Þjóðviljinn - 11.04.1976, Blaðsíða 2
2 SÍDA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. aprll 1976.
©
Skyldunám
Grunnskóli
Skólaskylda var lögleidd á
tslandi árið 1907. Hún náði þó
fyrst i stað einungis til 10—14 ára
barna, en lengdist smátt og smátt
og er nú niu ár samkvæmt lögum
um grunnskóla, sem samþykkt
voru 1974. Þau eru að taka gildi
um þessar mundir, en skólunum
er heimilaður s.k. 10 ára aðlög-
unartimi til að koma einstökum
þáttum laganna i framkvæmd.
Það þýðir i reynd, að talsverður
munur getur orðið á starfi skóla á
næstu árum eftir þvi, hvenær
hinir ýmsu þættir laganna taka
gildi i einstökum skólum. 1984 er
ætlast til að lögin verði fram-
kvæmd i öllum skólum landsins. 1
lögunum er gert ráð fyrir sömu
kennslu og samkennslu pilta og
stúlkna i öllum greinum, bæði
bóklegum og verklegum. Og
iþróttum a.m.k. til 11-12 ára
aldurs.
Þrátt fyrir langan aldur skóla-
skyldu á Islandi er lögboðinni
fræðslu barna og unglinga enn
ekki fullnægt sums staðar i dreif-
býli, einkum vegna samgöngu-
erfiðleika og atvinnuhatta.
Fyrstu fræðslulögin voru að
mestu sniðin eftir norskri fyrir-
mynd, en færð til islenskra stað-
hátta. Þau voru að vonum spegil-
mynd þjóðfélagsins þá og miðuð
við þarfir þess. Gamla, óiðn-
vædda bændasamfélagið var
mjög greinilega kynskipt og
verkin. sem hvoru kyni voru
ætluð að vinna skýrt afmörkuð og
aðskilin. (Þetta var nú reyndar
oft fremur i orði en á borði, þar
sem konur gengu jafnaðarlega að
alls konar erfiðisvinnu jafnt úti
sem inni. Karlarnir snertu hins
vegar vart á innan bæjarverkum
Eðlilegt mátti þvi teljast, að
verkleg kennsla kynjanna yrði
með ólikum hætti i fyrstu barna-
skólunum. Sú varð lika raunin á.
Stúlkur voru látnar sauma,
prjóna og hekla, strákarnir að
smiða. En það furðulega hefur
gerst, að þrátt fyrir það að for-
sendur þessarar skiptingar eru
löngu horfnar, er hún samt við lýði
i svo til ölium skólum landsins, nú
tæpum 70 árum eftir setningu
fyrstu fræðslulaganna. Og ekki
nóg með það að kennslan og verk-
efnavalið sé kynskipt, heldur
gætir mikillar tregðu hjá handa-
vinnukennurum að miða
kennsluna og val verkefna við
nútima iðnaöarþjóðfélag. (Að þvi
leyti mætti halda, að enn réði
bændasamfélagið rikjum hér á
landi.)
A allra siðustu árum hafa ein-
staka skólar þó lagt i að rifa niður
múrinn, sem aöskilur kynin i
þessum námsgreinum. Ég nefni
sem dæmi barnaskólana alla i
Kópavogi. Siðastliðin fjögur ár
hafa piltar og stúlkur þar hlotið
nákvæmlega sömu handavinnu-
kennslu. Þar er enginn munur á.
Bekkjunum er skipt eftir stafrófs-
röð, og eru hóparnir hvor hjá
sinum kennara hálfan veturinn i
senn i hvoru: smiði (o.fl.) og
saumum, (prjóni o.fl.)
Matreiðslukennsla eða heimilis-
fræði, eins og þessi námsgrein á
nú að heita, hefur verið afar
stopul. Þeir skólar, sem hafa
aðstöðu til matreiðslukennslu,
sleppa drengjum yfirleitt við að
sækja þá tima. Stúlkur eru hins
vegar skyldaðar til að vera i mat-
reiðslukennslu. Reyndar hefur
þetta breyst þó nokkuð hin siðustu
ár, og i þessari námsgrein gætir
ekki eins mikillar tregðu við að
gera hlut kynjanna jafnan og i
handavinnukennslunni. (Kannski
af þvi, að ekki var til fyrir nein
sérstök „stráka- eða stelpumat-
GreinHelgu Sigurjónsdótturbæjarfulltrúa i Kópa-
vogi sem hér fer á eftir er meginhluti erindis er hún
flutti um menntunarmál á jafnréttisráðstefnu ASÍ
og BSRB i Munaðarnesi i tilefni kvennaárs sl.
haust. Hér hefur erindið þó verið talsvert stytt
plássins vegna og bitnar það einkum á tölulegum
útdráttum og samanburði sem felldir hafa verið
niður eða dregnir saman.
Helga hefur i starfi sinu sem bæjarfulltrúi og sem
kennari i mörg ár (hún er nú við háskólanám) mjög
látið skólamál til sin taka. Jafnframt hefur hún
tekið virkan þátt i jafnréttisbaráttunni, er ein af
stofnendum Rauðsokkahreyfingarinnar og á sæti i
jafnréttisnefnd Kópavogs, en frá starfsemi hennar
hefur áður verið sagt hér á siðunni.
