Þjóðviljinn - 08.02.1976, Page 11
Sunnudagur 8. febrúar 197« ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
gagnrýnandinn talinn vera ef álit
hans gengur i berhögg við álit
listamannsins og hans fylgifiska?
Svarað með spurningu: Er hon-
um eitthvað illa við mig? Fór
hann öfugur framúr i morgun?
Sumir ganga jafnvel lengra og
telja gagnrýnandann mislukkað-
an listamann, aðrir hvisla um
kynlifið og vitna i Freud. Allt i
einu er maðurinn orðinn ægileg ó-
freskja, lostafullur kvalari með
enga samvisku. Ég hef heyrt
þessar klausur svo oft að þær eru
hættar að orka fyndnar.
Nú er það sjálfgefið að gagn-
rýnandi verður að kunna skil á
þeim þáttum sem hann fjallar
um. t myndlist eru það hinar fjöl-
mörgu aðferðir (skúlptúr, mál-
verk, vefnaður, grafik o.fl.) auk
þeirra atriða sem eðlisbinda
þessa listgrein, t.d. myndbygg-
ing, litir, form og lina. Hvernig
vinnur þetta saman? Hvaða við-
miðun hefur listamaðurinn?
Hvaðan koma áhrifin og hvernig
nýtast þau? O.s.frv. Þessu til við-
bótar þarf gagnrýnandinn að
kunna sitthvað i listasögu, hann
verður að hafa yfirsýn á sam-
timaviðburði i myndlist, honum
ber að fylgjast með þróun listar-
innar. Hér má einnig nefna per-
sónulega reynslu.
Þeir sem fylgjast með skrifum
•myndlistargagnrýnenda dag-
blaðanna, listamenn og aðrir,
þeir hafa auðvitað tekið eftir þvi
hve vinnubrögð þeirra eru per-
sónuleg og einkennandi fyrir þá.
Þeir berja saman fagurfræðileg-
ar greinar, almennar umsagnir
og ábendingar, kynningar og
fróðleik, deila á það sem miður
fer. Gagnrýnendur fara ekki eftir
ákveðnum formúlum, þeir hafa
ekki staðlaðar fyrirmyndir til að
vinna eftir, þeir skrifa eins og
andinn innblæs hverju sinni.
Vissulega er hægt að gagnrýna
samkvæmt gefinni reglu, tilsnið-
inni einkunnagjöf eða stjörnu-
kerfi, jafnvel með hjálp tölvu þar
sem reiknað er i stærðfræðitákn-
um, ómennskt og tilfinningalaust.
En hver óskar eftir sliku?
Oft hef ég verið gestur á mynd-
listarsýningum þegar aðvifandi
manneskja segir við aðra: þessi
mynd þykir mér góð, þessi er
slæm. Enginn rökstuðningur,
myndin er dæmd i augnabliksæði,
engin tilraun er gerð til að bera
saman innviðu mynda, myndmál
o.fl. Ef sýnandi hefur unnið að
verkum sinum i listrænni kröfu-
hörku og samkvæmt bestu sam-
visku, þá hika ég ekki við að full-
yrða það að gagnrýnendur virða
þá viðleitni og stunda vinnuskrif
sin þannig að réttlátt mat birtist.
Hér er þó vissara að hafa vara á
ef gagnrýnandinn er óljós i hugs-
un, jafnvel treggáfaður, þótt ég
kannist ekki við svoleiðis fyrir-
bæri um þessar mundir.
Ég hef tillögu fram að færa við
þá aðila sem gagnrýna skrif
gagnrýnenda: prófið að skrifa
gagnrýni og sjáið hvernig tekst
til. En þar sem ég veit að flestum
mun reynast það ofviða án hjálp-
ar, þá hef.ég útbúið dálitið plagg
sem hægt er að styðjast við ef ein-
hverjum þóknast svo og fylgir
þessu spjalli.
Nám í Bretlandi:
Verða
skóla-
gjöld
útlend-
inga
hækkuð?
Breska blaöið Times
kvartar nýlega yfir þvi, að
erlendir stúdentar sem við
nám eru i Bretlandi kosti
breska ríkið of mikið.
