Þjóðviljinn - 12.03.1976, Side 7
Föstudagur 12. niarz 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 7
Sósíalismi sem með
sanni kallast
mannúðlegur
1. Alþýða manna veit nú að hún á
heimtingu á sæmandi launum
fyrir vinnu sina i stað þess að
taka þakklát við molum sem af
borði hrjóta kind hjá kærri einsog
Jónas Hallgrimsson segir i
kvæðinu um rjúpuna. Hinar vinn-
andi stéttir vita nú að ef þær
standa saman ráða þær yfir afli
sem enginn getur forsmáð lengur.
Óraveg hefur samfélagið færst
frá þeim timum þegar islenskur
verkalýður var háður duttlungum
vinnuveitandans eða valdsveina
hans og hneigðist að blessa þakk-
látur tækifæri að fá að vinna fyrir
brauði sinu eða bæla sina réttlátu
reiði þegar ekki fékkst. Við erum
óralangt komin frá þeirri tið
þegar rikti þrælsótti og þægðar-
vilji, og verkalýður laut skjálf-
andi sinum vinnuveitendum, nú
vita menn að þeir eiga heimtingu
á vinnu og ákæra þjóðfélagið
fyrir siðleysi ef hana brestur. Og
þegar horft er um öxl á timamót-
um sem þessum er kærkomið
tækifæri til að hylla þá braut-
ryðjendur sem höfðu framsýni til
að neita viðurteknum skoðunum,
og hugrekki til að bjóða byrgin
ofurvaldi og krefjast réttarins.
Eflaust er torvelt fyrir okkur að
skilja hvern kjark þurfti til að
risa upp gegn rikjandi skipan sem
guð almáttugur var skrifaður
fy.rireða náttúrulögmálum kennt,
og seinna kreppunni, en sú hylling
ætti ekki að sitja við húrrahróp
heldur verða brýning.
2. Mér sýnist verkefni islenskrar
verkalýðshreyfingar hljóta að
vera tviþætt. Annars vegar að
vera sivakandi yfir rétti þeirra
sem bera minna úr býtum, standa
vörð um þau réttindi sem hafa
fengist i harðri baráttu svo sem i
tryggingamálum, og sækja
lengra i hagsmuna og réttinda-
málum, ekki veitir af. Stefna að
Thór
Vilhjálmsson
rithöfundur
þvi að draga úr hverskonar mis-
rétti, það er reyndar sjálfsagt.
Það ætti að vera óþarft að benda
á hve brýnt er að verkalýðsfor-
utan hafi ætið gott samband við
hinn almenna liðsmann. Hins-
vegar tel ég að verkalýðshreyf-
ingin eigi að gera stórátak i
menntunar- og menningarmálum
verkalýðs og reyna af alefli að
auka pólitiskan þroska hans með
það fyrir augum að stefna að
sósialisma sem verði með sanni
kallaður mannúðlegur, það kann
að vera fjarlægur draumur en
þangað ætti að stefna.
Sjálfur grundvölliirinn
hefur ekkert raskast
Spurning: 1 hvaða mæli hefur
verkalýðshreyfingunni tekist að
breyta islensku þjóðfélagi?
Svar:
Áþreifanlegar breytingar eru
sannarlega fjölmargar og lífs-
braut hvers vinnandi manns er
vörðuð umbótum, sem að veru-
legu leyti eru árangur 60 ára bar-
áttu verkalýðshreyfingarinnar
fyrir bættum lifskjörum.
Upptalningin gæti orðið býsna
löng, en i hennar stað skal aðeins
minnt á nokkra vegvisa éins og
almannatryggingar, veikinda-
greiðslur, atvinnuleysistrygging-
ar, orlofsrétt, húsnæðismálalög-
gjöf o.fl. —' Allar stuðla þessar
framfarir að bættum lifskjörum.
En sjálfur grundvöllur
auðvaldsþjóðfélagsins hefur ekki
raskast. Það er við lýði með öll-
um sinum stéttarmótsetningum,
misrétti, f jármálaspillingu,
skattsvikum o.s.frv.
Enda þótt verkalýðshreyfingin
sé sterkt afl og hafi oft sannað
mátt sinn t.d. með verkfallsað-
gerðum — þá hefur hún ekki
megnað að móta samstillta og
málefnalega stefnu i þeirri ger-
byltingu, sem þjóðin þarfnast á
flestum sviðum.
Það er þvi ánægjulegt að geta
nú við upphaf sjöunda áratugs
samtakanna bent á breytt vinnu-
brögð, sem viðhöfð voru nú i
kröfugerð ASf. Um einstök atriði i
14 punktunum geta vissulega
verið skiptar skoðanir — en þarna
er stefnt i rétta átt.
