Þjóðviljinn - 14.03.1976, Side 10

Þjóðviljinn - 14.03.1976, Side 10
10 SIDA — ÞJÖÐVILJINN Sunnudagur 14. marz 1976 Munich, 28. september 1968). „Listaverkið er ekki staðgcngill, eftirlik- ing eða spegilmynd náttúrunnar, heldur persónuleg tjáning hennar. Náttúran tjáir sig sjálf, ef svo má segja, vér skynjum fegurð i HENNI. En listaverkið tjáir aftur á móti túlkun eða skilning listamannsins á náttúrunni, og i þeirri tjáningu skynjum vér fegurð.” (SÍMON JÓH. ÁGtlSTSSON: LIST OG FEGURÐ, Hlaðbúð 1953). Ulrich Ruckriem: Hringur. (Courtesy Videogalerie Gerry Schum, Oiisseldorf, sumarið 1971). List og landslag, — hvað er það? Gettu. Er það Þingvallamyndin? Nei. Heldur hvað? Einhver sagði: allt er list. Ég er engu nær. Landið er efni, sjáðu til. Þú hnoðar leir i flagi og býrð til mynd, þú stillir henni uppá hillu. Kannski er þessi mynd listaverk? Já? En ef þú formar leirinn á staðn- um og yfirgefur hann þar, — hvað er hann þá? Hún er strembin þessi. Sleppum þvi. En hver er munurinn á formun náttúrunnar og listamannsins? Þessi spurning leiðir af sér aðra ef landið formast á listrænan hátt, i veðrum og vindi, — til hvers eru þá listamenn? Málið er ekki svona einfalt. Jæja? Þú gleymir sköpunarþrá mannsins. Hvaða fyrirbrigði er það? Láttu ekki eins og asni. Horföu á barnið leika sér og umturna hlutunum, þú getur kallað það at- hafnasemi ef þú vilt. Barnið er talandi dæmi um þörf til aö tjá umhverfi og viðburði. Ég þekki fólk sem lifir ljómandi góðu lifi án þess að hugsa nokk- urn tima um list, hvað þá að þvi langi til að sulla i litum og þess háttar. Þetta fólk fengi fyrir hjartað ef það sæi myndlist! Við erum komnir langt út fyrir efnið. Þú segir þetta fólk fá fyrir hjartað ef það sér myndlist. Við skulum sleppa þessu ágæta fólki. En má ég spyrja: Hvaða augum liturðu reglusemi og skipulag? Haltu áfram. Ef við skoðum loftmyndir af ökrum og túnum til dæmis, þá sjáum viö strax að fagurfræðileg hlutföll skipta þar miklu máli. Hagkvæmni. Ekki að öllu leyti. Visindamenn hafa fyrir löngu uppgötvað ákveðinn sannleik: lifið er regla. Reglan er grundvöllur listarinn- ar. Lifið er list. ,,t upphafi var orðið”! Hefurðu horft i smásjá? Þar sérðu hvernig uppbygging allra hluta er. Þú ferð i hring. Hvað eru hamfarir náttúrunnar annað en regla: eldgos, sandfok, rigning og hvirfilvindur. Ég fyrir mitt leyti get ekki unnt náttúrunni þess að breytast án aðstoðar list- arinnar. Þetta tvennt er svo eðlis- likt: ummyndanir náttúrunnar og sköpun mannsins. Ef munurinn er enginn, — hvað þá? Það fer eftir þvi hver skoðar. Venjuleg landslagsmynd er auð- skilin. Eftir þvi sem likingin er meiri við fyrirmyndina, þá vegn- ar henni betur á veggjum fólks- ins: hún sýnir þekkjanlegan veruleik. Ef landslagsmyndin er smáheimur, kannski þúfnakollur, þá skilst hún ekki: hún er fölsun á veruleik, tilbúningur og þess vegna ekki list.. Biddu nú við! Og ef landið sjálft er formað, i stað þess að mála þaö, af manni með listræna hæfileika? Nei, nei, þá er þetta bara della og sér- viska. Auðvitað viðurkenni ég túlkun málarans, ef hann sýnir landið á listrænan máta, notar það sem startpunkt og skapar. Leyfist mér að skjóta inn orði? Mér finnst þessi útvikkun á eðli listarinnar stefna til upplausnar. Þið kollvarpið gömlum og grón- um gildum. Alls ekki, við bætum nýjum viö. Þú færð engan heilbrigðan mann