Þjóðviljinn - 08.02.1976, Page 4
4 SlÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. febrúar 1976
DJÖÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
(Jtgefandi: (Jtgáfufélag Þjóöviljans
Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólavöröust. 19. Slmi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
HANN KALLAÐI INNRÁSINA ..HERSKIPAVERND”
Viðbrögð rikisstjórnarinnar við her-
skipainnrás breta nú eru með þvilikum
endemum að ekki einu sinni hún sjálf
hefur komist jafnlangt i aumingjaskap og
undirlægjuhætti og er þá seilst jafn langt
eftir viðmiðun og framast er hægt.
Þegar herskipainnrásin varð heyrin-
kunn á fimmtudagskvöldið reyndu frétta-
menn strax að hafa tal af Geir Hallgrims-
syni forsætisráðherra. Hann neitaði að
segja nokkuð um innrásina
fyrst i stað. Varð sú þögn ráðherrans
þegar i stað heimsfræg og send út á frétta-
þráðum fréttastofnana um viða veröld.
Undir miðnættið mannaði ráðherrann
sig upp I að senda fréttatilkynningu sem
var i stil við fyrri yfirlýsingar hans við
svipuð tækifæri, en þó ivið ræfilslegri en
áður. f þetta skiptið sagðist forsætis-
ráðherra íslands ekki skilja herskipa-
innrás breta og hann var svo ósmekklegur
að nota sama orðið um flotainnrás breta
og breska hermálaráðuneytið. Innrásin
var kölluð „herskipavernd” i yfirlýsingu
forsætisráðherrans. En þrátt fyrir ræfils-
leg viðbrögð forsætisráðherra gátu
fréttastofnanir greint frá þvi að utanrikis-
ráðherra teldi að stjórnmálaslit hlytu að
komast á dagskrá þegar i stað,og málgagn
Framsóknarflokksins sló þvi upp yfir
þvera forsiðu sina i gærmorgun að stjórn-
málasambandi hlyti að verða slitið. Þess
vegna gerðu allir ráð fyrir þvi, að þegar i
stað yrði tilkynnt um slit stjórnmála-
sambands eftir fund rikisstjórnar fslands
i gær. En allt annað kom i ljós. Ríkis-
stjórnin hafði ekkert annað ákveðið en að
neita þvi að samningaviðræður færu fram
að sinni, og jafnframt ákvað hún að mót-
mæla i orði við breta.
Það er óhætt að segja að það hafi slegið
þögn á margan manninn i fyrrakvöld
þegar fréttist af yfirlýsingum rikisstjórn-
arinnar. Þær voru með þvilikum eindæm-
um að vart stenst nokkurn samanburð.
Sú rikisstjórn íslands sem þannig hagar
sér á viðkvæmum og erfiðum augna-
blikum er ekki starfi sinu vaxin. í fyrsta
lagi er aðgerðarleysi hennar i hróplegri
mótsögn við viðhorf landsmanna sjálfra. í
annan stað spillir rikisstjórnin með af-
stöðu sinni fyrir þvi að úrslit hafréttarráð-
stefnunnar verði okkur i vil. Og i þriðja
lagi egnir þessi aumingjaskapur enn
bresku ofbeldisöflin til að halda áfram
uppteknum hætti innan islensku land-
helginnar. Það var einmitt i skjóli þessa
aumingjaskapar rikisstjórnarinnar sem
herskipin voru send inn i landhelgina eins
og Callaghan utanrikisráðherra benti
sjálfur á sama kvöldið og bretar sendu
herskip sin hingað inn fyrir.
Nú er komið að úrslitastund i land-
helgismálinu. í þetta sinn hefur rikis-
stjórnin sýnt að hún er ekki fær um að
stjórna landinu. Það er viðhorf megin-
hluta landsmanna i dag að frammistaða
rikisstjórnarinnar á föstudaginn sé til
marks um það að i rikisstjórninni séu
menn sem taki hagsmuni útlendinga fram
yfir islenska hagsmuni. Þegar rikisstjórn
hefur aflað sér sliks vantrausts meðal
landsmanna sjálfra og þegar i ljós kemur
að hún ræður ekki neitt við neitt, verður að
gripa til stjórnmálalegra athafna sem
samsvara kröfum fólksins I landinu.
Formaður þingflokks Alþýðubandalagsins
Lúðvik Jósepsson lýsti þvi yfir á alþingi á
dögunum að Alþýðubandalagið væri
reiðubúið til þess að hindra samninga við
breta i samstarfi við aðra aðila i
þjóðfélaginu. Fullvist er að þeir aðilar eru
margir sem undir þá stefnu taka; spurn-
ingin i þeim efnum er aðeins um
frumkvæðið.
