Þjóðviljinn - 08.02.1976, Page 24

Þjóðviljinn - 08.02.1976, Page 24
DJÚÐVIUINN til verið takmarkaðar. Það væri þvi einstakt lán að fá upp i hend- urnar vandaða rannsókn á rúm- lega 1.500 reykviskum ungling- um og það fyrir litið fé. Kvaðst hann háfa mikinn áhuga á að fá niðurstöður hennar til kennslu við Háskólann. Það kom fram i máli þeirra Sigurjóns og dr. Befrings sem einnig sat fundinn að þeir sem vinna að málefnum unglinga hafa mikið fundið fyrir þeim skorti á heildarkenningum um „unglingavandamálið”. Hingað til hefur verið notast við banda- riskar kenningar eingöngu en menn hafa rennt blint i sjóinn með það hvort þær eiga við á Norðurlöndum þar sem menn- ingarástand er mjög ólikt bandarisku. Að leiðrétta misskilning Dr. Befring sagði að mark- miðið með þessari rannsókn væri annars vegar að auðvelda norræna kenningasmiði um málefni unglinga, hins vegar að leiðrétta ýmiss konar misskiln- ing á þessum aldursflokki sem mjög er útbreiddur. Margt af þessum misskilningi á sér t.d. rætur i stúdentaóeirðunum miklu sem urðu viðsvegar i Evrópu upp úr 1968. Sagði Be- fring að sennilega yrðu 35—40% af heildarniðurstöðum rann- sóknarinnar samanburður milli landa. Dr. Befring var spurður að þvi hvaða ástæður lægju að baki valinu á 14 ára unglingum. Hann sagði að til.væru 2 aðferðir við rannsóknir sem þessar. Annars vegar væri hægtað taka t.d. 14, 16 og 18 ára unglinga á sama tima og gera samanburð. Hins vegar væri sú aðferð sem nú er notuð, að taka fyrir einn árgang sem siðan mætti heim- sækja aftur eftir 2—3 ár og rekja þá þróun sem orðið hefur á hópnum. Hann var spurður að þvi hvort einhverjar niðurstöður lægju fyrir úr rannsókninni i Dan- mörku og Noregi. Svaraði hann þvi til að svo væri með örfáa þætti. Til dæmis lægju fyrir nið- urstöður úr þeim þætti rann- sóknarinnar sem varðar neyslu áfengis og annarra fikniefna. Hefði komið i ljós að danskir unglingar neyttu þessara efna i meira mæli en þeir norsku. Einnig væru neysluvenjur ólik- ar: dönsku unglingarnir neyta efnanna oftar, þeir norsku gera það hins vegar sjaldnar en þá yfirleitt mun meira i einu. Kvað hann menn búast við að niður- stöður héðan frá Islandi yrðu svipaðar og frá Noregi. Einnig skýrði hann frá þvi að i Danmörku hefði komið i ljós að 45% unglinganna væru félagar i iþrótta- og útivistarfélögum. Hins vegar kváðust 90% ung- linganna stunda iþróttir með einhverjum hætti. Þetta hefði vakið mikla athygli og umræður i Danmörku, einkum sú stað- reynd að helmingur þeirra ung- linga sem iþróttir stunda njóta til þess einskis stuðnings frá iþróttasamtökum eða riki. Hann tók i sama streng og Sigurjón og kvað framtak sjö- menninganna lofsvert. Án þeirra hefði könnunin aldrei náð til islenskra unglinga. Væru fyr- ir þvi bæði tungumálaástæður sem efnahagslegar. Einnig kvað hann mikilvægt fyrir sjö- menningana að fá þetta tæki- færi að kynnast með þessum hætti islenskum veruleika með- an á námi þeirra stendur þvi þá væri minni hætta á að þeir kæmu heim að námi loknu með mikið af erlendu bókviti sem e.t.v. væri ekki i alltof miklu samræmi við islenskar aðstæð- ur. Niöurstööur sendar heim Þess má svo geta hér að lok- um að sjömenningarnir kváðust mundu leggja mikla áherslu á að senda niðurstöður rann- sóknarinnar hingað heim jafn- harðan og þær berast. Með þvi móti vonuðust þeir til að þær hefðu verulegt hagnýtt gildi fyr- ir fræðsluyfirvöld, Æskulyðs- ráð, heilbrigðisyfirvöld og aðra þá aðila sem vinna að æskulýðs-, mennta- og skipulagsmálum. —ÞH Súnnudagur 8. februar 1976 Nú stendur yfir um- fangsmesta rannsókn sem gerð hefur verið á ,/unglingavandamálinu" hér á landi. Er þar um að ræða félags- og sálfræði- lega könnun sem nær til allra 14 ára unglinga hér í Reykjavík, en þeir eru á 16. hundrað talsins. Að þessari rannsókn vinna sjö islenskir sálfræði- nemar sem stunda nám í Arósum. Þeir sem að rannsókninni standa eru Andrés Ragnarsson, Asgeir Sigurgestsson, Brynjólf- ur G. Brynjólfsson, Einar Hjör- leifsson, Hugo Þórisson, Jónas Gústafsson og Pétur Jónasson. Þeir vinna undir handleiðslu dr. Edvards Befring. en hann er prófessor i uppeldissálarfræði við Arósarháskóla. Byrjað í Noregi 1973 Rannsókn þessi er liður i sam- norrænni samanburðarrann- sókn sem fer fram i Vestur-Nor- egi, Silkiborg á Jótlandi og i Reykjavik. Rannsóknin hófst i Noregi ár- ið 1973 að frumkvæði æskulýðs- samtaka þar i landi. Vildu þau að gerð yrði viðtæk rannsókn á „unglingavandamálinu” sem spannaði yfir viðara svið en hefðbundnar rannsóknir á ein- stökum atriðum eins og fikni- efnaneyslu eða kynferðislifi ná til. Árið 1974 hófst samskonar rannsókn i Danmörku og lá þar FÉLAGS- OG SÁL- FRÆOILEG KÖNNUNÁ *<> ' sX'Vx 14 ára unglingum í Reykjavík einnig að baki óánægja með yfirborðskenndar eða of sértæk- ar rannsóknir. 