Þjóðviljinn - 11.07.1976, Page 13

Þjóðviljinn - 11.07.1976, Page 13
Sunnudagur 11. júli 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 Umsjón: Mörður Arnason og Þröstur Haraldsson HRAFNAMNGI ER LOKIÐ Listahátíð lauk einsog allir vita þriðjudaginn 29. júní með tónleikum Cleo Laíne og djasshljómsv. John Dankworths. Þessir tónleikar voru að mörgu góðir. Hljómsveit Dank- worths er ágæt, valinn maður á hverjum stað og leika mjög tæran og skemmtilegan djass. Sér- staka athygli vakti pianó- leikarinn, ungur strákur siðhærður, lék á mörg hljóðfæri á als oddi. Bassaleikarinn stóð einnig vel fyrir sínu, þessutan skemmtilegur sólóisti og greinilega góður lagasmið- ur. Trommarinn var þokkalegur og ekki meira, þó nokkur sóló hans væru með þvi sem mestan fögn- uð vakti meðal áhreyrenda Klásúlum þótti þó minna þar til koma. Atvinnumað- ur á að geta leikið einleik á hljóðfærið sitt, og oft hafa heyrst betri trommusóló, bæði í djassi og rokki. Það sama verður að segjast um John sjálfan, blástur hans var að sönnu öruggur, en varla f ramúrskarandi. Cleo, aðalstjarnan á hljómleikunum, kom fram eftir að bandið hafði hitað upp í byrjun, og eftir hlé í nýjum kjól. Þetta er hörkusöngkona og vert að- dúnar hversu henni tókst að hrifa áheyrendur með sér. En raddleikfimi henn- ar (hún syngur frá bassa í sópran) vakti þó fremur athygli sem fyrirbæri en einlæga hrifningu, og henni tókst hvað best upp í hröðu lögunum, þegar hún söng eðlilega. Laugardalshöll er með verri hljómleikahöllum. Sérstaklega er húsið slæmt þegar settar eru i það djasshljómsveitir sem öðrum fremur byggja á nánu sambandi við áheyrendur. Ekki er hægt að stilla tónlistina nógu hátt til að hún nái vel um allan salinn. Stjörnur eins og Cleo, sem byggja Hrafn Gunnlaugsson töluvert á elskulegum kynþokka sinum, njóta sin eðlilega ekki, þegar helmingur áhorfenda sér aöeins einhverja þúst á hreyfingu langt i fjarska. Hinar skipulegu Mál og menning hefur plötuútgáfu Upptaka á nýrri plötu Þokkabótar hefst á næstunni Þau fyrirtæki sem eru hvað mest áberandi í ís- lenskri plötuútgáfu eiga sér ýmsar rætur. Sum þeirra hafa byggst upp i kringum poppsveitir svo sem Hljómaútgáfan (nú Ýmirog Geimsteinn) og Júdas. önnur eiga sér styrka stoð í traustum innflutningsfyrirtækj- um eins og Fálkanum og Stál hf. Ekki má gleyma spekúlöntunum f grein- inni eins og Ámunda, Jóni ólafsog Ingibergi i Demant. Við þetta má lengi bæta. Kiásúlur hafa nú komist að þvi að bókaforiög hér i borg séu að hefja afskipti af plötu- útgáfu og er það ný og harla forvitniieg þróun. Raunar eru fordæmi fyrir þessu finnanleg t.d. á Norðurlöndum, og má þar minna á Demos hið danska. Þau forlög hérlend sem cru að þreifa fyrir sér á þessu sviði eru, andstætt við Demos, voidug útgáfufyrirtæki á is- lenskan mælikvarða: Mál og menning og Iðunn. Þau eru á hinn bóginn ólik að gerð og markmiðum, Iðunn einkafyr- irtæki sem gefur út metsölu- bækur af léttara taginu og læt- ur þær standa undir nokkrum vönduðum islenskum bókum árlega, Mál og menning hefur bókmcnntafélag að baki sér og ákveðin pólitisk markmið að ieiðarljósi i starfsemi sinni. Iðunn mun hafa i bigerð að gefa út barnaplötu en forráða- menn véku sér undan því að skýra frá áformum sinum að svo komnu máli. Veröur þess væntanlega ekki langt að biða að það mál uppiýsist. Hér á eftir fer hins vegar viðtal við Þorleif Hauksson út- gáfustjóra Máls og menningar en á næstunni byrjar hljóm- sveitin Þokkabót að taka upp plötu sem fyrirtækið gefur út. Ilefur hljómsveitin undanfarið æft efnið á henni á starfslaun- um frá Máli og menningu og mun það vera i fyrsta skipti sem starfslaun heyrast nefnd I poppheiminum. — Má búast við þvi, að plötuútgáfa veröi fastur liður I starfsemi Máls og menning- ar? — Þetta er nú bara tilraun. Við höfum cnga reynslu á þessu sviöi og rennum blint i