Herskipainnrás breta er til þess ætluð af
bresku stjórninni að svinbeygja islend-
inga til undanhalds. En þó að Geir Hall-
grimsson hafi kropið djúpt fyrir Harold
Wilson i Downingstræti 10 á dögunum mun
islenska þjóðin standa upprétt og fast á
rétti sinum. Og forsætisráðherra sem
lendir i jafn himinhrópandi andstöðu við
þjóð sina og Geir Hallgrimsson getur ekki
verið viss um að skipa virðingarsæti mikið
lengur. Vegur hans og virðing fer þverr-
andi eftir þvi sem hann eyðir meiri orku i
að vegsama Nató þrátt fyrir herskipin og
njósnaflugvélarnar. Svo getur farið, að
landsmenn reki slika rikisstjórn af
höndum sér um leið og herskipin verða
flæmd i burtu úr landhelginni með þeim
ráðum sem til þess duga, hótunum um
úrsagnir úr NATO. Það er mál sem valdið
skilur. —s.
Skákáhugi eflist á Kúbu
Tveir stórmeistarar
Það er viða tef Id skák í
heiminum, sennilega fást
menn við þessa göfugu
iöju — sem ekki næst
samkomulag um hvort
kalla ber list eða íþrótt —
i fl'estum ef ekki öllum
ríkjum heims.
Svo er einnig um kúbumenn.
Fréttir frá Kúbu benda til þess
að skákáhugi sé i miklum upp-
gangi þar. Kúbumenn geta lika
státað af þvi að hafa átt einn
glæsilegasta skákmann sem
uppi hefur verið — snillinginn
Jose Raul Capablanca sem var
heimsmeistari á árunum
1921—27. Til minningar um hann
er árlega haldið sterkt skákmót
á Kúbu þar sem m.a. Guðmund-
ur Sigurjónsson hefur verið tvi-
vegis. Einnig hafa islendingar
sent skáksveit á Ölympiuskák-
mót sem haldiö var á Kúbu fyrir
nokkrum árum.
Siðan Capablanca leið hafa
kúbumenn ekki átt stórmeistara
fyrr en i september sl. Þá varð
Silvino Garcia stórmeistari
vegna frammistöðu sinnar á al-
þjóðamótum.
Nú, og fyrst þeir voru komnir
af stað, þvi þá ekki að halda á-
fram? Það gerðist núna i janúar
að kúbumenn eignuðust annan
stórmeistara sinn á fjórum
mánuðum. Þá keppti Guillermo
Garcia ( hann er ekkert skyldur
Silvino þó hann beri sama eftir-
nafn) á skákmótinu i Orense á
Spáni þar sem Guðmundur
Sigurjónsson bar sigur úr
býtum. Þar hafnaði Garcia i
1.— 3. sæti ásamt Guðmundi og
bandarikjamanninum Kenneth
Rogoff (Guðmundur vann á
stigum). Fyrir það hlaut hann
stórmeistaratitil.
Garcia náöi fyrri helmingi tit-
ilsins á skákmóti sem haldið var
i Las Palmas á Kanarieyjum i
april—mai árið 1974. Eftir það
einbeitti hann sér að raftækni-
námi sinu og lauk fyrsta áfanga
þess rétt áður en hann hélt til
Spánar. Þá gaf hann löndum
sinum það loforð að verða stór-
meistari áður en árið væri liðið.
Að sögn Prensa Latina bjóst þó
enginn við að hann stæði við orð
sin svo fljótt sem raun varð á.
Auk þeirra nafna hafa aðeins
tveir menn frá Rómönsku
Ameriku hlotið stórmeistaratitil
sl. 15 ár. Þeir eru Mecking frá
Brasiliu og Quinteros frá
Argentinu.
Forseti Skáksambands Kúbu,
Jorge Vega, gat ekki leynt
ánægju sinni er hann tilkynnti
þénnan góða árangur Guillermo
Garcia. Hann sagði að sú stað-
reynd að kúbumenn væru aftur
komnir i hóp þeirra þjóða sem
gumað geta af stórmeisturum
væri að þakka velskipulagðri
starfsemi Iþróttasambands
Kúbu. Kúbanir eru ekki i vafa
um að skák sé iþrótt þvi þeir
kusu hinn stórmeistarann, Sil-
vino Garcia, einn af tiu bestu
iþróttamönnum Kúbu árið 1975.
—ÞH
A þriójudag veróur dregió í 2.f lokki.
8.640 vinningar aó fjárhœó 110.070.000 króna.
Á mánudag er síóasti endurnýjunardagurinn.
. flokkur:
9 á 1.000.000 kr. 9.000.000 kr.
9 - 500.000 — 4.500.000 —
9 - 200.000 — 1.800.000 —
198 - 50.000 — 9.900.000 —
8.397 - 10.000 — 83.970.000 —
8.622 109.170.000 kr.
Aukavinningar:
18 á 50.000 kr. 900.000 —
8.640 110.070.000.00