1 árslok hitti svo dr. Befring sem hefur forystu fyrir þessum rannsóknum islensku sálfræði- nemana að máli og þá varð til hugmyndin að gerö stórrar nor- rænnar rannsóknar á „ung- lingavandamálinu”. Mikill undirbúningur Islendingarnir hófu undirbún- ing rannsóknarinnar hér heima sl. vor. Var mikil vinna lögð i undirbúning hennar til að tryggja að hún bæri sem mestan árangur. Meðal annars var gerð forkönnun á Selfossi sl. haust þar sem 70 nemendur gagn- fræðaskólans svöruðu spurn- ingalista sem lagður var fyrir þá. 1 þessari forkönnun var at- hugað hvort orðalag spurning- anna væri of erfitt eða ekki i samræmi víð hugmyndaheim unglinganna. Var listinn siðan endurskoðaður i ljósi þessarar forkönnunar. Þá var haft samband við menntamálaráðuneytið, fræðsluyfirvöld Reykjavikur og skólastjóra sem allir voru reiðubúnir að vera með. Ung- lingarnir voru hins vegar ekkert látnir vita fyrr en á miðviku- dagsmorguninn þegar könnuð- irnir og aðstoðarfólk þeirra mætti i skólana, skýrðu könnun- ina og tilgang hennar fyrir þeim. Siðan tóku unglingarnir til við að svara spurningunum. Kváðu sjömenningarnir ung- lingana hafa brugðist vel við þessu og hefðu heimtur verið milli 90 og 100%. Spurt um margt 1 upphafi eru spurningar um félagslegan bakgrunn ungling- anna, atvinnu og menntun for- eldra, húsnæðisaðstöðu o.þ.u.l. Þá er leitað upplýsinga um samveru og tengsl innan fjöl- skyldunnar, uppeldishætti, svo og samband unglinganna við jafnaldra sina. Kafli er um skól- ann, bæði hvað snertir viðhorf til skólagöngu almennt, ein- stakra námsgreina og fram- haldsmenntunar. Fristundir og tómstundastörf unglinga hafa verið ofarlega á baugi undan- farin ár og er sá þáttur kannað- ur all-ýtarlega, bæði með tilliti til skipulagðra tómstunda- starfa, svo sem þátttöku i iþróttafélögum og starfi Æsku- lýðsráðs, sem og annarrar nýt- ingar fristunda. I framhaldi af þvi eru spurningar um not ung- linganna af fjölmiðlum, lestur dagblaða og bóka, notkun út- varps og sjónvarps o.s.frv. Þá er spurt um viðhorf til óknytta og afbrota og hugsanlega þátt- töku i sliku, um tóbaks-, áfengis- og fikniefnaneyslu og viðhorf unglinganna til þessara efna. Einnig eru spurningar um kyn- þroska og kynferðismál, svo sem um gelgjuskeiðseinkenni, viðhorf til kynferðisfræðslu og hugsanlega reynslu á kynferðis- sviðinu. Það liggur i hlutarins eðli að spurningar um svo viðamikið efni hljóta að verða mjög per- sónulegar á köflum. Til þess að koma i veg fyrir hugsanlega misnotkun á svörunum var þess gætt að nafn, heimilisfang eða fæðingardagur svarenda kæmi hvergi fram; ekki var spurt um nein þau atriði sem hægt væri að styðjast við i þvi skyni að kom- ast að þvi hver svarar einstök- um listum. ódýr rannsókn Framhald rannsóknarinnar verður svo þaö að nú um helgina fara sjömenningarnir til Arósa með öll sin gögn þar sem úr- vinnsla fer fram. en við hana verða tölvur mikið notaðar. Sjö- menningarnir munu svo vinna úr tölvugögnunum og er það lið- ur i námi þeirra. Þrir þeirra munu með vorinu hefja vinnu við lokaritgerðir sinar sem byggðar verða á þessari rann- sókn og má þvi búast við fyrstu niðurstöðum úr könnuninni snemma á næsta ári. Ekkert liggur enn fyrir um útgáfu á nið- urstöðunum i heild. Eins og við er að búast k'ostar könnun sem þessi stórfé. Sótt var um styrk til Norræna menn- ingarmálasjóðsins og veitti hann 40 þúsund danskar krónur til starfsins eða sem svarar 1.1 miljón króna. Sáttmálasjóður veitti 150 þúsund króna ferða- styrk og Reykjavikurborg tók að sér prentun án endurgjalds. Við þetta bætist vinna sjömenn- inganna sem öll var unnin kaup- laust. Búist er við að heildar- kostnaður af könnuninni verði sem næst 1,5 miljónum en ef sérfræðingum hefði verið falin gerð hennar og þeim greidd full laun má búast við að hún hefði kostað 5—8 miljónir. ,/Höfum rennt blint i sjóinn". Sigurjón Björnsson prófessor i sálarfræði viö Ht sat blaða- mannafund þar sem skýrt var frá rannsókninni. Hann lýsti þar ánægju sinni með framtak sjö- menninganna og kvað það hljóta að hafa töluvert gildi fýr- ir islenskt þjóðfélag. Allt of litið hafi verið gert af þvi að kanna hvernig þegnum þjóðfélagsins vegnar i lifsbaráttunni og allar rannsóknir sem gerðar hafi ver- ið á þessum aldursflokki hingað

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.