Þjóðviljinn - 02.11.1975, Side 7

Þjóðviljinn - 02.11.1975, Side 7
Sunnudagur 2. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7 í lægðinni þar sem Viðistaðir i Hafnarfirði reyna að sporna við vexti bæjarins til vest- urs, er enginn tími. Nýlegu steinhúsin i tískulitunum sem standa borubrött suður á hraunöldunni eru reynd- ar frekar krókódilsleg i framan, ætla sér án efa að sjá mikla framtíð risa þar á Viðistaðatún- inu. En i logninu og rekj- unni morgun einn fyrir skömmu, var fullkom- lega ljóst, að gömlu timburkumbaldarnir á hólunum kringum grjót- garðinn sem afmarkar Viðistaði frá framþró- uninni, beita allri sinni andlegu orku til að koma i veg fyrir skipulags- flaustur eða stein- steypusvall. Augnaráð hans var svo hlýtt og kimið að ekki var hægt annað en stansa. Mér fannst ég hlyti að þekkja þennan svarta viðgerðar- skrögg vel, eða hvers vegna kinkaði hann svona kunnuglega kolli? Jæja, sagði hann þegar ég kom til hans, og það var eins og hann stæði mig að þvi að hugsa neikvætt eða vera ábyrgur fyrir einhverju. Hann horfði uppá mig, var svolitið hokinn i öxlum, glansandi oliubrúnn i framan og hendurnar svartar, þykkar, vöfðu sigarettu fimlega. Hann settist á hraun- nibbu og horfði stöðugt á mig. Ég er hér bara á gönguferð. NU? Já, ég geng hér oft um á laugar- dögum. Jæja. Já, ég bý hérna uppfrá. Ertu i skipulaginu? Spurningin kom nokkuð skyndi- lega eins og allt þennan morgun. Nei, nei, ég bara bý hérna. Það var gott væni. Svo bandaði hann hendi að kumböldum oni gjótu skammt frá þar sem allt var fullt af bilhræjum, vélarbUt- um, dekkjum, drasli. Ég vinn i þessu. Heldurðu að skipulagið ráðist á þetta svæði næst? spurði ég. Já, næst eða þarnæst, sagði hann. NU eru þeir alveg að verða bUnir með hjallana uppá hrauni, þá koma þeir á mann hérna. Hann var i svörtum samfest- ingi, olia og skitur svo rækilega gróin saman við efnið, að það var eins og hann væri brynjaður. Hann ók sér á hraunnibbunni. Mikið byggja þeir grimmilega ljót hUs nUorðið. Já. Ég veit að það er ljótt að segja það, en ætli þau hæfi samt ekki fólkinu? Ætli það eskki. Þegar ég var unglingur að lesa mér til, þá var ég viss um að á minum efri árum, þá hefði ég tækifæri til að búa i fallegu, stóru húsi með fjölda manns, konum og körlum, þar sem væri tónlist og bókmenntir, iþróttir og menning af öðru tagi. Þá hugsaði maður svo mikið um jákvætt, mannbæt- andi umhverfi. Svo varð þetta öðruvisi. Hann hló við, hlýtt og innilega, eins og hann hefði verið að segja makalausa skritlu. Já, já, sagði hann, og svo eftir- vinnan maður. Það er nú hægt að fara i sund, lesa bækur og hlusta á músik núna, sagði ég eins og til að striða karlinum og kannski var ég svolitið að verja nútiðina. Já já, sagði hann aftur og var enn kiminn, kannski það, en það er fólkið góði, fólkið littá sem varð ekki eins og maður vonaði. Eru mennirnir litilf jörlegir? Æjá. Ekki hver fyrir sig. Einn og i ró er hver og einn góður, en þegar þeir koma saman, þó ekki séu þeir fleiri en tveir, fer allt i glæpsamlegan asnaskap. Miklir bjánar! og hann hló innilega. Sigarettan flaug i boga frá hon- um, hann rykkti sér á fætur af árangur umræðunnar, að heilar þjóðir