Samkvæmt heimildum blaðsins
eru nú um 95 þúsundir erlendir
námsmenn i Bretlandi. Af þeim
eru 42.000 ekki til fjárhagslegrar
byrði, vegna þess að þeir eru við
nám i einkaskólum eða i iðnfyrir-
tækjum eða þá að námsfólkið
kemur að ýmsu gagni meðan á
námi stendur (hjúkrunarnemar).
En um 110 miljónir punda fara til
þess á ári hverju að styrkja nám
53.000 manns með einum eða
öðrum hætti. Koma þá um 2.000
punda á hvern þeirra, eða sem
svarar 7-800 þús. krónum.
Um þessar mundir borga
erlendir stúdentar 320 pund á ári i
skólagjöld, og ekki er liklegt að sú
upphæð verði hækkuð i meira en
400 pund á næsta ári. Times segir,
að enda þótt námsgjöld væru tvö-
földuð mundu erlendu
námsmennirnir samt fá alldrjúga
aðstoð.
Ný
tegund
silkiorma
Próíessor Nikolai Sinitski við
landbúnaarháskólann i sovétlýð-
veldinu Ukrainu hefur ræktað
nýjan stofn silkiorma, sem lifa á
blöðum af eik og fleirri trjá-
tegundum. Talið er að fimm tonn-
um af eikarlaufum, sem venju-
lega eru brennd, þegar tréð er
fellti megi breyta i eitt tonn af
silkiþræði, sem auk þess er i
hærr gæðaflokki heldur en sá
silkiþráður, sem venjulegir silki-
ormar, sem lifa á mórberjablöð-
um, framleiða.
Þessi nýi silkiormur kom upp-
haflega l'rá Kóreu og Norður-Ind-
landúog hefur það tekið 20 ár að
aðlaga hann aðstæðum i miðhér-
uðum Rússlands. (APN)
CA KR
620.000
(690.000.-)
TAKMARKAÐAR
BIRGÐIR
TÉKKNESKA BIFREIÐA UMBOÐIÐ
Á ÍSLAND/ H/E
AUÐBREKKU 44-46 KÓPAVOGI SÍMI 42600
Akureyri: Skoda verkstaeðið a Akureyri h.f. Oseyri 8
Egilsstaðir: Varahlutaverilun Gunnars Gunnarssonar
Námskeið í hnýtingum og fingravefnaði
Mánudaga og miðvikudaga frá klukkan 15 til 17 og mánudags-
kvöld og miðvikudagskvöld frá klukkan 20 til 22. Þeir sem hafa
áhuga hringi i sima 14662 á sunnudag.
Sigurlaug Jóhannesdóttir
SKODA IIOL
C A KR.
665.000.-
(740.000.-)
SKODA
IOO
Lífskjara-
rýrnun
Danska blaðið Information birti
fyrir skemmstu yfirlit um breyt-
ingar á rauntekjum i um tuttugu
löndum. Viðast hvar hafa breyt-
ingarnar orðið launþegum nokk-
uð hagstæðar. Ekki sist i Dan-
mörku sjálfri. Þar hafa laun
hækkað að meðaltali um 17,5%
undanfarna tólf mánuði en verð-
lag um 4,7% og hafa þvi rauntekj-
ur hækkað um rúmlega 12% á
þessum tima.
Onnur lönd sem fá allgóða út-
komu eru Spánn (12,1%), ttalia
(11,3%) og Pólland (10,4%).
1 þessu yfirliti eru það aðeins
þrjú lönd sem sýna neikvæða út-
komu. 1 Japan hafa lifskjör sam-
kvæmt þessum útreikningi versn-
að um einn af hundraði og um
tæplega þrjá i Júgóslavi. lsland
er langsamlega verst á vegi statt:
þar hafði kaupmáttur launa
skroppið saman um nær 17% mið-
að við októbermánuð.
einhver afgreiðslan opin
allan daginn
AÐALBANKINN
BANKASTRÆTI 5 SÍMI 272 00
KL. 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19
i
UTIBUIÐ
LAUGAVEG1172
SlMI 2 0120
AFGREIÐSLAN
UMFERÐARMIÐSTÖÐ SÍMI 2 25 85
BREIÐHOLTSÚTIBÚ
ARNARBAKKA2 SÍMI 74600
V/€RZIUNRRBRNKINN