Þjóðviljinn - 05.03.1976, Side 9
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 5. mars 1976.
Föstudagur 5. mars 1976.
r ^
í háskóla Heines og Marx
Sverrir Kristjánsson er látinn.
tsland hefur misst stilsnjallasta
sagnfræðing sinn á siðari öldum,
án þess þó að hafa fengið að njóta
snilldar hans og visindahæfileika
nema að nokkru leyti, fyrst og
fremst sakir lágkúru og ofstækis
hinnar ráðandi borgarastéttar.
Móðir hans kenndi honum i
æsku, að hann ætti að standa með
litilmagnanum, erfiðisfólkinu,
sem var hornreka á þjóöar-
heimilinu, og þau heilræði hélt
hann alla ævi — einnig eftir að
hann uppgötvaði að erfiðisfólkið
gat risið úr öskustónni og orðið
voldugasti aðili mannfélagsins —
og hann lagði þvi sitt lið til þess,
að svo mætti veröa, með öllum
funa sins heita hjarta, með eldi
sins magnþrungna máls og með
visindalegum skarpleik si'ns
heiða hugar.
Ungur hreifst Sverrir af sósial-
ismanum og gekk 19 ára i
„Jafnaðarmannafélagið Spörtu”,
félag kommúnistanna i Reykja-
vik, þann 16. október 1927. Gerðist
hann brátt stórvirkur i jitgerðum
og þýðingum um málefni sósial-
ismans, bæði i Rétti 1929 og 1930
sem og ritun bæklinga og þýðingu
bóka. Bar strax á snilli hans i stil
á þessum árum — og átti þó eftir
að fleygja fram — og hitinn sem
málstaðnum er fylgt eftir með,
brann ekki aðeins i orðum hans.
Mér er enn i minni brennandi
augnaráð hans sumarkvöldið i
Krossanesverkfallinu, er við
mættum allmargir forstjóranum
norska, — þessum fulltrúa kúgar-
anna, sem siðar varð kvislingur
— og röðuðum okkur upp beggja
megin vegarins, svo hann varð að
ganga á milli raðanna, en við
sungum Internationalinn — og
augnaráð Sverris og þrótturinn i
röddinni voru slik, að lagt hefðu
fjandmanninn að velli, ef andi
hefði þá breyst i efni.
Hin langa dvöl i Höfn og Berlin
á timum heimskreppu og harðn-
andi baráttu gegn fasisma varð
Sverri lærdómsrik. En ég hygg
það hafi ekki hvað sist verið ,,há-
skólinn” hjá Heine og Marx, sem
fullkomnaði þá stil hans og auðg-
aði svo anda hans og þjálfaði i
visindalegri rannsókn, að er heim
kom bjó hann yfir óvenjulegum
yfirburðum i safnfræðinni og
þeirri leiftrandi stilsnilld, er sór
sig i ætt við bestu ritmennsku 19.
aldar i þeirri grein. Koma mér oft
i huga, er ég hugsa um ritsnilld
Sverris, fyrirmæli þau, er Step-
han G. lætur Kolbein gefa: „Lát-
um hita hugsana hrina á gliti orð-
anna”.
Hefði Sverrir Kristjánsson ekki
verið eindreginn sósialisti og
marxisti ágætur, hefði honum
staðið opin framabraut við há-
skólann. En litilsigld og þröngsýn
borgarstétt bannaði á ofsóknar-
timum þjóðstjórnar og i komma-
æði kalda striðsins að slikir hæfi-
leikar sem hans fengju að nýtast
þjóðinni. öll sin bestu ár varð
Sverrir að afla sér brauðs með
allskonar kennslu i gagnfræða-
skólum, en skrifa i fristundum
fjölda ritgerða i hin ýmsu blöð og
timarit, fyrst og fremst hreyfing-
ar okkar, formála að ýmsum út-
gáfum og heilar bækur, svo
undravert er hverju hann afkast-
aði þá litið er til allra aðstæðna.
Munu rit þau halda nafni hans á
lofti þegar þeir, sem hindruðu að
hann fengi að njóta til fulls hæfi-
leika sinna, verða flestir gleymd-
ir.
