Þjóðviljinn - 12.03.1976, Page 10

Þjóðviljinn - 12.03.1976, Page 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 12. marz 1976 Völdin í landinu í hendur f ~ -. verkalýðshreyfingarinnar Sú verðut þróun nœstu áratuga,, ef allir gera skyldu sína, segir Björn Jónsson, forseti A.S.l. A VERKÁI3ÍÐSFLOKKUR, SEM EKKI HEFUR SÓSÍALÍSK MARKMIÐ, ER EKKI ANNAÐ EN REKALD i tiiefni 60 ára afmælis Alþýöusambands íslands ræddi Þjóöviljinn viö Björn Jónsson, núverandi forseta Alþýðusambandsins. Björn hefur verið virkur í verka- lýðshreyfingunni frá ung- lingsárum. Hann var lengi formaður Einingar á Af<ureyri, og áður Verka- mannafélagsins þar, og frá 1971 hefur Björn Jóns- son verið forseti Alþýðu- sambands Islands. Uppistaðan í boðshapnum var alþýðuvöld — Við spurðum Björn, hvað honum kæmi fyrst i hug þegar minnst væri sigra og ósigra verkalýðshreyfingarinnar á tslandi þau 60 ár, sem Alþýðu- sambandið hefur starfað. Hafa vonir frumherjanna ræst? — Mestu sigrar verkafólks og samtaka þess unnust i rauninni á timum brautryðjendanna, sagði Björn, þegar verkalýösfélögin voru að ávinna sér viðurkenn- ingu, sem fullgildur aðili til að semja um kaup og kjör verka- fólksins. Baráttan fyrir rétti verkalýðsfélaganna i þessum efnum stóð frá upphafi verka- lýðshreyfingar á tslandi og viöa fram yfir 1930. Að lokum tókst að festa þessi réttindi ’ I sessi, þau urðu hefð og voru siðan lögfest að undangenginni mikilli baráttu hinnar faglegu og hinnar pólitisku verkalýðshreyfingar. Frumherjar verkaíýðshreyf- ingarinnar reistu markiö ákaf- lega hátt. Uppistaðan i boöskap þeirra var alþýðuvöld á fslandi. baö var verkefnið, sem verka- lýöshreyfingin setti sér aö hrinda i framkvæmd, og allar voru þess- ar hugmyndir tengdar sósialism- anum og framkvæmd hans. Sum- ar hugmyndirnar voru máske nokkuð óljósar en allar áttu þær inar rætur i sósialismanum. Segja má, að vonir brau.tryöj- endanna um alþýðuvöld á fslandi hafi vissulega enn ekki rætst. Engu að siöur hefur geysilega margt áunnist, og á þvi er enginn vafi, aö ættu þeir sem stóöu að síofnun Alþýðusambandsins fyrir 66 árum þess kost — sumir þeirra eru reyndar enn á lifi — aö lita yfir árangur baráttunnar þessi 60 ár, þá þætti flestum allvel hafa miðaö, hvaö lifskjör og félagsleg réttindi varöar. Þeir áttu ekki ein jakkaföt 1 hugum okkar kreppuáraung- linganna eru umskiptin sannar- lega mikil frá þvi sem þá var og til þess sem nú er, og allt hefur íþetta fyrst og fremst unnist fyrir baráttu verkalýöshreyfingar- innar, faglegrar og pólitiskrar. Við sem vorum að komast til manns i rööum verkalýðsstéttar- innar á kreppuárunum fyrir striö munum vel þá tima, þegar fólki var ætlað að lifa á loftinu einu aö kalla og sulturinn var á næsta leyti hjá mörgum. Þaö er þó ólikt aö hafa i dag þau kjör, sem verkafólki hafa verið tryggö, og mikiö öryggi er að atvinnuleysis- tryggingakerfinu umfram það sem áöur var. Hér þarf þó aö gera miklu betur, svo aö verkafólki verði tryggð þau lifskjör sem réttur þess stendur til, þau lifs- kjör sem væru i samræmi viö okkar mikla þjóöarauð. En varðandi umskiptin frá þvi sem áður var mætti nefna mörg dæmi. Ég minnist frá kreppu- árunum margra verkamanna, sem ég þekkti, er ekki áttu ein einustu jakkaföt, höfðu aðeins hreinan nankinsgalla aö fara i á sunnudögum. Fjölskyldururðu aö gera sér að góðu að búa i einu herbergi og höfðu oft aðgang að eldhúsi tvær til þrjár samanc Og mannréttindin voru harlá ták- mörkuð. Hin margvislegu réttindamál, sem flest /þykja sjálfsögð i