Þjóðviljinn - 02.11.1975, Síða 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 2. nóvember 1975.
SVAVA JAKOBSDÓTTIR:
Ekki sérsköttun, heldur
samsköttun í nýju formi
Föstudagurinn 24. október, er
konur um allt land lögðu niður
vinnu til að leggja áherslu á kröf-
ur sinar um réttlátt þjóðfélag, var
enginn hátindur hátiðarárs. Yfir-
lýst „Kvennaár” af hálfu Sam-
einuðu þjóðanna hefði varla eitt
sér nægt til að þjappa konum
saman til baráttu svo sem raun
varð á. Kvennaverkfallið og sú
samstaða sem um það náðist, er
fyrst og fremst árangur þrot-
lausrar umræðu og upplýsinga-
starfsemi um þjóðfélagsstöðu is-
lenskra kvenna, sem staðið hefur
undanfarin ár. Sú umræða verður
vissulega að haida áfram, en
staðan er nú skýrari en áður.
Jarðvegurinn er frjór tii aðgerða
og konur hafa sýnt að þær eru
reiðubúnar til að fylgja kröfum
sinum eftir i verki.
Það mannsbarn er varla lengur
til á fslandi, sem ekki veit að allur
þorri vinnandi kvenna i þjóðfé-
laginu er láglaunahópur sem hef-
ur nánast engin völd og litil sem
engin bein áhrif á mótun þjóðfé-
lagsgerðarinnar. Bæði á heimil-
um og i öllum helstu þjónustu- og
undirstöðuatvinnugreinum þjóð-
arinnar hafa konur lagt fram
vinnu sina, en valdahlutföllin i
þjóðféiaginu sanna, að vinna
þeirra hefur fyrst og fremst verið
notuð til að byggja upp þjóðfélag
eftir forskrift ráðandi karl-
manna. Enn hafa konur ekki þá
valdaaðstöðu að þær geti knúið
fram þær breytingar á þjóðfé-
lagsgerðinni, sem þarf til þess að
jafnrétti þegnanna náist.
Verkalýðsbaráttan og jafn-
réttisbaráttan eiga það sameigin-
legt að þær stefna að launajafn-
rétti. Það er alkunna að þau störf
sem eingöngu konur vinna, eru
láglaunastörf, þau eru vanmetin
vegna þess að konur vinna þau,
en islendingar fundu áþreifan-
lega fyrir þvi þ. 24. okt. að þetta
vanmetna vinnuafl er þjóðfélag-
inu ómissandi. Kyngreining i
störf verður að hverfa. Það er
forsenda þess að launamisrétti
verði upprætt. 1 þeim samn., sem
framundan eru, ættu samtök
launafólks að setja þá kröfu á
oddinn, að þau störf, sem eru lágt
launuð, vegna þess að eingöngu
konur vinna þau, hækki i launum
helmingi meira en hin. Þá væri
stórt skref stigið i átt til raun-
verulegs launajafnréttis. Þá væru
likur til að karlar vildu setjast við
ritvélar og simaborð, og ganga að
núverandi „kvennastörfum” i
bönkum, skrifstofum, verksmiðj-
um, frystihúsum. Með þessu yrði
stefnt að þvi að öll störf væru
skipuð bæði körlum og konum.
Hér er verðugt verkefni fyrir þær
konur og karla i samtökum
launafólks, sem eru i baráttuhug
eftir kvennaverkfallið 24. okt.
Sérsköttun
ríkisstjórnarinnar
er ekki sérsköttun
f ræðu sinni við 1. umræðu fjár-
lagafrumvarpsins s.l. þriðjudag
boðaði f jármálaráðherra,
Matthias Á. Matthiesen, frum-
varp til laga um sérsköttun hjóna,
sem lagt yrði fram fyrir lok þessa
árs. Ekki gaf ráðherra ýtarlegar
upplýsingar um hvernig þessu
yrði hagað, en þó kom fram eftir-
farandi i máli hans: „Er ráð fyrir
þvi gert, að tekjum hjóna og eign-
um verði skipt milli hjóna til
skattlagningar eftir föstum regl-
um, þótt séreign sé eða sérat-
vinna, og siðan farið með hvort
Frá kvennaverkfallinu.
hjóna um sig sem sjálfstæðan
gjaldþegn.”
