Þjóðviljinn - 09.04.1976, Qupperneq 5
Föstudagur 9. april 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5
af ertendum vettvangi
Serafimowiisch
í%J<a|atsch
Morosowstt
Þýsku hershöfðingjarnir
bera höfuðábyrgð á styrjöldinni, en þeim hefur til
þessa tekist að skjóta sér á bakvið Hitler
Stríðsgœfa Hitlers
tekin til endurmats
Þremur áratugum eftir
styrjaldarlok eru herfræð-
ingar og sagnfræðingar
enn að velta því fyrir sér
hvað það var sem endan-
lega sneri striðsgæfunni
Hitler i óhag. Ein höfuð-
skýringin hefur hingað til
verið sú að hann hafi tekið
sér of mikið herstjórnar-
vald sjálfur og ekki farið
að ráðum hershöfðingj-
anna sinna. Líkur benda til
þess að sú skýring sé
runnin undan rif jum hers-
höfðingjanna sjálfra sem
ekki vilja viðurkenna mis '
tök sin og veikleika þýsku
hernaðarvélarinnar.
Við endurmat á atburðum
heimsstyrjaldarinnar siðari
kemur i ljós að Hitler var alls
ekki sá harðstjóri gagnvart hers-
höfðingjunum og ýmsir hafa
viljað vera láta. Þvert á móti
voru það atvinnuhermennirnir
sem gerðu áætlanirnar og fram-
kvæmdu þær. Niðurstaða: það
var hin nákvæma og úthugsaða
þýska hermennska sem tapaði
striðinu en ekki brjálæðingurinn
Hitler!
Volgograd
var vendipunktur
Lengi hefur mönnum verið ljóst
að vendipunktur striðsins var
orustan við Volgograd (áður
Stalingrad) austur i Sovétrikj-
unum þegar tókst að umkringja
og gersigra kjarnann i þýska
hernum. Fram að þeim tima
höfðu þjóðverjar verið á óslitinni
sigurgöngu, eftir það hallaði
undan fæti aílt til hinna ömurlegu
loka tveimur og hálfu ári siðar.
Það hefur verið „viðurkenndur
sannleikur” fram að þessu að
Hitler hafi einn viljað ráða öllu
um skipulag vigstöðvanna við
Volograd, hann hafi ekkert tillit
Halder hershöfðingi forseti þýska herráösins, þóttist vita betur en leik-
maðurinn Hitler.
nefnilega haldinn þeirri meinloku
að rússar ætluöu að þjappa her-
styrk sinum saman á miðhluta
austurvigstöðvanna, i kringum
Smolensk, reka fleyg i viglinu
þjóðverja þar og hefja siðan stór-
sókn vestur á bóginn. Þetta var
orðið að svo rikri þráhyggju hjá
blessuðum manninum að hann
tók ekkert mark á neinum stöðu-
hreyfingum hjá rússum sem
kynnu að benda i aðra átt.
ósigur hersins alls,
ekki Hitlers eins
Það er einfaldlega ekki rétt
sem Gehlen segir i endurminn-
ingum sinum að hann hafi sagt
fyrir um sókn rússa vðVolgograc
10 dögum áður en hún hófst. Hið
sanna er að fyrst þrem vikum
eftir það að 6. þýski herinn hafði
verið umkringdur við Volgograd.
tóku tilkynningar Gehlens að laga
sig að augljósum staðreyndum og
hætta að vara við hinni imynduðu
sókn við Smolensk, 1.300 kiló-
metra norðvestur af Volgograd.
Hér verður þvi ekki haldið fram
að meinloka i höfði eins hers-
höfðingja hafi skipt sköpum um
gang styrjaldarinnar. Heldur
skal lögð áhersla á hitt að það var
i reynd allur þýski herinn, stjórn-
list hans og vigbúnaður, sem beið
ósigur við Volgograd. Að nefna
einræðið i Hitler i þessu sambandi
er i reynd ekkert annað en til-
raun fákænna hershöfðingja til að
afsaka sig eftrirá. Þetta er
raunar styrkt ýmsum rökum sem
fram koma i endurminningum
Sjúkofs, rússneska hershöfð-
ingjans sem stýrði sókninni við
Volgograd.
