Þjóðviljinn - 21.09.1975, Page 11
Sunnudagur 21. scptember 1975. ÞJÓDVILJINN — SÍÐA 11
Blakinu er lætt
inn í dagskrána
Hafdis Arnadóttir íþrótta-
kennari hefur i 1» ár boðið upp á
leikfimistima fyrir aimenning i
iþróttahúsi Jóns Þorsteinssonar.
— Þáttakan er það mikil að við
skiptum þessu niður i þrjá
flokka. Karlarnir eru þó frekar
tregir, það er e.t.v. margt annað
sem þeir telja sig gera til þess að
halda likamanum i sæmilegu
ásigkomulagi. Auk karlaflokks
höfum við sérstakan stúlknaflokk
auk kvennaflokka.
— Og hvað er siðan gert i
timunum?
— Þjálfunarkerfið byggist i
öllum grundvallat-atriðum upp á
alhliða þjálfun- með leikfimis-
æfingum og siðan slökun á milli.
Við notum músik mikið við æfing-
arnar, slikt er alveg ómissandi.
Það er virkilega góð þjálfun sem
felst i þvi að gera æfingar og
hreyfa skrokkinn eftir hljóðfalli. 1
karlatimunum er einnig boðið
upp á blak og þeirra tima er
raunar skipt i tvennt. Fyrri lutinn
fer i upphitun og æfingar en siðan
er gefinn góður timi i blakið enda
flest i þvi áægtis áreynsla auk
skemmtunarinnar sem af hlýst.
— Og hvað kostar svo að
trimma svona?
— Við erum ekki búin að ganga
frá þvi fyrir komandi vetur. 1
fyrra kostaði hvort timabil, en
vetrinum er skipt i tvennt, um
fimm þúsund krónur og voru þá
yfirleitt tveir timar á viku. Eitt-
hvað mun þetta hækka i ár en
hversu mikið vitum við ekki enn.
Þess má geta að lokum að
nánari upplýsingar um
almenningsleikfimiskennslu má
fá hjá Hafdisi i sima 82724 og hún
tekur þar einnig við
skrásetningartilkynningum. gsp
Áhuginn er
stórkostlegur
Gigja Hermannsdóttir iþrótta-
kennari tekur við konum i alhliða
leikfimisæfingar i iþróttahúsi
Jóns Þorsteinssonar við Lindar-
götu 7. Gigja sagði að einkum
væri um kvöldtima að ræða, ein
klukkustund i senn og hjá henni
væru eingöngu konur.
— Þær eru á öllum aldri —
sagði Gigja. — Alveg frá 14 ára og
upp úr. Það er ekki hægt að segja
annað en að áhuginn sé geysi-
legur hjá þeim konum sem taka
þátt i þessu hjá okkur. Mæting er
nær undantekningarlaust 100% og
vissulega þykjumst við sjá prýði-
legan árangur.
— Hvað hafið þið mörg
námskeið á vetri?
— Við skiptum vetrinum i
tvennt og höfum að þessu sinni
þriggja mánaða námskeið fyrir
jól og fjögurra mánaða eftir ára-
mót. Ennþá hefur ekki verið
gengið frá verði fyrir hvort nám-
skeið eþ við reynum að halda þvi
niðri eins og frekast er unnt. Við
bjóðum ekki upp á nudd eða
snyrtingu eftir hvern tima,
konurnar koma til okkar til þess
eins að styrkja likamann, gera
æfingar og slaka á þess á milli.
Hins vegar er gufubað hér i
húsinu og við komumst alltaf i
það öðru hvoru Um önnur
umframþægindi er ekki að ræða
svo að það er tiltölulega auðvelt
að stilla verðinu i hóf.
— Er búið að ganga frá og
skipuleggja fyrri hlutann?
— Nei, við erum að vinna i
þessu núna og fólk getur látið
skrá sig i sima 13022 og á sama
stað eru að sjálfsögðu gefnar
allar upplýsingar. —SSP
Afkomandi skoska sæfarans heldur enn völdum á Kókoseyjum
þar sein þjóðféiagsskipan öll minnir á lénsveldið.
Kóngur í
1.500 milur vestan við Astraliu i
Indlandshafi er örlitill eyjaklasi
þar sem búa um (100 manns af
malayakynstofni. Yfir þessum
cyjum ræður rikjum John Cluni-
es-lloss og ibúarnir ávarpa hann
meistara.
