Þjóðviljinn - 17.03.1976, Qupperneq 16
Sadat og Kissinger; hvor býftur betur?
Rússar illir
út í Sadat
MOSKVU. Sovéskir fjölmiðlar
hafa gagnrýnt Sadat egyptafor-
seta harðlega fyrir að rjúfa vin-
áttusamning Sovétríkjanna og
Egypta, sem undirritaöur var
árið 1971.
1 yfirlýsingu TASS um málið
segir að „þessi aðgerð forseta
Egyptalands er nýr vitnisburður
um övinsamlega stefnu gagnvart
Sovétrikjunum sem hann hefur
fylgt nú um lang skeið... TASS
hefur heimild til að staðfesta, aö
ábyrgðin á afleiðingum stefnu
egypsku forystunnar gagnvart
Sovétrikjunum hvilir öll á hinum
egypska aðila”
1 yfirlýsingunni er það tekið
fram að sovétmenn séu reiðubún-
ir til að efla i framtiðinni til vin-
samlegra samskipta við egypta.
Tónn yfirlýsingarinnar er óvenju
beiskur, enda hefur Egyptaland,
einkum undir stjórn Nassers,
hlotið meiri aðstoð frá Sovét-
rikjunum en flest ef ekki öll riki
önnur.
Viðræður við ísal:
Úrslita að
á næstunni
Starfsfólk ríkisverksmiðja
fœr 6% hœkkunfrá I. mars
Undanfarið hafa óslitiö staöiö
yfir samningaviðræður milli
samninganefndar verkalýðsfé -
laganna annarsvegar og íslenska
álfélagsins hinsvegar, og hafa
samningafundir verið tvis-
var-þrisvar i viku og stundum oft-
ar, aö þvi er Guðjón Jónsson,
formaður Félags járniðnaðar-
manna, skýrði Þjóðviljanum frá i
gær. Kemur væntanlega i ljós,
næstu daga, hvort samkomulag
tekst eða ekki.
Eins og kunnugt er gerðu ýmis
verkalýðsfélög sameiginlegan
samning við rikisverksmiðjurn-
ar, það er að segja áburðarverk-
smiðjuna, sementsverksmiðjuna
og kisiliðjuna, og renna þeir
vænta
samningar út 1. mai n.k. 1 gær-
morgun varð fundur með samn-
inganefnd verkalýðsfélaganna
annarsvegar og vinnumálanefnd
rikisins og fulltrúum verksmiðj-
anna hinsvegar og arð samkomú-
lag um að starfsfólkið fengi 6%
launahækkun frá 1. mars. Jafn-
framt tilkynnti samninganefnd
starfsfólks verksmiðjanna að
lagðar yrðu fram kröfur um ýms-
ar breytingar á kjarasamningun-
um, væntanlega i næstu viku.
-dþ.
Sterlingspundið fellur enn
Frankfurt 16/3 reuter —
Sterlingspundiö féll enn meir i
gengi eftir tilkynningu Wilsons
um að hann segði af sér. Kom
gengisfallið fram á öllum stærstu
gjaldeyrismörkuðum Evrópu og
Bandarikjanna.
í Frankfurt féll pundið niður i
4.925 mörk að verögildi og hefur
það aldrei verið eins verðlitiö
gagnvart þýska markinu. Markiö
treysti hins vegar stöðu sina
gagnvart öllum öðrum gjaldmiðl-
um.
Ekki er vitað hve miklum
gjaldeyri Englandsbanki hefur
variö til styrktar pundinu en fróð-
ir menn telja það ekki vera undir
einum miljarði dollara. Það sam-
svarar rúmlega sjöunda hluta
alls peningaforða Bretlands.