Þegar heitast brann og verið
var að ofurselja Island Atlants-
hafsbandalaginu og þjóðina
kerfisbundinni forheimskun, þá
refsaði Sverrir þeim seku um
undirlægjuháttinn svo grimmi-
lega með sporðdrekum penna
sins, að maður freistast til að
segja i stil við Heine, að hann hafi
sent sum skriðkvikindi kalda
striðsins til þeirrar heljar logandi
háðs, sem engar forbænir Nató-
herra fá hrifið þau úr. Og hann
gat lika sagt þjóð sinni til synd-
anna, er honum fannst hún leggj-
ast lágt, svo sem i ræðunni „Um
að kunna að þakka fyrir sig”, sem
enn á erindi til ýmissa.
Það var máske engin tilviljun,
að sá andstæðingur Sverris, er
varð fyrstur til að viðurkenna
hann og dá, var einn af þeim er
Sverrir deildi snjallast á, — Jónas
frá Hriflu. Það var reisn i þeim
manni, sem ofstæki valdsins tókst
ekki að eyðileggja.
Það var draumur Sverris á efri
árum, er dyr höfðu opnast nokkuð
til visindastarfs, að honum
auðnaðist að skrifa ævisögu Jóns
Sigurðssonar. Inngangur hans að
„blaðagreinum” Jóns sýna, að
hefði sá draumur ræst, þá hefði
Island eignast ævisögu verðuga
þjóðhetju sinni. En sá draumur
rættist ekki, þótt efnivið hafi hann
búið i þá bók.
Oss samherjum Sverris rennur
til rifja nú, þá hann er kvaddur,
að það tókst um tima að smækka
svo þjóð vora, að hún fékk ekki
notið hæfileika þessa ágæta sonar
sins til fulls.
Við islenskir sósialistar þökk-
um félaga Sverri Kristjánssyni i
dag hálfrar aldar baráttu fyrir
málstað sósialismans, allt hans
mikla framlag i ræðu og riti til að
máttkva og stækka islenska al-
þýðu, svo hún megi sigur vinna,
— við þökkum honum þá reisn, er
hann veitti okkar baráttu með rit-
snilld sinni, þann djúpa skilning,
er hann ætið sýndi á aðstöðu
hennar i skrifum sinum og ræð-
um. Og siðast en ekki sist vil ég
þakka honum ógleymanlega, örv-
andi vináttu, sem aldrei bar
skugga á frá fyrstu kynnum til
hinstu stundar. Sjálfur hefur
hann skráð nafn sitt i sögu
hreyfingar islenskra sósialista og
þjóðfrelsisbaráttu islendinga með
þvi letri, sem ei mun afmáð.
Einar Olgeirsson.
Yfirsýn og glöggskyggni
Einn þeirra daga, sem ég mun
seint gleyma, var i skammdeginu
fyrir 20 árum út i Kaupmanna-
höfn. Þeim degi eyddi ég með
Sverri Kristjánssyni sagnfræð-
ingi i gömlum og fáförnum bjór-
kjallara nálægt Frúarkirkju.
Kvöldið áður hafði verið Þorláks-
blót i Biskupakjallaranum, og þvi
nokkur þörf á að fá landið til að
risa að nýju eftir þyngslin, sem
guðaveigarnar höfðu eftir skilið
frá þvi nóttina áður.
Þetta siðdegi urðu kynni okkar,
við höfðum að visu aðeins talast
við áður, en þennan dag var
lagður hornsteinninn aö þeirri
vináttu, sem ég ætla að þakka
fyrir með nokkrum fátæklegum
linum.
A þessum degi var ég leiddur
inn i horfna veröld — heim
islenskra Hafnarstúdenta. Hér
gengu þeir fram á sviöið oftar en
ekki i biluðum skóm og áttu ekk-
ert hvitt um hálsinn, en ólu i
brjósti sér þá háleitu hugsjón að
vekja og glæða islenska
þjóðmenningu og vernda tunguna
i straumi timans. Ég sá þá skipa
sér i fararbrodd i sjálfstæðisbar-
áttunni og vekja þjóðina af löng-
um þyrnirósusvefni. A þessum
degi varð mér ljósara en áður,
hvað mikið af islenskri sögu varð
til i Kaupmannahöfn og þræðirnir
lágu oft til islenskra mennta-
manna, sem dvöldust i Kaup-
mannahöfn lengri eða skemmri
tima ævi sinnar. Kaupmanna-
hafnarháskóli var eini glugginn,
þar sem tslendingar höfðu útsýn
til evrópskrar menningar og gátu
miðlað af henni, þegar heim
kom.
