Þjóðviljinn - 05.03.1976, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 05.03.1976, Blaðsíða 5
Föstudagur 5. mars 1976. ÞJÓÐYILJINN — SÍDA 5 Alþýðubandalagsfélag Ólafsvíkur HERINN BURT Fundur haldinn í Alþýöu- bandalagsfélagiölaf svíkur 29. 2. 76 vottar skipshöf num landhelgisgæslunnar virð- ingu sína og þakklæti fyrir hið hugprúða starf sem þeir hafa sýnt í baráttunni við breska flotann. Jafn- framt lýsir fundurinn vanþóknun sinni á for- sætisráðherra fyrir að stöðva aðgerðir suðurnesjamanna og horn- firðinga við lokun NATÖ- stöðva á Islandi og undrar að sú beiðni skyldi tekin til greina, þar sem það getur aðeins orðið til að draga á langinn það lífshættulega ástand sem ríkir á fiski- miðum okkar, þar sem herskip úr NATÓ-f lotanum reyna af f remsta megni að sigla niður íslensku varð- skipin án nokkurs tillits til mannslifa. í bandalagi sem þessu telur fundurinn að við höfum ekkert að gera, og beri að segja sig úr því nú þegar, loka stöð- inni á Miðnesheiði og láta það herlið, sem hér situr og horfir aðgerðarlaust á að við séum beittir slíku öfbeldi, hverfa af landi burt. Austurlenskt í Jasmín Hinn sextánda febrúar flutti verslun Jasmin i eigið húsnæði aö Grettisgötu 64 á horni Barónsstigs og Grettisgötu. Verslunin hefur veriðstarfrækt siðan iseptember 1966, en ávallt verið i leiguhúsnæði þar til nú. Hin nýju húsakynni eru öll hin vistlegustu, björt og rúmgóð. Jasmin verslar með handunnar austur- lenskar list- og gjafavörur. 1 auglýsingum frá versiuninni er viðskiptavinum boðið að kynnast „austur- lenskri undraveröld”. Endurskoðun félagslegrar uppbyggingar sjómanna- samtakanna er nauðsyn F élagsleg uppbygging sjó- mannastéttarinnar er i rústum. Á einum fiskibáti getur áhöfn veriB i að minnsta kosti fimm mismun- andi uppbyggöum stéttarfélög- um. Félög undirmanna á fiskiskip- um geta ma. verið hrein sjó- mannafélög, þau geta verið deild- ir i verkamannafélögum og þau geta verið deildir i verkalýðs- félögum karla og kvenna. Sjómannasamband tslands sem- ur fyrir suma háseta á fiskiskip- um. Alþyðusamband Austfjarða semur fyrir aðra, Alþýðusam- band Vestfjarða fyrir enn aðra, sjómannafélög á Snæfellsnesi fyrir sjómenn sem þaðan róa og ýmis félög, tam. sjómannafélagið á Stokkseyri hefur enn aðra kjarasamninga fyrir sina félags- menn en nokkur önnur sjómanna- félög. Forystumenn i sjómannafélög- um hafa verið gagnrýndir, rétti- lega flestir, fyrir samskiptaleysi við sjómenn og fyrir slaklega stjórnun félaganna. Kurr hefur verið með sjómönnum, sérstak- lega i vetur, yfir förystunni. Hópur manna hefur tekið sig saman og myndað með sér sam- tök, sem þeir kalla Samstarfs- nefnd sjómanna. Er ekki nema gott eitt að segja um slika félags- myndun, en til þess að hún komi að gagni og geti unnið að jákvæð- um málum fyrir sjómenn þurfa félagsmenn slikra samtaka að gera sér ljóst hvað þeir ætla sér og einnig hvernig þeir ætla að ná árangri. Nú eru nýgerðir kjarasamn- ingar fyrir sjómenn. Mikil ólga er með sjómönnum vegna þeirra. Mikið af þeirri gagnrýni sem fram hefur komið vegna þessara kjarasamninga er á rökum reist, annað er byggt á misskilningi og skorti á upplýsingum Þar með er aftur komið að þvi, að forystu- menn sjómanna hafa ekki staðið sig nógu vel. Þeir hafa ekki veitt félagsmönnum næga vitnsekju um gang mála. Hér þarf þvi að verða gjör- breyting á. Þvi fyrr, sem slik breyting er gerð, þeim mun fyrr er von til þess, að sjómannastétt- in nái þeirri félagslegri stöðu, sem mikilvægi hennar fyrir þjóðarbúreksturinn vissulega gefur tilefni til. Þvi hefur verið haldið fram, að sjómenn gætu ekki myndað með sér sterk stéttasamtök. Talið er að þar valdi sú staðreynd, að starfandi sjómenn hafi ekki tima til þess að sinna félagsmálum. Þetta er að þvi leyti rétt, að sjómenn hafa ekki tima til vegna vinnu sinnar að starfa á hefð- bundinn hátt i félögum, það er með fundarsetum. En þar með er ekki sagt, að sjómenn geti ekki starfað i stéttarfélögum, sem byggð væru upp á annan hátt en tiðkast og starfsemi þeirra þá einnig frábrugðin