Þjóðviljinn - 07.11.1975, Síða 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 7. nóvember 1975.
Um sveitavegi
Framhald af bls. 9.
hátt. öll þróun til baka i þessa átt
er bændastéttinni eystra mjög ó-
hagstæð og sérstaklega ýmsum
bændum i þeim sveitum, sem
hættast standa.
Strandar á
samgönguþættinum
Samdráttur i mörgum sveitum
i mjólkurframleiðslu nú á siðustu
árum stafar einfaldlega af þvi að
tilraunir i þá átt að auka þessa
búgrein á undanförnum árum
hafa að allt of miklu leyti strand-
að á samgönguþættinum og orðið
til þess, að aftur hefur verið horf-
ið að sauðfjárrækt i þeim sveit-
um, sem þó ættu að hafa öll skil-
yrði betri til mjólkurframleiðslu.
Helgi vitnaði siðan I heimildir
ogsamþykktir heimamanna, sem
allar hniga i sömu átt, þ.e. að
samgönguerfiðleikar séu undirrót
þess, hve illa gengur að auka
mjólkurframleiðsluna og sums
staðar dregst hún jafnvel saman:
Sá aðili sem gleggstar upplýs-
ingar getur veitt varðandi þennan
þátt og eðlilega hlutdeild mjólk-
urframleiðslu i búskapnum á
Austurlandi, er Búnaðarsamband
Austurlands og ráðunautar þess
og vitað er, að þeir hafa uppi á-
kveðnar tillögur og hugmyndir til
úrbóta, sem taka verður mið af
við úttektina. Þar hafa menn haft
miklar áhyggjur af þvi, að þessi
þáttur, þ.e.a.s. mjólkurfram-
leiðslan, fer minnkandi samfara
aukinni þörf fyrir mjólkurafurðir
i vaxandi þéttbýlisstöðum svæð-
isins og ekki siður með tilliti til
þess, að Kaupfélag Héraðsbúa er
nú að reisa nýtiskubyggingu við
mjólkurbú sitt, sem kallar a.m .k.
á verulega aukningu, ef sú fram-
kvæmd á að nýtast sem best. Hér
fara þvi fyllilega saman hags-
munir bænda, þéttbýlisbúa og
þess fyrirtækis, sem er aðalmið-
stöð verslunar ogumsvifa á þessu
svæði. Menn hafa af þvi vaxandi
áhyggjur, ef m jólkurframleiðslan
fer að dragast enn frekar saman
á þessu svæði eins og þó allar
horfur eru á.
Vissulega eru margar ástæður
sem hér liggja að baki, en þó
munu samgöngurnar og óvissan
gagnvart vetrarerfiðleikunum
vera mjög áberandi þáttur.
Vilja fá
jafnari rétt
Cttektin sem slik þarf að hafa
aðgerðir að höfuðmarkmiði og að
þvi lýtur siðari hluti tillögunnar.
Ég þykist þess fullviss, að niður-
stöður hennar leiði til þess, að ó-
tvirætt verði að aðhafast eitt-
hvað. Svo samdóma er álit allra
þeirra, sem hér eiga að einhvern
hlut og þá kemur auðvitað að hinu
sigilda vandamáli, hvar á að taka
fjármagnið.
Ég skal ekki hér og nú fara enn
einu sinni að tala um hraðbraut-
irnar og siaukna vigt þeirra i
fjármagni Vegasjóðs, en aðeins i
fullri alvöru benda á, að ekki
þyrfti nú að fresta mörgum km af
hraðbrautarframkvæmdum til að
gera stórvirki gagnvart þessum
vegum eystra miðað við ástandið
I dag. Og ég er meira að segja
á þvi, að ef arðsemissjónarmið-
ið kæmi inn i myndina út frá rétt-
um forsendum, þá gæti það sýnt
sig, að arðsemi úrbóta á lélegum
sveitavegum eystra slagaði tölu-
vert upp i þá útbásúnuðu arð-
semi, sem hraðbrautirnar okkar
eiga að skila okkur, og þá má
einnig vera, að sú fjárfesting
kæmi til góða fyrir verðugri aðila
en margar aðrar, sem sjálfsagð-
ar þykja.
