Þjóðviljinn - 14.03.1976, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 14.03.1976, Qupperneq 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 7. mars I97G. DJOÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans Krarnkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson Svavar Gestsson Eréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón með sunnudagsblaði: Árni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 linur) Prentun: Blaðaprent h.f. AFREKASKRÁ OG SJÁLFUMGLEÐI Þetta er afmælisvika: Alþýðusamband- ið er sextugt og þá Alþýðuflokkurinn. í þessu tilefni er rifjað upp eitt og annað i blöðum úr baráttusögu verklýðshreyfing- arinnar, lýst núverandi ástandi, spáð i framtiðina. Það er ekki nema eðlilegt, að margir þeirra sem fyrr eða siðar hafa komið við sögu hreyfingarinnar tiundi með nokkurri ánægju það sem hún hefur afrekað i sókn islenskrar alþýðu til betra lifs. Og það er lika athyglisvert, að hjá mörgum fylgir afrekasögunni ákveðin gagnrýni. Betur má ef duga skal. Sofnum ekki á verðinum. Látum ekki sjálfsánægju deyfa sóknarþunga. Eflum innviðu hreyf- ingarinnar, þá stéttarvitund og þekkingu sem duga sem vopn i baráttu fyrir breyttri þjóðfélagsgerð. Það er rétt að vekja athygli á þvi, hve ó- likt þetta tal er skrifum Alþýðublaðsins um sextugsafmæli Alþýðuflokksins. 1 opnugrein formanns flokksins, Benedikts Gröndals, og svo i leiðara, fer mjög mikið fyrir afrekaskrá þeirri, sem flokkurinn á að meiru eða minna leyti með verklýðs- hreyfingunni. Þessu fylgir svo nokkur harmagrátur yfir þvi, að ,,hreyfing vinstrimanna á Islandi klofnaði illu heilli” og er þá að sjálfsögðu átt við það, að þrisvar sinnum hafa allstórir hópar manna yfirgefið Alþýðuflokkinn og mynd- að pólitisk samtök sem nú eru orðin helm- ingi stærri en flokkur Benedikts Gröndals. Það er náttúrlega ekki nema von að þeim hjá Alþýðublaðinu sárni þessi þróun. Og Benedikt segir i grein sinni að klofningur Alþýðuflokksins sé „lærdómsrikur þáttur i sögu vinstri stjórnmála á Islandi”. En i hverju á þá sá lærdómur að vera fólginn? Málgagn Alþýðuflokksins gerir ekki neina tilraun til að svara þvi. Nema siður væri. Benedikt hamrar á þvi og svo leiðarinn, að ,,þeir sem klufu Alþýðuflokk- inn voru á villugötum”. Enda virðist Benedikt ekki sjá neinn mun á kommún- istaflokki kreppuáranna og Alþýðubanda- lagi nútimans. Það lið er og verður illt og bölvað. Benedikt gerir enga tilraun til að skýra hvernig á þvi stóð, að hinar rauðu freistingar urðu svo oft yfirsterkari sam- loðuninni i flokki hans. Hvorki honum né þá leiðarahöfundi dettur i hug að spyrja sig að þvi, hvern þátt pólitisk hegðun hægrisinnaðrar forystu átti i þvi. Það bregður ekki fyrir votti af sjálfsgagnrýni. Það voru þeir sem fóru, sem eru sekir. Engin ástæða til að spyrja hvernig á þvi stóð, að „klofningsmenn” reyndust með tið og tima allmiklu liðsterkari en þeir sem klofnir voru. Þess i stað er bætt við afrekaskrána með þeim sjálfsánægjutón sem engar efa- semdir viðurkennir. ,, Alþýðuflokkurinn hefur haft miklu meiri áhrif á þróun is- lensks þjóðfélags en hann hefur haft kjör- fylgi og þingstyrk til,” segir Benedikt. „Flokkurinn hefur sýnt ótrúlegan lifsþrótt og ávallt reist sig við. Nú er hann enn á uppleið”, segir i leiðaranum. Og enn segir Benedikt: „Á sextugsafmælinu horfir flokkurinn bjartsýnn og sigurviss til fram- tiðarinnar”. Þetta er óneitanlega hressi- lega mælt um flokk sem hefur á skömm- um tima tekist að glutra niður um helm- ingi fylgis sins. I þeim ritsmiðum, sem hér voru nefnd- ar, er semsagt engin svör að finna við spurningum þeim sem áleitnastar eru um sögu Alþýðuflokksins. En nú vill svo til, að núverandi flokksbróðir Benedikts, Björn Jónsson, forseti ASÍ, viðhefur ummæli i afmælisviðtali við Þjóðviljann, sem vel má nota sem svör við fyrrnefndum spurn- ingum. Hann segir m.a.: „Að tala um verklýðsflokk eða flokka án sósialisma er tómt mál. Hafi slikir flokkar ekki sósial- ismann og sósialisk markmið að leiðar- ljósi, þá eru þeir eins og hvert annað rek- ald, einskis virði fyrir verklýðshreyfing- una og baráttu hennar”. Það er varla hægt að hugsa sér þarflegri afmælisósk til Alþýðuflokksins en þá, að viðhorf sem þetta gegnsýri pólitiskt lif hans. Það kann að visu að verða bið á þvi. En mörg vandamál á