Þjóðviljinn - 02.11.1975, Side 4

Þjóðviljinn - 02.11.1975, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. nóvember 1975. DJÓÐVIUINN mAlgagn sösíalisma VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meö sunnudagsbiaöi: Arni Bergmann Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 linur) Prentun: Blaöaprent h.f. SKILNINGSLEYSI STJÓRNARINNAR Á SJÁVARÚTVEGINUM Þjóðviljinn hefur upplýst að skiptaverð megi hækka um allt að 25% ef horfið væri til þess hlutfalls sjóðakerfis i fiskverði sem gilti fyrir valdatöku hægristjórnar- innar. Sjóðakerfið hirti um 30% þegar núverandi rikisstjórn tók við, en hún ákvað að hækka þetta hlutfall til þeirra sjóða sem fyrir voru, jafnframt þvi, sem hún ákvað að taka 22% i sérstakan oliu- sjóð. Þar með eru það um 24 — 25% sem eru tekin framhjá skiptum að frumkvæði ihaldsstjórnarinnar. Nú er enginn að mótmæla þvi að nokkur vandi fylgi þeim miklu hækkunun á oliu, sem átt hefur sér stað undanfarin ár. En þar með er ekki sagt að þessi vandi eigi að leggjast á sjómannastéttina. Það er grundvallaratriði þjóðarbús okkar, að framleiðslan i sjávarútvegi haldi áfram, og þar með að sjómenn fáist á bátana. Að undanförnu hefur verið nokkur skortur á mannskap og menn horfa uggandi til vetrarins. Ástæðan fyrir þessum ugg og ótta er einkum sú að rikið sjálft hefur verið með — beint og óbeint — stór- framkvæmdir svo að segja um allt land. Við þessar framkvæmdir er unnt að hafa miklu meiri laun en sjómenn geta treyst á að fá á sjónum að ekki sé nú meira sagt. Jafnframt þessu hefur rikisstjórnin beitt sér fyrir þvi að hernámsframkvæmdir á Suðurnesjum yrðu stórauknar, enda tæmast frystihús á Suðurnesjum og sjómenn ganga i land til léttari og betur launaðrar vinnu. Það hefur lengi verið sagt um núverandi rikisstjórn að hún væri rikisstjórn millilið- anna, en ekki framleiðsiunnar eða launa- fólks. Þetta kemur átakanlega i ljós i afstöðu hennar til sjávarútvegsins. Þar er greinilega enginn skilningur á stöðu hans og mikilvægi. Hvað eftir annað hefur komið til stöðvana i sjávarútveginum. Togaraverkfall mánuðum saman, heimsigling skipa, stöðvun ákveðinna veiða um takmarkaðan tima eins og stöðvun rækjuveiða vestra. Skilningsleysið á nauðsyn þess að sjó- mannastettin hafi mannsæmandi laun er af sama toga spunnið. Þetta skilningsleysi á sjávarútveginum og islenskum atvinnu- greinum yfirleitt er hluti af stefnu rikis- stjórnarinnar. Hefði rikisstjórnin nú þann nauðsynlega skilning á sjávarútveginum og mikilvægi hans myndi hún tafarlaust beita sér fyrir þvi að hækka skiptaverðið með þvi að ganga á sjóðakerfið margnefnda. —s. LÚALEG FRAMKOMA FORSÆTISRÁÐHERRANS Þegar rikisstjórnin var kúskuð til að semja við sjómenn eftir heimsiglingu skipanna lýsti Geir Hallgrimsson þvi yfir að sjómenn hefðu i rauninni sætt sig við 3,5% kauphækkun og ættu aðrir launa- menn að taka sér þá hógværð til fyrir- myndar. Þessi yfirlýsing forsætisráðherr- ans var með eindæmum lúaleg. Sjó- mennirnir voru að sjálfsögðu ekki að semja um kaup sitt til neinnar fram- búðar; þeir voru aðeins að tryggja sér það fiskverð sem lofað var en þeir töldu að yrði aðeins i orði en ekki á borði. Sjómannasamtökin hafa nú sett fram kröfur sinar, sem vissulega eru háar miðað við það kaup sem sjómenn hafa fyrir, en eru ekki háar miðað við laun sem ýmsir aðrir aðilar hafa fengið i landinu á undanförnum mánuðum. Sjómanna- samtökin munu að sjálfsögðu berjast fyrir sinum kjarabótum hvað sem liður útkom- unni úr siðustu samningum rikisstjórnar- innar og sjómanna. í upphafi var framkoma Geirs Hallgrimssonar i þessu máli kölluð lúaleg. Það er sist ofmælt að mati sjómanna, sem hafa engan áhuga á þvi að niðurstöður samninga þeirra verði notaðar sem svipa á annað launafólk til þess að halda aftur af kaupkröfum þess. En tilraun Geirs Hallgrimssonar til þess að rangtúlka af- stöðu sjómanna er enn til marks um það undirferli og þann ódrengskap sem einkennir öll vinnubrögð núverandi rikis- stjórnar gagnvart launafólki. —s. Isaldir tengdar l'ÉS hringrás ^ I' sólarí Vetrarbraut? 