Maður þessi er fimmti ættliður
frá skoskum skipstjóra sem sett-
ist að á eyjunum árið 1827 og
stofnaði konungsriki með léns-
sniði. Hefur ætt hans ráðið þar
rikjum fram á þennan dag en nú
hyggst stjórn Ástraliu stöðva
þennan sjónleik. Það gæti hins
vegar reynst erfitt.
Viktoria bretadrottning afhenti .
Clunies-Ross ættinni eyjarnar til
ævarandi yfirráða árið 1886 en
árið 1955 fól breska stjórnin þeirri
áströlsku að fara með málefni
þeirra. Hefur hún haft einn full-
trúa á eyjunum siðan en látið
Clunies-Ross um að stjórna þeim.
Undanfarið hafa henni hins
vegar verið að berast skýrslur
um að ibúarnir séu svo gott sem
fangar á eyjunum. Sjónarvottar
segja að þeir búi við svipuð kjör
og þrælar á plantekrum Suður-
rikja Bandarikjanna fyrir
borgarastyrjöldina á fyrri öld.
Clunies-Ross fer með allt vald,
hann giftir fólk, skráir fæðingar
og dauðsföll, dæmir brotlega
verkamenn i sektir og greiðir
þeim laun i plastmynt sem hvergi
eru gjaldgeng nema i verslun
eyjanna — sem vitanlega eru i
eigu Clunies-Ross. Þótt ibúarnir
eigi að heita ástralskir rikis-
borgarar hefur Clunies-Ross
ríki sínu
neitað þeim um mörg réttindi
sem sliku fylgir, svo sem skóla-
skyldu, rétt til að mynda stéttar-
félög og að fá greidd laun i
áströlskum gjaldmiðli. Þó ber að
geta þess að allir ibúar eyjanna fá
eftirlaun þegar þeir ná sextugs-
aldri. Einnig hefur hann sett lög
sem hamla eiga gegn offjölgun:
þegnar hans mega ekki eingast
fleiri en tvö börn og pillunni er
dreift ókeypis.
Ekki alls fyrir löngu sendu
Sameinuðu þjóðirnar rann-
sóknarnefnd til eyjanna og hvatti
hún áströlsku stjórnina tii að
,,neyta allra bragða” til að út-
rýma lénsskipulagi þvi sem rikir
á eyjunumi
Árið 1972 afsalaði Clunies-Ross
formlegum völdum sinum i
hendur áströlsku stjórninni en
enginraunverulegbreyting varð. 1
siðustu viku ákvafGaughWhitlam
forsætisráðherra að láta til
skarar skriða og bauð Clunies-
Ross 3.5 miljónir dollara fyrir að
hafa sig burt af eyjunum. En slik
smámynt freistar hans ekki, hann
hefur eflaust margfalt meirájupp
úr kókoshnetunum sem þegnar
hans og þrælar tina handa
honum. — Bætið einu núlli aftan
við þessa upphæð, þá gæti ég
verið til viðtals, svaraði hann til-
boði Whitlams. Þeir sem þekkja
Clunies-Ross segja að hann hafi
eflaust lag á að draga samninga-*
viðræðurnar á langinn svo
mánuðum skipti.
—ÞII—
byggt á Newsweek.
Hvaö er mikill ís
á heimshöfunum
Sovéskir visindamenn hafa tek-
ið sér fyrir hendur að reikna út
hversu inikill hafis er á heiinshöf-
unum. Útreikningarnir eru
hyggðirá athugunum sein safnað
hefur verið saman á mörgum ár-
uin rannsókna hæði á suður og
norðurpólssvæðunum, veöur-
fræðilegum upplýsingum um ára-
raðir og athugunum sein gerðar
hafa verið frá gerfihnöttum á
hraut um jörðu.
Eftir nákvæma útreikninga á
öllum þáttum eru sérfræðingar
komnir að þeirri niðurstöðu að
sifellt séu um 38.700 rúmkiló-
metrar af is i höfunum, og er þar
reiknað með hinum breiðu beltum
af landföstum is, sem stöðugt
liggurvið strandir viða um heim,
rekis og isjökum. Talið er að
alger isskipti verði á ellefu ára
timabili, en þessi skipti fara þó
helmingi hraðar fram á suður-
hluta hnattarins en þeim nyrðri.
Þessir útreikningar munu verða
að miklu gagni við veðurspár og
langtimaspár um veðurfars-
breytingar viða um heim.
(APN)