ættu ekki vanda til að rjúka upp og vitkast. Við röltum áfram Ut Garðaveg- inn en gengum hægt og hefðum GUNNAR GUNNARSSON: um. Það var ekkert lifsmark að sjá i nágrenninu utan hestarnir i girðingunni, hundurinn farinn og sjófulginn var hljóður, kannski i messu að Görðum eða Bessastöð- um. Þegar allar konur i landinu finna að aðgerða er þörf, og þær skipuleggja aðgerðirnar alger- lega neðan frá, það verða engar áætlanir eða fyrirskipanir frá neinni forystu, heldur markviss aðgerð sem fæðist með fjöldan- um, þá fer maður að vona að ekki sé nU öll nótt Uti enn. Manstu eftir verkfallinu hjá kaupfélaginu á Selfossi i fyrra? Já. Þarna sérðu — þetta er hægt. Menn eru ekki bjánar nema að vissu marki. Ef þeir ramba á rétta braut, ef þeir finna til á rétt- um stað, þá ná þeir áttinni, og uppúr þvi er leyfilegt að vera bjartsýnn. Veistu það góði, mér finnst að karlmenn ættu að fara að dæmi kvenfólksins núna og setjast nið- ur, ræða stöðu sina i mannfélag- inu, stöðu sina, stöðu kvenna, tilganginn með störfum sinum, uppeldi barnanna — umfram allt tala. Hann horfði á mig, hló inni i sér og ég var steinhættur við að hjálpa honum i umræðunni, steinhættur við að biðja hann um leyfi til að skrá eitthvað niður eft- irhonum, langaði hálfpartinn að deila við hann, benda honum á að sums staðar i mannfélaginu hérna væru verkalýðsfélög og jafnvel málgögn sem þættust stefna á sama pól og hann.en ég ákvað að hlusta. nibbunni. Við gengum saman eft- ir Garðaveginum og hann vagg- aði eins og skógarbjörn sem rambar á afturfótunum. Hundur kom til okkar, þefaði af okkur báðum, fékk klapp og fór svo að spræna á girðingarstaura. Hestar i girðingu. Stundum er þó eins og renni af mönnunum og þeir gera eitthvað af viti með sjálfa sig. Það var bjartsýnishljóð i hon- um og hann stansaði á götunni, hætti að ramba eins og björn, horfði á mig. Þegar tekst að koma þvi inn hjá öllum konum á landinu að lif þeirra sé ekki i þeim farvegi, sem það geti verið og þær mótmæla kröftuglega, þá verður maður að trúa þvi að kannski sé mannfólkið ekki eins litilfjörlegt og sýnist. Og þegar allir sjómenn sigla i land og hamast við að vera á fundum til að gera sér og öðrum grein fyrir bágri stöðu spyrja um aulalegan reksturatvinnugreinar þeirra, þá verður maður lika að vera bjart- sýnn. Helduröu kannski að byltingin sé að byrja? Byltingin? Nei. NUer mikil þörf að snúa við i þessari byltingu sem einhverjir hafa verið að fram- kvæma hér mörg undanfarin ár. NU er þörf á að fólkið reyni að vera manneskjur en ekki ein- hverjar privatskepnur i heitu húsi. ÞU segir nokkuð, sagði ég og vonaði að bangsi gamli héldi áfram hægt og rólega að tala illa eða vel um mannkynið, þvi rómur hans eins og rann saman við rekju morgunsins og smellina i liðamótum hestanna sem hreyfðu sig á túninu. En hann þagði, fór að bjástra við næstu sigarettu, var áfram kiminn til augnanna en virtist vera að svifa eitthvað burtu frá þeim veruleika sem hann réðist gegn áðan. Ég er orðinn latur i viðgerðun- 'im. Já. Það er orðið aftur mikið að gera, þeirreyna að pina mann I eftirvinnu. Ég er enginn maður til þess. Ætli ég hætti þessu ekki bara. Eftirvinnan er mikið böl. Ef