Þjóðviljinn - 15.05.1976, Page 11

Þjóðviljinn - 15.05.1976, Page 11
Laugardagur 15. mai 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11 Skiilptúrinn I ruslaporti Myndlista- og handlOaskúlans. Vefnaöurinn sem rætt er um I greininni. Vorsýning Myndlista- og handíðaskólans um helgina Vetrarstarf nemenda á veggjum i gær hófst árleg vorsýning á verkum nemenda Myndlista-og handlöaskólans aö Skipholti 1, þar sem skólinn er til húsa. Þritugasta og sjötta starfsári skólans er nú aö ljúka og hafa yfirlitssýningar á árangri nemenda veriö fastur liöur i starfseminni frá byrjun. Eitt af þvi sem ávallt setur skemmtilegan svip á sýningar Myndlista-og handiöaskólans er þaö aö ekki er um aö ræöa úrval af verkum nemenda, heldur er jafnan reynt aö sýna eins mikiö af verkum og hægt er og eiga allir nemendur citthvaö á sýn- ingunnr. Þannig er þaö venjan aö gefa sem best þversniö af vinnu nemenda um veturinn Liklega er þvi engin sýning eins fjölbreytt og viöamikil eins og vorsýning skólans, og aldrei aö vita hvaö fyrir augu ber, þegar reikaö er um króka og kima hæöanna aö Skipholti 1, en þar er kennt i hverju skoti. Enda eru þessar vorsýningar meö vinsælli viöburöum i menning- arlifi borgarinnar. Ekki dregur þaö úr aö nemendur hafa heitt á könnunni i kaffistofu sinni og selja rjómavöfflur meö. Sýn- ingin er opin I dag og morgun frá 2-10. Hildur Hákonardóttir, skóla- stjóri, sagöi i viötali viö blaöiö i gær, aö enda þótt reynt væri að hafa mikla breidd i sýning- unni og verkin væru fleiri en hægt væri aö kastu tölu á I fljótu bragöi vildi hún þó halda þvi fram, aö öll verkin væru þó i góöum gæöaflokki. Viö spuröum Hildi um nýjungar i kennsluháttum og starfi skólans i vetur. Hún sagði aö t.d. væru nú i fyrsta sinn sýnd plaköt eftir nemendur, en skól-- inn heföi á vetrinum eignast tæki til prentunar á þeim. Þá heföi I vefnaöardeild veriö gerö mjög skemmtileg tilraun i vetur. Myndhöggvarinn Jón Gunnar Arnason var fenginn til aö kenna vefnaö og árangurinn af þessari samvinnu vefara og myndhöggvara er eitt stærsta vefnaðarverk á íslandi gert i glært og svart plast og nær yfir hálft herbergi. Hægt er aö ganga inn og út um verkiö og er þaö allt hiö forvitnilegasta. Þá hafa nemendur gert tilraunir meö útivinnu, en aöstööu til sliks skortir tilfinnanlega viö skólann. í ruslaporti á baklóö hefur veriö geröur griöarmikill skúlptúr, og fundu annars árs nemendur efniviö i hann á ruslahaugum og bilakirkjugörð- um. Hann gefur nokkra hug- mynd um þá möguleika sem opnuðust ef skólinn fengi úti- svæöi til þess að vinna á. Þá eru nú i fyrsta skipti sýndar bækur, sem nemendur i Myndlistar- deild hafa unnið meö nýjum tækjabúnaði skólans. I Myndlista- og handiðaskól- anum eru nú 140 nemendur. Tuttugu útskrifast i vor, en næstu árgangar eru stærri. Þá hafa um 800 manns veriö á námskeiöum sem haldin voru á tveimur önnum i vetur. Á vor- sýningunni eiga reglulegir nemendur þorra verkanna, en einnig er reynt að veita sýnis- horn af vinnu námskeiösfólks- ins. Kennarar við skólana eru yfir 30. 1 Myndlista-og handiöa- skólanum eru nemendur fyrst i 2ja ára almennu undirstöðu- námi. Siðan taka viö sér- námsdeildir. Myndlistar-deild skiptist I málun, myndmótun og grafik, og listiönaöardeildirnar eru þrjár, textildeild auglýsingadeild og keramik- deild. — Skólinn hefur oröiö mikla þörf fyrir aö komast i eigið húsnæöi sem hentar starf- semi hans, segir Hildur Hákonardóttir, en framhalds- skólalöggjöfin er öll i mótun og viö höfum ákveöiö aö doka aöeins viö meö aö hefja upplýs- ingaherferö til þess aö sannfæra yfirvöld i eitt skipti fyrir öll um þarfir skólans og fá þau til þess aö veita honum úrlausn. > Sýningum á Equus hœtt Sýningum á leikritinu EQUUS veröur hætt nú um helgina vegna forfalla eins leikarans. Mjög mik- il aösókn hefur veriö aö siöustu sýningunum á verkinu, þaö svo aö selst hefur upp á þær mörgum dögum fyrirfram og margir raun- ar misst af sýningunni fyrir bragöiö. — Allar likur eru á aö verkiö veröi tekiö upp aftur og sýnt nokkrum sinnum næsta haust. Islenskir leikhúsgestir eru ekki einir um áhugann á þessu verki, þaö hefur vakiö mikla athygli um heim allan, veriö leikiö i flestum löndum Evrópu og vestur i New York, þar sem Richard Burton fer meö annaö aðalhlutverkiö sem frægt er oröið. — í sýningu Leikfélagsins fer Jón Sigur- björnsson með þetta hlutverk, Dysart lækni, en Hjalti Rögn- valdsson leikur strákinn Alan Strang sem sést hér á myndinni ásamt Höllu Guömundsdóttur, sem leikur Jill. Sunna stofnar leik- skóla á Costa del Sol og Costa Brava Sunna tekur nú upp þá nýjung i þjónustu viö farþega sina á Costa del Sol og Costa Brava, þar sem margt fjölskyldufólk dvelur i skemmtiferöum, aö stofna leik- skóla og barnagæslu fyrir islensk börn og hefur ráöiö reynda fóstru og stjórnanda daghcimilis, Val- borgu Böövarsdóttur, til aö stjórna þessari starfsemi. Á Costa del Sol veröur leikskól- inn og barnagæslan viö Las Estrellas ibúöahverfiö, þar sem Sunna hefur 50 ibúöir fyrir gesti sina. 011 börn á aldrinum 2—12 ára eiga þess kost aö taka þátt i daglegum leikskóla og barna- gæslu frá klukkan 3—8 siðdegis. Sérstök dagskrá er fyrir hvern dag, tilsögn er veitt i sundi viö barnalaugina, börnunum kenndir leikir, fariö i stuttar gönguferöir um borg og strönd. Tilsögn veitt i náttúrufræöi og sögu og efnt til stuttra feröa á sveitarþæi þar sem hægt er aö bregða sér á bak múldýra og fariö i skemmtigarða og tivoli. A Costa Brava veröur þessi þjónusta sams konar viö hinar vinsælu Trimarantibúðabygg- ingar i Llorret de Mar, þar sem einnig er sérstök litil sundlaug fyrir börn og aðstaða til leikja. En i þessum byggingum hefur Sunna 30 ibúðir fyrir gesti sina frá íslandi. Þessi þjónusta og þátttaka barnanna i daggæslu og leikskól- um er ókeypis fyrir alla farþega Sunnu á stööunum. En farþegar sem feröast þangað með öðrum feröaskrifstofum eiga þess kost aö kaupa aðgangskort fyrir börn sin og kostar það 6.000,- kr. fyrir vikuna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.