Sverrir Kristjánsson bar merk-
iö fyrir siðustu kynslóðinni af
islenskum Hafnarstúdentum,
sem fór i vikingu til að heyja sér
menningarfeng á strönd Eyrar-
sunds. Hann var sér vel meðvit-
andi um tengsl sin við islenska
stúdenta, sem öldum saman
höfðu lagt leið sina til Kaup-
mannahafnar og hann var ekki
fyrr kominn heim til Islands en
hann hóf að miðla þjóðinni af
þekkingu sinni og menntun. I
meira en þrjá áratugi hefir hann
verið hinn mikli fræðari útvarps-
ins, þegar merkisatburðir mann-
kynssögunnar minntu á sig og
hann gerði þeim jafnan skil á
þann hátt, að það vakti hjá mönn-
um löngun að fá að vita meira.
1 annan stað gerðist hann mikil-
virkur rithöfundur og þýðandi. I
blöðum og timaritum er fjöldi
greina um sagnfræði, bókmenntir
og dægurmál og var sýnishorn
þeirra gefið út i ritsafninu Ræður
og riss fyrir nokkrum árum. Þá
hefir hann skrifað kennslubækur
og eitt bindið af mannkynssögu
þeirri, sem Mál og menning er að
gefa út.
Þegar i skóla varð Sverrir
viðlesinn i fagurbókmenntum.
Hann las Brandes og mótaðist af
honum, en jafnframt ýmis höfuð-
skáld 19. aldar eins og Heine,
Goethe, Ibsen, Strindberg og
rússnesku stórskáídin. A sama
hátt var hann hugianginn af þvi.
besta og fegursta i islenskri ljóð-
list. Hann sagðist fara höndum
um útgáfu Máls og menningar á
ljóðmælum Jónasar Hallgrims-
sonar eins og hún væri ung kona.
Og ekki dýrkaði hann siður
þýðingu Einars Benediktssonar á
Pétri Gaut sem hann kunni utan
að á löngum köflum.
I daglegu tali var hann kallaður
Sverrir Kristjánsson sagnfræð-
ingur og bar það heiti með sæmd,
en hann var siður en svo ein-
skorðaður við fræðigrein sina.
Hann er i hópi þeirra, sem best
hafa skrifað um bókmenntir á
þessari öld á islensku og nægir að
nefna ritdóminn um Gerplu i
Helgafelli og ritgerðina um ástir
Heines og frönsku skáldkonunnar
George Sand i afmælisriti
Ragnars Jónssonar. Þá var hann
mikilvirkur og listrænn þýðandi á
sögur,leikritog sagnfræðileg verk
og þar hygg ég að hæst beri þýð-
ingar hans á verkum Joh. V.
Jensens og hann ætlaöi einmitt að
hefjast handa við að þýða
Kongens fald, þegar kallið kom.
Eftir þvi sem á ævina leiö, virt-
ist hugur Sverris hneigjast æ
meir að bókmenntum og leiklist. 1
bókaflokki þeim, sem hann og
Tómas skáld Guðmundsson rit-
uðu, voru það einkum skáld 18. og
19. aldar, sem Sverrirfjallaði um.
Þessi ritröð hefir orðið eftirsótt
lesefni og ég veit, að það gladdi
hann mjög að finna, að hann átti
marga þakkláta lesendur vitt um
land.
Ahugi á leiklist var honum i
blóð borinn og hann hefði orðið
frábær leikari, ef hann hefði lagt
það fyrir sig, en það varð hlut-
skipti hans að skrifa um höfund-
ana og verk þeirra i leikskrár og
má þar nefna Matthias, Goethe
og nú siðast Gorki og eitt af
siðustu verkum hans var að leiða
áhorfendur inn á sögusvið
gamallar Reykjavikurreviu.
