru, á italska sólarströnd i
fyrrasumar, Liniano eða eitthvað
svoleiðis. Það er illlæsilegt i bréf-
inu, enda er það handskrifað. En
hvað sem þvi liður segist hann
hafa farið á veitingahús og fengið
þar rétt sem hét á matseðlinum
„Poulet á la Ferrari”. Þetta var
mesti gæðamatur og þegar þau
hjónin spurðu hvað þetta hefði
verið, sagði þjónninn:
— Kjúklingur sem varð undir
sportbil.
Það er auðvelt að fá byssuleyfi i
Ameriku. Nýlega var maður eft-
irlýstur þar i landi fyrir ótal
vopnuð rán. Astæðan sem til-
greind var i byssuleyfinu hans
var : „Ber oft á sér háar fjárhæð-
ir”.
Eins og guð og menn vita eru
tveir inngangar i karlmanna-
deildina i himnariki. Yfir öðrum
dyrunum stendur HLIÐ A og yfir
hinum HLIÐ B, svona svipað og
nýja skipulagið i tollinum á
Keflavikurflugvelli.
Einn daginn þegar nýr hópur
karlmanna kom frá jörðinni steig
Góði hirðirinn.
sánkti Pétur fram með hljóðnema
i höndum og kunngjörði:
— Þá erum við reiðubúnir til
sundurgreiningar og móttöku
ykkar. Allir þeir sem hafa verið
kúgaðir af konunum sinum i lif-
anda lifi raði sér við hlið A. Hinir
við hlið B.
Það varð múgur og margmenni
fyrir framan hlið B. Mikið masað
o'g gert að gamni sinu. Nei, þeir
höfðu sko ekki verið kúgaðir
af kerlingunni....
Aðeins einn litill og hlédræg-
ur maður stillti sér upp fyrir utan
hlið A og sánkti Pétur kallaði til
hans:
— Heyrðu, ertu viss um að kon-
an hafi kúgað þig?
— Það veit ég ekki. Hún bara
sagði mér að standa hér!
Það vita kannski ekki allir, að
það eru miklu fleiri karlar en
konur i laxveiðinni. Hvers vegna?
Jú, það skulum við segja ykkur.
Þær hafa um miklu nauðsynlegri
hluti að ýkja...
Tveir englendingar létu sig
reka niður eftir Nilarfljóti i bát-
skel. Vegna hitans létu þeir fæt-
urna dingla út yfir i vatnið. Þeir
gláptu upp i himininn, og skyndi-
lega segir annar þeirra:
— Heyrðu, það beit krókódfll af
þér fótinn rétt áðan.
— Hvurt i glóandi! Hveða?
— Það er erfitt að segja. Þeir
eru hver öðrum likir þessir and-
skotar.
Eftir að Vera gekk i hjónaband
missti hún alla ánægjuna af kyn-
lifinu. Hún lá i eilifri hræðslu um
að eiginmaðurinn kæmi óvænt
heim..,
— Drottinn minn dýri, Karl! 1
hvert einasta sinn sem ég bið um
peninga fyrir nýjum kjól fæ ég
þetta sama svar!
— Þó það nú væri. Þetta er allt-
af sama spurningin.
Ég er hræddur um að ég hafi
blásið hana of kröftuglcga út.