(Spiegel — hj)
laut i lægra haldi fyrir rússum.
Semsagt: Gehlen sjálfur hafi
verið hinn ráðsnjalli föðurlands-
vinur, jafnt i striði sem friði!
Styrjaldar-
sagnfræði
Tveir vestur-þýskir hersögu-
fræðingar, Hans-Heinrich
Wilhelm og Manfred Kehrig, hafa
starfað að heimildakönnun um
það sem raunverulega gerðist á
austurvigstöðvunum fyrir fall
Volgograd og hvernig her-
foringjaráðið heima i Berlin lagði
á ráðin. Ennfremur hefur breski
sagnfræðingurinn David Irving
kynnt sér rækilega sambúð
Hitlers við herforingja sina.
Rangt
stöðumat
Arangurinn af rannsókn þess-
ara manna er i stuttu máli þessi:
Ef hægt er að nefna einhvern
mann i aðalstöðvum þýska
hersins sem hafði áhyggjur af
stöðunni við Volgograd um og
eftir mitt ár 1942, þá var það ein-
mitt Hitler sjálfur. Hvað eftir
annað benti hann æðstu hershöfð-
ingjunum á hættuna á stórsókn
rússa á svæðinu, en þeir voru ekki
á þvi að taka alvarlega
ábendingar manns sem aldrei
hafði i herskóla gengið. Að auki
höfðu þeir sterka röksemd: allar
tilkynningar gagnnjósnadeildar-
innar á austurvigstöðvunum
gengu i þá átt að við Volgograd
væri ekkert að óttast. En allar
þær tilkynningar gengu i gegnum
hendur Gehlens, þess „heiðvirða
og dygga þjóns”!
Gagnnjósnarinn Gehlen var
endurminningar hafa menn tekið
fyrir góða og gilda vöru.
,,Heiður" með
hagsmunum
Vitanlega höfðu þessir menn
„heitur” sinn að verja, þann
hermennskuheiður sem fólst i þvi
að hafa unnið með árangri að
landvinningastefnu nasistanna.
Ef blettur félli á þennan heiður
gæti það torveldað frama þeirra
hjá „Bundeswehr” hinum endur-
reista her Sambandslýðveldisins
Vestur-Þýskalands.
Eitt aðalvitnið um flónslega
herstjorn Hitlers við Stalingrad
var einmitt maður sem hafði rika
hagsmuni bundna við heiður sinn.
Sá var Reinhard Gehlen áður
hershöfðingi hjá Hitler, siðar
hershöfðingi hjá Adenauer eftir
strið.
Gehlen:
nazi — CIA
Gehlen var á striðstimanum
yfirmaður gagnn jósnadeil-
arinnar á austurvigstöðvunum,
en hann bjargaði sér lukkulega
yfir i lýðræðisskipulag Vestur-
Þýskalands og gerðist einn æðsti
embættismaður þess: forstöðu-
Gehlen gagnnjósnari tók ckkert
eftir Iiðssamdrætti rússa við
Volgograd.
hjartaskerandi lýsingar á þvi
hvernig hann hafi varað for-
ingjann við væntanlegum að-
gerðum rússa við Volgograd, en
árangurslaust: á þetta hlustaði
foringinn ekki og þess vegna var
þýski herstyrkurinn óviðbúinn og
tekið til viðvarana frá reyndum
herforingjum og þvi fór sem fór.
