Þjóðviljinn - 19.11.1975, Qupperneq 3
Miðvikudagur 19. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 3
Likan af skipulagi Breiðholtshverfanna þriggja.
Suðurlandsbraut 14 — Reykjavík — sfmi 38600
Teikningar af suður- og mið- og vesturdeild Fella- og Hólahverfis,
ásaint ineð texta og Ijósmyndum til skýringar.
Þessu hættuástandi í umferðinni
verður að linna
— Það verða allir landsmenn
að taka saman höndum með
þeim aðilum, sem vinna að
fræðslu i umferðarmálum og
þar með aukinni umferðar-
menningu. En til þess að snúast
nú þegar til varnar, verða allir
landsmenn að gcrast sinir eigin
löggæslumenn i umferðinni,
sagði Einar Ögmundsson, for-
maður Landssambands vöru-
bifreiðastjóra en hann á einnig
sæti i umferðarráði, er Þjóðvilj-
inn átti stutt viðtal við hann um
þá geigvænlegu slysaöldu sem
nú gengur yfir i umferðinni, og
spurði hann álits á ástandi um-
ferðarmálanna.
— Astandið er vægast sagt
ógnvekjandi og það hlýtur að
vera krafa allra hugsandi
manna að allt verði gert sem i
mannlegu valdi stendur til að
sporna við þessari þróun. Um-
ferðarráð hélt fund sl. miðviku-
dag og var þar að sjálfsögðu
rætt um þá ógnvekjandi atburði
iumferðinni sem hafa verið nær
daglega undanfarna mánuði.
Formaður ráðsins, lögreglu-
stjórinn i Reykjavik gaf ráðs-
mönnum skýrslu um viðræður
Rœtt við Einar Ögmundsson form.
Landssambands vörubifreiðastjóra
sinar við dómsmálaráðherra og
skýrði fyrir ráðinu þær tillögur
sem hann telur helst koma að
gagni nú þegar. En þær eru:
Hækkaðar sektargreiðslur,
aukið samræmi i beitingu sekt-
argjörða um allt land, öku-
leyfissviptingu verði beitt i rik-
ara mæli og fleira og fleira. Það
kom að sjálfsögðu einnig fram
hjá formanni ráðsins að aukin
löggæsla er mjög brýn, en til
þess þarf aukið fé, en það er
ekki til staðar, heldur hið gagn-
stæða, svo sem dæmin sanna.
Umferðarráð hefur að minu
viti bent á margar tillögur til
bóta og stuðlað að framgangi
sumra þeirra þrátt fyrir tak-
mörkuð fjárráð frá upphafi. í
þvi sambandi vil ég sérstaklega
nefna hinn merka þátt, sem er
Umferðarskólinn, ungir vegfar-
endur, enda má segja að i gegn-
um það fræðslustarf sem þar er
að unnið, sé um tölulegan ár-
angur að ræða ef miða má við
slysatölur milli ára.
Fjárskortur hamlar allri
starfsemi umferðarráðs; allt frá
þvi að það var stofnað með lög-
um hefur þvi verið skorinn m jög
þröngur fjárhagslegur stakkur,
svo þröngur að við borð liggur
að leggja verði nú starfsemina
niður, ef ráðamenn en það er
fjármálavaldið i þjóðfélaginu
sér ekki að sér og skapar um-
ferðarráði og löggæslu nauðsyn-
leg og sjálfsögð starfsskilyrði.
1 dag höfum við séð á.eftir 29
manns, konum,körlum og börn-
um á öllum aldri i gröfina vegna
umferðarslysa, auk hins gifur-
lega fjölda sem slasast hafa og
sumir hverjir ná aldrei heilsu
eða kröftum aftur. Það má
segja, að hjá mörgum þessara
slysa hefði mátt komast, ef
fullrar aðgæslu hefði verið gætt,
hjá hvorutveggja i senn, gang-
andi og akandi vegfarendum.
Það er min skoðun að það sé
möguleiki að bæta úr þvi
ástandi sem nú er, a.m.k. hér i
Reykjavik, en þar þekki ég
hvað.best til og það er einfald-
lega fólgið i aukinni samvinnu
umferðarlögreglunnar og ann-
arra aðila, sem við umferðar-
málin starfa.
Minnugir sérstakrar lipurðar
lögreglu og alls almennings við
umferðarbreytinguna úr vinstri
i hægri akstur, er ég hvetjandi
þess að það samstarf verði
endurnýjað. öryggi i umferð-
inni verður að aukast, að þvi
verður þjóðin öll að vinna, sagði
Einar að lokum. —S.dór
Sýning á skipulagi
Br eiðholtshverf anna
Leitað eftir spurningum og athuga-
semdum frá sýningargestum
t Fellahelli stendur nú yfir
sýning á skipulaginu I Breiðholt-
unum þremur. Bakkahverfi
(Breiðholti 1). Seljahverfi
(Breiðholti 2) og Fella- og Hóla-
hverfi (Breiðholti 3). Var
sýningin opnuð föstudaginn 14.