til þess að samþykkja það, að brölt i landslaginu geti flokk- cist til listar Hvað kallarðu brölt? Hvaö kall- aröu skúlptúr? Þessi flokkun á öllum sköpuðum hlutum er með afbrigðum hvimleið. Þið einblinið of stift á stærðina, fjarlægðar- skynið er ruglað. Ef við tökum skúlptúrinn sem dæmi i þessu sambandi, þá er það Ijóst strax að efni hans er hið fyrsta sem við verðum að ákveða. Er það leir eða kopar? Er það mold eða grjót? Kallar eins og Michel- Angelo hjuggu i stein, Steinar i Paradisarheimt Halldórs Lax- ness hlóð stein og ségir: þetta er list! Hann bitur i steininn, sleikir hann, kreistir hann! Svo dettur steinn á tærnar á honum, — hvað er þá táin? Skúlptúr? Andskotans vitleysa er þetta! Viðurkennt á morgun þegar eitthvað ennþá vitlausara er á dagskrá. En nú skal ég segja þér sögu: Ég var noröur i Vatnsdal i sumar sem leiö. Dag einn geng- um við bóndinni uppi brekkur ein- hverra erinda. Viö komum þar að sem safnað hafði veriö saman af- lóga heyvinnutækjum og öðru drasli sem átti að urða. Þarna loguðu litbrigðin gult, rauðbrúnt og dökkbrún, og einstaka blóm. Dýrð þessi hreif mig svo mjög að ég andvarpaði: Mikið lifandis skelfing er þetta fallegt! Bóndinn leit undrandi á mig og svaraði: Mér hefur alltaf verið heldur illa við blómin! Þú verður að fyrirgefa, en ég skildi ekki brandarann. Ef ég hefði tekið ljósmynd af þessu og bóndanum með, og sýnt honum siöar, þá væru viðhorfin breytt, hann mundi auðvitað harma að draslið væri með á myndinni, en ljósmynd er alltaf ljósmynd, ég tala nú ekki um ef hún er í lit! Þetta er smekksatriði. Það ku vera teygjanlegasta hugtak i heimi. Ég skal nefna þér annað dæmi: Taktu litljósmynd af landslagi i góðu veðri, stilltu svo myndaramma þannig að hann sýni nákvæmlega hið sama og ljósmyndin gerir. Hver er munurinn? Annars vegar augnabliksmynd i ramma, hins vegar varanleg ljósmynd. Hvað er eitt augnablik í mynd- list, heil eilifð. Hvað er varanlegt, ljósmyndin gulnar. Hver er munurinn? Spyr sá sem allt veit. Veistu hvað, allir menn hafa listræna hæfileika. Það sem skil- ur á milli venjulegra manna og listafólks eru tækifærin, kynning- in og áhuginn sem upp er vakinn. Sumir vinna alla hluti i anda listarinnar, kannski ósjálfrátt, hver veit. Þeir meðhöndla hlutina þannig að úr verður formspil og samræmi, listræn heild. Hér áður fyrr þegar bóndinn, svo við höld- um okkur við sveitina, þegar bóndinn sló með orfi og já eða vinnukonan rakaði með hrifu, þá var tilbreytingarleysið rofið með ýmsum hætti, menn slógu I hring sér til hvildar frá venjulegu sláttulagi. Sér til hvildar já! En hrifan var meira en verk- færi við heyskap, hún var verk- færi i listrænum tilgangi. Hættu nú alveg! Þótt hið listræna væri ekki tengt þessari nýju hugsun i myndlist af eðlilegum ástæðum og ekki i rökréttu samhengi held- ur, þá formaðist heyflekkurinn samt sem áður á ýmsa vegu, aldeilis óháður nytsemi stundar- innar. Hér var um að ræða ákveð- iðsamspil milli min og hrifunnar! Fékkstu ekki skammir? Nei, ég var svo fljótur að raka! Þessi formleikur i heyinu er á margan hátt sambærilegur við sullið i sætsúpunni barnsins, eftir að mjólkin er komin saman við! Hitt er svo annað mál að vél- væðingin hefur ýmsu breytt, allt gerist svo miklu hraðar núna. Og listin horfin úr vinnunni? Við verðum að leita aftur i tim- ann til að finna einhvern punkt listrænnar vinnu, þá hélst þetta allt i hendur. Nú eru aðrir hættir viðhafðir. 