Þjóðviljinn - 09.04.1976, Síða 4
4 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Köstudagur !). april 1976.
UQÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans
Framkvæmdastjóri: E:iður Bergmann
Ritstjórar: Kjartan ólafssun
Svavar Gestsson
Kréttastjóri: E]inar Kari Haraldsson
Umsjón meö sunnudagsblaði:
Arni Bergmann
Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólavörðust. 19. Simi 17500 <5 linur)
Prentun: Blaðaprent h.f.
6/7 STJÓRNARINNAR
Enn ein hækkunin er skollin yfir, að
þessu sinni verðhækkun á áburði. Þessi
hækkun kemur fyrst niður á bændastétt-
inni en siðan verður henni velt yfir i allt
verðlag og hún mun þegar 1. júni hafa i för
með sér hækkun á mjólk og kjöti og öðrum
landbúnaðarafurðum. Dansinn dunar.
Þessi hækkun á áburði er ekki tilkomin
vegna launahækkana. Hún er til komin
vegna þess að rikisstjórnin hefur tekið
ákvörðun um að fella niður niðurgreiðslur
á áburði. Áburðarverksmiðjan er rikis-
fyrirtæki — hækkunin einvörðungu á
ábyrgð rikisstjórnarinnar.
Hér er þvi komin enn ein hækkunin sem
segja má að hafi beinlinis verið ákveðin af
rikisstjórninni. Staðan um siðustu
mánaðamót, 1. april, var þannig að 6/7
allra verðhækkana voru á ábyrgð rikis-
stjórnarinnar, 1/7 mátti eftir krókaleiðum
rekja til launahækkananna 1. mars. Nú er
eftir um 1% af kauphækkununum frá 1.
mars sl.
Verkalýðshreyfingin hefur þegar haft
uppi hörð mótmæli vegna þessara verð-
hækkana, sem eiga rætur að rekja ein-
vörðungu til stefnu rikisstjórnarinnar. En
mótmælin ein nægja ekki. Verkalýðs-
hreyfingin verður nú að móta tillögur i
efnahagsmálum sem sanni almenningi
hvernig unnt er að leysa úr vandamálun-
um á annan veg en með gömlu ihaldsúr-
ræðunum, að velta vandanum sifellt á
undan sér uns sprengingin verður, stór-
felld gengisfelling, atvinnuleysi eða jafn-
vel landflótti.
—s.
ÞUNGUR ÁFELLISDÓMUR
Einn eindregnasti áfellisdómur um
stefnu núverandi rikisstjórnar i efnahags-
málum er ræða Daviðs Schevings Thor-
steinssonar, formanns Félags isl. iðnrek-
enda, sem hann flutti á ársþingi þess ný-
lega. í ræðu sinni sagði hann:
,,....engar af hinum ýtarlegu tillögum
stjórnar Félags isl. iðnrekenda til rikis-
stjórnarinnar frá þvi i desember 1974 hafa
verið framkvæmdar siðan siðasta ársþing
var haldið, og heldur engar af þeim tillög-
um, sem við höfum komið með siðan, jafn-
vel þó Alþýðusamband islands hafi
skrifað undir þær með okkur. Sama er að
segja um tillögur iðnþróunarnefndarinnar
sálugu, sem voru milli 40 og 50 talsins —
engin einasta af veigameiri tillögum
hennar hefur verið framkvæmd. Allar
þessar tillögur eiga það sameiginlegt að
þær stefndu að þvi að breyta stjórn efna-
hagsmála á íslandi.
Afleiðingarnar láta heldur ekki á sér
standa — þjóðartekjur á mann minnkuðu
árið 1974 um 1—2%, þær minnkuðu um 9%
á árinu 1975 og fyrirsjáanlegt að þær
munu enn minnka verulega á þessu ári.
Meðalverðbólgan milli ára varð 43% 1974,
hún varð 49% 1975 og ég álit að við stefn-
um á 34—40% verðbólgu á þessu ári.