Nitjánda öldin var Sverri alltaf
hugleikin. A háskólaárum sinum
fékkst hann við að rannsaka sögu
Þýskalands á 19. öld og að námi
loknu hélt hann áfram að kanna
Hafnarstúdent og bolsi
sama timabil i sögu okkar. Þvi
miður gafst honum aldrei timi né
tækifæri til að skrifa samfellt
verk um 19. öldina, en hann hefir
skrifað fjölda ritgerða um hana
og þá vil ég sérstaklega benda á
Fyrir hundrað árum um fébrúar-
byltinguna og áhrif hennar, sem
birtist i Timariti Máls og menn-
ingar, Islensk stjórnmálahugsun
og Jón Sigurðsson, sem er inn-
gangur að úrvali úr ritum og ræð-
um Jóns Sigurðssonar fram til
loka þjóðfundar, formálar að út-
gáfu Menningarsjóðs á blaða-
greinum Jóns Sigurðssonar auk
fjölda annarra greina. Ég vona,
að ég halli ekki á neinn, þó að ég
leyfi mér að segja, að þessar
greinar séu það besta, sem skrif-
að hefir verið um sögu þessara
tima.
Yfirburðir Sverris lágu i yfir-
sýn hans og glöggskyggni að geta
rakið þræðina úr vef stjórnmála
álfunnar heim til Islands. Hann
sá og skildi samhengið milli þess,
sem gerðist úti i hinum stóra
heimi og andlegra hræringa
alþýðunnar hér norður við heim-
skaut. Saga tslands var aldrei
einangrað fyrirbæri i augum
hans, heldur mótuð af stefnum og
straumum i Evrópu á hverjum
tima. Við þetta bættist, að Sverri
var gefin fágæt stilleikni. Yfir
máli hans var mikil reisn og
tungutakið var auðugt og hljóm-
mikið. „Hann var beinlinis mál-
snjall, þegar hann kom til
Kaupmannahafnar” var dr.
Björn Karel Þórólfsson vanur að
segja, þegar minnst var á ræður
og ritgerðir Sverris. Verk hans
munu eiga langa lifdaga fyrir
höndum, ef þjóðin tapar ekki
tungu sinni og menningu. Sjálfur
er hann horfinn af sviðinu og með
honum genginn sérstæður
persónuleiki, maður sem gat seitt
fram hið liðna og leikið á strengi
flestra mannlegra tilfinninga.
Ekkert samkvæmi var svo dauf-
legt, að hann gæti ekki vakið þar
gleði og gáska, þegar öl var á
könnunni. Þær gleðistundir verða
ekki fleiri. Eiginkonu og börnum
votta ég mina dýpstu hluttekn-
ingu.
Aðalgeir Kristjánsson.
Þá er hið siðasta gömlu ljón-
anna fallið, einn siðasti Hafnar-
stúdentinn hniginn I valinn. A bak
við hann hillir uppi heila fylkingu,
fyrr á þessari öld, á þeirri 19. og
jafnvel 18., manna sem gerðu
vikingskap stúdentsáranna að
ævilangri lifstignun sinni og sviku
jafnvel ekki á hnjánum það harð-
ráða fós.tbræðralag.
Hvarvetna um heim hefur
sjálfstæðisbarátta og þjóðfélag
hálfnýlendu fóstrað af sér slika
menntamannastétt. Allt er þar
enn i deiglu og maðurinn utan
mótaðs samfélags, einn og sjálfur
sinn herra. Hann á þar hvorki
bakhjarl i stofnun né kerfi, og
honum er ekkert i hendur búið af
fátækri þjóð nema andlegt at-
gervi sitt. Ævibraut slikra manna
er tiðum skreip og róstusöm.
Margir kiknuðu enda ungir, aðrir
leituðu i hlé og brutu skjöld sinn,
en samt voru alltaf þeir sem báru
merki sitt og ok með vigalegu
stolti og gerðust þjóðsagnahetjur
lifanda lifi. Af slikum var Sverrir
Kristjánsson siðastur, að þvi ég
get bezt formerkt, og þeigi smá-
gervastur; með honum er að þvi
leyti öld gengin.
Þótt Sverrir Kristjánsson hæfi
ekki háskólanám sitt i Höfn fyrr
en 1928, þá rúmlega tvitugur,
tengdist hann óvenju sterkum
böndum kynslóð þeirri sem á
undan honum var og átti rætur
sinar i 19. öldinni. Þá menn dáöi
hann marga, og arfur þeirra rann
honum i merg og blóð. Megi kalla
hvern mann tviskauta i þvi, að
annarsvegar sé arfur hans og
uppruni, en hinsvegar segl þau
sem taka við stormum timans, þá
varð islenzk fortið Sverri sú kjöl-
festa sem honum bilaöist aldrei.