íbúarnir vilja a.m.k. fá jafnari
rétt til að geta stundað betur þá
atvinnugrein sem er öllum þar
eystra nauðsyn að megi reka á
sem bestan og heilbrigðastan hátt
til heilla fyrir fjórðunginn.
Fjármál
Framhald af bls. 9.
tryggja lýðræði og þingræði, og
kvaðst hún helst ætla að fyrir-
mynda væri að leita i Þýskalandi.
Biði hún nú eftir nánari upplýsing
um þaðan. Ekki fannst henni rétt
að styðja þingsályktunartillögu
Ragnars Arnalds, en hún væri
ekki heldur ánægð með frumvarp
Eykons. Stjórnmálaflokkarnir
allir yrðu að taka þátt i þvi að
móta heildarlöggjöf um flokkana.
Albert styrkti
Sighvat
Sighvatur Björgvinsson talaði
nokkuð um blaðastyrki.
1 kjölfar Sighvats sté Albert
Guðmundsson I pontuna, all-r
ábúðarmikill. Fluttihann þingi og
þjóð þau tiðindi að hann væri nú
sjálfur enn þeirra manna sem Al-
þýðuflokkurinn hefði leitað til
með ósk um fjárframlög, og hefði
hann veitt honum úrlausn. En
þótt hann segði nú frá þessu opin-
berlega vildi hann ekki láta setja
sig á lista yfir stuðningsmenn Al-
þýðuflokksins.
En hjartnæmt!
Þá vék hann að ummælum
Ragnars Arnalds um að Ar-
mannsfell væri varla aflögufært,
jafn litið og það telur fram af
skattskyldum tekjum. Sagði hann
að það hefði aldrei komið skýrt
fram hvort miljónin kom frá
fyrirtækinu sjálfu eða frá eigend-
um þess. Sjálfan brysti sig minni
til að segja nokkuð um það. En
hitt væri vist að Armannssynir
hefðu komið til sin og sagt sér að
faðir þeirra heitinn hefði alltaf
verið mikill stuðnings- og styrkt-
armaður Sjálfstæðisflokksins.
Vildu þeir nú styrkja flokkinn
myndarlega svo sem eins og i
minningu föðurins. Væri hann
þeim innilega þakklátur fyrir
M. 11M HV/CICI I. JLV%JIU
góð matarkaup:
1 lítvi kostar kr. 185.-
Það erugóð matarkaup í Emmess is. í hverri 60g sneið eru eftirtalin næringarefni:
VítamínAi.e. 220 VítamínDi.e. 6
Vítamín B1 ug. 27 Prótm g 2,7
VítaminB2ug. 120 Hitaeiningar 102
þessa sonarlegu ræktarsemi,
hvort sem gefandinn var nú fyrir-
tækið eða þeir persónulega.
Þá kom fram hjá Alberti að-
hann teldi að saksóknari ætti nú
að snúa sér að þvi að rannsaka at-
ferli þeirra manna sem hefðu
borið sakir á sig og athuga hvort
þeir væru ekki réttdæmdir róg-
berar
Karlmennska?
ólafur Ragnar Grimsson hrós-
aði Alberti fyrir þá karlmennsku
að koma þarna upp og flytja þing-
heimi umbúðalausan boðskap
sinn og færði þetta umræðuna á
hærra stig. Yfirlýsing hans um
fjárstuðning við Alþýðuflokkinn
væri mikils virði, og þótt tillögu-
gerð Ragnars Arnalds yrði ekki
til annars en að fá fram þessa
vitneskju, væri ekki hægt að segja
tillöguna árangurslausa.
Nægði að sannað
var um framlög
Ólafur fjallaði siðan I viðara
samhengi um hin varasömu
tengsl fjármála og stjórnmála.
Minnti hann á það, hvernig slik
mál ásamt öðrum urðu Nixon
bandariskjaforseta að falli. Þar
var sannað að fyrirtæki höfðu
gefið i flokkssjóð án þess að fylli-
lega hefði verið upplýst hvaða
stjórnmálaaðgerðir sigldu i' kjöl-
far slíkra gjafa. En þaö að fé
hafði verið gefið var talin næg
sönnun um atferli sem braut i
bága við siðareglur bandarikja-
þings. Þar af leiðandi var þetta
atferli fordæmt og þeir menn lutu
lágt sem að þvi stóðu. Þessar
hliðstæður og andstæður væri rétt
að draga fram i sambandi við at-
burði i kringum Albert Guð-
mundsson og Armannsfell.
