Þjóðviljinn - 21.09.1975, Page 15

Þjóðviljinn - 21.09.1975, Page 15
Sunnudagur 21. september 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 15 RANDVER: „RAND- VER” Hljómar/HLJ oll) t siðustu klásúlum kom fram hver ástæðan hefði verið fyrir útkomu Randvers plötunnar. Þessi breiðskifa er ekki sú besta sem komið hefur út i ár, en það eru nú samt margir ljósir punktar á henni. Það besta við islenskar plötur er oftast það að þær eru ferskari og hressari en heimsmarkaðsútgáfur, sem lykta svo oft af peningafýsn. Randversplatan er gerð af á- hugamönnum (þ.e.a.s. Rand- ver) en er samt ekki nógu hress. Á plötunni eru aðallega irsk þjóðlög, en að auki eitt eftir Neil Sedaka (hann er alveg frábær), „Skákóða konan”, og lokalagið „Sorgarsaga” er lika indælt. Margir textanna eru smellnir og eru flestir þeirra eftir Ellert Borgar, en auk hans eiga texta á plötunni, Ragnar Gislason, Hannes Hafstein, Helgi Seljan og Hörður Zóphaniasson. Stund- um hefur maður nú á tilfinning- unni að þeir séu að reyna að ná hlustendum Riós! . En þótt tón- listin sé i meðallagi hefði ekki þurft að hafa svona frámuna- lega ósmekklegt hulstur. WHITE BACHMAN TRIO: „All Hands On Deck’7 „New Morning” (Demant hf/ EGG 003) Þessi plata átti raunar að vera komin út fyrir langa löngu og skil ég ekki hvað hefur tafið útkomu hennar. Hún er alveg stórgóð. Aðallagið samdi Jakob með Sigurði Bjólu Garðarssyni úr Spilverk þjóðanna, „All Hands On Deck”. Lagið er milt og fallegt og syngur Jakob þetta góðri röddu. Satt best að segja varð ég hissa þegar ég heyrði i honum núna með White Bach- man Trioinu, hann er bara nokkuð efnilegur söngvari. Jak- ob spilar á mest allt annað en trommur og bassa en það eru þeir Preston Ross Hayman og Tómas Tómasson sem sjá um það. Allt spil á báðum hliðunum er pottþétt og útsetningin á „New Morning”, lagi eftir Dyl- an, er bara ágæt, ekki jafn mikil nauðgun og margir gera lögum hans. Við eigum jafnvel von á fleiri piötum frá White Bach- man Trio, vonandi verða þær íafn góðar og þessi. Umsjón: Halldór Andrésson Lag fyrir lag jónas ólafur jóhannesson frá hriflu". Þetta fyrsta lag plötunnar byrj- ar létt og liflega. Lagið er i ekta trúbadór-stil, ballaða um Jónas' Ólaf Jóhannessön. Rödd Megasar er skemmtileg i þessu lagi eðlileg og hrein. Hljómgitarinn, sem lik- lega Kristján Möndull (?) leikur á hljómar vel og þverflautan hans Rúnars Georgssonar lika. Aftur á móti finnst mér textinn vera mjög mikið þýddur og stolinn! MEGAS millilendíng //sennilega það síðasta" „sem víkingurinn mælti um og eftir fráfali sitt”. 1 þessu lagi syngur Megas (eða raular ef þið viljið hafa það þann- ig) um hina sifelldu ásókn hins unga manns i eitthvað nýtt og betra lif. (Textinn var skýrður i fyrrnefndu viðtali við Megas hér á siðunni og vil ég enn benda á það til glöggvunar, vegna pláss- leysis). Frábær pianóleikur Magga Kjartans prýðir lagið mjög. //(f jögurmil jóndoll- ara&níutfu&níusenta) mannúðarmálfræði". „Fram allir samverjar, fjöld- inn snauði er krúnk”. Takturinn er i ekta fólk-rokk-stil og spil allt er gott. Textinn leyfir laginu að vera rúmar