WOVIUINN
Miftvikudagur 17. mars 1976
Navarro forsætisráftherra
SPÁNN-
Deilur
innan stjórn*
arinnar
Madrid 16/3 reuter — Deilur hafa
nú komið upp innan spænsku
stjórnarinnar og bendir margt til
þess að vfðtækar breytingar verði
gerðar á henni á næstunni, aö þvi
er heimildir nákomnar stjórninni
hermdu I dag.
Carlos Arias Navarro forsætis-
ráðherra hefur haldið stöðuga
fundi undanfarna daga með sam-
ráðherrum sinum i byi skyni að
setja niður ágreining sem fyrst og
fremst snýst um það hversu hröð
lýðræðisþóun i landinu á að vera
og hversu viðtæk.
Það verður til að magna deil-
urnar að mikið hefur verið um
verkföll undanfariö og efnahagur
landsins er mjög bágborinn. Loks
hafa róstur á götum úti kostað sjö
manns lifið siðustu tvær vikur.
Hægriöflin hafa reynt að kenna.
Fraga Iribarne innanrikisráð-
herra um mannfallið en hann var
erlendis þegar morðin i Vitoria
voru framin.
Siðan i janúar hafa linurnar
skorist-æ skýrar milli æstustu
hægrimannanna og umbótasinn-
anna i stjórninni.
Samiö á Akranesi:
Með storminn í fangið
Verkakonur á Akranesi sam-
þykktu á fundi siödegis i gær
samkomulag við atvinnurek-
endur með 82 atkvæðum gegn
15. í meginatriðum er sam-
komulagið innan þess ramma
sem ASÍ samdi um fyrir
skemmstu, en það sem hafðist
fram af sérkröfum var það, að
uppsagnardagar yrðu aðeins
tveir i viku, mánudagar og
föstudagar. í öðrum samning-
um er ráð fyrir þvi gert að við
hliðstæðar aðstæður megi segja
upp alla fimm daga vinnuvik-
unnar.
Bjarnfriður Leósdóttir sagði i
viðtali um þessi mál við Þjóð-
viljann i gærkvöldi, að það væri
reyndar ekki ástæða til að fára i
sigurgöngu þótt það hefði feng-
ist fram að ekki megi segja
verkakonum upp nema tvo daga
vikunnar. En aðrar sérkröfur
voru eftir gefnar. Hún sagði, að
atvinnumálanefnd, bæjarstjóri
og bæjarstjórn hefðu gengið I
málið af miklum þunga og út-
málað dökkum litum það tjón
sem bæjarfélaginu stafaði af
verkfallinu. Væri það út af fyrir
sig merkilegt, að sjá karla gera
sér svo vel grein fyrir þvi, að
tjón getur af þvi hlotist að konur
koma ekki til vinnu; annað mál
væri, hvort þeir gætu dregið af
þvi skynsamlega lærdóma.
Það hefur mikið gengiö á á
Akranesi, sagði Bjarnfriður
ennfremur, rok i hálfan mánuð,
og við höfum haft storminn i
fangið. Og stuðning höfðum við
ekki, hvorki af Alþýðusamband-
inu né Verkamannasambandinu
svo að heitið gæti.
En þótt ekki næðist mikils-
háttar árangur, sagði Bjarn-
friður, — hafa þessir verkfalls-
dagar haft gildi fyrir okkur,
sýnt mátt samstöðunnar. Og við
hefðum verið tilbúnar til að
halda áfram.
Herdis ólafsdóttir
Bjarnfriftur Leósdóttir
Meginatriðið:
■oguniim
verði ekki drepið á dreif
segir Gils Guðmundsson, fulltrúi Alþýðubandalagsins
í sendinefnd Islands á hafréttarráðstefnu S.þ.
— Þess er aft vænta, aft nú þeg-
ar efta fljótlega verfti á hafréttar-
Ástandið æ ólj ósara
Beirut 16/3 reuter — Astandið i
Libanon verður æ óljósara.