vinstri armi stjórn- mála á íslandi yrðu tiltölulega auðleyst ef að hiklaus þróun i þessa átt færi af stað. áb VÍSINDI OG SAMFÉLAG Evrópsk geimferðaáætlun Riki Vestur-Evrópu hafa nú á- kveöið að hefja sameiginlegt átak i geimlerðum þannig að risaveld- in tvö hafi ekki lengur einokun i þeim efnum. Vestur-Þýskaland, Bretland og þó einkum Frakkland hafa áður framleitt minni gerðir af eld- flaugum, en ekkert þessara landa hafði efni á að senda gervihnetti á loft eins og Bandarikin og Sovét- rikin. Árið 1964 stoínuðu áðurnefnd þrjú evrópuriki ásamt Hollandi og Belgiu sameiginlegt fyrirtæki ELDO sem átti að sameina þekk- ingu og starfskrafta þessara rikja til þess að smiða eina stóra eld- flaug. ,En allar tilraunir með þessa nýju risaeldflaug tókust illa. „E rupean Space Agency” Áriö 1974 var ELDO sameinað stofnuninni ESRO sem var fyrst og fremst rannsóknarstofnun, og úr þvi varð einskonar evrópskt sameiningarfyrirtæki til að undirbúa geimferðir — ESA á að brjóta einokun stór- veldanna (European Space Agency). Aðil- ar eru EBE-löndin 9 að tölu og auk þess Sviþjóð, Sviss og Spánn. Þessi stofnun vinnur að GEOS- gervihnettinum auk þess sem ESA framleiðir fjarskiptahnetti lyrir sima og fyrir útvarps- og sjónvarpssendingar innan Evrópu og út fyrir álfuna. Einnig á að framleiða gervihnött fyrir stjórnun siglinga á sjó og fyrir flugvélar, en sum EBE-rikin hafa neitað að leggja fé til þeirra hluta. Kostnaöurinn við allar þessar framkvæmdir er ákveðinn fyrir hvern gervihnött um sig, þannig að rikin eru ekki öll aðilar að hverjum og einum. ...... .......................... Sovéskar bækur og tímarit (á ensku), hljómplötur og nótur. Opift frá kl. 10—12 og 14—18, föstudaga til kl. 19, laugardaga kl. 10—12. ERLEND TÍMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæft Geimferðamiðstöð ESA i Frönsku Guayana, en þaðan á að skjóta Ariane-cldflaugunum á loft. Nýlega lögðu Frakkar til að aftur yrði hafist handa um smiði stóru eldflaugarinnar sem var á ELDO-áætluninni. Öll rikin tóku undir þetta, en frakkar stjórna verkinu. Þeir bera 60% af kostn- aðinum, en frönsk fyrirtæki vinna lika að framkvæmdinni i sama hlutfalli. Iðnaðarhagsmunir og stórpólitik Vestur-evrópurikin sem fengist hafa við eldflaugasmiði, hafa öll áhuga að halda sliku áfram, enda hefurþetta verulega fjárhagslega þýðingu fyrir iðnaðinn i viðkom- andi löndum. Nú á að byrja á stóru eldflauginni alveg frá grunhi. Þetta er eldflaugin Ariane. Hún á að vera 202 lestir að þyngd, 50 metra löng, og á að geta lyft 5 lesta þungum gervi- hnetti á lága braut umhverfis jörðu eða 750 kg. þunga upp i 40 þúsund km. hæð yfir miðbaug. Bak við þessar fyrirætlanir evrópurikjanna er þó ekki ein- göngu gróðahyggja iðnaðarins, heldur bera sumir ugg i brjósti um það að bandarikjamenn (og sovétmenn) kunni að neita þvi að senda á loít fjarskiptahnetti fyrir þessi riki til að tryggja sér einok- unaraðstöðu á þessu sviði. Árið 1977 ætlar ESA að senda lyrsta íjarskiptahnött sinn á loft. Hjálp til þróunarlanda Ef þessar geimáætlanir evrópurikjanna heppnast, geta vestur-evrópurikin hjálpað þróunarlöndunum i Afriku, Asiu og rómönsku Ameriku i fjar- skiptamálum. Bandarikjamenn eru þegar teknir að nota fjar- skiptahnetti til að koma ýmsu á framfæri við þróunarlöndin, s.s. fræðsluefni. Gert er ráð fyrir að koma megi fyrir a.m.k. einu sjón- varpstæki i hverju frumstæðu þorpi, og er augljóst að hér er um mikil áhrif að tefla. Vestur- evrópurikin hafa hins vegar ein- beitt sér að þvi að koma upp gervihnöttum til flugstjórnar, leiðbeiningar skipa og veðurat- hugana. t Bretlandi er i gangi sérstök áætlun, svokölluð ,,Sky- lark-áætlun” sem miðar að þvi að leita uppi siðustu leifarnar af málmum sem kunna að leynast enn i jörðu i þvi landi. Norðurljósin könnuð Nokkur aðildarlönd ESA hafa þegar sent á loft 8 gervihnetti sem notaðir eru til veðurathugana og geimrannsókna. Sá fyrsti frá ESA-stofnuninni sjálfri verður sendur upp næsta vor. Honum er ætlað að kanna sérstaklega þær rafhlöðnu agnir (sennilega frá sólinni komnar) sem dragast að næturhlið jarðar og valda norður- ljósunum. Eldflaugina til að senda hnöttinn i 40 þús. km. hæð, þarf hins vegar ennþá að fá frá Bandarikjunum. Notuð verður Thor-delta eldflaug.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.