átta minútur. „silfurskotturnar hafa sungið fyrír mig". Lokalag plötunnar, enda mjög gott sem slikt. „Þér iðandi skor- dýriþvögunni sest ég i skut” (?). Vibrafónninn er allsráðandi hljóðfæri hér, enda vel spilað. Lokaorð Þessi plata Megasar er einhver sú albesta sem ég hef heyrt, og á ég þá við bæði innlendar sem er- lendar plötur. Ég veit ekki um marga sem hafa gefið út plötu með eintómum góðum textum. Einnig kemur hér fyrst raunveru- lega i ljós hve góðir strákarnir i Júdas eru.það kemur til með að vera erfitt fyrir þá sjálfa að fylgja þessari plötu eftir. Lögin Megasar eru einnig alveg stórgóð og allar útsetningar upp á það besta. Pianóleikur Magnúsar Kjartanssonar, munnhörpuleikur Magúsar Eirikssonar og vibra- fónleikur Reynis Sigurðssonar er það sem skarar fram 'úr, en enginn á lélegan hlut á plötunni. Hulstrið er mjög smekklegt, s. myndin framan á er falleg en aft- ur á móti er merki Demants hf. það ekki að sama skapi, enda spillir það mjög formfegurð framhliðar hlustursins. A bakhlið eru svo fimm svarthvitar myndir, alveg þrællélegar, en upplýsingar um lengd laga, um hljóðfæraleikara og annað er skemmtilegt að fá til tilbreyting- ar. Og svo er rúsinan „liner notes” eftir Pál Baldvinsson. Þau eruþau bestu sem ég hef nokkurn tima séð. Palli er reyndar vel æfður i skrifum, hann er nú rit- stjóri Stúdentablaðsins og hefur verið i þessu nokkuð lengi. Mig minnir einnig að hann hafi ein- hvern timann skrifað um popp i einu dagblaðinu, hvað um það, þau segja i fáum orðum flest það sem segja þarf um þessa plötu. Gratias maximas agimus Megas! //Súlnareki". Textinn er köld og hrein þjóð- félagsádeila, mjög skemmtileg- ur. Reynir Sigurðsson leikur hér á vibrafón af snilldarbrag (hann er alveg stórgóður á þessari plötu allri) og Finnbogi Kjartansson bassaleikari og Hrólfur Gunnars- son trommuleikari halda drunga- legum takti. //ég hef ekki tölu". Stórkostlegasta lag plötunnar, tónlistarlega séð. Lagið er afar hratt, Megas hreytir út úr sér versunum á mettima og á milli keppast munnharpa, pianó, bassi, gitar og trommur um að taka sitt besta sóló, já allir i einu! Best tekst þó Möggunum, það er að segja Magnúsi Eirikssyni (munnhörpu) og Magnúsi Kjartanssyni (pianó). Stórfeng- legt samspil! //erfðaskrá". Textinn er byggður upp i stil Jónasar Hallgrimssonar og fleiri slikra, nokkuð bitur. Kristján Möndull leikur bliðlega á hljóm- gitar, sem er eina hljóðfærið i laginu fyrir utan horn og pákur i milliköflum. Ljúft og gott. ,,ég á mig sjálf” (söngurinn hennar diddu) Um textann var fjallað á sfnum tíma i viðtali við Megas og mun ég litlu bæta við það hér, nema ég telji ástæðu til. Þessi texti er nokkuð svæsinn, og MEGAS: MILLI- LENDING Spilverk þjóðanna hélt einn af sinum fátiðu konsertum á ljós- myndasýningunni LJÓS 75 á Kjarvalsstöðum á föstudags- kvöldið i fyrri viku. Spilverkið, sem nú er á leiðinni með sina fyrstu breiðskifu (undir eigin uafni!), hefur bætt við sig söng- konu, henni Diddú (hún, senr dansaði svo mikið á Sögu á Stuðmannaballinu), þ.e.a.s. Sigrúnu Hjáimtýsdóttur. V'ar þctta i fyrsta sinn, sem Spil- verkið