Heildar-gjaldeyristekjur þjóðarinnar
nægðu aðeins fyrir 2/3 gjaldeyriseyðslu
hennar, og erlendar skuldir, sem námu
200.000 á mannsbarn i ársbyrjun 1975,
námu 330 þúsund krónum á mannsbarn i
árslok. Mér er spurn.er ekki mál að linni?
Hvenær ætlar ráðamönnum þjóðarinnar
að verða ljóst að ástandið i þessum málum
verður ekki bætt nema með aukningu arð-
bærrar framleiðslu sem annað hvort
skapar eða sparar erlendan gjaldeyri, svo
og með þvi að draga úr óarðbærri fjárfest-
ingu?
Sjá ekki allir menn, að verði haldið
áfram á þessari braut, er fjöregg þjóðar-
innar — sjálft sjálfstæði hennar i voða, þvi
glötum við efnahagslegu sjálfstæði er vis-
ast að hitt fylgi á eftir.” —s.
Kinverskir siðir
á stjórnar
heimilinu
Nú eru þeir farnir að ta^a upp
kinverska siðu i rikisstjórninni.
Þar eystra deila þeir á Konfus-
ius og Sjú en Lai, þegar þeir
ætla að ná sér niðri á Lin Piao
og Ten Hsiaó Ping. Hér heima
ræðst Einar Ágústsson, sem fer
með utanrikismál i stjórninni, á
frumvarp Gunnars Thoroddsen,
orkuráðherra, um sérstakt
orkubú fyrir veslfirðinga. Dag-
blaðið heldur þvi fram i gær, að
þarna komi klofningurinn, sem
hefur orðið æ rikari innan
stjórnarinnar að undanförnu,
upp á yfirborðið svo ekki verði
um villst.
Þeirri kenningu hefur verið
haldið uppi siðustu vikur. að
ráðherrar ræðist vart við, átta
rikisstjórnir séu i landinu, og
stjórnarflokkarnir hafi gefið
hvor öðrum tækifæri og tilefni
til stjórnarslita.
i fyrsta lagi rikir gjörsamlegt
ráðaleysi og sundrung innan
stjórnarinnar i efnahags-
málum. í öðru lagi er
ágreiningur um hvernig reka
eigi landhelgismálið. t þriðja
lagi hefur dómsmálaumræðan
og árásirnar á dómsmálaráð-
herra i Visi orðið tilefni til
persónulegrar úlfúðar.
Tvö atriði varðandi land-
helgismálið hafa valdið hvelli
innan stjórnarinnar. Dóms-
málaráðherrann varð æva-
reiður, þegar Geir Hall-
grimsson skipaði landhelgis-
gæslunni upp á eigið eindæmi að
hafast ekki að meðan hann
ræddi við Wilson i Lundúnum. Á
sama hátt varð forsætisráð-
herrann þykkjuþungur, þegar
dómsmálaráðherrann bað
bandarikjamenn upp á sitt ein-
dæmi um hraðbáta fyrir
gæsluna. Hann ku þá hafa sagt i
rikistjórninnii að ekki væri hægt
að vera i rikisstjórn með svona
mönnum og hann myndi ekki
þola slik vinnubrögð i fram-
tiðinni. Skömmu áður hafði
dómsmálaráðherra hreyft þvi i
þingflokki Framsóknar að timi
væri til kominn að láta hrikta i
stjórnarsamstarfinu. Undir-
tektirnar voru á þann veg að
hann kaus að glotta undir
ádrepu forsætisráðherra á
stjórnarfundinum.
Stóru ágreiningsmálin i
stjórninni eru ekki rædd opin-
berlegaenn. En upphlaup utan-
rikisráðherra i orkumálum
myndu ,,kinólógar” áreiðanlega
túlka sem fyrirboða stærri at-
burða á stjórnmálasviðinu.
Meginforsendan
fallinn
Það hefur aldrei þótt bú-
mannslegt að flá björninn áður
búið er að skjóta hann.