þ.m. og stendur út vikuna og ef tii
vill aðra viku til. svo fremi hún
rekist ekki á starfsemi Fella-
hellis. i dag verður sýningin opin
kl. 1-6 á morgun, fimmtudag 1-10
og á föstudaginn 1-5. Höfundar
skipulagsiiis eða fulltrúar frá
þeim verða á staðnum tvo siðustu
klukkulima hvers sýningardags
og verða til viðtals fyrir þá, sem
óska nánari upplýsinga.
Aðalhöfundar skipulags Fella-
og Hólahverfis eru arkitektarnir
Geirharður Þorsteinsson og
Hróbjartur Hróbjartsson, en
Stefán Jónsson og Guðrún Jóns-
dóttir höfundar skipulags hinna
hverfanna tveggja. Þjóðviljinn
hafði tal af Geirharði Þorsteins-
syni og skýrði hann svo frá, að á
sýningunni væri meðal annars
yfirlitsteikning, sem sýndi stöðu
hverfanna þriggja I heildarmynd
borgarinnar. útskýrt er i texta á
hvern hátt skipulagt var. Sýning-
unni er skipt i deildir eftir
hverfum og teikningar af hverju
hverfi skýrðar nánar. Þá eru
teikningar af einstökum hlutum
hverfanna, leikvöllum. göngu-
brúm o.fl., og nokkrar ljósmyndir
úr hverfunum eru til að gefa
hugmynd um, hvernig skipulagið
litur út i útfærslunni. Ennfremur
eru á sýningunni likön af hverf-
unum.
Geirharður sagði að aðsóknin
að sýningunni hefði verið allgóð,
en engu að siður væri ástæða til
að hvetja fólk til að fjölmenna á
sýninguna., kynna sér skipulagið
með eigin augum og koma fram
með athugasemdir varðandi það.
Gæfist þarna ágætt tækifæri fyrir
fólk til að fá fram'hjá höfundum
skipulagsins hvað fyrir þeim
vakti i sambandi við gerð skipu-
lagsins. Á sýningunni er
bréfakassi, ætlaður fyrir þá sem
vilja gera athugasemdir eða
spyrja einhvers bréflega, og hafa
margir þegar notað sér það. Geir-
harður sagði að þegar þefði verið
tekið upp úr kassanum einu sinni
og þeim bréfum svarað, sem
kostur hefði verið, þannig, að
svörin voru vélrituð neðan á
bréfin og þau siðan fest upp á
vegg, sem sérstaklega er til
þeirra nota á sýningunni, og er
ætlunin að hvert bréf hangi uppi i
einn eða tvo daga. Er um algert
nýmæli að ræða hér á Iandi að
þannig sé leitað eftir skoðunum
almennings um skipulagninu
ibúðarhverfa.
Einnig er fyrirhugað að halda
saman öllum bréfum,, sem látin
eru i kassann, flokka þau eftir þvi
hvaða óskir koma fram i þeim og
gera yfirlit yfir niðurstöðurnar.
Sambandsstjórn
byggingarmanna:
Stjórnmála-
slit sé her-
valdi beitt
Sambandsstjórn byggingar-
manna gerði á fundi sinum 8.
þessa mánaðar samþykkt, þar
sem tekið er undir kröfuna um
enga samninga og
stjórnmálaslit, ef isl. verða
beittir hervaldi i landhelgi.
„Fundur i sambandsstjórn
Sambands byggingamanna
lýsir yfir eindregnum
stuðningi við þá ákvörðun að
færa fiskveiðilandhelgi okkar
út i 200 milur.
Fundurinn varar við öllum
samningum við útlendinga,
sem ekki taka tillit til þeirrar
skýrslu fiskifræðinga, sem ný-
lega hefur verið birt um
ástand fiskistofna við tsland
og i raun felur i sér, að enginn
grundvöllur er fyrir veiðum
annarra þjóða á islenskum
fiskimiðum.
öllum aðgerðum og
hótunum andstæðinga okkar
um beingu erlendra herskipa
til verndar veiðiþjófum ber að
svara með slitum á stjórn-
málasambandi við slika
aðila.”
Bæjarfoss
Skipið Nordkynfrost, sem
Eimskipafélagið festi nýverið
kaup á i Noregi, var afhent
félaginu i gærmorgun kl. 9.30 i
Hamborg. Hefur skipinu verið
gefið nafnið „BÆJARFOSS”.
M.s. BÆJARFOSS er
tuttugasta skipið i flota
Eimskipafélagsins. Það
er smiðað i Noregi árið
1972 og er 240 brúttó tonn að
stærð, D.W. 530 tonn. Tvær
frystilestir eru i skipinu.
samtals 35 þúsund teningsfet.
Bæjarfoss siglir væntanlega
frá Hamborg laugardaginn 22.
nóvember og tekur vörur i
Antwerpen. Skipið er væntan-
legt til Reykjavikur 1.
desember.
mmrnmim