Hve lengi ætla fræðsluyfirvöld að
hliðra sér hjá að sinna þessum málum?
reiðsla” á sama hátt og sérstök
„stráka- og stelpuhandavinna”.
Engan skóla veit ég um, sem
hefur sömu leikfimi- og iþrótta-
kennslú fyrir bæði kyn, nema i
sundi og útiiþróttum. Það veit ég,
að ætlunin er að kenna telpum og
drengjum saman og sömu leik-
fimi i Fossvogsskóla, þegar leik-
fimikennsla hefst þar, sennilega á
þessu skólaári.
Tregöa
Þrátt fyrir skýr ákvæði grunn-
skólalaga svo og það, sem fram
kemur i nefndarálitum um verk-
legar greinar og iþróttir (1973 og
1975), eru skólamenn tregir til að
stiga jafnréttisskrefið til fulls.
Þeir vilja skjóta sér á bak við
heimildina um 10 ára aðlögunar-
timann, sem ég gat um áðan. Ég
fæ samt ekki séð, eftir hverju er
að biða. Skólarnir eiga þvert á
móti að vera feti framar en
„sauðsvartur almúginn” i jafn-
réttismálum eins og I öðrum upp-
eldis- og menningarmálum. Við
hljótum að gera þær kröfur til
sérmenntaðra uppalenda að þeir
tryggi sjálfsögð mannréttindi
barna og geri sitt til að bæta um,
þar sem heimili og annað
mótandi umhverfi barna og ung-
linga þekkir ekki sinn vitjunar-
tima.
Með kynskiptri kennslu i þeim
greinum, sem ég hef hér fjallað
um er lagður grunnur að hefð-
bundinni hlutverkaskiptingu
kynjanna og starfsvaii siðar á
ævinni.
Undirbúningur undir
framhaldsskóla og sér-
skóla
Viöast hvar hagar þannig til, að
unglingar ljúka skyldunámi sinu i
gagnfræðaskóla, en nám i fyrstu
tveimur bekkjunum þar er
skylda. Með nýju skólalögunum
breytist þetta, þannig aö eitt ár i
skyidunámi bætist við. Ég fer
ekki nánar út i lengingu ^skóla-
skyldunnar hér, þar sem sá
þáttur laganna er ekki enn
kominn til framkvæmda.
Æ fleiri unglingar halda nú
áfram námi eftir að skólaskyldu
lýkur. Árið 1930 voru 32.3% ung-
linga 13-16 ára i gagnfræða-
skólum. 1960 er talan komin upp I
68,6% og 1972 eru 86.6% þessa
aldursárgangs við nám i gagn-
fræðaskólum.
1 tiltölulegum samanburði sem
Helga gerir þarna á hlutfalli
kynjanna i gagnfræðaskólum
Reykjavikur og einum gagn-
fræðaskóla úr hverjum lands-
fjórðungi (Akureyri, Vestmanna-
eyjum, Neskaupstað og Isafirði)
kom fram, að i Reykjavik er hlut-
fallið nokkuð jafnt i fyrstu þrem
bekkjunum, en i þeim efri, þe. 4„
5. og 6. bekk eru stúlkur i meiri-
hluta, þvi meiri sem ofar dregur.
1 gagnfræðaskólunum úti á landi
var hlutfall kynja hinsvegar mis-
munandi bæði eftir skólum og
bekkjum. en þó var greinilegt, að
stúlkum fer þar lika hlutfallslega
fjölgandi i efstu bekkjunum.
Héraðsskólarnir hafa algera
sérstööu i þessum efnum. Þar eru
piltar allsstaðar i meirihluta og
hafa alltaf verið og virðist þessi
munurauk þess fremur fara vax-
andi en hitt.
Leiðir skiljast
Að loknu skyldunámi i gagn-
fræðaskólum er hlutfallsleg
skipting nemenda svo til jöfn, þau
hafa fengið sömu menntun nema i
verklegum greinum, og þau eru
áþekk hvað varðar árangur i
námi. (Enginn samanb. er til um
námsárangur barna og ungl. i
skyldunámi.) Stúlkur og piltar
ættu þvi að standa jafnfætis i lok
þessa áfanga á námsbrautinni, og
þau ættu að vera jafnvel i stakk
búin að halda áfram námi og
velja sér námsbraut i samræmi
við óskir sinar og áhugamál.
En hér er það, að leiðir kynja
taka að skiljast. Fleiri piltar en
stúlkur stefna að landsprófi mið
skóla, þvi að þaðopnar leið til
frekara framhaidsnáms (allt upp
i háskóla).
A hinn bóginn eru það fleiri
stúlkur en piltar, sem ætla sér
ekki annað en að ljúka gagn-
fræðaprófi. Með tilkomu fram-
haldsdeildar gagnfræðaskólanna,
5. og 6. bekk.hefur mörgum ung-
lingum opnast leið til meiri
menntunar. Hingað til hafa fleiri
stúlkur en piltar notfært sér þann
möguleika.
