Þjóðviljinn - 21.09.1975, Page 23

Þjóðviljinn - 21.09.1975, Page 23
Sunnudagur 21. september 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 23 KROSSGÁTAN iKÝRINGAR .árétt: 1. vængsmár fugl em lifir á suðurhveli arðar 6. stallur, eins ;onar stokkur sem fénaði tr gef ið hey í inni í húsi 7. ivítir fuglar í snjó 9. rauðleitur málmur, notað- ur mikið til smíða 10. þvottur 11. kind (þolfall, það finnst með því að setja smáorðið um fyrir framan fallorðið). Lóðrétt: 1 boltinn í netinu 2. fugl af orraætt 3. uppglenntur munnur 4. hæfurtil neyslu 5. Rússa- keisari 8. nafn á manni sem guð lagði miklar plágur á (úr biblíu- sögunum) Sendið Kompunni sögur og myndir. Utanáskrift er; Kompan, Þjóðviljanum, Skólavörðustíg 19 Reykjavík T&JJLuuf b.~r%úx_ Umsjón: Vilborg Dagbjartsdóttir Depil litla Það var einu sinni stelpa sem hét Helga Rós. Hún var á gangi úti í haga að leita að blómum. Hún var búin að tína stóran vönd af sóleyjum og fíflum, þá kom hún að grjótvegg nokkuð löngum. Hún sá fugl f Ijúga út úr honum og fór að gá hvort þar væri hreiður. En þegar hún var búin að leita drjúga stund fann hún hreiður í veggnum. Það v var máríátluhreiður. Hún fór með þriggja daga millibili að gá hvort væru komnir ungar. Loksins voru komnir ungar. Henni fannst þeir Ijótir af því þeir voru ófiðraðir. En smátt og smátt f ór að koma f iður á þá, og þeir urðu fallegir á litinn að henni fannst. Helga Rós spurði mömmu sína hvort hún mætti taka einn ungann heim og ala hann, en mamma hennar hélt að hann mundi deyja. ,,Þú mátt reyna," sagði mamma. Helga Rós var ekki sein á sér að hlaupa upp að veggnum og taka ungann. Hann dafnaði furðu vel. Þegar hann var búinn að lifa hjá Helgu Rós í þrjá mánuði hugsaði hún með sér að nú mundi hann lifa, fyrst hann var orðinn svona stór. Hún ákvað að skíra hann DEPIL þegar hann var orðinn nokkuð gamall. Eitt sinn bar það við að Depill var einn úti, þá datt honum í hug að strjúka, þvi hann var orðinn leiður á að vera alltaf hja Helgu Rós. Helga Rós sá Depil vin sinn aldrei aftur. Hún saknaði hans mikið fyrst eftir hvarfið og aldrei gleymdi hún Depli sínum. Hrafnhildur Ósk Sigurðardóttir, 13 , ára, Kambsseli, Álftafirði. QLÓf ( nfL&iáiLls._____________________v'£.sl.u...R..k^-fca-il3g- . PENNAVINIR Ég óska eftir penna- vinum, strákum og stelpum á aldrinum 12 — 13 ára. Sjálf er ég 12 ára. Ég hef áhuga á hestum, poppi, iþróttum, bréfa- skriftum og frímerkjum. Óska eftir að mynd fylgi fyrsta bréfi Utanáskriftin er: Eydís Katla Guðmunds- dóttir Austurvegi 60 Selfossi Árnessýslu Ég óska eftir penna- vinum strákum og stelpum á aldrinum 12 — 13 ára. Sjálf er ég 12 ára. Æskilegt væri að mynd fylgdi fyrsta bréfi. Ég hef áhuga á hestum, frí- merkjum, bréfaskriftum og sundi. Utanáskriftin er: Katrin Gisladóttir Heiðmörk 2 a Selfossi Árnessýslu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.