dag, hafa einnig unnist fyrir þrotlaus^ baráttu verka- lýðshreyfingarinnar. Um ósigra verkalýöshreyf- ingarinnar á ýmsum sviðum og á ýmsum timum mætti einnig ýmislegt segja, og draga af þeim lærdóma. Sé litiö á sjálfa kafap- gjaldsbaráttuna, þá hefur þaö að visu ekki skeö oft, aö verkalýös- hreyfingin hafi beinlinis oröið áö semja um skert kjör. Þó uröufn viö aö hopa i kjarasamningunum sem gerðiryoru 1968, 1969. Þá var það viðurkénnt berum oröum af okkar hálfu, aö kjarasamning- arnir, sem þá voru gerðir, þýddu kauplækkun. En i þeim samn- ingum tókst þó aö semja um eitt verulega stórt réttindamál, stofnun lifeyrissjóðanna. Ósigrar verkalýöshreyf- ingarinnar hafa fyrst og fremst verið á pólitiska sviöinu. Braut- ryöjendur verkalýðshreyf- ingarinnar dreymdi um sterkan verkalýösflokk, annað hvort i beinum skipulagstengslum, eöa þá i annars konar nánum tengsl- um viö hina faglegu v.erkalýös- hreyfingu. Enn er verkaiýðshreyfingin hins vegar klofin pólitikst, þótt ég vilji ekki trúa þvi aö svo veröi um aldur og eilifö. Tengsl faglegrar og pólitískrar baráttu — En hverju telur þú vera mest ábótavant i starfi verkalýðs- hreyfingarinnar nú, og hver eru brýnustu verkefnin framundan? — Af innri málum faglegu verkalýðshreyfingarinnar tel ég ^inna lakast, hve seint hefur gengið að koma á þvi skipulagi, sem samþykkt var fyrir áratug aö stefnt skyldi aö, aö vinnustað- irnir yröu sjálfir grunneining- arnar i verkalýöshreyfingunni i miklu meira mæli en verið hefur. Það hefur gengiö hægar en vonir stóöu til að koma á áformuðum skipulagsbreytingum. Ég tel það hins vegar grund- vallaratriði i sambandi viö styrk- leik og samheldni hreyfingar- innar, að skipulaginu verði breytt með þessum hætti. Annað mjög mikilvægt atriöi, sem löngum hefur setið á hakanum hjá verka- lýöshreyfingunni er fræöslustarf- semin. Hin beina launabarátta hefur veriö látin ganga fyrir, og það er aftur fyrst nú á allra siðustu árum, sem þarna er að verða nokkúr breyting á meö starfi Menningar- og fræöslusam- bands alþýðu. Þetta er þó aöeins byrjun, sem lofar góöu, en á þessu sviöi þarf að gera miklu betur. Efiing fræöslustarfsins er vissulega meöal brýnustu verk- efna, og nátengt þvi er aö bæta úr þeim skorti á skilningi á tengsl- unum milli faglegrar og póli- tiskrar baráttu, sem alltof mikiö er um. Segja má, aö góöur skilningur á þvi, hversu náin tengsl þurfa aö vera milli hins faglega og þess pólitiska arms verkalýðshreyf- ingarinnar sé alger grundvöllur þess að hægt sé aö heyja sigur- sæla baráttu, og ná fram þeim markmiðum, sem brautryðj- endur verkalýðshreyfingar á tslandi stefndu aö, og áður hefur verið minnst hér á. Það eru ýmis hliöarverkefni, sem hér væri lika ástæöa til aö nefna, þegar spurt er um brýnustu verkefnin framundan. Orlofsstarfsemi verkalýðs- samtakanna þarf að efla. Við hljótum aö gera ráö fyrir þvi aö þróunin veröi sú, aö fristundir manna fari vaxandi, og þvi veröi orlofsmálin stööugt þýöyigar- meira verkefni. Viö þurfum einnig aö leggja aukna áherslu á okkar erlendu samskipti, en aö undanförnu höfum viö engan veginn sinnt þátttöku i þeim samböndum, sem viö erum aöilar aö, með þeim hætti sem þarfir okkar sjálfra krefjast. Þar hefur valdiö fjár- hagsskortur og skortur á starfs- liöi. Það hefur hins vegar sýnt sig ma. i nú nýafstöðnum verk- föllum, hve mikils virði þetta samstarf innan alþjóölegrar verkalýöshreyfingar er, og þá ekki sist norræna samstarfiö. Þvi miöur munu þó efnahags- og kjaramálin trúlega verða áfram efst á blaöi