1 ;■ .h Galaxian AI-51 sýnir spiralarmana eins og flugeldasól Armar þessir eru sumpart úr stjörnum, sumpart úr geimryki. tsaldir eru ef til vill tengdar breytingum á útgeislun sóiar þegar hún fer f gegnum geim- rykssvæöi. Margir vita, að kenn- ingarsem gera tilkall til að útskýra isaldir á jörðu eru fleiri en taldar verði. Ein nýleg kenning og mjög víð- feðm hefur nú fengið ó- væntan stuðning og verður það mál rakið að nokkru hér á eftir. — Enski stjörnufræðingurinn W.H. McCrea setti i sumar fram isaldarskýringu, sem felur i raun. i sér miklu bjartsýnni spá um framtiðarlofslag á jörðunni en nú hafa verið iðkaðar um stund. Samkvæmt kenningu McCreas eiga isaldarskeið rætur að rekja til hreyfingar sólar innan Vetrar- brautar okkar. Sólin er á ferli i Vetrarbrautinni, sem spannar þúsundir miljarða stjárna, og fer hún á leið sinni með vissu millibili i gegnum stór ,,ský” af geimryki. Þetta leiöir til breytinga á útgeislun sólar og þar með á aðstæðum i andrúmslofti jarðar — hitastigið á jörðunni lækkar að miklum mun og hafis og jöklar breiða mjög úr sér að sama skapi. Flestar þær útskýringar, sem hingað til hafa verið uppi benda til þess, að ný isöíd sé í nánd, en útskýring McCreas gerir ráð fyrir þvi, aö mannfólkiö geti andaö rólega i 250 miijónir ára — það verði ekki fyrr að nýtt kuldaskeið gengur i garð. Að sjálfsögðu með þeim skilyrðum, að athafnir mannsins trufii ekki veðurfars- legt jafnvægi á jöröunni — en nú sem stendur eru ; þvi miður miklar likur til þess. Flugeldasól Sólin, og þar með jörðin, eru hluti af Vetrarbrautinni, sem er ein af óteljandi stjörnukerfum, galaxium, geimsins. Vetrar- brautin er gerð af stjörnum, ryki og lofttegundum. Allt þetta kerfi snýst i kringum sjálft sig eins og flugeldasól. í þeim snúningi eru spiralarnir þar sem flestar stjörnur, samkynja sólinni, eru. Stjörnufræðingarnir hafa komist aö þessari niðurstööu um okkar eigin galaxiu með þvi að skoða aðrar sem lengra eru i burtu. Spiralarmarnir eru umluktir geimrykssvæðum. Ryk þetta er ekki þéttara en svo, að lítill munur er á þessum ryksvæðum og tómarúmi — en þessi svæði eru firnastór og þar meö sýnileg. Sólin fer i einn hring um miðju Vetrarbrautarinnar á 500 miljónum ára. Á ieiðinni fer hún tvisvar framhjá spiralarmi, og fer þvi framhjá einum slikum á 250 miljón ára fresti. Jarðfræðilegar athuganir benda einmitt til þess, að isaldar- skeið hafi gengið yfir jörðuna með 250 miljón ára millibili, og það er út frá þeirri tölu sem að McCrea hefur kannað hvort útskýra mætti isaldir með til- vfsun til þess að farið er framhjá fyrrnefndum spirölum. Ryksuga Og þaö getur vel verið. Þegar sólin fer i gegnum spiralarm mun hún sjúga til sin nokkuð af þvi ryki sem i honum er að finna. Þegar þetta ryk hnigur til sólar - hitnar það. Upphitun þessa ryks leiöir til þess að útgeislun sólar eykst. Og þessi aukna útgeislun leiðir, þótt undarlegt megi virðast, til isaldarskeiða á jörðunni. Orsökin er sú, að aukin út- geislun frá sólu hitar fyrst upp jörðina. Þetta þýðir aukna upp- gufun vatns, sem stigur upp og þéttist aftur i skýjabreiðu, sem þekur jörðina alla þegar uppgufunin er nógu mögnuð. Skýjaspegill Skýin virka sem spegill — þau kasta geisluninni til baka. Ekki bara þeirri aukageislun, sem stafar af ryksogi sólar, heldur kastar skýjabreiðan frá sér veru- legum hluta af venjulegri geislun VISINDI OG SAMFÉLAG sólar. Við þetta lækkar hitastigið, þvi að sólin er aðalhitauppspretta jaröar. Ef að sleppt er stærðar- og timamuni, þá samsvarar þetta þvi, að sólskinsdagar eru hlýrri en grámóskudagar. í stórum dráttum getur kenning McCreas staðist. Þaö er búið aö reikna það nákvæmlega út, hvernig hreyfingin i gegnum spiralarmana verkar á hitastig jarðar. Það er ennfremur vitað, að sólin — og jörðin — fóru I gegnum spiralarm fyrir io þúsund árum, og einnmitt fyrir 10 búsund árum var isöld á jöröu. Isaldir eru þar á undan með 250 miljóna ára millibili i jarð- sögunni. Það er aö segja: kenning McCreas var ekki nægilega vel studd könnun einmitt á þessu sviði. En nokkrum vikum eftir að hann birti kenningu sina birti ástraliumaburinn G. E. Williams nákvæmar mælingar á tiðni isalda á jöröu. Þessar athuganir, sem unnar voru óháð vanga- veltum McCreas, staöfestu i einu og öllu það mynstur sem hann hafði dregið upp. Þar með var hin nýja útskýring á isöldumkomin i hóp þeirra sem best hafa verið rökstuddar. Mikilvægt Orsakir isalda eru afar mikilvægt viðfangsefni. Ýmsar útskýringar, sem til þessa hafa verið á kreiki, og leita orsakanna fyrst og fremst i atvikum á jörðu niðri, spá isöldum eftir stuttan tima. Eftir aöeins árþúsundir. En ef hin stjarnfærðilega útskýring sem hér var rakin gildir, þá kemur ekki isaldarskeiö fyrr en eftir hundruð miljóna ára. Framhald á 22. siöu.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.