Spurning:
Hvaða verkefni telur þú
brýnust fyrir islenska verkalýðs-
hreyfingu á næstu árum?
Svar:
Stórauka fræðslu- og félags-
málastarf i stéttarfélögunum.
Þeir eru nú sem óöast að hverfa
úr hópnum, sem tóku út sinn
stéttarlega þroska i viðureigninni
við skortinn, örbirgðina og at-
vinnuleysið.
Haraldur
Steinþórsson
varaformaður
BSRB
Nú þarf að vekja og efla
skilning á eðli þjóðfél. og
gildi stéttarbaráttunnar með
áróðri á fundum, m.a. á vinnu-
stöðum, námskeiðum, blaðaút-
gáfu, kynningu i dagblöðum, út-
varpi og sjónvarpi.
Hreinskilnar og málefnalegar
umræður innan stéttarfélaganna
um stefnumið samtakanna og af-
stöðu til einstakra dægurmála
þyrftu að geta leyst af hólmi
þrasiö og fordómafullar stað-
hæfingar, sem oftast eru ein-
kennandi á sviði stjórnmálanna
Ekki aðeins
kaup og kjör
i.
Verklýðshreyfingin hér á landi
heíur allt frá fyrstu dögurn sinum
ekl.i einásta litið á það sem sitt
hlutverk að bæta kjör verkafólks-
ins með samningagerö um kaup
og kjör. heldur einnig og ekki
siður að efla félagslegan þroska
og pólitiskan skilning félags-
manna sinna til þátttöku i al-
mennri félagslegri uppbyggingu
þjóðfélagsins. Þetta held ég að
hreyfingunni hafi að verulegu
levti rekist, og sé kannski hennar
stærsti ávinningur.
Sameiginlegt starf og áhrif
vinstri flokkanna i islenskri
pólitik og verklýðshreyfingarinn-
ar sem þeir eru vaxnir upp úr og
að meira eða minna leyti samofn-
ir, hefur mjög viða i okkar þjóðlifi
markað skýr, jákvæð spor i þjóö-
félagsþróuninni.
Viða um landið er atvinnulifið
að verulegu leyti upp byggt á
félagslegum grundvelli og at-
vinnutækin i félagslegri eign. Þar
af leiðandi er stórkapitalisminn
kannski veikari hér á landi en i
flestum okkar nágrannalöndum,
en þetta er fyrst og fremst að
þakka jákvæðu pólitisku og
félagslegu starfi verklýðshreyf-
ingarinnar.
2.
Þau verkefni sem ég tel brýnast
að verklýðshreyfingin sinni i
auknum mæli á næstu árum á
hinu faglega sviði er efling
félagslega starfsins inn á við, sem
nú um nokkurt skeið hefur verið i
deyfð og einnig efling fræðslu-
starfsins, sem hafin er fyrir
nokkru með myndarlegu starfi
MFA og margs konar námskeiða-
haldi einstakra félaga og sam-
banda.
Benedikt
Davíðsson,
formaður
Sambands
byggingam anna
Ef vel tekst til i þessum efnum
þá er ég ekki i nokkrum vafa um
að hreyfingunni teks't að halda i
horfinu á pólitiska sviðinu. en það
er undirstaða þess að henni takist
að tryggja verkafólki á Islandi
lifvænleg kjör bæði efnahags- og
menningarleg.
Stéttarvitund
skiptir mestu
i.
Ef litið er yfir þjóðfélagsþróun-
ina. er það illframkvæmanlegt að
segja til um. hvaða breytingar
eru verk verkalyðsstéttarinnar
og hvaða breytingar má rekja til
annarra þjóðfélagshópa. Alls
staðar er um að ræða samspil
margra afla. Svar við þessari
spurningu innifelur lika vanda-
samt mat á gildi áorðinna
breytinga.
Eg tel hiklaust að verkalýðs-
baráttu eigi fyrst og fremst að
meta út frá þvi. hvort hún skilar
verkalýðnum nær þvi marki að ná
þjóðfélagsvöldum. Ávallt verður
að spyrja. hvort verkalýðurinn
herðist i átökum við fjandsamlegt
stéttarvald burgeisanna og
þroskar sjálfstæða skipulagningu
sina.
Langtimahagsmunir verka-
lýðsins eru ósættanlegir við hags-
muni ráðandi stéttar og hagkerfi
hennar. Barátta stéttarinnar
fyrir dýpstu hagsmunum sinum
hlýtur ávallt að visa út fyrir
ramma rikjandi þjóðskipulags.