Hræðslan við kosningar mun
áreiðanlega halda stjórnar-
flokkunum samanspyrtum enn
um sinn. En það er ástæða til
þess að minna á, að meginfor-
senda stjórnarsamstarfsins er
þegar fallin.
Sjálfstæðisflokkurinn vann
sinn kosningasigur fyrst og
fremst vegna gifurlegs áróðurs
um f jármálaóstjórn og
loforðum um styrka efnahags-
stjórn. Höfuðrök Framsóknar-
flokksins fyrir að ganga i eina
sæng með ihaldinu voru að
ástandið i efnahagsmálum væri
svo geigvænlegt að ekkert nema
styrk meirihlutastjórn gæti
kippt i liðinn.
Áhrifamikill stjórnarþing-
maður viðurkenndi i einkasam-
tali við klippara þessa þáttar
fyrir nokkrum dögum, að ekkert
raunhæft hefði veriðgert i efna-
hagsmálum, og samtök ein-
stakra þingmanna og þing-
flokksnefnda til þess að þrýsta
ráðherrum til aðgerða á þessu
sviði hefðu reynst árangurs-
BIABIÐSI
2. AR6. — FIMMTUDAGUR 9. APRlL 1976 — 80. TBL. ^ RITSTJÚRN SlÐUMULA 12. SlMI 83322, AUGLVSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERIIOLTI 2. SlMI 27022.
Klofningur í ríkisstjórninni:
EINAR ER ANDVÍGUR
FRUMVARPIGUNNARS
lausar. ,,úg skal viðurkenna
það fúslega, að þessi meginfor-
senda fyrir yjórnarsamstarfinu
er fallin”, sagði þingmaðurinn.
Stórbœtt
viðskiptakjör
Þeir eru til sem trúa þvi að
góðæri fylgi vinstristjórnar-
árum, en hallæri hægra
stjómarfari. Frá sjónarhóli
vinstri manna væri æskilegast
að þessi skoðun yrði sem út-
breiddust. Það verður þo að
viðurkennast að þetta er ekki
einhlitt. Það hefur sannast
áþreifanlega núna á siðustu
dögum fyrir tilstilli Þjóðviljans.
Verð á blokk og flökum á
Bandarikjamarkaði hefur
aldrei verið hærra en nú,
blokkin i 70 sentum og flökin i
110 sentum, en 70% af út-
flutningi SH til Bandarikjanna
eru fiskflök. Skreiðarframleið-
endur eru komnir i gullnámu i
Nigeriu og útflutningsverðmæti
skreiðar mun aukast um mörg
hundruð miljónir á þessu ári.
Mjölverð er einnig á uppleið ,og
er nú verðið á próteineiningu að
minnsta kosti dollar hærra
heldur en i fyrra. Saltfiskurinn
rennur út á háu verði. Þannig
er um verð á fleiri sjávaraf-
urðum, og virðast viðskipakjör
okkar á þessu sviði hafa stór-
batnað.
Það verður svo nokkur próf-
raun á fjölmiðlavald
stjórnarinnar hvort henni tekst
að telja almenningi trú um
áfram, að efnahagsvandinn
stafi af versnandi viðskipta-
kjörum, og halda áfram árásum
á lifskjör launafólks á þeirri for-
sendu.
Spyrrt saman á
sköttunum
Magnús Torfi Ölafsson vekur
athygli á þeirri alkunnu stað-
reynd i nýútkomnum Þjóð-
málum ,,að pappirstigrisdýr
eru og verða ekkert nema
pappirstigrisdýr, eins þótt þau
séu tvö að verki og spyrt saman
á skottunum.”
Pappirstigrisdýrin i þessu til-
felli eru Visir og Alþýðublaðið
sem hafa verið i spyrðubands-
leik með framtið Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna
upp á siðkastið. Magnús Torfi
segir að spyrðuliðinu hafi mis-
tekist að skapa sundrungu innan
Samtakanna og veikja álit
þeirra útávið. Þvert á móti sé
enginn bilbugur á Samtaka-
mönnum og engin áform um að
leggja flokkinn niður. —ekh.
Magnús Torfi