Giftum konum hefur lengi þótt
smán að þvi að vera ekki sjálf-
stæðir sk«ttþegnar svo sem aðrir
fjárráða og fullveðja menn i þjóð-
félaginu og hafa þvi löngum haft
uppi kröfur um sérsköttun hjóna.
Það var þvi ekki furða þó Morg-
unblaðið birti þennan boðskap
fjármálaráðherra með risafyrir-
sögn á baksiðu þ. 29. f.m. Það átti
ekki að fara framhjá neinum að
rikisstjórnin hefði nú snúið
jafnréttisandlitinu að konum og
ætlaði að koma til móts við óskir
þeirra i þessu efni.
Sá hængur er bara á, að þetta
skattheimtufyrirkomulag, sem
rikisstjórnin boðar, er ekki sér-
sköttun, og skulu nú færð rök að
þvi.
Samsköttun er fólgin i þvi að
tekjur hjóna eru lagðar saman og
skattgjald reiknað af sameigin-
legum tekjum þeirra, með ýms-
um frádráttarliðum, sem skipta
ekki máli i þessu sambandi. Hjá
okkur gildir sú regla, að eigin-
manninum (húsbóndanum) ber
að telja fram tekjur beggja og
standa skil á skattgreiðslu. Þessi
aðferð er arfur frá þeim tima er
gift kona var ófjárráða.
Sérsköttun er i þvi fólgin að
hvort aðili um sig skilar sjálf-
stæðu framtali þar sem hann
gerir grein fyrir eigin tekjum og
eignum, óháð tekjum og eignum
hins, og stendur sjálfur skil á
skattgreiðslu, ef einhver er. í nú-
gildandi lögum er heimild til
slikrar sérsköttunar konu með
þeirri undantekningu þó, að hún
nær aðeins til atvinnutekna konu.
Sú breyting sem rikisstjórnin
boðar á lögum pm tekju- og
eignaskatt, brýtur grundvallar-
reglur sérsköttunar. Tekjur hjóna
verða lagðar saman — alveg eins
og nú — og breytir engu um, þótt
þeim sé siðan skipt milli þeirra
eftir einhverjum sérstökum regl-
um, hvort sem það verður til
helminga eða i einhverju öðru
hlutfalli. Hvorugur aðilinn gerir
grein fyrir eigin tekjum eða eign-
um, heldur hluta eða helmingi af
samanlögðum tekjum beggja.
Hin svonefnda „sérsköttun”
rikísstjórnarinnar er því ekki sér-
sköttun, heldur einvörðungu sam-
sköttun í nýju formi, og má raun-
ar fullyrða að hin fyrirhugaða
skiptiregla rikisstjórnarinnar sé
fjær eðli sérsköttunar en núgild-
andi samsköttunarform.
Á maður að ætla að fjármála-
ráðherra og allir hinir lögfræð-
ingarnir, og hagfræðingarnir i;
þingliði Sjálfstæðisflokksins viti
þetta raunverulega ekki, eða eru
þeir visvitandi að blekkja konur
til fylgis við hið fyrirhugaða
frumvarp i trausti þess að þær
átti sig ekki? Treysta þeir á það
að konur gangi i gildruna einung-
is ef þeir hrópa „sérsköttun”
nógu oft og lengi?
Skattalögreglan
og dúkkulísan
f ummælum fjármálaráðherra,
sem ég vitnaði i hér að framan,
kemur fram að farið verði með
hvort hjóna um sig sem sjálfstæð-
an gjaldþegn. Þetta verður vart
skilið á annan veg en þann að
giftri konu verði þá skylt að
standa skil á þeim hluta skatt-
byrðarinnar sem henni er úthlut-
aður. Hér er vissulega verið að
koma húsmóður, sem engar at-
vinnutekjur hefur, i mjög alvar-
lega aðstöðu, svo vægt sé til orða
tekið. Það er þá verið að gera
henni skylt að greiða skatt af
tekjum sem annar vinnur sér inn
og fær i hendur, en hver á að
tryggja að hún fái það fé i hendur
sem hún þarf til að standa skil á
sinum hluta? Skattalögregan
kannski?