Fyrir sumum mönnum er
sagan aðeins grúsk, liðnir og
dauðir atburðir. Sverri Kristjáns-
syni lagðist það ungum tií, að
kynnast hugsjónum bolsjevism-
ans, sem ekki eru kenningar
einberar, heldur lifsviðhorf þeim
sem nemur. I þeim spegli er
sagan ein og söm: þar er fortiðin
virkt afl i nútiðinni, og hvað eina
á liðandi stund á sér þar skil-
greinanlega rót. Þannig helgaðist
sagan i huga hans af reisn stétta
og þjóða gegn áþján, vakin af
þeim öflum átaka sem i hverri tið
búa. Hvort heldur sem hann
skrifaði um stjórnbyltinguna
frönsku, vann úr bréfum Jóns for-
seta eða rakti ævihlaup útlagans
og skáldvinar sins, Sigurðar
Breiðfjörðs, þá rikti i öllu sá
viðfeðmi skilningur á stöðu
manns og þjóðar i allri samtið
sinni. Hugsun hans var stór i
sniðum, tungutakið hreint og
karlmannalegt og einlægt með
skáldlegri hafningu. Þetta at-
Framhald á bls. 11.
Sagnfræðingurinn og listamaðurinn
Sverrir Kristjánsson sagnfræð-
ingur hneig örendur á öxl nafna
mins Th„ sem var að segja hon-
um skemmtisögur úr Vestmanna-
eyjum i anddyri landsbókasafns-
ins 26. febr. s.l. Sverrir hafði
komið göngumóður inn úr ófærð-
inni, en hann hafði verið að sækja
„Kongens fald” niður i útvarp og
ætlaði að þýða þetta frægðarverk
danskra bókmennta. Með honum
er genginn annar siðasti hafnar-
ljúflingur islenskrar tungu. Nú
stendur Jón prófessor Helgason
einn eftir.
I Kaupmannahöfn varð til á 19.
öld örlitill söfnuður eöa sértrúar-
flokkur útvalinna snillinga, sem
dýrkuðu islenskuna. Þar sem
erlent regn draup af upsum og
okunnir vindar gnauðuðu við dyr
varð það mönnum iþrótt og nautn
að tjá forna og nýja reynslu á
gamalli tungu fátækrar þjóðar.
Borgin við sundið hafði um aldir
verið brjóstvörn islensks
þjóðernis og islendingum ramm-
ari örlaganorn en nokkurn grun-
aði. Eyrarsund er eina greiða
siglingaleiðin inn á Eystrasalt og
til Austur-Evrópu. Frá Krónborg
og Kaupmannahöfn var hægt að
drottna yfir þessari siglingaleið,
en þar með voru þessar borgir
einhverjir hernaðarmikilvægustu
staðir i álfunni norðanverðri. Með
þvi að loka englendingum og
siðar þjóðverjum leið um sundið
með islenskum brennisteini og
dönskum fallbyssum unnu danir
ýmis þorskastriö á liðnum öldum
og hindruðu þar með að englend-
ingar innlimuðu Island i sjóveldi
sitt þegará 15. öld. Óviljandi varð
borgin við sundið til þess að
bjarga islensku þjóðerni i orðsins
fyllstu merkingu.Hún var löngum
lýst upp með islenskum grút, en
galt ljósmetiö með þvi að koma
nokkrum islendingum, islenskri
tungu og menningu til talsverðs
þroska. Ég get þessara stað-
reynda hér, af þvi að Sverrir
Kristjánsson var mesti Kaup-
mannahafnar-aðdáandi, sem ég
hefkynnst. Hannelskaði kóngsins
Kaupmannahöfn, en var dyggur
sonur Reykjavikur.
Sverrir Kristjánsson sagnfræð-
ingur var fæddur 7. febr. 1908 i
Hjörleifshúsi við Hverfisgötu.
Foreldrar hans voru hjónin
Bárður Kristján Guðmundsson
verkamaður frá Þverdal i Aðal-
vik á Ströndum og siðari kona
hans, Guðrún Vigdis Guðmunds-
dóttir Gislasonar frá Ánanaust-
um i Reykjavik. Báröur Kristján
var einn af fyrstu nemendum
Torfa I Ólafsdal og meðal fyrstu
Strandamanna, sem kvöddu
Kaldbak og leituðu hlýrri
heimkynna, eins og segir i Horn-
strendingabók. Að Sverri stóðu
vestfirskir fjölkynngismenn og
fuglafangarar úr Hornbjargi og
sunnlenskir aflakóngar, órólegt
kyn, sem hafði um aldur boðið öll-
um hættum byrginn i leit að afla.