Umræðan stóð fram undir
kvöldmat og töluðu ýmsir þeirra
aftur sem nú hafa verið nefndir.
Eyjólfur Konráð var orðinn svo
heitur undir það siðasta að hann
virtist ekki hafa fulla sjálfstjórn
og er engum til góðs að hafa fleiri
orð um það.
Kirby
Framhald af bls. 8.
þurfa ekki að kviða framtiðinni
ef rétt verður á málunum hald-
ið, og þar uppfrá er 16 ára gam-
all piltur, sem ég tel eitt allra
mesta knattspyrnumannsefni
sem cg hef séð á ferli minum
sem knattspyrnumaður. Ef
hann leggur hart að sér við æf-
ingar á næstu árum, verður
hann einn af þeim stóru i knatt-
spyrnunni. Hann heitir Pétur
Pétursson þessi piltur, og taktu
min orð fyrir þvi.
— Þrátt fyrir það sem ég
sagði i upphafi um breytinguna
sem felst i þvi að flytja til smá-
bæjar, þá hefur mér liðið vel hér
á landi, ég hef eignast hér góða
vini, og það er gott að vera á ís-
landi, sagði Kirby að lokum.
—S.dór
Körfubolti
Framhald af bls. 8.
mennirnir, sem hingað eru
komnir, auki eitthvað á lifið i
kringum þessa iþróttagrein.
Leikir um helgina
Ekki er óliklegt að leikurinn i
Njarðvikum á morgun klukkan
14.00 verði leikur helgarinnar.
Þar mætast lið 1R og UMFN. Á
morgun er einnig 1. deildarleikur
á Seltjarnarnesi, þar leika KR og
Snæfell klukkan 14.00. A sunnu
degi mætast síðan Fram og
Snæfell á Seltjarnarnesi klukkan
18.00. —gsp
Alþýðubandalagið
NORÐURLAND EYSTRA....
Almennur fundur Akureyri
Alþýðubandalagið á Akureyri boðar til almenns stjórnmálafundar i
Varðborg kl. 2 á laugardag. Stefán Jónsson, Soffia Guðmundsdóttir og
Helgi Guðmundsson tala. Fjölmennið!
Almennur fundur Húsavík
Alþýðubandalagið á Húsavik boðar almennan stjórnmálafund i Fé-
lagsheimilinu á sunnudag kl. 2. Ræðumenn eru Stefán Jónsson, Óttar
Einarsson og Helgi Guðmundsson. Fjölmennið á fundinn.
Árshátið i Borgarnesi
Arshátið Alþýðubandalagsins I Borgarnesi verður haldin laugardaginn
8. nóvember næstkomandi i Hótel Borgarnesi. Húsið verður opnað kl.
19, en kl. 20 setur Eyjólfur Magnússon hátiðina og borðhald hefst. Undir
borðum verða flutt ávörp og skemmtiatriði. Þessir flytja: Eirikur Guð-
mundsson, Guðmundur Þorsteinsson, Theódór Þórðarson, Jensina
Waage o.fl. — Alþingismennirnir Jónas Arnason og Helgi Seljan verða
meðal gesta og munu flytja skemmtiefni. Guðjón Pálsson leikur á
pianó meðan á borðhaldi stendur. —Að loknu borðhaldi verður stiginn
dans til klukkan 2 eftir miðnætti að minnsta kosti.
Skemmtinefndin
Laus staða
Starf yfirleikmyndateiknara Þjóðleik-
hússins er laust til umsóknar frá 1. janúar
1976. Laun samkv. 23. launaflokki rikis-
starfsmanna. Umsóknir með upplýsing-
um um menntun og fyrri störf sendist
skrifstofu Þjóðleikhússins.
Umsóknarfrestur er til 5. desember.
1 flokkur:
. 9 ö 1,000 000 |cr
9 - 500.000 —
9 - 200.000 ~~
3Ú0 - 50.000 -
2.790 f. 10.000 -
a.280 - 5.000 —
9.000.000 kr
4.500.000 —
l.BOO.QQQ ™
18.000.000 —
27.900.000 ~~
41 400.000 —
102.600.000
Aukavirmingcn';
18 ó 50.000 kr.
vinmngar
103.500.000