Þjóðviljinn - 30.05.1976, Síða 4

Þjóðviljinn - 30.05.1976, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 30. mai 1976. DIÖÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Úlgefandi: útgáfufélag Þjóðviljans Framkvæmdastjóri: Eiður Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón með sunnudagsbiaði: Arni Bergmann Ritstjórn, afgreiðsla, auglýsingar: Skólavörðust. 19. Sími 17500 (5 Hnur) Prentun: Blaðaprent h.f. NU A AÐ BÆTA EFNAHAGSBANDALAGINU VIÐ Þegar samningarnir voru gerðir við vestur-þjóðverja fyrr i vetur lýstu ráð- herrarnir þvi yfir að samningurinn yrði felldur úr gildi ef bókun sex yrði ekki kom- in til framkvæmda við lok samnings- timans, eða um sl. mánaðamót. Er liða tók að lokum samningstimans fóru að berast fregnir um það að vestur- þjóðverjar væru að reyna að knýja Efna- hagsbandalagið til þess að láta bókun sex taka gildi, en hún felur það i sér sem kunnugt er að felldir skulu niður tollar á islenskum útflutningsvörum til EBE- rikjanna verði ástandið i fiskveiðimálum við ísland „viðunandi” eins og það er orðað. Þegar leið að lokum samningstimans lýsti utanrikisráðherra yfir þvi, að til greina gæti komið að segja vestur-þýska samningnum upp innan mjög skamms tima ef vestur-þjóðver jar gætu ekki tryggt framkvæmd skv. margnefndri bókun. En þegar til kom stóð hann ekki við orð sin frekar en fyrri daginn — bókun sex hefur enn ekki tekið gildi og vestur-þjóðverjar halda áfram veiðum hér við land. Það siðasta sem gerst hefur i þessu máli er það, að vestur-þýski utanrikisráð- herrann, Genscher, hefur þegar fyrir tveimur vikum eða svo lýst þvi yfir i við- tölum við islenska ráðamenn að hann geti engu um þokað varðandi bókun sex.Þegar þetta lá fyrir frá Genscher kom fram inn- an rikisstjórnarinnar tillaga um að losa islendinga við vestur-þýska samninginn. Geir Hallgrimsson bað þá um frest og var hann veittur. Nú er Geir Hallgrimsson kominn heim frá Osló með uppkast að samningi sem er með þeim endemum að staða islendinga yrði miklu verri eftir að hann væri gerður en áður. I þessum samningi sem i meginatriðum fjallar um veiðar breta er smeygt inn atriðum um önnur mál. Eitt er það að Efnahagsbanda- lagið mundi yfirtaka fiskveiðisamninga breta við aðrar þjóðir eftir að samningur sem hugsanlega yrði gerður við breta rennur út. Annað er það að vestur-þýski samningurinn yrði framlengdur meðan bókun sex væri i gildi. Þannig reynir rikisstjórnin að smeygja á landsmenn snöru vestur-þýska samnings- ins áfram. Nató, Geir Hallgrimsson og Einar Ágústsson vilja slá tvær flugur i einu höggi: að neyða til samninga við breta og framhaldssamnings við vestur- þjóðverja i senn. Aumingjaskapur rikisstjórnarinnar andspænis vestur-þýsku samningunum er talandi dæmi um það hvað við gæti tekið ef fiskveiðimál breta yrðu hengd á EBE. Ef það gerist eins og Geir og Crosland vilja nú, yrði eftir að samningur við breta rynni út um að ræða átök við breta, veiðiþjófa þeirra og freigátur, vestur-þjóðverja og veiðiþjófa þeirra og allt Efnahagsbanda- lagið. Þar með er hætta á þvi að viðskipta- þvingunum yrði beitt til viðbótar við her- skipaofbeldið og njósnir Nimrod-vélanna. í þeim samningsdrögum sem fyrir liggja nú er ekki gert ráð fyrir neinni viðurkenningu af hálfu breta á yfirráða- rétti okkar yfir islensku fiskveiðilandhelg- inni. Þar er heldur ekki um að ræða neinar tryggingar fyrir þvi að bretar haldi ekki uppteknum hætti — þar er þvert á móti bætt við þann vanda sem islendingar kynnu að standa frammi fyrir: Sameinuðum styrk Efnahagsbandalags- ins, viðskiptahótunum þess og þvingun- um, andspænis smárikinu íslandi. Það eru þessi óþverraverk sem nú er verið að framkvæma i hvita húsinu við Lækjartorg i Reykjavik. Þennan háska verður að stöðva. —s Póstdagurinn Ég las ekki alls fyrir löngu fyrirsögn i einu stórblaðanna sem var á þessa leið: „Póststof- ur hóta að skera útburð niður i þrjú skipti á viku”. Þar kom að þvi. Arið 1980 fór póstmeistarinn i sjónvarpið og tilkynnti landsmönnum að vegna 600 miljón dollara halla og vegna þess að þingið hefði neitað sér um að hækka venju- legt burðargjald upp i fimm dollara, þá muni bandariska þjóðin hér eftir fá póst sinn aðeins einu sinni á ári. Þessi dagur verður kallaður Póstdag- ur og verður almennur