Sverrir var austurbæingur, vax-
inn upp utan áhrifasvæðis vestur-
bæjaraðalsins. Njála opnaði hon-
um viðáttur tilverunnar á 8.
aldursári og Kommúnistaávarpið
i þýðingu Stefáns Péturssonar
nýjar fjarviddir á þvi 18. Þessi rit
sviptu tjöldum frá leiksviði lifsins
fyrir sjónum barnsins og ung-
lingsins. „Ég hef aldrei orðið
jafnsnortinn af öðrum bókum”,
heyrði ég hann segja einhvern
tima, og þó var Sverrir bæði
bókelskur og hrifnæmur. Faðir
Sverris andaðist, þegar hann var
10 ára, en þrátt fyrir knöpp kjör
komst hann til mennta, varð
stúdent tvitugur og sigldi árið eft-
ir (1929) til Hafnar til sagnfræði-
náms. Arni Pálsson síðar prófess-
or réöi mestu um námsbrautar-
valið, en Brandesarhrifning
leiddi þá Arna fyrst saman. Arni
hafði elt Brandes um götur
Hafnar eins og ungmær hjarta-
knosandi leikara, en „Inledning
til Emigrant-litteraturen” eftir
Brandes varð Sverri opinberun
um stílsnilld óbundins máls. Þeir
Arni urðu einlægir vinir ævilangt;
fyrsti tengiliður þeirra var stil-
snilld Brandesar, siðar Bakkus og
bóhemismi, en að lokum hreif
vesturbæjaraðallinn likkistu
þjóðsöguprófessorsins úr höndum
okkarSverris. Þá urðu mistök við
jarðarför, en við stóðum eftir og
rauluðum „Hin gömlu kynni”.
Sverrir var að mestu samfleytt
i 10 ár i Höfn við sagnfræðinám;
var hér heima frá júni til des. 1930
og aftur snögga ferö 1933 og síðar
hálft ár við háskólann i Berlin, en
annars sat hann i Höfn, þangað til
1 janúar 1939, að hann kom heim
próflaus. Hann átti i fórum sinum
tvær ritsmiðar, sem heföu hvor
um sig fleytt honum gegnum
kandidatsprófið. Hinn hafnar-
glaði Sverrir lauk munnlegum
hluta prófsins og samdi 100 vélrit-
aðar fóliósiður um afstöðu þýskra
sóslaldemókrata til félagsmála-
löggjafar Bismarks, en flýði þá af
hólmi. Þegar prófessor Erik Arup
fann hann loks, en Sverrir var
vinsæll nemandi, var hann settur
i að semja ritgerð um afstöðu
borgaraflokkanna til fyrrnefndr-
ar félagsmálalöggjafar. Nú
samdi hann 180 siður, áður en
hann hvarf frá ritvélinni og úr
hópi háskólaborgara. Þetta voru
þau mistök, sem Sverrir harmaði
mest um dagana. Ég hef séð hann
nokkrum sinnum með „de
ufuldendte” i höndunum.
„Einungis, hefði ég afhent þær,
aðra hvora eða báðar, hefði ég
sloppið i gegn”. — Orsök próf-
leysisins var levndardómur, sem
hvorki Sverrir né aðrir gátu skýrt
né skilið. Hins vegar átti hann
ýmsa hrakfallabræður i hópi
hafnarstúdenta, og islendingar
erfðu misjafnlega við þá hafvill-
urnar. Árni Pálsson var skipaður
prófessor og Stefán Pétursson
þjóðskjalavörður, en Sverrir var
gagnfræðaskólakennari allan
sinn starfsaldur frá 1941—74, en
flutti þá upp á Akranes. Stundum
fékk hann leyfi frá kennslu til
þess að sinna rannsóknum.