1 stað vefnaðar og út- skorinna hluta, þá hefur hvers konar iðnvarningur af litilfjörleg- um uppruna flætt inn á sveita- heimilin og ruglað dómgreind fólksins. Hið einfalda hefur vikið fyrir flóknu skrauti sem höfðar til vitundarinnar um erfitt verk. Þessi varningur úr plasti og blikki er gerður i vélum á ódýran máta, sem út af fyrir sig er allt i lagi, en hraðvirknin i framleiðsl- unni er bundin kröfunni um sölu, hún þjónar gróðahyggjunni, ekki listrænum metnaði. Ég held við þurfum ekki að ræða þetta frekar, — sama sagan hefur reyndar gerst i kaupstöðunum og er jafn- sorgleg. Ber þá að skilja viðleitni nú- timalistamanna þannig, að sam- spil listar og lands i verkum þeirra eigi aþ endurreisa fólkið? Ég held að listamenn séu of eigingjarnir til þess að hugsa svona, en þeir eru oftast að fást við samtimaverkefni, og þegar sú staða verður i samtimanum, i nánasta umhverfi og svo fram- vegis, að þörf verður á endurmati af einhverju tagi, þá eru framúr- stefnulistamenn þeir fyrstu sem taka við sér. Þegar listamaður tekur til við að forma landið, þá er hann að bregðast við aðför annarra gagnvart landinu, ekki aðeins að tjá frumlega hugsun, heldur einnig að benda á leiðir til nánari samskipta. Þeir keppa við náttúruna. Mikið rétt. Hér erum við komnir að at- hyglisverðum atriðum. Hver ræð- ur landinu? Hverjum leyfist að ráðskast með landið? Þú hefur óþarfar áhyggjur. Listamenn hafa yfirleitt mjög rika samkennd með náttúrunni, — sumir vilja reyndar meina að engir séu náttúrumeiri en lista- menn! Ef allt er list eins og þú segir, þá langar mig til að spyrja eins: Eru hjólför eftir jeppa upp á há- lendinu list? Það er mögulegt! Fer það kannski eftir þvi hver situr við stýrið, ábyrgðarlaus unglingur eða myndlistarmaður með pappira og göfugan tilgang? Munurinn getur legið i eðlinu, hjá unglingnum er það þörfin fyr- ir útrás á einhvern hátt, hann vantar sitt Tivoli með skotskifum og brotnum flöskum. Lista- maðurinn vinnur verk sitt á ann- an hátt, hjá honum verður visst samspil lands og hugsunar, hann byggir upp, hann rifur ekki niður. Mér finnst þetta margumtalaða frelsi listamannsins varhugavert, eins og ég hef áður bent á, — get- ur hann leyft sér allt? Framhald- ið hlýtur að leiða til upplausnar i myndlistinni, jafnvel þjóðfélag- inu. Þvert á móti. Með nýrri mynd- hugsun hefur orðið mikil breyt- ing, menn gefa gaum i siauknum mæli frumþáttum tilverunnar, rannsaka hið hugmyndafræði- lega, einfalda og leita hins ein- falda. Timi og rúm, hraði. Hlut- föll náttúrunnar og eðli hennar. Landið er hið nærtækasta, jafnt manninum, jörðin hvar sem er. Ekki er nauðsynlegt að ráðast á rómaða ferðamannastaði og um- turna þeim eftir geðþótta lista- mannanna, enda kæmu þá til skjalanna alls kyns verndarsam- tök sem standa vörð um landið. Með leyfi að spyrja: hvert er lámarksefnið sem fellur undir hugtakið sem þú nefnir list og landslag? Sandkorn. Hnefafylli af snjó. Skriða i fjalli. Svo þegar skriðan fer af stað, —. hvað gerum við þá? Skipum nefnd i málið! Sovéskar bækur og tímarit (á ensku), hljómplötur og nótur. Opift frá kl. 10—12 og 14—18, föstudaga til kl. 19, laugardaga kl. 10—12. ERLEND TÍMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæft

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.