Þjóðviljinn - 11.04.1976, Blaðsíða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 11. apríl 1976.
DJOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Ctgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans
Kramkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann.
Kitstjórar: Kjartan Ólafsson
Svavar Gestsson
Kréttastjóri: Einar Karl Haraldsson
Umsjón meö sunnudagsblaöi:
Arni Bergmann
Hitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
Skólavörðust. 19. Simi 17500 (5 linur)
Prentun: Blaöaprent h.f.
SUNNAN PYRENEAFJALLA
Pólitisk forvitni nemur enn staðar við
Pýreneaskagann. í Portúgal er hafin
mjög tvisýn kosningabarátta. Þar hefur
mjög verið fjölyrt um hægrisveiflu i kjöl-
far þess, að hinni pólitisku hreyfingu hers-
ins, MFA, var sundrað og henni teflt úr
lykilstöðu i valdakerfi landsins. Engu að
siður hafa samningar MFA við obbann af
pólitiskum flokkum skilað Portúgal i arf
merkri stjórnarskrá, sem gerir ráð fyrir
sósialisma i landinu. Kosningarnar eru
upphaf langra átaka um þessa stjórnar-
skrá, hvort og að hve miklu leyti hún
verður að pólitiskum veruleika.
Ástandið er ekki siður tvisýnt á Spáni.
Eftir dauða Francos einvalds voru teknir
inn i hið gamla og illræmda valdakerfi
nokkrir fulltrúar þeirra afla sem vant er
að kenna við frjálslyndi. Það voru einkum
þeir, sem höfðu góð orð um þróun til lýð-
ræðis. En framkvæmdir hafa orðið mjög i
skötuliki. Um allan Spán ólgar ogkraumai
pólitisk reiði sem hefur lengi gerjast. Svo
til hvar sem er getur soðið upp úr eins og i
baskaborginni Vitoria i fyrra mánuði, þar
sem lögreglu var beitt af mikilli hörku
gegn þúsundum verkfallsmanna. í þvi
dæmi og öðrum hafa komið vel fram ýms-
ar þverstæður i stjórn hreinræktaðs
afturhalds og svonefndra ,,upplýstra”
hægrimanna sem nú situr. i einu orði er
lögð blessun yfir hörku lögreglunnar, i
öðru orði tekur innanrikisráðherrann
þessa blessun aftur. Annað dæmi um
ruglandann: kommúnistaforingi einn var
fyrir skemmstu handtekinn og sektaður
um miljón peseta fyrir að hafa haldið
ræðu á fundi i Madridháskóla, sem hafði
verið leyfður af yfirvöldum.
Það er engu likara en að hinn svokallaði
upplýsti eða frjálslyndi partur valda-
kerfisins sé að missa af lestinni. öfl til
hægri við hann eru að visu sjálfum sér
sundurþykk um það, hvernig beri að fara
með arfleifð einvaldans Francos. En þau
eru sameinuð i þvi að telja þróun til
lýðræðis, hve hikandi sem hún annars er,
stórhættulega. Og þetta lið á sér mörg
virki, i rikiskerfinu og á þingi, en á báðum
stöðum er að sjálfsögðu fullt með fólk sem
á öll sin forréttindi Franco að þakka.
Meðal æðri manna hersins. í lögreglunni
sem er ákveðin i að láta ekki fara fyrir sér
eins og portúgölsku leynilögreglunni
PIDE eftir að fasistastjórn féll þar á
vestanverðum skaganum. Þetta lið er allt
að fylkja sér og gerir vart við sig með
ýmsum hætti. Það hefur mjög ágerst upp
á siðkastið að blaðamönnum sem þykja of
frjálslyndir eða róttækir sé hótað lifláti.
Sveitir hægrisinna, sem ekki eru tengdir
lögreglunni beinlinis, en njóta sámúðar
hennar og afskiptaleysis, hafa barið á
stúdentum og hleypt upp fundum þeirra.
Hægriblöð eins og Fuerza Nueva bita i
skjaldarrendur og segja að „heilbrigð öfl”
þjóðarinnar muni taka til sinna ráða og
koma á lögum og reglu ef að stjórnin reyn-
ist ófær um það. Eins og menn vita er það
mikil árátta hjá fasistum að kenna sig við
heilbrigði.