á næstu árum. Á þeim vettvangi höfum við orðið fyrir þannig áföllum siöustu tvö árin, aö ég býst varla viö öðru en þaö muni taka verkalýöshreyf- inguna nokkur ár að vinna upp á ný þaö sem tapast hefur i þeim efnum, svo aö hægt verði að snúa sér meir að öðrum aðkallandi verkefnum. Að vek ja með mönnum eldlegan áhuga — Oft er um það rætt, hve illa gangi að fá nýja krafta til forystustarfa i verkalýðshreyf- ingunni. Hvaða ráð sérð þú helst til úrbóta i þessum efnum? — Þetta vandamál er að sjálf- sögðu nátengt þvi, hvernig til tekst um fræðslustarfsemi verka- lýðshreyfingarinnar. Þaö hefur m.a. veriö sjálf gerð þjóðfélags- ins á undanförnum „velgengnis- árum”, sem hefur valdið þvi, að ýmsir þeir, sem mikils mátti af vænta i starfi fyrir verkalýðs- hreyfinguna, hafa fremur tekið þann kostað prila upp tröppurnar i þjóðfélaginu og velja sér ævi- starf á öðrum vettvangi. Fyrir bragðið má segja að mannval hafi orðiö minna hjá verkalýðs- hreyfingunni, en ella. Verkalýös- hreyfingin þarf að gæta þess á hverjum tima að þjálfa stöðugt nýja menn til forystustarfa, og er ég þess fullviss aö sé rétt aö málum staðið þá mun takast að tryggja hreyfingunni nægan fjölda dugandi forystumanna á komandi árum. Ég sagði áðan að fræðslustarf- semin væri mikilvæg, lika i þessum efnum, en hér kemur einnig til sú brýna nauðsyn að vekja með mönnum eWlegan áhuga, að fá nægilega marga til að láta störfin i verkalýö^hreyf- ingunni sitja i fyrirrúmi, þót.t slikt kosti þaö, að menn verði þá oft að ’ hafna öörum möguleikum, sem þeir e.t.v. kynnu aö hafa i lifinu. Þaö veltur lika mikiö á þvi, aö forystan á hverjum tima ræki þá grundvallarskyldu sina aö gefa nýjum kröftum tækifæri til aö reyna sig i starfi og ungum mönnum kost á aö vinna meö hinum eldri aö félagsmálum og læra þannig af þeirri reynslu, sem þeir eldri hafa öðlast i skóla baráttunnar. Framar öllu er það fórnfýsin — Hvaða eiginleika telur þú skipta mestu, aö þeir menn rækti meö sér, sem kvaddir eru til forystuhlutverks i verkalýðs- hreyfingunni? -w— Eigi maður aö svara slikri spurningu, veröur mér óhjákvæmilega hugsaö til þeirra baráttutnanna i röðum verka- lýðshreyfingarinnar fyrr og siðar, sem ég hef þekkt hæfasta. Framar öllu er það fórnfýsin, sem hefur auðkennt þessa menn. Fyrir þeim hefur baráttan fyrir auknum völdum alþýöunnar, bættum kjörum verkafólks og auðugra lifi allrar alþýöu verið aöalatriöiö. Vegna þeirrar bar- áttu hafa þeirra eigin persónu- legu hagsmunir orðiö aö vikja. I baráttu verkalýðsstéttarinnar hafa menn löngum ekki náö miklum árangri nema þeir gefi sig alla, — ekki bara einhvern part af sjálfum sér. Og menji verða aö læra að gera fyrst og fremst kröfur til sjálfs sin. Ekki dugar aö kenna öörum um þaö sem miður fer, heldur verða þeir sem tekist hafa forystu á hendur jafnan aö spyrja, hvaö þeir sjálfir heföu getaö betur gert. — A siðustu 60 árum hefur verkalýðshreyfingin verið afl, sem átt hefur mjög sterkan þátt i mótun þjóðféiagslegrar fram- vindu. Telur þú aö hlutur verka- lýöshreyfingarinnar muni fara vaxandi eöa minnkandi i þessum efnum á næstu áratugum? — Okkar faglega verkalýös- hreyfing er mjög sterk i dag. Aö sumu leyti sterkáh en i flestum öörum löndum. Hún er óklofin.tog innan Alþýðusambandsins má segja að séu nær 100% islensks verkafólks. Viöa erlendis er þetta alls ekki svona. Sums staðar eru tvö eöa fleiri heildarsambönd i einu landi og keppa innbyrðis, og viða er miklu stærri hluti verka-

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.