Þjóðviljinn - 08.02.1976, Síða 14

Þjóðviljinn - 08.02.1976, Síða 14
14 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. febrúar 1976 Leiöbeiningar Stafirnir mynda islensk orð eða mjög kunnugleg grlend heiti, hvort sem Íesið er lárétt eða lóðrétt. Hver stafur hefur sitt númer og galdurinn við lausn gátunnar er sá að finna staflykilinn. Eitt orð er gefið og á þaö aö vera næg hjálp, þvi að með þvi eru gefnir stafir i allmörgum öðrum orö- um. Það eru þvi eðlileg- ustu vinnubrögðin aö setja þessa stafi hvern i sinn reit eftir þvi sem töl- urnar segja til um. Einnig er rétt að taka fram, aö i þessari krossgátu er gerður skýr greinarmun- ur á grönnum séíhljóða og breiöuni, t.d. getur a aldrei komið i stað á og öfugt. BORISPOLEVOI 1 2 3 4 5 (d ? 99 9 1 10 II 12 13 V i4 )S 99 10 13 /? <5? IZ 18 8 6' <3? W V W 20 /? 5 3 10 zo 12 /2 5- )0 V 21 /1 8 2 22 10 0 22 Z ID 09 5- 8 0? 21 b 9 10 y 12 21 w II 8 S' 9? 10 12 12 10 2 3 5 /9 9 V /9 18 22 5~ /7- 5" v 3 zT V 10 24 10 12 n S~ 2? 5 9? b /3 25 13 3 3 2í> V /*/ 99 2T- 8 13 10 V 5~ /*/ 5 V sr /? V /3 12 21 10 10 2 99 10 li' 2/ y 22. )0 2 3 99 r /9 3 20 99 12 n 9 9? 23 ii ir S 9? 12 Jl '°R 99 5" JO 2 9? 14 21 3" (p o 9? 3 s 2 2S~ 9? 28 "d 12 21 5 !0 /¥ 12 13 3 (T sa 2°! í> 2$ b S2. 30 iT nÐ S~ 8 Setjið rétta stafi i reitina neð- an við krossgátuna og mynda þeir þá nafn á veðurfyrirbæri sem oft sést á himni. Sendið þetta orð sem lausn á krossgát- unni til afgreiðslu Þjóðviljans, Skólavörðustig 19, merkt „Verðlaunakrossgáta 19”. Skilafrestur er þrjár vikur. Verðlaunin eru bókin Saga at sönnum manni eftir sovéska rit- höfundinn Bóris Polevoj. Þýð- andi er Jóhannes úr Kötlum en Halldór Laxness ritaði inn- gangsorð. Aðalsöguhetjan er flugliði úr Rauðahernum, sem missir báða fætur i siðari heimsstyrjöldinni, og lýsir bók- in baráttu hans, þar til honum tekst að sigrast á örkumlum sinum og verða fullveðja sovét- flugmaður á nýjan leik. Halldór Laxness segir svo i ínngangs- orðum: ,,En þó að saga þessi af sönnum manni eftir Bóris Pole- voj sé engin gamansaga að efni til, þá er höfundurinn svo fjör- ugur og léttur i máli að það mun sanni nær að flestir menn, og þó kannski engir fremur en æsku- menn, örvist við ævintýralega frásögn hans”. Ennfremur seg- ir Halldór: ,,Þar kemur nú loks- ins bók sem maður mundi hafa kallað spennandi hér á árun- um”. útgefandi bókarinnar er Heimskringla. Verðlaun fyrir krossgátu nr. 15. Verðlaun fyrir rét+a lausn á krossgátu nr. 15, sem birtist 11. janúar, hlaut Þórunn Guðmundsdóttir, Hólavegi 15, Sigluf irði. — Verðlaunin eru bókin Dagar við vatnið eftir Drífu Viðar í útgáfu Heimskringlu. \ Sjónvarp: Veruleiki og tilbúningur Ég er i vanda staddur, og lik- lega eru margir amerikanar i sama vanda einnig. Ég getekki lengur greint á milli sjónvarps- frétta og glæpaleikritanna sem koma strax á eftir þeim. Ég er ekki viss um það, hvort ég sá Patriciu Hearst i „Walter Cronkite” eða i myndinni ,,Á götum San Fransisco”. Var Sara Jane Moore persóna i „Cannon” eða reyndi hún i raun og veru að skjóta forseta Bandarikjanna? Veruleiki og óraunveruleiki hristast saman i eitt. Það virðist ekki mikill munur á þeirri Lynette Fromme sem viðsjáum i „Fréttir af sjónarvottum” og hippanum truflaða sem við sjá- um i „Hawai fimm-núll”. Hvað gerir vitlaust fólk þegar það er ekki úti á götu og miðar byssum að fólki? Situr það heima og horfir á sjónvarp? ímyndar þetta fólk sér að „SWAT” hafi umkringt hús þeirra, eða að Efrem Zimbalist frá Alrikislögreglunni sé á hælunum á þvi i þyrlu? Sam- samar þetta fólk sig þvi fólki sem er að reyna að myrða „McCloud” eða þeim sem ætla að nauðga Anie Dickinson i „Lögreglukonunni”? Hvenær fór „John Chancell- or” af skerminum og hvenær kom „Mod-sveitin” i staðinn? Sá ég bankarán i kvöldfréttun- um eða var það i „Barbary- ströndinni”? Hver skrifar fréttapró- grömmin? Og hver skrifar glæpaleikritin? Er það sama fólkið? Hefur Ford forseti horft á of margar biómyndir með John Wayne i sjónvarpinu? Ég veit að ég heyrði um konu, sem 45mm. skammbyssa henn- ar var tekin af henni, en tókst að kaupa aðra 38 mm áður en dag- ur var liðinn. En hvar sá ég þetta? Var það i fréttayfirliti dagsins eða i „Baretta”? Hvar eru allir Osvaldar fram- tiðarinnar núna? Hafa þeir lita- sjónvarp, eða horfa þeir á svart-hvitt? Var það „Járnsiða” eða Perry Mason eða lögfræðingur Patty Hearst sem ég sá um dag- inn lýsa þvi yfir, að skjól- stæðingur sinn hefði verið heila- þveginn? Það var verið að sýna byssu i sjónvarpi á dögunum sem gat skotið eiturörvum og drepið menn á 15 sekúndum. Mér finnst það hafi einhver fréttaskýrandi verið að þusa um CIA, en kannski var þetta partur úr „Mission Impossible”? Var einhver að reyna að drepa dálkahöfundinn Jack Anderson, eða var það einhver úr „Adam 12”? Mikiðþætti mér gott ef ég gæti munað það. Það var eitthvert mannrán i sjónvarpinu. Ég held að strák sem hét Bronfman hafi verið rænt. Þeir náðu i mannræningj- ana. Hverjir þeir? Voru það þeir hjá Alríkislögreglunni eða var það „Harry O”? Og hvaða dag- skrár horfa mannræningjar á þegar búið er að nappa þá? Horfa þeirá fréttir eða á glæpa- leikritin? Finna væntanlegir morðingj- ar tilafbrýðisemi i garð Charles Mansons? Ofunda þeir ungfrú Fromme af þvi hve rækilega hún komst i sjónvarpið eftir að hún reyndi að plaffa á forset- ann? Láta þeir sig dreyma um að þeir verði næstir til að skæl- brosa framan i kastljósin, EFTIR ART BUCHWALD standandi milli lögregluþjón- anna sem fylgja þeim? Eða þykjast þeir vera að skjóta nægju sina á við Charles Bronson i miðnæturbíómynd hjá A.B.C-stöðinni? Ef að ég get ekki lengur greint raunverulega atburði frá þeim uppdiktuðu, hvernig ættu þeir þá að geta það? Kannski er ekki til neitt lengur sem heitir raun- veruleguratburður? Og kannski eru heldurekki til lengur neinar tilbúnar sögur? En hvað er það þá sem við erum að horfa á, og hvaða áhrif hefur það á okkur? Og ef þetta sem við sjáum hefur áhrif á okkur, hvaða áhrif hefur það þá á þetta einmana og vonsvikna fólk sem situr i sóða- legum herbergiskytrum sinum og föndrar við 38 mm eða .45 mm. skammbyssuna sina eða hvaða tól það annars var sem hann eða hún keypti i næstu búð fyrr i vikunni? Talsmaður Bandariska riffla- sambandsins sagði i þætti með Mike Wallace, að það væru ekki byssur sem dræpu menn. Það eru menn sem drepa menn, sagði hann. Eða sá ég þetta kannski i „Kojak”? Þó það ætti mig lifandi að drepa: ég man það ekki. Sitt úr hverri áttinni Pabbi, mamma og sjónvarpið Nemendur við menntaskóla i bandariska bænum Farmville tóku að sér að spyrja börn i pláss- inu að þvi, hvort þeim þætti vænna um föður sinn en sjónvarp- ið. Börnin voru á aldrinum fjög- urra til sex ára. 44% þeirra sem svöruðu sögðu að þeim þætti vænna um sjónvarpið. Mæðurnar fóru nokkuð betur úr þessum samanburði. Ekki nema eitt barn af hverjum fimm tók imbakass- ann fram yfir móður sina. Skattamál þjófa Fyrir skömmu felldi hæstirétt- ur Sviss svofelldan úrskurð: þjóf- ur sem hefur hvað eftir annað fengist við sölu á stolnum vörum er atvinnurekandi samkvæmt skilningi skattalaganna og ber honum að greiða tekjuskatt sem slikur. lagsi.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.