Það er algengara en margur
hyggur að húsmóðir fái ekki fé til
ráðstöfunar nema rétt til brýn-
ustu innkaupa til heimilisins. Það
getur átt sér margvislegar orsak-
ir, en er staðreynd. Með hverjum
hætti hefur rikisstjórnin hugsað
sér að skattayfirvöld gengju að
þessum konum? Þvi hafa þing-
menn Sjálfstæðisflokksins aldrei
fengist til að svara, þótt þeir hafi
margsinnis verið inntir eftir þvi.
Mér býður i grun, að skattayfir-
völd muni aldrei taka þá áhættu
að missa af þessum greiðslnm
eða láta þær dragast á langinn og
þá verður væntanlega öruggasta
og auðveldasta leiðin farin: að
taka bara allt úr launaumslagi
eiginmannsins. Alveg eins og nú.
Nafn eiginkonunnar er að visu
formlega á blaði einhvers staðar,
hinn „sjálfstæði gjaldþegn” er
hvergi til nema á pappirnum,
orðinn nokkurs konar dúkkulisa i
höndum skattayfirvalda og rjkis-
stjórnar.
Kona með eigin atvinnutekjur
kemst nær þvi að verða sjálfstæð-
ur gjaldþegn, og er þó hætt við að
eins verið farið að þeim. Þar sem
þær eru yfirleitt i láglaunastörf-
um, má gera ráð fyrir að laun
þeirra hrökkvi vart eða ekki til
greiðslu á þeirra hluta af heildar-
skatti hjónanna og verður þá af-
gangurinn væntanlega sóttur i
launaumslag eiginmannsins.
Launaumslagið þeirra verður
tómt, en eitt er vist, að skrif-
finnskan og „kerfið” við slika
innheimtu mun kosta rikissjóð
ærinn skilding.
I andstööu við
hjúskaparlögin
Þegar gerðar eru skattkerfis-
breytingar sem þessar, ætti, ef
vel væri að verki staðið, að hafa
hliðsjón af almennum sifjarétti.
Samkvæmt lögum um réttindi og
skyldur hjóna eiga hjón búið alls
ekki til helminga fyrr en við
skilnað eða dauða. Sá sem aflar
teknanna eða á eignirnar, getur
ráðstafað þeim að vild með þeim
takmörkunum þó að fjölskyldan
búi ekki á eigninni, og lausaféð
teljist ekki til búsgagna á sameig-
inlegu heimili hjónanna, til nauð-
synlegra vinnutækja hins eða sé
notað til þarfa barna. Ef hið boð-
aða frumvarp rikisstjórnarinnar
verður að lögum, er verið að gera
aðila skattskyldan fyrir tekjum
og eignum, sem hann hefur ekki
einu sinni ráðstöfunarrétt yfir
skv. lögum. Þetta, mundi bitna
hvað harðast á húsmæðrum, sem
engar atvinnutekjur hafa. Það
hýtur þvi að teljast algert siðleysi
að gera aðila skattskyldan fyrir
atvinnutekjum annars manns, og
gildir einu, hvort um er að ræða
hjón eða ekki.
Jafn vel
treystandi og
eiginmanninum
Það er engan veginn einfalt mál
að koma á fullri sérsköttun t ná-
grannalöndum okkar, a.m.k.
Danmörku og Sviþjóð hefur þó
tekist að feta leiðina áleiðis til
sérsköttunar stig af stigi. Að baki
kröfu giftra kvenna um sérskött-
un, liggur sú grundvallarhugsun,
að þær verði viðurkenndar sem
sjálfstæðir einstaklingar gagn-
vart skattayfirvöldum, að litið sé
á þærsem ábyrgar og hæfar til að
gera sjálfar grein fyrir fjárhag
sinum.hvort sem þær hafa skatt-
skyldar tekjur eða ekki.
Ef húsmóðir hefur ekki unnið
fyrir skatlskyldum atvinnutekj-
um á árinu, ætti henni að vera
jafnvel trcystandi til að skýra frá
þvi og eiginmanni hcnnar, eða
livað?
Ef islenskar konur taka við
þessu frumvarpi þegjandi og
hljóðalaust, þá er ég hrædd um,
að ljóminn af heimsfrægðinni fari
að blikna.