Þjóðviljinn - 21.09.1975, Page 4

Þjóðviljinn - 21.09.1975, Page 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 21. september 1975. MOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSlALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Ctgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: EiBur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meB sunnudagpblaBi: Arni Bergmann Ritstjórn, afgreiBsla, auglýsingar: SkólavörBust. 19. Slmi 17500 (5 linur) Prentun: BlaBaprent h.f. FJÖLÞJÓÐAHRINGAR IBM OG ALÚSVISS íslendingar hafa fengið nokkur kynni af erlendum auðfélögum af þvi tagi sem hlotið hafa heitið „fjölþjóðafélög” i um- ræðu siðustu ára. Hér fyrrum voru slik fé- lög einfaldlega kölluð auðhringar eða ein- okunarhringar i orðabók sósialista, og vissulega eru þau orð góð og gild. En hið nýja heiti á hringunum hefur öðlast al- mennan þegnrétt og það er til vitnis um gagnrýna afstöðu til fyrirbæranna. Það fylgir þvi nokkur skilningur á þvi að félög þessi eiga i rauninni hvergi heima, skjóta sér undan lögsögu hvers þjóðrikis, en einnig er viðurkennt að þau eru annars eðlis en það sem átt er við með orðinu ,,al- þjóðlegur”. Þarna er nefnilega ekki um að ræða samtök þjóðrikja né millilandavið- skipti á þjóðrikjagrundvelli. Sósialistar hafa löngum lýst þessu með þvi að segja að „auðmagnið eigi sér ekkert föður- land”. Starfsemi fjölþjóðahringanna er orðin að stjórnarfarslegu vandamáli um allan heim, einnig i löndum þar sem hagkerfið hvilir á auðvaldsgrunni, en i slikum lönd- um eru hringarnir vitanlega upprunnir og þar hafa þeir bækistöðvar. Fjölþjóða- hringarnir eru eins og margfætt dýr sem getur flutt þungann af einum fæti á annan eftir þvi hvar best er að stiga niður. Það er ekki hægt að taka á fjölþjóðahringnum i einu landi nema það sé gert um leið i öll- um þeim löndum þar sem hann stendur fótum. — Fjölþjóðahringur hefur yfirleitt vaxið út úr einhverju stóru auðfélagi, oftast bandarisku, en stundum orðið til fyrir samtök eða samruna félaga. Hringurinn hefur einatt margar stjórnstöðvar með boðkerfi sem ekkert opinbert eftirlit nær til. Fjármunir hans eru á sifelldri hreyf- ingu milli landa, og um afkomu hringsins verður ekki dæmt eftir afkomu þeirra bókhaldseininga sem skráðar eru i ein- stökum löndum. Skattaflótti og gjaldeyrisbrask eru þvi ær og kýr fjölþjóðahringa, og það er þetta sem er áhyggjuefni fjármálaráðuneyta og þjóðbanka um viða veröld. Af þessum sök- um starfa Sameinuðu þjóðirnar nú að skýrslusöfnun um fjölþjóðahringa og má búast við stormasömum alþjóðaráðstefn- um i kjölfar þeirra skýrslna. íslendingar hafa nú fengið þann for- smekk af f jölþjóðahringum að þeir ættu að geta lagt eitthvað af mörkum á slikum ráðstefnum. Hér starfa útibú frá tveimur fjölþjóðahringum og algerlega i eigu þeirra. Annað er vinnslu- og sölufyrirtæki bandariska tölvuhringsins IBM, hitt er ál- bræðslan i Straumsvik. Báðir hringarnir eru fjölþjóðlegir þótt aðalstöðvarnar séu taldar vera i þeim löndum þar sem þeir eru upprunnir, Bandarikjunum og Sviss. En i báðum tilvikum er jafn erfitt að segja hvar heilabúið er, að ekki sé talað um pyngjuna. „IBM á Islandi” er algerlega erlent fyrirtæki en hefur umfangsmikinn at- vinnurekstur. Starfsemi þess er á hugvits- samlegan hátt samtvinnuð opinberum rekstri, og svo einkennilega