Þjóðviljinn - 21.09.1975, Síða 3
Sunnudagur 21. september 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3
Dvergur segir frá í „l,34m”
Jean Brissé heitir einn af
þekktari lögfræðingum Frakk-
lands, doktor i sfnu fagi. Mikils
metinn maður, nú rúmlega
sjötugur, og mundu flestir telja lff
hans nokkuð farsælt. Svo hefur þó
ekki verið: Jean Brissé er nefni-
lega dvergur, og mátti lengi
framan af ævi óspart kenna á
hatri jafnt barna sem fullorðinna
á þeim sem eru „öðruvísi”. Frá
þessu segir hann í sjálfsæfisögu
sinni, sem mikla athygli hefur
vakið. Hún heitir „Einn metri
þrjátiu og fjórir sentimetrar”.
Útskúfun
„Ég er aðeins fimm ára en þá
þegar útskúfaður” segir Brissé
um bernskuár sin. Hann fékk ekki
að leika sér með öðrum börnum,
ekki nema með þvingaðri vor-
kunnsemi af þeirra hálfu, sem
gerði illt verra.
Það var um þetta leyti, árið
1907, að læknar reyndu að rétta úr
hinum bognu fótum drengsins.
Hann var bundinn niður i rúm og
mikill þungi hvildi á fótum hans
dag og nótt. Læknastúdentar
komu i heimsókn: hann var sjald-
gæft tilfelli. Eftir þriggja mánaða
pislir urðu læknar að gefast upp
við þessa fánýtu tilraun.
Um tiu ára aldur hafði Jean að
mestu leitað athvarfs i gervi-
heimi þar sem bækur voru hans
einu vinir.Oft átti hann sæmileg-
ar stundir i kennslustundum — þá
faldi hann sig áaftasta bekk með
þeim hætti að bekkjarfélagar
hans gleymdu honum. Hinsvegar
arfélagans, sem til þessa hafði
horft afskiptalaus á, á Jean, kast-
aði honum til jarðar og æpti:
Móðir þin hefði átt að kála þér um
leið og þú fæddist”!
„Ég skil það ekki ennþá” seg-
ir i ævisögunni, „að flestar mann
eskjur láta uppi einskonar með-
fæddan ótta þegar þær standa
andspænis skopmynd af sjálfum
sér. En nú veit ég að fegurð heill-
ar, en ljótleiki þrúgar.”
Dag nokkurn þegar Jean hafði
rétt einu sinni enn fengið slæma
einkunn fyrir verkefni sem hann
hafði leyst rétt, stóð dvergurinn
upp og mótmælti titrandi af reiði.
Kennarinn svaraði: Allt sem frá
þér kemur er illt og bjagað!
Drengurinn hljóp án þess að
segjá orð upp á fimmtu hæð i
skólahúsinu, reif upp glugga og
skreiðupp á gluggakistuna. HUs-
vörðurinn kom á siðasta andar-
taki i veg fyrir að hann henti sér
niður.
bættu þeir sér þessa gleymsku
upp á heimleiðinni þeim mun
rækilegar: „Oft dönsuðu þeir eins
og höfuðleðrasafnarar i kringum
mig, skirptu á mig og æptu i kór:
Litill dvergur, litill dvergur!’
Sigrar
Þessi „ljóti” Jean reyndi að
mæta öllu þessu ofbeldi með þvi
að skara fram Ur. Hann las meira
og lengur og af meiri einbeitni en
aðrir. Hann fékk verðlaun
fyrir lokaprófsritgerð sina i
menntaskóla — hún var um
Napóleon keisara sem var svo-
sem enginn risi heldur, 151 cm á
hæð.
„Þetta var fyrsti ljósi punktur-
inn i lifi minu”, segir i ævisög-
unni. Sá næsti var doktorsprófið,
Framhald á 22. siðu.
Brissé og koaa hans: Farsælt
hjónaband i þrjá áratugi.
Sjálfs-
æfisaga
Jean Brissé
Jean Brissé er nú á eftirlaunum ogbýrismábæi Pyreneaf jöllum.
Grimmd
Hann komst einnig að þvi, að
fullorðið fólk stóð ekki börnum að
baki að grimmd. Þegar hann einu
sinni stóðst ekki mátið og gaf ein-
um af kvölurum sinum úr bekkn-
umá smettið, réðist móðir bekkj-
Snnna
býður allt það besta á
Kanaríeyinm
FERÐASKRIFSTOFAN SONNA
Læhjargötu 2 símar 16400 12070
NÚ FARA ALLIR MEÐ SUNNU TIL KANARÍEYJA
Sunnuferðir eru ekki dýrari en aðrar Kanarieyjaferðir þrátt fyrir
beint dagflug með stórum glæsilegum Boeing þotum. Flugtíminn
er aðeins 5 klukkustundir. Dagflug á laugardögum. Sunna býður
farþegum sínum hótel og íbúðir á vinsælustu baðströndinni, Playa
del Ingles.
Þar er loftslag og hitastig hið ákjósanlegasta yf ir vetrarmánuðina,
þegar skammdegið og rysjótt veðrátta er sem mest hjá okkur.
Farþegar Sunnu eiga kost á að velja á milli bestu hótelanna, íbúð-
anna og smáhýsanna (bungalows) sem Sunna hefur á Kanaríeyj-
um. Eigin skrifstofa Sunnu, með þjálfuðu íslensku starfsfólki, á
Playa del Ingles, veitir farþegum Sunnu, öryggi og þjónustu,
skipuleggur skoðunarferðir, og er farþegum innan handar á allan
hátt.
Fáið bækling um Kanaríeyjaferðir Sunnu á skrifstofunni að Lækj-
argötu 2, og pantið ferðina strax, þvf mikið hef ur bókast nú þegar.
’ /