En hvaðan stafar þessi útgáfa af
„sannleikanum”? Hann er feng-
inn úr vitnisburði þeirra hers-
höfðingja sem ábyrgð báru á
óförunum, ummæli þeirra og
maður leyniþjónustunnar og
lykilmaður i snurðulausu sam-
starfi hennar við bandarisku CIA
Að sjálfsögðu var Gehlen
ekkert að liggja á upplýsingum úr
fortið sinni i þjónustu Hitlers og i
endurminningum hans eru gefnar
S0WJET-UNI0N
SCHLACHT UM
' 1942/43
STAUNGHAO
1 Frontveriauf
i Novcmber 1942
ak HauptstoBrichtungen
r der sowjetischen Angriffe
^Rostow^^-
Y/ ; : ■
FStalingrad
Orustan um Volgsgrad Stalingrad) nóvember 1942 — febrúar 1943
Úr fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar
Sædýrasafnið
Reykjavikurborg veitir til Sæ-
dýrasafnsins 1.334D00.00 króna á
yfirstandandi ári.
Tap á íþróttunum
Kostnaður við iþróttavelli er
áætlaður þessi i ár:
Laugardalsvöll kr. 28.332 þús.
Melavöll ”i 7.704 ”
Félagavelli ” 3.740 ”
Skautasvell ” 1.308 ”
Samtalskr. 41.084 þús.
Tekjur vegna húsaleigu, vall-
arleigu og af auglýsingum af
Laugardalsvelli áætlast kr.
7.550 þús. og vallarleiga af
Melavelli 550 þús., samtals kr.
8.100 þús. Rekstrarhalli verður
þannig kr. 32.984 þús. Athygli er
vakin á, að við bætist félaga-
völlur við Hliðarenda og tveir
vellir i Laugardal, svo og að á-
ætlað er fyrir sérstöku viðhaldi
á girðingu á Laugardalsvelli,
kr. 6.5 milj.
Hátíðir upp á 7 miljónir
Kostnaður við hátiðahöldin
varð á árinu 1974 kr. 4.3 milj. og
verður væntanlega um 4.6 milj.
á árinu 1975. Óvarlegt þykir að
áætla kostnaðinn lægri en kr. 5.0
milj. á árinu 1976 miðað við ó-
breytt fyrirkomulag á hátiða-
höldunum.
Þá er áætlað að borgin kaupi
jólatré fyrir 1 milj. og kosti til
áramótabrenna 1,4 miljónum
króna.
Kynfræðsla
Ætlunin er að koma á stofn
kynfræðslu i borginni, og mun
þar starfa kynfrótt fólk auk sál-
fræðings. Má þetta kosta 2,8
miljónir á árinu samkv. fjár-
hagsáætluninni.
Veröur dýrara að
veikjast
Samkvæmt eftirfarandi orð-
um úr fjárhagsáætlun verður
dýrara að veikjast eða verða
fyrir slysum og þurfa að leggj-
ast á spitala en verið hefur. 1
fjárhagsáætlun segir:
A.árinu 1976 verða i notkun i
Borgarspitala og deildum hans
387 rúm. auk 12 rúma i gjör-
gæsludeild sem ekki skila legu-
dagatekjum. Er það óbreytt frá
fyrra ári.
Að óbreyttum daggjaldatekj-
um er áætlaður rekstrarhalli
Borgarspitalans kr. 42.921 þús.
og Fæðingarheimilis kr. 364 þús.
Þennan halla ber að greiða með
hækkun daggjalda.
Áætlaður rekstrarha lli
Borgarspitalans 1975 er um 60.0
milj. kr. að meðtöldum vöxtum
og afskrift áhalda. Miðað við
núgildandi daggjöld er reiknað
með, að þessi halli vinnist upp á
fyrri hluta ársins 1976.
Nýr kirkjugarður
Tilvalið er að Ijúka við sýnis-
hornagjöf úr fjárhagsáætlun að
sinni á þvi, að skýra frá þvi, að
sorphreinsun i borginni er áætl-
uð að kosti 245,3 miljónir i ár. og
þá einnig að til undirbúnings
kirkjugarðssvæðis i Gufunesi er
ætlunin að veita 20 miljónum
króna á árinu.
—úþ