vill til að I kringum starfsleyfi þess hérlendis hafa ekki verið sett nein lög. Ekki er vitað um neinar sérstakar takmarkanir á starfsemi þess, og hefur reyndar heyrst að þetta úti- bú njóti sérstakra gjaldeyrisfriðinda um- fram islensk fyrirtæki. Það er raunar eitt einkennið á útibúum fjölþjóðahringanna hvað þau eru slungin að öðlast friðindi og sérstaka aðstöðu. Þannig var með álbræðsluna i Straumsvik sem reist var hér samkvæmt sérstökum undanþágulögum i tið „viðreisn- ar”-stjórnarinnar. Álbræðslan nýtur stór- kostlegra skattfriðinda, fær rafmagn á niðurgreiddu verði, var i upphafi undan- þegin lágmarksmengunarvörnum og hef- ur engar skyldur til að hlýða islenskum lögum eða dómstólum. íslendingar eru bundnir óuppsegjanleg- um samningi við álhringinn um fast raf- magnsverð til 1997 og fyrirkomulag um skattgjald sem liggur utan áhrifasviðs stjórnvalda. Hringurinn getur hagað verðlagningu og fjármunatilfærslum þannig að bræðslan sýni auma afkomu og þá myndast verulegar skattinneignir. Samkvæmt stjórnarblaðinu Timanum þykjast þeir álmenn nú hafa ofgreitt skatta að upphæð 400 miljónir króna, en heildargreiðslur þeirra höfðu numið 550 miljónum um siðustu áramót. Timinn tel- ur að rafmagnsverðið þyrfti að tvöfaldast i það minnsta til að vera viðunandi. En is- lenskir aðilar eru hér valdalausir. Fjöl- þjóðahringurinn hefur undirtökin. Enskir vísindamenn gerast æ pólitískari Fólk sem starfar að vís- indum hef ur komið sér upp sterkri hreyfingu á Eng- landi. Á síðustu sjö árum hefur verið unnið mikið skipulagningarstarf af hálfu starf sgreinasam- bands þessa fólks. I þessu starfi hafa m.a. verið lögð á ráð um það hvernig starfsfólk getur yfirtækið fyrirtækin sem það vinnur við/ hvernig hægt er að berjast gegn dæmum um ,/Berufsverbot" (þegar fólki er bolað úr starfi af pólitískum ástæðum), hvernig gera skal rann- sóknir á aðstæðum og um- hverfi á vinnustað og gera gagnrýna úttekt á náttúru- vísindum. Ferndum ; jíf Kerndum, KOtlendj/ LANDVERND Um þessa hluti birtist nýlega 1 Information viBtal viB Simon Pickvance, sem er liffræðingur aB menntun, en starfar nú sem ráöunautur um vinnuvernd.Hann nefnír nýlegt dæmi frá háskólan- um I Swansee: „Lektor einn i heimspeki var, þegar hann var ráöinn, beðinn um að skrifa undir „samkomulag” þess efnis, að hann mætti ekki taka þátt i starf- semi launþegasamtaka. Hann neitaði að skrifa undir og var hon- um þá sagt upp.Stéttarfélag hans, ASIMS, (Association of Scientific Technical and Managerial Staffs) tók málið upp, lagði þaö i dómstól sem úrskurðaði uppsögnina ólög- lega og dæmdi háskólann til aö greiða skaðabætur. — Hafi þessi lektor verið vinstrisinnaður, spyr blaöiö, þá minnir málið á vesturþýsk dæmi um Berufsverbot (I Vestur- Þýskalandi hefur það komið fyrir hvað eftir annað, aö meðlimum vinstrisamtaka hefur verið meinaö aö gegna opinberum störfum, eða þeir hafa veriö rekn- ir úr starfi). — Hann var reyndar kommún- isti þessi maður. — En hvernig má útskýra þaö, að hægt er I Englandi að berjast gegn slikum ofsóknum með ár- angri? — Það hefur skipt mestu, að á undanförnum árum hefur meðlimatala I ASTMS vaxið stór- lega, eða úr 80 þúsund i 350 þús- und. Vísindamenn og tæknimenn eru sérstaklega vel skipulagðir I Englandi. Samtök þeirra hafa staðið sig vel i ýmsum málum þar sem réttur og starf