Þjóðviljinn - 06.08.1976, Blaðsíða 12
12 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 6. ágúst 1976.
Sjónvarp næstu viku
sunnudagur
15.00 Frá óly mpiuleikunum.
Kynnir Bjarni Felixson.
18.00 Bleiki pardusinn.
Bandarisk teiknimynda-
syrpa.
18.10 Sagan af Hróa hetti.Nýr
breskur myndaflokkur í sex
þáttum um ævintýri út-
lagans Hróa hattar. 2.
þáttur. Þýðandi Stefán
Jökulsson.
Hlé.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Á reginfjöllum Il.Siðari
hluti kvikmyndar frá ferð
sjónvarpsmanna sumarið
1971 norður yfir hálendið.
Staldrað við i Dyngju-
fjöllum og Askja skoðuð og
si'ðan haldiðnorður i Herðu-
breiðarlindir. Umsjón
Magnús Bjarnfreðsson.
Kvikmyndun örn Harðar-
son. Hljóðsetning Oddur
Gústafsson. Aður á dagskrá
6. mai 1973.
21.00 Jane Eyre. Ný, bresk
framhaldsmynd i fimm
þáttum, gerð eftir hinni
alkunnu skáldsögu Char-
lotte Bronté (1816-1855).
Aðalhlutverk Sorcha
Cusack og Michael Jayston.
1. þáttur. JaneEyre á erfíða
æsku. Hún er tiu ára gömul,
er sagan hefst^hefur misst
foreldra sina og verið komið
fyrir hjá ættingjum, sem
reynast henni heldur illa.
Hún er send á heimili fyrir
munaðarlausar stúlkur, og
þar dvelst hún til tvitugs-
aldurs. Dag nokkurn býðst
henni kennslustarf. Þýðandi
Óskar Ingimarsson.
21.50 Frá Listahátið 1976,
Anneliese Rothenberger
syngur lög eftir Franz Schu-
bert. Við hljóðfærið:
Gunther Weissenborn.
Stjórn upptöku Andrés
Indriðason.
22.10 Að kvöldi dags. Séra
Sigurður Haukur Guðjóns-
son, prestur i Langholts-
prestakalli i Reykjavik,
flytur hugvekju.
22.20 Dagskrárlok.
mánudagur
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 íþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
21.10 Við biðum eftir þér,
McGill. Breskt sjónvarps-
leikrit eftir Jack Rosenthal.
Leikstjóri Mike Newell.
Aðalhlutverk Joe Black.
Mikill merkisdagur er runn-
inn upp i lifi Joe McGills.
Hann er leikari, og hingað
til hafa hlutverk hans verið
agnarsmá. En i dag á hann
að segja heila setningu i
sjónvarpskvikmynd, sem
hann leikur i, og hann hefur
strengt þess heit að nota
tadiifærið út i ystu 'æsar.
Þýðandi Dóra Hafsteins-
dóttir.
22.00 Ský yfir Paradis. Bresk
heimildamynd um dýralif á
eyjunni Sri Lanka, en þvi er
nú stefnt i voða af manna
völdum. Þýðandi og þulur
Ellert Sigurbjörnsson.
22.25 Dagskrárlok.
þriðjudagur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Hungur. Kanadisk
teiknimynd, þar sem hæðst
er að ofáti i hungruðum
heimi.
20.55 McCloud, Bandariskur
sakamálamyndafiokkur.
Friðrof. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
22.25 Um „Ærumissi Katrinar
Blum I þessari sænsku
mynd er rætt við vestur,-
þýska rithöfundinn Hein-
rich Böll um bók hans, Æru-
missi Katrinar Blum, en
þetta er fyrsta verk Bölls,
sem út kom, eftir að hann
hlaut Nóbelsverðlaun fyrir
bókmenntir. Sagan var lesin
i útvarp i siðasta mánuði.
Viðtalið er á þýsku og með
sænskum textum og ekki
þýtt á islensku.
(Nordvision-Sænska sjón-
varpið)
22.45 Dagskrárlok.
Ný, bresk framhaldsmynd I
fimm þáttum gerö eftir sögu
Charlotte Bronte umJaneE>re.
Framhaldsmyndin hefst á sunnu
dagskvöid.A myndinni er Sorcha
Cusack i.hlutverki Jane Eyre.
föstudagur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Á hjara veraldar. Bresk
fræðslumynd um eyjuna
Tristan da Cunha, sem er
miðja vegu milli
S u ð u r-A m e r i k u og
Suður-Afriku. Hún hefur
stundum verið nefnd af-
skekktasta eyja i heimi.
Arið 1961 varð eldgos á eyj-
unni,semhafði mikil áhrif á
allt lif þar. Þýðandi og þulur
Ellert Sigurbjörnsson.
21.05 Skemm tiþáttur Don
Lurios. 1 þessum þætti
skemmta auk Lurios og
dansflokks hans Astrud Gil-
berto, kór Horst Jankowskis
og Mac Davis. Þýðandi
Auður Gestsdóttir.
21.35 Þriðji maðurinn. (Th
Third Man) Bresk biómynd
gerð árið 1949. Handrit
Graham Greene. Leikstjóri
Carol Reed Aðalhlutverk
Joseph Votten, Valli, Orson
Welles og Trevor Howard.
Bandariski rithöfundurinn
Holly Martins kemur til
Vinarborgar skömmu eftir
sfðari heimsstyrjöldina til
að hitta æskuvin sinn, Harry
Lime. Hann fréttir við
komuna, að Lime hafi farist
Gitarleikarinn Baden Powell leikur lög frá BrasiIIu kl. 21.30 á
miðvikudagskvöldið.
miðvikudagur
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Augiýsingar og dagskrá
20.40 Pappírstungl
Bandariskur myndaflokkur
i 13 þáttum, byggur á sögu
eftir Joe David Brown. 2.
