Þjóðviljinn - 08.02.1976, Page 22

Þjóðviljinn - 08.02.1976, Page 22
22 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 8. febrúar 1976 Soffía Framhald af bls. 2. áfram teldi ég það stóran áfanga á Akureyri miðað við að þar hafði bókstaflega ekkert verið gert i þessum málum áður. En það þarf að sjálfsöðu að fylgja aðgerðinni eftir með meira starfi, og etv. kæmi til mála að halda ráðstefnu siðar i vetur um kjör kvenna i at- vinnulifinu, þeas láglaunakvenn- anna. Hóparnir sem starfa núna hafa tekið fyrir mismunandi verkefni. Tveir sneru sér að þjálfun i al- mennum félagsstörfum, einn er með ýmiskonar erlent og innlent lesefni um jafnréttismál og byrjaði strax i desember að þýða sitthvað. Einn tekur fyrir dag- vistunarmál og annar kannar launaflokka og starfsskiptingu og sá sjötti fjallar um konuna og neytendaþjóðfélagið, þar með talið auglýsingar og sitthvað sem undir þetta fellur. 24. október og kannski ekki sist 70 kvenna fundurinn leysti úr læðingi marga krafta, sem ekki var vitað um áður, en áreiðanlega eiga eftir að nýtast i réttindabar- áttu kvenna i framtiðinni. —vh Mismunun Framhald af bls. 8. fara að búa aftur með sinni fjöl- skyldu. Hún hafði lifað án þeirra og hafði hreinlega ekki pláss fyrir þá lengur. Þeir komu breyttir heim, annað hugarfar, önnur framkoma og tilfinning fyrir lífinu. — Hvað veldur föngunum sjálfum mestum erfiðleikum á meðan þeir afplána refsingu" — Ég held að það sé erfiðast að sætta sig við sjálfa innilokunina. Það, að vera sviptur frelsi sinu, erákveðin sálfræðileg þvingun og hún hlýtur að vera alverst. Vandamál sem koma upp vegna innilokunar eru margvisleg, t.d. vegna kynlifsins. Ég held þó að það sé hægt að umbera það, að vera sviptur venjulegu kynlifi. Menn leysa þetta vandamál á ýmsan hátt. Sumir með sjálfs- fróun og aðrir með þvi hreinlega að bæla þessa hvöt þar til hún smám saman sljóvgast. Hinu er ekki að neita að oft vill það fara svo, að menn taka upp kynferðislegt samband við sam- fanga sina Kynvilla er fyrirbæri sem ekki er hægt að loka augun- um fyrir, það er óhjákvæmilegur fylgifiskur innilokunar margra manna og eitt af þvi sem ein- hvernveginn þyrfti að finna lausn á. — Hvernig bregðast menn við innilokuninni? — Það er æði misjafnt. Sumir bregðast við með þvi að forherð- ast, verða bitrir og fyllast hatri út i allt og alla, sérstaklega þó út i þjóðfélagið sjálft, án þess að sundurgreina það. Þjóðfélagið verður bara skrimsli og oft getur verið erfitt að ráðast á þennan óvin sinn. Aðrir sætta sig við fangelsis- lifið, lifa sig inn i það af lifi og sál, gera allt til þess að vera fyrir- myndarfangar. Sýna þá áhuga, þóknast fangavörðunum o.s.frv. Reynslan hefur sýnt að þeim hópi er hættast við að koma aftur siðar i fangelsið, halda aftur út á sömu braut, þegar vistinni lýkur. Enn aðrir reyna að einangra sig. Leitast við að taka sem alminnstan þátt i fangelsislifinu, forðast samskipti við aðra fanga. Sumir ganga svo langt að þeir neita að vinna og borða og slik viðbrögð eru lika afar hættuleg. Kaupmenn eiga aö taka afleiðingunum — Hvernig vilt þú láta refsa fyrir afbrot? — Það yrði nú langt mál að fara út i minar hugmyndir hvern- ig eigi að hátta refsingum. í grundvallaratriðum má þó segja að ég vilji ekki láta