Þjóðviljinn - 14.03.1976, Side 9
Sunnudagur 14. marz 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Brésjnéf setur þingiö; i annarri röð má m.a. greina Kadar, Ilusak,
Castro, Honecker og fyrir aftan hann Cunhal.
yfir „tilraunum til aö grafa undan
félagslegum og pólitiskum ávinn-
ingum egypsku byltingarinnar”
— og meinti þá aö sjálfsögöu
Sadat forseta sjálfan og hin
bandarisku tengsli hans.
Tóntegundir
En á sovésku flokksþingi er þaö
einna forvitnilegast sem fram
kerhur um samband þarlendra
við aðra flokka. Það er ljóst að
kommúniskir flokkar eru ekki
samstæð heild undir einni for-
ystu. Það nægir að visa til
Kommúnistaflokks Kina og
flokka sem honum er tengdir.
Kinverjar fengu óspart á baukinn
eins og vænta mátti, Brésjnéf
kallaði maóista „varalið heims-
valdastefnu”, og margt fleira
fylgdi i þeim dúr. Hitt var svo
fróðlegra að vita, að hve miklu
leyti aukið sjálfstraust og sjálf-
stæði ýmissa kommúnistaflokka
Evrópu kæmi fram — beint eða
óbeint.
Þarna er um ýmsar tónteg-
undir að ræða. Frá Ceausescu
Rúmeni'uforseta, sem talar al-
mennt um sjálfstæði hvers flokks
og forðast að minnast á kinverja
eða fordæma þá. Eða þá Stane
Dolanc frá Júgóslaviu, sem sagði
i ávarpi sinu á þinginu, að sam-
vinna kommúnista- og verklýðs-
flokka gæti aðeins „grundvallast
á jafnrétti, sjálfstæöi og ábyrgð
hverrar hreyfingar gagnvart
eigin verklýðsstétt og þjóð”. Til
fulltrúa franska breska og þá
einkum italska flokksins sem
viðruðu hugmyndir sem bersýni-
lega mjög ólfkar þeim sem sovét-
menn aðhyllast um óskorað for-
ræði kommúniskra flokka yfir öll-
um greinum þjóðlifs i löndum
sem teljast vera á sósialiskri
braut.
Hin italska villa
Mesta athygli vekur að sjálf-
sögðu ræða Enrico Berlinguers
formanns hins öfluga
kommúnistaflokks ttaliu. Það er
ljóst, að hann gagnrýndi ekki
Sovétrikin, mælti meö samstöðu
með þeim i friðarmálum osfrv.
En áherslur hans eru i raun þær
að Sovétrikin eru „eitthvað ann-
að”. Hann gerir fullt sjálfstæði
hvers flokks að beinni forsendu
þess að þróun til sósialisma geti
átt sér stað og einnig þess að
sósialisk kenning geti þróast.
Hugmyndir hans um að Italia og
Vestur-Evrópa yfir höfuð hljóti að
fara aðrar leiöir en troönar hafa
verið um álfuna austanverða,
koma mjög skýrt fram i þessum
orðum:
„Sú staðreynd að sósialisminn
er brýnt dagskrármál setur okkur
þaö verkefni aðbenda á það alveg
afdráttarlaust hvað það er, sem
viö teljum nauðsyn og eina
möguleika fyrir italskt samfélag.
Við berjumst fyrir sósialisku
samfélagi sem feli i sér æðsta
þróunarstig allra lýðræðislegra
ávinninga og tryggði að virt séu
öll persónuleg og félagsleg rétt-
indi, frelsi trúarbragöa og menn-
ingar, lista og visinda. Við telj-
um, aö á ttaliu sé mögulegt og
nauðsynlegt ekki aðeins að stefna
á sósialisma, heldur og að byggja
uppsósialisktsamfélag með þeim
hætti, að til uppbyggingar þess
leggi fram sinn skerf ólik pólitisk
öfl, samtök og flokkar til að verk-
lýðsstéttin geti eins og vert er
staðfest sögulegt hlutverk sitt
innan ramma margþætts og lýð-
ræðislegs kerfis”.