þvi venjulega. livort sjómenn velja sér for- ystumenn úr eigin röðum eða ekki er ekki aðalatriði málsins. Aðal- atriðið er, að sjómenn velji sér forystumenn, sem vilja starfa fyrir þá. geta það og gera það. Slikir forystumenn ættu að beita sér fyrir þvi, að allir fiski- menn myndi með sér sérstök ein heildarsamtök, sem tækju til landsins alls. Fiskimannafélög yrðu siðan starfandi innan lands- hluta. Þannig væri eðlilegt að fiskimenn á Suðurnesjum, sem nú eru skráðir i amk. sex félögum gangi i eitt fiskimannafélag, fiskimenn i Rvik og Hafnarfirði, sem starfandi eru i fjölmörgum félögum gangi i eitt og starfi þar að sameiginlegum hagsmuna- málum. Þá þurfa forystumenn sjó- manna að koma upplýsingum i mun rikari mæli til sinna manna en nú er gert. Það gegnir furðu, að svo virðist vera, sem forystu- menn sjómanna hafi ekki enn þá frétt af svo auðþekkjanlegum hlut sem fjölrita, hvað þá prent- verki. Áhugasamir forystumenn ættu að eiga hægt með að fjölrita og eða láta prenta tilkynningar og upplýsingar, sem dreift yrði i hvern einasta fiskibát, sem gerð- ur er út frá landinu. Einn til tveir trúnaðarmenn i hverri verstöð gætu komið upplýsingum um borð i bátana eða látið gera það. Þá ætti og að vera möguleiki fyrir forystumenn sjómanna, að fá inni i útvarpinu með upplýsingaþætti um sjómannamái, likt og bænda- stéttin hefur haft árum saman. Þær hugmvndir, sem hér hefur verið tæpt á. hafa verið bornar upppi á mannfundum. Þær hafa fengið góðan hljómgrunn. og sjómenn gera sér fulla grein fvrir Framhald á bls. 14. Góða nótt Það er ætíö óvarlegt að geyma peninga eða aðra fjármuni í misjafnlega traust- um geymslum, - hvort sem þær eru i heimahúsum eða á vinnustaö. Með næturhólfum veitir Landsbankinn yöur þjónustu, sem er algjörlega óháð afgreiðslutíma bankans. Þjónusta þessi hentar bæði fyrirtækjum og einstakling- um; gerir yöur mögulegt að annast bankaviðskipti á þeim tima sólarhringsins, sem yður hentar best; sparar yöur fyrirhöfn; tryggir yður trausta og örugga geymslu á fé og fjármunum. Kynnið yóur þjónustu Landsbankans. LANDSBANKINN Banki allra landsmamm Mfiiningar- og fræftslusainhand alþxftu Fræðsluhópar A/VFA F jórir fræðsluhópar taka til starfa i mars. Hópur I: Leikhúskynning: Fjallað verður um ýmsa þætti leiklistar og leikhúss. Meöal annars veröur farið á leiksýningar og rætt við leikara, leikstjóra, höfunda o.fl. Umsjón; Þorsteinn Marelsson. Fyrsti fundur mánudaginn 15. mars. Hópur II: Ræftuflutningur og fundarstörf I. (Byrjendanámskeift). Farið verður i nokkur undirstöðuatriði ræðugerðar og ræðuflutnings á- samt fundarreglum, auk þess sem framsögn veröur æfö. Leiðbeinendur: Tryggvi Þór Aöalsteinsson og Baldvin Halldórs- son. Fyrsti fundur þriftjudaginn 23. mars. Hópur III: Ræðuflutningur og fundarstörf II. (Framhaldsnámskeið, eink- um ætlað þeim sem sótt hafa byrjendanámskeið eða hafa nokkra þjálfun i ræðuflutningi og fundarstörfuml.Starfiðer m.a. fólgið i sjálfstæðum verkefnum og hópstarfi. Leiðbeinandi; Baldur Oskarsson. Fyrsti fundur fimmtudaginn 25. mars. Hópur IV: Saga verkalýftshreyfingarinnar. Fjallað verður um einstök timabil og atburði úr sögu verkalýðshreyfingarinnar. Leiðbeinandi: Ólafur R.' Einarsson. Fyrsti fundur miftvikudaginn 24. mars. Hóparnir starfa á timabilinu mars—-mai, og koma saman á kvöldin, einu sinni i viku.Starfið fer fram i fræðslusal MFA að Laugavegi 18 VI. hæð og hefst hvert kvöld kl. 20.30. Þátttakendur innriti sig á skrifstofu MFA Laugavegi 18 VI. hæð, simar 26425 og 26562, sem allra fyrst. Innritunargjald er 500,00 krónur. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni. Menningar- og fræðslusamband alþýðu. §S| Til sölu Tilboð óskast i húseignina Þingholtsstræti 13, Reykjavik, með áhvilandi kvöðum vegna friðunar þess. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frikirkjuvegi 3. Tilboðin verða opnuð á sama stað, mið- vikudaginn 10. mars 1976, kl. 14.00 e.h. INNKAUPASTOFNUN REYK)AVÍKURBORGA« Fríkirkjuvcgi 3 — Sími 2S800

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.