En þvi fer fjarri að öll barátta
stéttarinnar risti svo djúpt, —
jafnframt þarf að berjast fyrir
sem skástum kjörum innan þessa
þjóðskipulags, og þar tekur stétt-
in oft að sér að knýja fram um-
bætur. sem eru auðvaldinu nauð-
synlegar, en það beitir sér hins
vegar ekki fyrir.
Sá árangur sem náðst hefur i
langtimabaráttu islensks verka-
lýðs er lyrst og fremst aukaverk-
un af baráttu fyrir öðrum mark-
miðum. i þeim mæli sem hægt er
að tala um islenska verkalýðs-
hreyfingu sem héild, hefur bar-
átta hennar miðast við umbætur
innan ramma þess, sem auð-
valdsskipulagið getur leyft. Auk-
inn kaupmáttur launa, sem kost-
að hefur mikla baráttu, fylgir i
raun aðeins á eftir aukinni fram-
leiðslu vinnuaflsins. — Og auð-
stéttin verður jú að selja afurðir
sinar, en til þess þarf verka-
lýðurinn auraráð.Verkalýðsstétt-
in hefur átt höfuðþáttinn i að
knýja fram aukna heilbrigðis-
þjónustu, bættar almannatrygg-
ingar og aukna menntun. Auð-
stéttin getur þar sæmilega við un-
að, — hún þarf ekki að hafa
áhyggjur af þvi vinnuafli sem hún
er búin að slita, heldur sér rikis-
valdið um að lappa upp á það eða
sjá fyrir þvi. Atvinnurekendur fá
lika stöðugt betur menntað vinnu-
afl til að gegna störfum. sem
krefjast bættrar menntunar.
Almennt talað hefur verkalýös-
stéttinni tekist að gera umhverfi
sitt, auðvaldsskipulagið, svolitið
manneskjulegra. Um leið hefur
henni tekist að skapaýmis skilyrði
þess að umbreyta megi þessu
umhverfi i heild. X'erkalýðs-
hreyfingin býr að reynslu áratuga
baráttu, innan vébanda hennar
hefur myndast töluverð sam-
heldni, og verkalýðsstéttin hefur
öðlast aukna vissu um mátt sinn.
2.
Höfuðverkefnið er að taka upp
markvissa baráttu fyrir um-
breytingu þjóðfélagsins i heild, —
fyrir völdum verkalýðsins. Hér er
ég hvorki að tala um nauðsyn á
þingmeirihluta verkalýðsflokka
eða valdaráni þaulskipulagðs
minnihlutahóps. Ég á hér við
nauðsyn þess að verkalýðsstéttin
sem heild undirbúi sig undir að
gera full yfirráð framleiðendanna
yfir lramleiðslunni að veruleika.
Þvi ler fjarri að ofanskráð
markmið sé verkalýðssamtökun-
um viðmiðun i daglegu starfi.
Jafnvel verkalýðsflokkar. sem i
orði stefna að þessu markmiði.
sinna þvi litið i raun. Hér þarf þvi
að byrja ansi nærri byrjuninni.
Aðaláhersluna verður að leggja
á að styrkja stéttarvitundina.
Verkalýður með glöggan skilning
á þjóðíélagsstöðu sinni og mögu-
leikum. með rika samheldni inn-
byrðis og við bandamenn sina. sá
verkalýður verður ekki
stöðvaður.
Hér skiptir kannski höfuðmáli,
að stéttin verði i sivaxandi mæli
virkjuð til stéttarátaka. Stéttar
baráttunni verði ekki áfram beint
um farvegi samningafunda á
Gestur
Guðmundsson,
formaður
Stúdentaráðs
Loftleiðum eða henni troðið ofan i
kjörkassana með atkvæðaseðlun-
um. Jafnframt þarf stóraukna
umræðu innan verkalýðssamtak-
anna og mun meiri og markviss-
ari fræðslustarfsemi en nú
tiðkast.
Harðnandi stéttaátök á sumum
vinnustöðum. s.s. Sigöldu og
verkstæðinu á Selfossi. eru merki
þess sem koma skal. Jafnframt
verður verkalýðsstéttin að
forðast að takmarka sig við kaup-
hækkanir og þviumlikt. heldur
berjist hún alhliða pólitiskri bar-
áttu. Til að forðast misskilning
skal tekið fram að ég er ekki að
mæla með þvi að verkalýðs
hreyfingin festi pólitiskar vonir
sinar við kosningasigur og
stjórnarmyndun verkalýðsflokk-
anna, heldur að stéttin sjálf taki i
vaxandi mæli upp pólitiska bar-
áttu og láti sig fleira varða en
hingað til. Sem námsmanni er
mér auðvitað ofarlega i huga. að
verkalýðsstéttin taki þátt i bar-
Framhald á næstu siðu