Svona tal er eiginlega villutrú á
þeim stað og stund sem þau eru
sögð. En sovétmenn létu ekki
mikið á þvi bera — þótt svo þeir
klöppuðu Berlinguer sjaldnar lof i
lófa en öðrum. Upp á heildar-
myndina gætu sovétmenn lika
visað til ávarpa ýmissa annarra
erlendra fulltrúa sem þeim eru
mjög hagkvæm. Þeir fá miklar
þakkir frá vietnömum fyrir veitta
aðstoð i návigi við bandariskt
hervald. Þeir fá og hyllingu frá
Fiedel Castro, sem lofaði „inn-
blásandi stuðningi af hálfu
sovéskra kommúnista” viö alla
byltingarsinna. (Castro gerði i
leiðinni sovéskum þann greiða að
leggja að jöfnu „fasista, burgeisa
og maóista”).
Viðbrögð sovéskra
Sjálfir viku sovétmenn mjög
litið að hinni „itölsku villu”.
Brésjnéf rétt drap á þaö, að uppi
væri „skoðanamunur” I einstök-
um málum. Hann sagði einnig, að
„sumir” túlkuðu alþjóðahyggju á
þann hátt ,,að litið verður eftir af
henni”. Grúsiumaðurinn Sjev-
ardnadze kvartaði nokkuð yfir
þvi að „jafnvel meðal nokkurra
vina okkar er það um hrið orðin
tiska að tala um ávirðingar
sósialisks lýðræðis i Sovétrikjun-
um”. En sá sem mest tók hönd
frá munni i þessum efnum var
Masjerof, flokksritari frá Hvita-
rússlandi. Hann sagði m.a.:
„Þvi miður eru til enn stuðn-
ingsmenn sósialisma, sem undir
þvi yfirskini að þeir séu að verja
svonefnda „sérstöðu” sina, þjóð-
leg sérkenni, i reynd endurskoða
undirstöðu alþjóðahyggju
öreiganna... Um leið eru alls-
konar frávik frá byltingarkenn-
ingu sett fram sem nýsköpun, en
lifandi marx-leninsk kenning og
framkvæmd hennar i reynslu
sósialismans er lýst sem ihalds-
semi og kreddu.,.. Flokkur okkar,
sovéska þjóðin, sem ræður yfir
allri auðlegð byltingarkenningar,
gifurlegri reynslu af baráttu gegn
öflum andstæðum sósialisma,
vita vel hvers virði eru slikar til-
raunir til að „módernisera”
marxismann, teygja hann i
sundur á milli „þjóðlegra bæki-
stöðva”.
Fulltrúarnir 5000 I salnum hafa
góða æfingu I að skilja.að slikum
oröum er ekki farið um maóista,
ekki um sósialdemókrata heldur.
Hitt er svo ekki nema rétt, að
þessi Utrás Masjerofs var svo til
einsdæmi og þvi erfitt að spá um
það, hvort þetta sé visir aö öðru
og meira eða ekki. Enn er t.d.
þeirri spurningu ósvarað hvort og
hvenær Brésjnéf tekst að kalla
saman þá ráðstefnu kommúnista-
flokka sem hann hefur lengi hvatt
til, én hefur til þessa strandað á
fyrirvörum júgóslava, itala,
spánverja og fleiri aðila.
(Vitnaðer til ræða og ávarpa skv.
blaðinu Pravda 25. febr.-5. mars)
p lF ERLENDUM
E IÓKAMARKAÐI
Circles and Standing
Stones.
Evan Hadingham. Heinemann
1975.
Ahugi manna á steinmann-
virkjum, sem viða finnast á Eng-
landi, hefuralltaf yerið nokkur og
undanfarið hefur forvitni manna
aukist við nýja tækni til aldurs-
ákvörðunar mann-
virkjanna.Stonehenge er furðu-
legasta mannvirkið og er saga
hugmynda manna um það rakin i
þessu riti ásamt fjölda annara
dreifðra mannvirkja af þessu tagi
um Bretlandseyjar. Til hvers
voru þessi mannvirki gerð?
s' Svörin hafa verið mismunandi
eftir mati og smekk hvers tima.