hátiðis- dagur. Póstmeistarinn kvaðst harma þessa ákvörðun, en um leið fullvissaði hann bandarisku þjóðina um að hún myndi engu að siður njóta hins besta póst- þjónustukerfis sem til væri. Og hann fullvissaði alla, að með ör- fáum undantekningum mundi enginn verða fyrir skakkaföll- um af þessum sökum. Fyrst í stað reiddust menn frétt þessari, en innan tiðar sættu þeir sig við þetta, eins og þeir hafa sætt sig við allt sem bandariska póstþjónustan hefur gert þeim til þessa. A fáeinum árum varö Póst- dagurinn alveg eins vinsæll og jólin og tilhlökkunin magnaðist mjög eftir þvi sem nær honum dró. Litlum börnum var sagt að ef þau væru óþekk, þá mundi póst- urinn (sem teiknaður var i bláum einkennisbúningi og með sitt hvitt skegg) ekki færa þeim neinar „plötur mánaðarins”. Vöruhús leigðu menn til að leika póstmenn og karlar, konur og börn settust i keltu þeirra og sögðu þeim, hvað þau vildu fá á Póstdaginn. Fólk skreytti dyr sinar og glugga með gömlum afmælis- kortum og settu litfögur ljós á póstkassana. Metsöluplatan sem spiluð var vikum saman fyrir Póstdaginn var endurútgáfa á „Mig dreymir um vörulista frá Sears Roebuck” með Bing Crosby. Andi almennrar velvildar var tengdur degi þessum. Dyra- verðir, lyftuþjónar og húsverðir urðu bliöari á manninn og um- hyggjusamari. Menn heilsuðu hver á annan með þvi að segja „Gleðilegan póstdag”. Góð- gerðafélög söfnuðu i sjóði á göt- unum fyrir fátæklinga, sem gátu ekki deilt pósti við neinn. Bræðrafélagshópar ýmis- konar fóru um göturnar og sungu póstsálma. Kirkjur og önnur guðshús voru opin kvöldið fyrir Póstdaginn til að fólk gæti komið þangað og beðið um bréf frá börnunum sinum. Ef að börn spurðu um heimilisfang póstmannsins, svöruðu foreldrar þeirra þvi til að hann ætti heima á Norður- pólnum og verði öllu árinu til að lima frimerki á bréf og pakka til að hann gæti fært þeim þau á Póstdagsmorgni. Ef að þau Eftir Art Buchwald spurðu, hvernig það geröist, var þeim sagt að hann setti póstinn i poka og kæmi með hann niður reykháfinn. En væri hundur i húsinu þá færi hann framhjá þvi húsi. Allir læstu hunda sina inni kvöldið fyrir Póstdag. Um tiu ára skeið var Póstdag- urinn langsamlega mest spenn- andi dagur ársins. En svo gerð- ist það i janúar árið 1990, að póstmeistarinn kom i sjónvarp- ið, og sagði, að vegna aukins kostnaðar og tveggja biljarða halla þá mundi póstþjónustunni það ekki mögulegt lengur að bera út póstinn einu sinni á ári eins og verið hefði um hrið. Hann sagði, að i framtiðinni mundi póstur borinn út aðeins einn dag á hlaupári. Hann kvaðst þeirrar skoðunar, að með þessu móti yrði starf póst- þjónustunnar virkara en engu að siður mundi hún sjá fyrir þeirri þjónustu, sem svo margt fólk er háð. En hann varaði við þvl, að ef að þingið ekki féllist á að hækka burðargjald i 49 dollara á bréf, þá yrði póstþjón- ustan að gripa til miklu rót- tækari ráðstafana. Frá lífeyrisjóöi Landssambands vörubifreiöastjóra Ákveðið er að fram fari lánveiting á veg- um Lifeyrissjóðs Landssambands vöru- bifreiðastjóra, samkv. ákvæðum 4. tl. 8. gr. reglugerðar sjóðsins. Frestur til að skila umsóknum er til 15. júni 1976. Þeir sjóðsfélagar, sem áður hafa fengið lán á vegum sjóðsins, koma ekki til greina við þessa lánveitingu. Ný umsóknareyðublöð hafa verið gerð og hafa þau verið póstlögð til formanna vöru- bilstjórafélaganna. Þeir sem sent hafa umsóknir á þessu ári á eldri umsóknar- eyðublöðunum þurfa að endurnýja um- sóknir sinar. Umsóknir skulu sendar til Lifeyrissjóðs Landssambands vörubifreiðastjóra, póst- hólf 1287, Reykjavik, eigi siðar en 15. júni 1976. Lifeyrissjóður Landssambands vörubifreiðastjóra TILBOÐ óskast i eftirtaldar bifreiðar er verða til sýnis þriðjudaginn 1. júni 1976, kl. 1—5 i porti bak við skrifstofu vora Borgartúni 7: Volvo f ólksbifreið........árg. 1967 Chevrolet sendi/fólksbifr... ” 1972 Ford Econoline sendi/fólksbifr” 1971 Land Rover benzin........... ” 1971 Land Rover benzin........... ” 1968 Volvo F-85 vörubifreið...... ” 1967 Til sýnis hjá Sementsverksmiðju rikisins, Ártúnshöfða: Scania Vabis vörubifreið...árg. 1967 Tilboðin verða opnuð sama dag kl. 17.00 að viðstöddum bjóðendum. Réttur áskilinn að hafna tilboðum sem ekki teljast viðunandi. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.