ekki hefði verið eftirvinnan, þá væri ekki svona mikið af ljótum húsum. Einhvers staðar verður fólk þó að búa. Já, það er meinið. Mig langar að hlusta og tala. NU, já sagði ég og fannst ég vera einhvern veginn að missa þennan skrögg út i bláinn. Mig langar að tala og tala og tala. Tala við fólk. Tala við karla og konur, um lífið hér i kring. Ég hef nefnilega gert þann feil, að vera með minar hugmyndir und- ir bilum. Ég hef legið i eftirvinnu, en ekki talað. Svo þegar maður stendur andspænis byltingunni sem þú minntist á, þá man maður einhvern veginn ekki hvað það varsem þurfti aðsegja. NU finnst mér hinsvegar að stiflan sé að bresta. Ég hef lesið i blöðunum hvert orð sem hefur þar birst um kvennaverkfallið og sjómanna- verkfallið og lika um námsmenn- ina. Annað veifið koma svona öld- ur, sem aldrei hafa þó verið svona öflugar. Það verður að kenna fólkinu að tala skynsamlega, eins og margir hafa reyndar gert, vegna þess að gegn skynsamleg- um röksemdum, eilifum vanga- veltum, er aðeins til eitt svar: að hlusta, taka afstöðu. Ég held menn taki á endanum afstöðu. Menn eru bara misjafnlega treg- gáfaðir og misjafnlega kærulaus- ir. Og svo eru það þessir privat- menn. Þeir þola enga ertingu. Ævintýri á göngufbr* i BÓKAMARKAOI Dicke Lilli — gutes Kind. Lilli Palmer. Droener Knaur 1974. Manneskja Ur skemmtanaiðn- aðinum skrifar ævisögu sina. HUn ólst upp i Þýskalandi, vann i næt- urklúbbum I Paris um hrið, söng, dansaði og skemmti mönnum á ýmsan hátt, siðan hvarf hún til Englands og Bandarikjanna og gerðist kvikmyndastjarna, hlaut frægð og fé og skrifar nU ævisögu sina og telur sig vel hafa gert. Höfundurinn skrifar heldur skemmtilega, hefur smekk fyrir vissa tegund gamansemi og litur ánægð yfir liðna tið og ennþá verður hún þeirrar gæfu aðnjót- andi að á hana er horft af 25 miljónum þýsktalandi mann- eskja, þegar hún birtist á sjón- varpsskerminum I sérstakri Ut- sendingu einu sinni á ári. Margar myndir fylgja bókinni. Hann var farinn að bjástra við þriðju sigarettuna, sneri sér undan stóð einhvernveginn i' keng og svo fór reykur að gjósa frá honum. Viðröltum enn veginn, ég var að búa mig undir að segja jæja, og svo ætlaði ég að spyrja hvar hann byggi, hvort ég mætti ekki koma og spjalla betur við hann, kannski taka mynd. En það var eins og hann læsi hugsanir minar, þvi hann leit á mig, sagði: við sjáumst sennilega ekki aftur, en það var gaman að rausa þetta yfir þér góði. Hann stóð skyndi- lega við bilskrjóð i kantinum, eld- gamlan hálfkassa með skitbretti eins og vængi og teinahjól, snaraði sér inn i farkost þennan og bráðlega var vélin farin að stynja, blár mökkur og skothvell- ur aftur Ut skrjóðnum og svo rak hann svartan haus Ut um glugg- ann, og sagði: Ég reikna með að viðkomumstalla leið. Ég hef búið i Kleppsholtinu, en reyndar bý ég þar ekki lengur. Og svo var hann farinn. enga snertingu.en þeir koma með á endanum. Ég var að hugsa um að segja eitthvað, t.d. að ég væri ekki al- veg svona bjartsýnn á mátt og Vélaviðgerðir Tek að mér vélaviðgerðir, bifreiðavið- gerðir og nýsmiði. Upplýsingar i sima 99-5609 og 99-5638. AFERLENDUM

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.