Höfundurinn rekur þá sögu og
lýsir gerð mannvirkjanna
nákvæmlega og dregur fram nýja
vitneskju sem fengist hefur með
fornleifarannsóknum á siðustu
áratugum. Hann ber fram
skoðanir sinar um tilgang manna
með byggingu steinvirkja og um
það geta menn fræðst með þvi að
lesa bókina, sem er skemmtilega
skrifuð og fylgja henni fjöldi
mynda og uppdrátta.
The Mediterranean and the
Mediterranean World in
the Age of Philip II.
Volume I-II. Fernand Braudel.
Translated from the French by
Sian Reynolds. Fontana/Collins
1975.
Rit þetta kom fyrst út 1949,
drögin að þvi voru lögð 1939 segir
höfundur I formála. Siðan var allt
ritið endurskoðað og gefið út 1966.
Enska þýðingin kom fyrst 1972 og
loks gefið út I Fontana 1975.
Ritið er meðal þeirra sagn-
fræðirita sem merkust verða talin
á þessari öld. Það er ekki aðeins
að það sé ágætt sagnfræðirit i
venjulegum stil, heldur brýtur
höfundur blað i sagnfræðiritun
með þvi að lýsa sögusviðinu af
nákvæmni og skilningi. Lýsing
þess er fjórðungur ritsins, en
fyrir vikið verður viðfangsefnið
skilið dýpri og viðari skilningi.
Sögusviðið, Miðjarðarhafið,
eyjarnar og löndin sem að þvi
liggja eru vettvangur atvurðanna
og höfundur fjallar einnig um
daglegt lif og kjör ibúa þessara
svæða, framleiðslu og andlegt
ástand. Rit þetta er bæði sagn-
fræðirit og félagsfræðilegt rit og
með þvi aö tvinna þetta hvort-
tveggja saman tekst höfundinum
að setja saman aldarfarslýsingu
16. aldar og pólitiska sögu þess-
ara svæða á sama fleti. Siðari
hluti fyrsta bindis fjallar um
efnahagsástand og viðskiptalif og
i siðara bindinu rekur hann
atburðarásina sem leiddi til
orustunnar við Lepanto.
Höfundurinn var starfsbróðir
þeirra frönsku sagnfræðinga sem
fremstir teljast á 20. öld, Marc
Blochs og Lucien Febvre, en ein-
kenni þeirra er að tjá allan flaum
sögunnar, ekki aðeins yfirborðið,
heldur einnig þjóðdjúpið og hrær-
ingar þess og þær efnislegu og
andlegu ástæður sem orsaka
framstreymið. Höfundurinn
hefur einnig ritað ágæta bók um
þróun kapitalismans og lifskjörin
frá 1400 til 1800, sú bók hefur
einnig verið gefin út i útgáfu Fon-
tana, hann er einnig ritstjóri
„Annales” timarits sem fjallar
um hagfræði, samfélög og menn-
ingu. Bók þessi hlaut einróma lof
færustu sagnfræðinga þegar hún
kom út i fyrstu og enn frekara lof
með annari útgáfu, og á höfundur
það vissulega skilið.
SVRPU 5KPPHR
NÝ LAUSN Á GÖMLUM VANDA
SYRPU SKÁPAR eru einingar í ýmsum stæróum og geröum.
SYRPU SKÁPAR gefa óþrjótandi möguleika hvar sem er-
þú getur alltaf bætt vió SYRPU SKÁP og haldiö samræmi.
SYRPU SKÁPAR er lausnin.
Vinsamlegast sendiö mér upplýsingar um SYRPU SKAPANA
Nafn
Heimili
Skrifiö greinilega
SYRPU SKAPAR er islensk framleiðsla.
AXEL EYJÓLFSSON
HÚSGAGNAVERSLUN SMIÐJUVEGI 9 KÓPAVOGI SÍMI 43577