visindamanna hafa verið i hættu og um leið hafa meðlimirnir hneigst til aukinnar róttækni. Ábyrgð önnur launþegasamtök skyld, TASS (Technical and Supervisory Staffs Union) hafa til dæmis gert áætlun fyrir samsteypu eina, sem starfar á sviöi flugtækni — áætlun þessi er um það, að mæta niöur- skurði á framleiðslu fyrir flug- herinn með framleiðslu á öðrum og nytsamari hlutum undir stjórn starfsmanna sjálfra.TASS er eitt af þeim samtökum þar sem póli- tisk vitund er talin vera sterkust 1 landinu. — Þýðir þetta, að hér sé á ferð beinlínis sósialisk vitund meðal starfsmanna vlsindastofnana? — Oftast nær eru viöhorf manna herská og andstæö kapitalisma, en það eru aöallega háskólamenn sem hafa beinlinis lagt stund á sósialiska fræðikenn- ingu.Reyndar eru þó nokkrir há- skólakennarar I ASTMS, en margir háskólamenn hafa látiö aö sér kveða I „Breskum samtök- um um félagslega ábyrgð vísind- anna” ( BSSRS), sem stofnuö voru á slöasta áratug.Þá var það ábyrgð visindamanna sem menn höfðu nestar áhyggjur af. Til dæmis böröust menn gegn þvl að uppgötvanir vlsindanna væru notaðar I hernaðarlegum tilgangi án þess að nokkru sinni væri spurt um hlutverk og áhrif visinda- mannsins i þvl sambandi. Menn voru ekki að gagnrýna visindin sjálf, heldur notkun eða misnotk- un þeirra. þessum samtökum fram meiri- háttar gagnrýni á visindin, bæði I háskólum og á slðum timaritsins Radical Science Journal. Sjálfsforræði vísindamanna Enn er því miður mjög veikt samband milli BSSRS og stéttar- félagsins ASTMSEn eftir þvl sem vlsindastarfsmenn fá meiri reynslu af þvi, hvernig borgara- leg visindi eru notuð til að leysa vandamál, sem skipta verklýðs- stéttina miklu, þá mun þörfin fyrir sósiallska gagnrýni á vis- indunum vafalaust breiðast út. Nú er um tvo höfuðstrauma að ræða. Annarsvegar eru visinda- rannsóknir aö safnast á færri hendur með tilliti til þarfa iðnað- arins — hinsvegar verðum við varir við andóf vlsindastarfs- manna gegn þessari þróun. Samþjöppunin kemur ma.fram I þvi, að margir vlsindamenn verða að velja á milli þess, að geta stundaö frjálsar rannsóknir en vera þá ráðnir aöeins til stutts tima og að gefa slíkar frjálsar rannsóknir upp á bátinn gegn þvi aö fá æviráöningu. Ahrifamiklir aöilar I enskri vísindapólitik, td. ritstjóri timaritsins Nature, leggja einnig til, að visindamenn séu ráðnir frá ári til árs allsstaö- ar I háskólum.Það er enn aðeins á rikisrannsóknastofum að ævi- ráöningu er stillt upp andspænis sjálfstjórn visindastarfsmanna. í iðnaðinum hefur sllk sjálfstjórn eöa sjálfsforræði aldrei verið sér- lega áberandi. Okkar hlutverk er að berjast gegn þessari samsöfnun rann- sókna á fárra hendur og berjast fyrir því að visindastarfsmenn fái sem starfshópur yfirráö yfir rannsóknastofnunum með það fyrir augum, að þeir geti átt möguleika á þvi að stunda rann- sóknir sem séu i þágu vinnandi manna á hverjum stað. t þessu starfi gæti sósíalisk gagnrýni á náttúruvisindum þroskast og þaö færi að örla fyrir útllnum „sósial- iskra vlsinda”. Simon Pickvance: Samtök okkar hafa meB árangri bariat gegn pólitifkum brottrekitrum. VÍSINDI OG SAMFÉLAG Nú um stundir leggja menn inn- an BSSRS mesta áherslu á þau verkefni náttúruvlsinda sem skipta starfsumhverfi vinnandi fólks mestu máli.Auk þess fer i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.