loka aöra menn inni en þá, sem teljast um- hverfinu beinlinis stórhættulegir. Þeir menn éru að minu viti ákaf- lega fáir, — svo fáir að við getum ekki byggt kerfið upp fyrir þá. Min skoðun er sú að það megi hreinlega afnema refsingar fyrir mörg þessara þjófnaðarbrota. Mér finnst þau ekki refsiverð. Kaupmenn freista t.d. viðskipta- manna með þvi að stilla vörum sinum glæsilega út i gluggann og þeir ætlast til þess að borgararnir freistist. Sumir freistast án þess að hafa efni á þvi og mér finnst að kaupmaðurinn verði að þola það tjón á eigin spýtur og gera sjálfur ráðstafanir til þess að koma i veg fyrir annað innbrot. Ég held að ég geti dregið linuna á milli þjófnaða á undir eða yfir tiuþúsund krónum. Ef um er að ræða fyrra tilfellið finnst mér sjálfsagt að láta málið kyrt liggja. Það fer alltof mikil orka lögreglumanna i þessi smámál á meðan önnur og miklu stærri sitja jafnvel á hakanum. Sofið á verdinum — Hefur verið rætt um að stofna sérstakt meðferðarheimili fyrir fanga sem afplána siðustu mánuði refsingar sinnar? — Nei, ekki mér vitanlega. Það er sofið á verðinum og ég verð a.m.k. ekki vör við að verið sé að kanna leiðir til úrbóta i islenskum fangelsismálum. Það er raunar ekkert einsdæmi að breytingar á fengelsismálum gangi hægt fyrir sig, en i öðrum löndum virðist manni þó að verið sé að gera til- raunir og leita fyrir sér með eitt- hvað nýtt. Hérlendis verður breyting að eiga sér stað vegna þess að það sem við höfum, getum við ekki sætt okkur við. En ég held að athyglinni sé beint um of að upp- lýsan smámála og refsingum fyrir þau. Dómsmálakerfið vinnur allt saman við smáþjófn- aðina, allur kostnaður er i kringum þá. Mér finnst að það ætti að beina athyglinni frá þeim og að þvi sem er miklu alvarlegra eins og t.d. skattalagabrot og önnur nútima- brot. Þar er beitt allt öðrum aðgerðum fangelsisvist er ekki notuð i þeim tilfellum og þvi myndi um leið draga verulega úr notkun fangelsanna. — Eru allir menn jafnir fyrir lögum? — Nei, ekki að minu viti. Það hefur verið töluvert til umræðu i fjölmiðlum að menn fái ekki allir sömu afgreiðslu sinna mála. Sú gagnrýni hefur beinst i þá átt að yfirvöld beiti refsingum ekki ein- göngu með hliðsjón af afbrotum, heldur þjóðfélagsstöðu manna.og einnig að að afgreiðsla málanna taki mislangan tima — lika eftir þjóðfélagsstöðu manna. Mörgum virðistþað orðin regla að viss hópur, úr miðstétt eða yfirstétt, sem hefur tengsl inn i embættismannakerfið, fái aðra meðferð heldur en lágstéttarfólk. Ef þetta er orðin regla, en ekki tilkomið fyrir handvömm eða til- viljanir, er málið mjög alvarlegs eðlis. Mér finnst þessi gagnrýni góð; jafnrétti fyrir lögum á að vera algjört. Réttaröryggi almennings ógnað Með misrétti á borð við þetta verður erfitt að fylgjast með afgreiðslu yfirvalda. Réttar- öryggi almennings er ógnað þegar við þekkjum ekki regiurnar eða höfum ekki ákveðnar reglur, heldur mat yfirvalda hverju sinni. Lögum 'samkvæmt hafa þau þó ekki þetta vald, en komast engu að siður upp með óréttláta mismunun. — Hvað er islenskt lifstiðar- fangelsi langt? — Það er sextán ár, en menn afplána aldrei alla refsinguna. Fangelsisvist lýkur nánast alltaf er 2/3 hlutar hafa verið afplán- aðir, þá er föngum veitt svokölluð reynslulausn, en