Erik Arup, aðalkennari Sverris
á háskólaárunum, var mikill
Islandsvinur, eins og rit hans
vitna, og snjall rithöfundur. Ég
veit að Sverrir taldi Arup ein-
hvern glæsilegasta sagnfræðing
þessarar aldar, og eiga sér fáa
jafningja. Hins vegar upptendr-
aðist Sverrir einnig á háskólaár-
um sinum af þýskum sagnfræð-
ingum, og sagðist aldrei hafa bor-
ið þess bætur.
Sverrir Kristjánsson var
stórvinsæll fyrirlesari og út-
varpsmaður, skemmtilegur
kennari, raunsannur félagi og
tryggur vinur. Eftir hann liggur
ógrynni ritaðs máls prentaðs og i
handritum.
Fyrst birtist eftir hann þýðing á
Stefnuskrá Alþjóðasambands
kommúnista, samþ. á 6. heims-
þinginu i Moskvu 1. sept. 1928
(Réttur 1929). Fyrsta frumsamda
ritgerð hans, sem birtist á prenti,
mun vera. „Baráttan um heims-
yfirráðin”, en hún kom einnig i
Rétti 1929, og þar átti hann siöar
nokkrar aðrar greinar. Á náms-
árunum i Höfn þýddi Sverrir fyrir
danska rikið, en að undirlagi
Eriks Arups prófessors, greinar-
gerð Einars Arnórssonar fyrir
rétti islendinga til Grænlands, en
sú skýrsla var lögð fyrir alþjóða-
dómstólinn i Haag, þegar fjallað
var um Grænlandsmálin.
Sverrir var mikilvirkur
þýðandi, þýddi m.a. Jökulinn
eftir danska Nóbelsskáldið
Johannes V. Jensen, þýðing á
Landinu gleymda liggur i hand-
riti að þvi er ég best veit, og hann
var byrjaöur á Falli konungsins
Kristjáns II., eins og áður sagði.
Leninismann þýddi hann eftir
félaga Jósef Stalin og
Kommúnistaávarpið eftir Karl
Marx. Stalin, Marx og Jóhannes
V. Jensen var hin klassiska
þrenning, sem hann kaus einkum
að kynna islendingum, en fáum
skáldum og rithöfundum unni
hann meira en Heine. Hann fór
pilagrimsför á Heinesslóðir i
Þýskalandi og sagði frá þeirri
ferð i Timariti Máls og menn-
ingar 1955 og „Til fundar við
Heine i Weimar” 1957.
Sverrir var einhver fimasti rit-
gerðahöfundur islenskur,
meistari knapps forms og hnit-
miðaðs stils. Hann var skorpu-
maður. sem vann dægrum sam-
an, en tók sér hvildir á milli. Árið
1962 lágu eftir hann um 170 prent-
aðar ritgerðir af ýmsum stærðum
og efnum. Að ævikvöldi hafa þær
verið orðnar á þriðja hundrað.
Hann var fjölvis i bókmenntum
og snjall gagnrýnandi. A sinum
tima urðu frægir ritdómar hans
um Atómstöð Laxness (Þjóðv.
1948), Harmleikur hetjuskap-
arins, um Gerplu (Þjóðv. 1953),
og Löng er leiðin frá Benedikt á
Auðnum til Benna i leyniþjónust-
unni, en það var ritdómur um
svonefndar Bennabækur, sem
birtist i Helgafelli 1953. Þá var
hann aðdáandi Þórbergs Þórðar-
sonar og tjáði honum m.a. trúnað
sinn i Helgafelli 1953.
Ég finn að meiri snilling en mig
þarf til að lýsa hinum mikilúðlega
félaga sem er horfinn sjónum.
Hann var hrifnæmur fagurkeri,
sem þoldi enga lágkúru og hvorki
væmni, hræsni né yfirdrepsskap.
Hann var litillátur stórbokki, sem
trúði þvi að sannur listamaður
skapaði ekki aðeins fegurð,
heldur smiðaði hann einnig vopn
til þess að breyta þjóðfélaginu,
berjast gegn hvers konar
rangindum og fyrir hinu fagra og
sanna. Sjálfur var hann
húmanisti, sem vann i vopna-
smiðju hinna róttæku á landi
voru, og geirar hans bitu. Hann
var baráttuglaður bolseviki og
svallsamur siðferðispostuli, sem
krafðist þess af sjálfum sér og
öðrum skilyrðislaust að eiga eng-
in kaup við fulltrúa myrkravalds-
ins. Vissir menn i Reykjavik ótt-
uðust um 1940 að Jónas frá Hriflu
yrði fyrsti forseti islenska
lýðveldisins og leituöu til Sverris
og báðu hann að rita feril þessa
fjandmanns kommúnista á
tslandi. Rannsókn Sverris leiddi
til þess, að þeir Jónas urðu vinir,
og Sverrir mat fáa meira en
hann, en aðrir tóku að skrifa um
glerbrot, sem hefði skolast til
Islands og héldi að það væri orðin
full flaska. Um Jónas skrifaði
Sverrir tvö litil meistaraverk.