Og á meðan fækkar mjög forsendum.
fyrir þvi að þau öfl sem i raun eru frjáls-
lynd eða vinstrisinnuð setji traust sitt á
konung eða hans „upplýstari” stuðnings-
menn. Tviskinnungur stjórnvalda gagn-
vart þeim kemur jafnan fram i þvi, að það
sem leyft er með vinstri hendi i formi ráð-
stefnu eða fundarhalda, er tekið aftur með
lögregluáhlaupum, handtökum og sekt-
um. Frægast dæmi um þetta gerðist um
mánaðamótin, þegar handteknir voru
fulltrúar bannaðra stjórnarandstöðu-
flokka, sem höfðu komið sér saman um
sameiginlegan starfsgrundvöll i einu
bandalagi.
Þessar handtökur voru að þvi leyti rök-
réttar, að ekkert óttast valdhafarnir á
Spáni, hvort sem þeir eru kenndir við
fasisma, ihald eða upplýsingu, meir en
slika samfylkingu. Áform þeirra allra
hafa verið tengd þvi að kljúfa stjórnar-
andstöðuna, og þá einkum að ala á mis-
sætti milli sósialistaflokka og
kommúnista. Til dæmis með að mismuna
þeim — með þvi þá að leyfa starfsemi
sósialista en banna kommúnistaflokkinn
og ýmsar aðrar róttækar hreyfingar. Án
vafa eru áform i þessa veru unnin i nánu
samstarfi við Bandarikin, sem eiga mik-
illa hernaðarlega hagsmuna að gæta á
Spáni og vilja gjarna fá landið með i Nató.
En spænska stjórnarandstaðan, hert i
útlegð og neðanjarðarstarfi, hefur staðið
af sér þessar klofningstilraunir til þessa.
Hún hefur meira að segja styrkt samstöðu
sina: tvær lýðræðisfylkingar hafa tekið
höndum saman i einu bandalagi. Og þar er
að finna þær hreyfingar sem lýðræði á
Spáni getur ekki án verið: sósialista,
kommúnista, kristilega demókrata, full-
trúa sjálfstjórnarhreyfinga i einstökum
hlutum rikisins — áb.
Af hverju vill enginn múta
Kord i vinsældaleit; en ef hann verður nú blánkur?
Eitt stærsta vandamálið i kosn-
ingum eru peningar. Klest for-
setaefni, sem hafa gefist upp á
miðri leið, hafa lýst þvi yfir að
þetta hafi þeir neyðst til að gera
vegna skelfilegra blankheita.
Vinur minn Maccabee, er mjög
argur Ut i þetta kerfi, og varpar
allri sökinni á bandamenn okkar.
Hvenær sem kosningar eru i
einhverju erlendu riki þá gefa
Bandarikin stjómmálamönnum
þess peninga til að spila með.
Hvers vegna gefa þeir svo okkur
ekki peninga þegar við erum aö
kjósa? sagði hann.
— Jæja, þótt ekki væri annaö,
Maccabee sæll, þá er það and-
stætt lögum.
— bað er lika á móti lögum i
þeirra eigin löndum en það virðist
ekki koma i veg fyrir það að CIA
kosti kosningar um allan heim.
Sjáðu bara italiuna. CIA hefur
dembt miljón dollara i kosningar
á italiu. Maður gæti haldið, að
italir sýndu af sér þakklæti með
þvi að gefa okkar stjórnmála-
mönnum slatta af peningum i
staðinn. Þegar öllu er á botninn
hvolft þá er vinátta ekki ein-
stefnugata einhverskonar.
— Ég held ekki þú skiljir þetta,
sagði ég. Ástæðan fyrir þvi að við
styðjum stjórnmálamenn á italiu
ersú, að við viljum ekki að landið
verði kommúnistaland. Það er
okkur i hag að sjá til þess að ekki
setjist röng stjórn þar að völdum.
italia hefur ekkert að óttast af
okkar hálfu, það skiptir ekki máli
hvor flokkurinn hjá okkur sigrar,
og þvi er éngin ástæða til þess að
italska leyniþjónustan fari að
múta frambjóðendum okkar.