Athyglisvert er, að þrátt fyrir
talsverðan meirihluta stúlkna i
efstu bekkjum gagnfræðaskól-
anna (allt upp i 66%), hafa piltar
þar forystu i félagslifi.
Starfsmenntun
Sérskólar —
skýrastur munur
Margir unglingar láta sér
nægja gagnfræðamenntun,
öðrum er hún ekki nema áfangi á
lengri menntabraut, og eins og
áður segir eru það fleiri stúlkur
en piltar, sem láta hér staðar
numið.
Að loknum þessum náms-
áfanga er um margar leiðir að
velja. Sumir stefna að s.k. lang-
skólanámi (þ.e. mennta-,
kennara- og verslunarnámi), en
aðrir ætla sér skemmra nám,
oftast i verklegum greinum. Og
hér er það, sem munur á náms-
brautavali kynjanna er langskýr-
astur og minnstum breytingum
háður i öllu skólakerfinu. Bæði
piltar og stúlkur stefna rakleitt og
óhikað i átt að sinum fyrirfram
ákveðnu kynhlutverkum.Kannski
er það ekki að undra, þar sem allt
uppeldi þeirra, bæði heima og
heiman hefur haft þessi málalok
að markmiði (heilaþvotturinn
hefursem sagt heppnast fullkom-
lega). Um leið eru þau orðin rig-
bundin á bás hefðbundinnar
verkaskiptingar kynjanna.
Takið eftir að börnin eru ekki
nema 15-17 ára, þegar þau eru
orðin þetta fastmótuð. Ætla
mætti, að svo ungt fólk hefði enn
hæfileika til að skoða hlutina frá
öðru sjónarhorni en hinir eldri, en
siðir og venjur láta sjaidnast að
sér hæða. Hefðin er það afi, sem
fáir þora að risa gegn og henni
verður ekki breytt á skömmum
tima, þvi miður.
Litum þá nánar á starfs-
menntun hvors kyns fyrir sig og
minnumst þess jafnframt, að
allar götur siðan 1911 hafa allir
islenskir skólar verið opnir
konum. Nokkrir skólar voru fyrst
i stað aðeins fyrir konur svo sem
Fóstruskólinn og Hjúkrunar-
skólinn, en þeir eru nú fyrir bæði
kyn jafnt.
Starfsmenntun karla er aðal-
lega á sviði tækni, iðnaðar , land-
búnaðar og sjómennsku, en
starfsmenntun kvenna tekur
einkum til náms i heimilis-
störfum, barnauppeldi og heilsu-
gæslu.
Helga bendir siöan á, að þeir
skólar, sem konur sækja að
meirihluta eru færri og kenna fá-
breytilegri námsgreinar en
skólar þeir sem karlar sækja
einkum. Nefndi hún þar ma. hús-
mæðraskólana, Fósturskólann,
Þroskaþjálfaskólann og ýmsa
skóla heilbrigðisstéttanna.
Sem dæmi um skóla sem karlar
sækja hins vegar að meirihluta
eru nefndir ma. sjómannaskól-
arnir, bændaskólarnir, vél-
skólinn, tækniskólar (alm.nám)
og siðast en ekki sist iðnskó
arnir þar sem karlar eru yfir 90%
nemenda. Sýnt er fram á þetta
með töflum, byggðum á
upplýsingum i skýrslunni „Jafn-
rétti kynjanna”, sem Guðrún
Sigriður Vilhjálmsdóttir vann á
vegum námsbrautar Háskólans i
Þjóðfélagsfræðúm.
Samskonar kynskipting kemur
fram i minni sérskólunum; konur
i meirihluta i Bankamanna-
skólanum, Tannsmiðaskólanum
og póstmannadeild Póst- og sima-
mannaskólansj karlar hinsvegar i
Lögregluskólanum, Tollskól-
anum og simvirkjadeild Póst- og
simamannaskólans.
Fátt bendir til breytinga á
næstu árum, segir Helga, en vert
væri að veita þvi athygli, að
konur fara i meiri mæli i hefð-
bundið karlanám en öfugt (þe.
karlar i kvennanám).
Verslunar-, kennara-
og menntaskólanám
Konur sækja fram i öllu námi
og hafa gert það um allmörg
undanfarin ár. Þeim fjölgar hlut-
Framhald á bls. 22
Leiðrétting
Elfa Björk Gunnarsdóttir
borgarbókavörður bað um að það
yrði leiðrétt sem fram kom i
viðtali við hana i fimmtudags-
blaðinu að fólk sem hefði haft
bækur i láni gæti hringt og fengið
lánsfrestinn framlengdan. Þetta
er ekki rétt þvi menn verða að
koma i safnið og fá framlengingu
þar.
Texti meö þessari mynd féll niður
scinasta sunnudag. Þetta eru þær
Herdis Hclgadóttir (t.v.) og
Kristjana Bcrgsdóttir, báðar
nýkjörnar i miðstöð rauðsokka.