Sverrir var afreksmaður við
það að falla fyrir margs konar
freistingum. Hann var ungur
verðlaunahafi bindindishreyf-
ingarinnar á Islandi, en siðar orð-
aður við konur og vin. Hann hafði
lengi ofurmannlegt þol, gat
drukkið dægrum saman og veriö
samt fær i flestan sjó. Eina
freistingu stóðst hann ávallt öll-
um betur til æviloka. Hann seldi
aldrei sál sina, lagðist aldrei á ár
fyrir þann málstað, sem hann
taldi rangan, og stundaði aldrei
aurkast gegn pólitiskum and-
stæðingum.
Sverrir var maður liðandi
stundar og skemmtilegastur
allra. Hann var ekki einhamur,
heldur átti hann sér ýmsar verald-
ir. Eitt sinn vorum við á leið upp á
Landsbókasafn fagran sumardag
eftir hádegi. Á Lækjartorgi stóð
Siggi á kassanum og prédikaöi.
Ég lagði lykkju á leið mina fram
hjá fólkinu, sem safnast hafði
kringum hann, en Sverrir kerrti
hnakkann og skundaði að kassan-
um. Þar tók hann ofan fyrir Sigga
og mælti stundarhátt: „Blessaðu
mig”. Ég sá að Siggi lagði hendur
yfir hann og bað drottin fylgja
honum í bráð og lengd. Ég hef vfst
litið spurnaraugum á vin minn,
þegar hann kom upp á Hverfis-
götu, en hann brosti sæll og sagði:
„Sjáðu, svona hafa postularnir
staðið og talað fyrir lýðinn”.
Eins og margir snillingar orðs-
ins var Sverrir maður persónu-
sögunnar. 1 fjölmörgum ævisögu-
þáttum bregður hann upp
ógleymanlegum myndum af
gengnum kynslóðumkveikir lif og
angan á fornum sögusviðum, og
ber einnig oft fram kúfaða aska af
nýunnum staðreyndum. Sagan
fæst við að endurskapa fortiðina i
máli og myndum, skýra hana og
skilja, en það hefur jafnan tekist
betur i listaverkum, skáldsögum,
leikritum og kvikmyndum en
rannsóknarskýrslum sagnfræð-
inga. Fræðimennskan er i sjálfu
sér frumstæð aðferð við að kynna
mönnum lif og starf genginna
kynslóða og jafnlangt frá veru-
leikanum og lita- . og ilmlaus
grasafræði hjá fegurð hásumar-
dags austur i Fljótshlið. Oftast
stendur sagnfræðingurinn i að-
föngum fyrir listamanninn,
dregur að efni, smiðar leiksvið og
sniður búninga. Hann á að vera
sviðsmeistari við hið mikla
skoðunarspil sögunnar, en sjald-
an veitist honum sá munaður að
vera einn og þrieinn eins og drott-
inn sjálfur, bæði arkitekt, leik-
stjóri og höfundur, en slikur var
Sverrir Kristjánsson þegar hon-
um tókst best upp. Hann var sá
eini útvaldi i hópi islenskra sagn-
fræðinga ásiðarahelmingi 20. ald-
ar. Mál hans var blæbrigðarikt
kynngimagnað og kliðmjúkt.Hann
naut sin best i dramatiskum frá-
sögnum, þótt hann byggi einnig
vfir léttri kimni. 1 ritgerð um
prestssoninn frá Ballará leiðir
Sverrir lesandann i náin kynni við
fjölnismenn og félagslegt um-
hverfi þeirra. Sigurður Breiðfjörð
var maður Sverris Kristjáns-
sonar og sprottinn upp af sömu
rót i túni Braga og sjálfur Jónas
Hallgrimsson. ,,Á sinum fáu
Framhald á næstu siðu