kemur fram sem kvartett (reyndar var Diddú með Spilverkinu auk annarra siðastliðinn vetur). Það er greinilegt að Diddú set- ur sinn svip á Spilverkið, þrátt fyrir það að hún sé rétt að byrja með þeim. Þegar ég sá Spilverk þjóð- anna i Laugarásbiói i vor, og reyndar i sjónvarpinu lika, þá var viss ósnertanlegur blær yfir þeim og sviðsframkoma nokkuð köld, en samt frábærlega fáguð og minnti stundum á hina stór- kostlegu kvikmynd „Cabaret”. En á ljósmyndasýningunni voru þau mýkri og meira aðlað- (Demanthf/DI 002) Frá þvi er fyrsta platan „MEGAS”, kom út árið 1972, hefur Megas staðið i þvi að meira og minna ieyti að koma út annarri plötunni. Hann hefur liklega leit- að til flestra þeirra sem út hafa gefið plötur hér, til dæmis var lengi vei i deiglunni að Svavar Gests gæfi út breiðskffu með Passiusálmunum, en hann gugn- aði á þvi er á hólmann kom, líka sögu er að segja um Tónaútgáf- una á Akureyri. Þar sem ég var mjög hrifinn af fyrstu plötunnitog er enn) fylgdist ég nokkuð með gangi mála. Þvi þykir mér það mikil lukka að Demant hf. hafi árætt að gefa út þessa aðra plötu Megasar „MILLILENDING” og vandað svo vel til hennar i flesta staði. Lögin á piötunni eru fæst ný, margir textanna hafa áður birst i þremur söngbókum Megasar „Megas I”, „Megas II” r og „kominn, en fráleitt farinn”. Nú er svo aftur nauðsynlegt að gefa út eins og tvö „dobbúl” albúm i viðbót til þess að fá allt efnið, þvi það er allt þess virði. getur maður ekki annað en glott við. Rödd er tvöföld i byrjun og liflegur og áhugarikur flutningur allra áberandi. Hlustiði á hið frábæra samspil Magnúsar Kjartanssonar á pianó og Reynis Sigurðssonar á vibrafón, Hrólfur er lika gegnumgangandi skemmtilegur á trommunum. //ragnheiður biskupsdóttin-" Meistarastykkið hans Megasar, bæði lagið og textinn stórkostlega uppbyggð. Krafturinn er alveg stórkostlegur. Lagið byrjar á ein- földum samleik synthesizers og sirenu (!) Magnús Kjartansson leikur á „synthesizerinn” á þann hátt sem hann kemur best út, ein- falt. Hrólfur mallar léttilega leti- lega á trommunum og allir virð- ast reyna sitt til þess að gera það besta. Lagið er jafnvel gott i diskótek! andi og flutningur ckki jafn hvass (liklega ekki alveg rétt lýsing), en i staðinn mjúkur og fágaður. Einnig hefur hið litla pláss sem þau höfðu liklega haft ein- hver áhrif, Egill hreyfði sig varla og Sigurður Bjóla var ekki með hina góðu slagverks-sam- stæðu sina. Spilverk þjóðanna tók 5 lög sem ekki hafa heyrst með þeim opinberlega áður og gripu tvö þeirra mig strax. Annað var „Old Rugged Road”, milt, raddað lag, magnþrungið og stórgott. Diddú naut sin lika best i þessu lagi. Hitt lagið var svo lag Bjólunnar og Kobba „All Hands On Deck” sungið af Sig- urði Bjólu. Hann syngur alltaf fallegu lögin. Allur flutningur Spilverksins var frábær og konsertgestir voru lika frábærir. Allir sátu á gólfinu, allir sáu óg allir heyrðu, þrátt fyrir það að engin raf- magnshljóðfæri væru notuð. Stemmningin gaf til kynna aö hér væri eitthvað merkilegt á ferðinni. Og hvort það er!

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.