einnig hefur færst i vöxt að menn séu náðaðir af sérstakri nefnd, sem til þess er skipuð. Sakaruppgjöf er hins vegar litið beitt hérlendis, en menn geta sótt um náðun hvenær sem er. Upphaflega var talið af almenn- ingi að náðunum væri beitt svo mjög vegna vöntunar á fanga- rými, en Litla Hraun hefur ekki verið fullskipað um árabil svo að ég held að ákveðin hefð sé höfð i heiðri i sambandi við náðanirnar núna. Einnig hefur verið töluvert um það að menn afpláni litið af dómum sinum. Þeim hefur hrein- lega verið sleppt og þá mega þeir eiga von á þvi að verða settir inn i afplánun aftur hvenær sem er. Þetta er ákaflega slæmt fyrir- komulag. Stundum ernáðunum beitt áður en refsing er tekin út. Mál eru oft æði lengi i rannsókn hjá yfir- völdum áður en dómur fellur og á t.d. einu ári geta hagir manna breyst verulega. Þeir geta snúið af afbrotabrautinni og tekið að lifa fullkomlega heiðarlegu og eðlilegu lifi á einu ári og þá er vitanlega freistandi að sækja um náðun, til þess að lenda ekki i sama farinu aftur. Náðunar- nefndin gefur ekki út neinar skýrslur um sinar náðanir svo að það er ekki gott að átta sig alveg á þvi hvernig hún tekur á slikurn tilfellum og öðrum. Fangaverðir ekki i/vondir menn" — Eru fangaverðir „vondir menn”? — Ekki hérna heima held ég. Fangaverðirnir okkar hafa flestir unnið viða og ekki ætlað sér frá upphafi að gegna þessu starfi. Þeir hafa ekki stefnt að þessu frá barnæsku, farið i fangavarða- skóla o.s.frv. Þeir hafa innsýn i atvinnu- og mannlifið og ég held að þeir séu á margan hátt „betri” en erlendis. Þetta er hins vegar afskaplega óþægileg vinna á margan hátt. Mér finnst að það þurfi að gera meira fyrir fangaverðina, halda fyrir þá einhver námskeið i sál- fræði og öðru sliku. Fangar fylgjast vel með þvi hvort mönn- um sé mismunað, hvort einn sé i „uppáhaldi” frekar en annar o.s.frv. — Hvar finnst þér helst vera pottur brotinn i islenska réttar- kerfinu? — I yfirstjórninni. Það er ekki nógu mikil drift þar. Alvarlegasta meinsemdin er þessi mismunun gagnvart lögunum. Við lifum að minu áliti i stéttskiptu þjóðfélagi. Menn eru ekki allir jafnir i raun, þetta er ennþá bara hugsjón sem talsmenn jafnaðarstefnu eru að halda á lofti. Sjálf hef ég ekki neina lausn á þessu. Mér finnst málið erfitt viðfangs, en það ógnar réttaröryggi almennings og krefst tafarlausrar úrlausnar. —gsp Heildartilboð óskast i innanhússfrágang a kennslustofubyggingu héraðsskólans að Reykjum i Hrútafirði. Innifalið i verkinu er t.d. múrhúðun, hita- og vatnslagnir, loftræstikerfi, raflagnir, dúkalögn, málun og innréttingasmiði. Kennslustofur skulu vera nothæfar n.k. haust. Verklok á árinu 1977. Útboðsgagna má vitja á skrifstofu eftir kl. 14 9.2. 1976, gegn 10.000,- kr. skila- tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þriðju- daginn 2.3. 1976 kl. 11 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍK1SINS BORGARTÚNÍ'7 SÍMI 26844 Steingrimur Sigu. gcirsisoi; Það er einmit mig langar til Steingrimur Sigur- geirsson, 9 ára, Hraunbæ 36, Reykjavik, sendi Kompunni nokkrar myndir sem hann hefur teiknað um landhelgis- deiluna. Kompan fékk hann til viðtals. Kompan: í hvaða skóla ert þú? Steingrimur: Ég er í 4.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.