Byssumenn skutust á i Beirut i
dag og krafan um afsögn
Suleiman Franjiehs forseta verð-
ur æ háværari. Ekki er þó ljóst
hvort hann verður við henni þrátt
fyrir skilorðsbundna yfirlýsingu
hans i þá veru I gær.
Nærvera sýrlenskra hermanna
i landinu og aðgerðir hersveita
sem hlynntar eru sýrlendingum
virtust i dag hafa komið i veg fyr-
ir að sveitir úr stjórnarhernum og
uppreisnarmenn i hernum gerðu
áhlaup á forsetahöllina. Þess i
stað deildu stjórnmálamenn hart
um hvort rétt væri að forsetinn
færi frá. Krafan um afsögn hans
nýtur stuðnings vinstriaflanna og
meginhluta hersins en falangistar
og fleiri hægriöfl styðja forset-
ann.
Sýrlendingar leika stórt hlut-
verk i deilum landsmanna eins og
þeir gerðu i janúar sl. Stöðvuðu
sveitir þeirra og stuðningsmanna
þeirra sókn uppreisnarmanna og
stjórnarhersins i tiu km fjarlægð
frá forsetahöllinni. Forseti Sýr-
lands, Hafez Al-Assad, var i stöð-
ugu simasambandi við Franjieh
forseta i dag. Þá kom Yassir
Arafat leiðtogi PLO til Damaskus
i dag þar sem hann hyggst ræða
málin við Assad.
Þá gerðist það að vopnaðir
menn réðust inn i tvö fangelsi i
Libanon i dag og slepptu 950 föng-
um úr haldi. Ekki er vitað hver
var þar að verki. 1 hópi fanganna
voru bæði venjulegir glæpamenn
og pólitiskir fangar. Svipaðir at-
burðir áttu sér einnig stað i borg-
arastyrjöldinni á dögunum en þá
vildu fangarnir ekki yfirgefa
klefa sina af ótta við striðsátökin.
ráftstefnunni tekift þar til, sem frá
var horfift I Genf, aft ræfta þaft
frumvarp aft hafréttarlögum,
sem loksins tókst aft koma saman
á siftasta degi ráðstefnuhaldsins
þar, sagði Gils Guðmundsson, al-
þingismaður, er Þjóftviljinn haffti
tal af honum I tilefni hafréttar-
ráöstefnunnar i New York, en
Gils er nú á förum þangaft sem
fulltrúi Alþýftubandalagsins i
sendinefnd tsiands þar.
— Við fulltrúar islendinga á
ráðstefnunni i Genf vorum allir
býsna ánægðir með þetta frum-
varp eða drög að frumvarpi,
sagði Gils ennfremur, — þar sem
i þeim er að finna, auk megin-
reglunnar um 200 milna auðlinda-
lögsögu, tvö afar mikilsverð at-
riði. í fyrsta lagi ákvæði þess efn-
is, að strandriki geti sjálft ákveð-
ið hve mikið magn hverrar fisk-
tegundar má veiða á hverjum
tima, og i öðru lagi að það verði á
strandrikjanna valdi að ákveða,
hve mikinn hluta leyfilegs afla
strandrikið geti veitt með eigin
skipum.
Gils taldi að meginverkefni is-
lensku sendinefndarinnar nú yrði
að reyna, i félagi við samherja
okkar i hafréttarmálum, að koma
i veg fyrir að þessum ákvæðum
verði breytt eða drepið á dreif
með viðbótarákvæðum um al-
þjóðlegan gerðardóm, sögulegan
rétt og annað af þvi tagi. — Þess
er að vænta, að málum þoki veru-
lega fram á við I þessari lotu, og
kynni þá að mega vænta þess, að
hafréttarráðstefnan ljúki störfum
siðar á þessu ári, sagði Gils að
lokum.
1 sendinefnd tsl. á hafréttar-
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna I
New York eru Hans G. Andersen,
þjóðréttarfræðingur, formaður
nefndarinnar, Jón L. Arnalds,
Framhald á bls. 14.