— betta er bara yfirvarp, sagði
hann. Ég heid að ítalir séu bar-
asta svona helviti niskir. Þeir
vilja ekki spandéra fimmeyringi i
okkar kosningar. bað eina sem
þeirra stjórnmálamenn kunna er
að taka við peningum frá okkur.
En þegar skórinn er á hinni löpp-
inni og okkar frambjóðendur eru
að fara á hausinn, þá horfa þeir i
aðra átt. Mér finnst viö ættum að
samþykkja lög um að við skiptum
okkur ekki af kosningum i öðrum
löndum nema þvi aðeins að þau
vilji skipta sér af okkar kosning-
um.
— Þetta er ekki réttlátt, sagði
ég við vin minn Maccabee. Flest-
ir stjórnmálamenn sem við höf-
um stutt i öðrum löndum hafa
tekið við peningum frá CIA með
þeim skilmálum að þeir þyrftu
ekki að skila þeim aftur. Held-
urðu það væri upplit á okkur ef
við færum til einhvers erlends
einræðisherra og segðum við
hann: Heyrðu lagsi, við komum
þéri embætti. Nú er komið að þér
að blæða svo við getum komið
einum af okkar mönnum til
valda.
— Hvað er að þvi? spurði Mac-
cabee. Sjáðu bara hvað við gerð-
um I Chile. Við gerðum nokkrum
óþekktum herforingjum mögu-
legt að yfirtaka landið. An okkar
peninga hefðu þeir liklega aldrei
getað það. Þeir láta mikinn núna.
Það minnsta sem þeir gætu gert
til að sýna þakklæti sitt væri að
standaundir forsetakosningunum
hjá okkur nú i ár.
— En það væri ekki rétt, and-
mælti ég. Ef að Chile stæði undir
forsetakosningunum hjá okkur,
þá væru þeir að hafa afskipti af
innanlandsmálum okkar. Ekki
viltu það, eða hvað?
— Við skiptum okkur af innan-
landsmálum þeirra. Ég skal
veðja við þig, að engar kosningar
hafa verið haldnar i hinum frjálsa
heimi, sem Bandarikin hafa ekki
reynt að hafa áhrif á með pening-
um. Ég er ekkert á móti þvi. Ég
er ekki að segja annað en það, að
ég vil hafa jöfnuð. Ef að við hjálp-
um þeim til að ná kosningu, þá
ættu þeir að hjálpa okkar fólki til
hins sama. Til þess eru banda-
menn.
— Það eina sem er að þinum
röksemdum, sagði ég, er það, að
leyniþjónustur þessara landa
hafa ekki peninga til að sáldra i
kringum sig eins og CIA gerir.
okkur
Eftir Art
Buchwald
Miljón dollarar i mútur til eins af
stjórnmálamönnum okkar eru
alltof miklir peningar fyrir þá.
— Ég fellstekki á þetta, svaraði
Maccabe. Veistu hvað ég held?
Ég held að flestir svokallaðra
vina okkar gefi skit i kosningarn-
ar hjá okkur. Kannski lofa þeir
þærmeð vörunum, en þegar kom-
ið er að þvi að setja peninga þar
sem þeir hafa munninn, þá láta
þeir eins og við séum ekki til.
Bandarikin hafa verið örlátasta
land i heimi. Hvenær sem erlend-
ur pólitikus biður okkur um eitt-
hvað þá gefum við honum það án
þess að spyrja. En þegar okkar
stjórnmálamenn eru blankir, þá
verður enginn erlendur spæjari til
að spyrja: Getum við gert nokkuð
fyrir þig? Þeir gera grin að okk-
ur, það segi ég satt.
— Mér þykir leitt að þú hugsar
svo, sagði ég.
— Ég er ekki sá eini, sagði Mac-
cabee. Það er hellingur af
amrikönum sem eru dauðþreyttir
orðnir á þvi að múta erlendum
stjórnmálamönnum án þess að fá
neitt i staðinn.