sjóinn með peningahliðina á þessu. Ég hef þá trú að þetta borgi sig.en hitt er annað mál hvort það er gróðafyrirtæki. Við ætlum að reyna það hvort grundvöllur er fyrir þessu þvi við teljum okkur eiga fullt er- indi á þennan markaö þvi það hefur veriö litið um róttæka plötuútgáfu hér á Iandi fram til þessa. Okkur langar til að fylla það skarð. Viö höfum samið um, að eftir að kostn- aður við plötugerðina hefur verið greiddur skiptist hagn- aðurinn jafnt á milli forlagsins og hljómsveitarinnar en hvernig útgáfunni verður að ööru leyti hagað er ekki Ijóst i smáatriðum enn. — Með hvaða markmið i huga leggið þið út I þessa starfsemi? — Við höfum veriö að gefa út skáldskap fram til þessa,og er þetta ekki skáldskapur I sinu upprunalegasta formi? Það er skilgreint markmið Máls og menningar að stuðla að útgáfu á verkum róttækra og framsækinna höfunda. Þessi útgáfa á hvað greiöast- an aðgang að fjöldanum en hingað til hefur ekki veriö lögð mikil rækt við söngtexta. Það væri útaf fyrir sig mikið hlut- vcrk að færast I fang að hefja upp þær kröfur sem gerðar eru til þessa skáldskapar- forms. Nú, og svo höfum viö menningariegum skyldum að gegna. Loks má nefna að með þessu eygjum við leið til að seilast inn i nýjan hóp fólks sem væri mjög æskilegt að laða að félaginu. —ÞH Cleo Laine raðir á fjórða þúsund viðstaddra minntu frekar á sildar i tunnu eöa flokksþing nasista en hið þægi- lega kjallara- og bjórandrúmsloft þar sem djassinn á helst heima. Og ekki varð fjöldi aldraöra boðs- gesta á besta stað til aö bæta skapið hjá þeim sem aftar voru og fengu bæði hálsrig og fótar- mein af pallsetunni. En hvað um það, þetta var gaman. Og hefði etv. verið enn meira gaman, ef hljómsveitin hefði verið ögn léttari á sér, vikið aðeins útaf þessari þaulskipu- lögðu og soldiö verslunarlegu dagskrá sinni. Sérstaklega ef þau hefðu rokkað aöeins meira og leyft góðum hljómlistarmönnum sinum að njóta sin betur. Hefðu þau hjúin þá i staðinn mátt sleppa heldur hjákátlegum hjónabands- bröndurum og lofræðum hvort um annað. En hér er um að ræða ameriskar stjörnur, sem ferðast um með fyrirfram ákveðiö „show", og það raunar gott fyrir sinn hatt. En þetta var ekkert nýtt og stendur varla fyrir neinar áhugaverðar stefnur eöa strauma úti heimi. Það er raunar athyglisvert, hvernig staðið er að djass- og rokkhluta þessarar listahátiðar. Poppið er afgreitt meö Háskóla- biókonsertnum eftir að búið er að glutra niður öllum möguleikum á erlendum gæðingum. Og er ekki lastandi útaffyrirsig að gefa is- lenskum poppurum séns, heldur að þessir hljómleikar voru frá upphafi mældir á peningastiku en ekki frambærilegrar listsköpun- ar. Og djassinn er afgreiddur meö tveim stjörnum i Laugardalshöll, og að þeim ólöstuðum þykir það heldur þunnur þrettándi, þegar bæöi er vitað um ýmsa islenska djassara, sem vel mættu viö ofur- litlum stuðningi, og hitt, að i ná- grannalöndum er viða rikt og merktdjasslif, sem við fáum ekk- ert um að vita.Þannig virðist sú skoöun enn rikjandi, að djass og rokk séu lágmenningarfyrirbæri, góð tónlist sé nokkuö sem tilheyri nitjándu öldinni. Og taki ráða- menn næstu listahátiðar við sér i tima. Hverjir sem það verða nú. Eða kannski: hversem það verður nú. Þvi aö sannleikurinn er sá, að þrátt fyrir öll stóru nöfnin á sviði og i hljómleikasölum, skin þó ein stjarnan miklu mest. Og það er i- haldsdrengurinn sem dubbaður er upp sem framkvæmdastjóri veislunnar, góður stökkpallur til aukinna metoröa i Matthiasar- geiranum af islensku menningar- lifi. Nema hvað, fréttum við ekki rétt eftir listahátiðina, aö Jón Þórarinsson sé að hætta starfi og ætli að sækja um sinfóniuna. Hrafn, listaog skemmtideild sjón- varpsins biður. Við lika, með önd- ina i hálsinum. Mörður !i blaðið sem vitnað er í Áskriftarsími 175 05

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.