þáttur. Reikningskennsla.
Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21.05 Nýjasta tækni og visindi.
Grefill, tæki til að grafa
jarðgöng. Akkeri með nýju
sniði. Nýjungar i tann-
viðgerðum. Boltabörur.
Umsjónarmaður Sigurður
H. Richter.
21.30 Gitarléikarinn Baden
Powell. Suður-ameriski
gitarleikarinn Baden
Powellleikur lög frá Brasil-
iu.
22.00 Hæltuleg vitneskja.
Breskur njósnamynda-
flokkur i sex þáttum eftir
N.J. Crisp. Aðalhlutverk
John Gregson, Patrick
Allen og Prunella Ransome.
2. þáttur. Efni 1. þáttar:
Kirby,sem erá heimleiðfrá
Frakklandí, verður þess
var, að fylgst er með ferð-
um hans. Hann kemst i
kynni við unga stúlku,
Lauru, og með hennar
aðstoðtekst honum að kom-
ast i báti undan njósn-
urunum. En þeir eru eldíi af
baki dottnir og finna bátinn
og Lauru. Þýðandi Jón O.
Edwald.
22.30 Dagskrárlok.
i bllslysi daginn áður.
Martins talar við sjónar-
votta að slysinu, en þeim
ber ekki saman, og hann
ákveður þvi að rannsaka
málið frekar. Þýðandi Jón
Thor Haraldsson. Aður á
dagskrá 6. mars 1976.
23.15 Dagskrárlok
laugardagur
18.00 íþróttir.
Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.35 Maður til taks. Breskur
gamanmyndaflokkur.
Hverju skipta nokkrar
krónur? Þýðandi Stefán
Jökulsson.
21.00 Skin og skúrir Bresk
heimildamynd um leið-
angur fjallgöngumanna á
Eigertind i Alpafjöllum.
Þýðandi og þulur Ingi Karl
Jóhannesson.
21.45 Hvernig komast má
áfram án þess að gera
handarvik. (How To
Succeed In Business With-
out Really Trying)
Bandarisk kvikmynd frá
árinu 1967. Aðalhlutverk
Robert Morse, Michele Lee
og Rudy Vallee. Ungur
maður brýst til æðstu met-
orða i stórfyrirtæki, sem
hann starfar hjá, og er
óvandur að meðulum. Þýð-
andi Dóra Hafsteinsdóttir.
23.35 Dagskrárlok.
i- útvarp
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og for-
ustugr. dagbl.), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Ingibjörg Þorgeirs-
dóttir les fyrri hluta sögu
sinnar „Hreiðurhólmaferð-
arinnar”. Tilkynningar kl.
9.30. Létt lög milli atriða.
Spjallað við bændur kl.
10.05 Tónleikar kl. 10.25.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Katia og Marielle Labéque
leika Svitu nr. 2 fyrir tvö
pianó op. 17 eftir Sergej
Rakhmaninoff / Fil-
harmoniusveit Lundúna
1 e i k u r . „Falstatt",
sinfóniska etýðu i c-moll op.
68 eftir Edward Elgar: Sir
Adrian Boult stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Veðurfregnir og fréttir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Blóm-
ið blóörauða” eftir Johann-
es Linnankoski. Axel Thor-
steinson les (4).
15.00 Miðdegistónieikar.
Peers Coetmore og Eric
Parkin leika Sónötu i a-moll
fyrir selló og pianó eftir
Moeran. Maurice Sharp,
Harvey McGuire og Sin-
fóniuhljómsveitin i Cleve-
land leika Kammerkonsert
fyrir flautu, enskt horn og
strengjasveit eftir Arthur
Honegger; Louis Lane
stjórnar.
15.45 Lesin dagskrá næstu
viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.30 „i leit að sólinni”. Jónas
Guðmundsson rithöfundur
rabbar við hlustendur (1).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Daglegt mál. Helgi J.
Halldórsson flytur þáttinn.
19.40 iþróttir. Umsjón: Jón
Asgeirsson.
20.00 Sinfóniutónleikar. Flytj-
endur: Kammerhljómsveit-
in i Stuttgart. Stjórnandi:
Wolfgang Hofmann. Ein-
leikari á óbó: André Lar-
drot. a. Konsertserenaða i
Es-dúr op. 20 eftir Ignaz
Pleyel. b. Sinfónia i D-dúr
eftir Francois Joseph Goss-
ec. (Hljóðritun frá útvarp-
inu i Stuttgart).
20.40 Viðdvöl i sumarbúöum
KKUK i Vindáshlið. Gisli
Kristjánsson ritstjóri ræðir
við gesti og forstöðufólk.
21.00 Einsöngur: Theo Adam
syngurlög eftir Tsjaikovský
og Richard Strauss, Rudolf
Dunckel leikur á pianó
(Hljóðritun frá Búdapest).
21.30 Ctvarpssagan: „Stúlkan
úr Svartaskógi” eftir
Guðmund Frimann. Gisli
Halldórsson leikari les (8).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Til um-
ra:ðu. Baldur Kristjánsson
sér um þáttinn.
22.55 Áfangar. Tónlistarþátt-
ur i' umsjá Ásmundar Jóns-
sonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
0 sjónvarp
20.00 FréUir og veður.
20.30 Auglýsingar og dagskrá.
20.40 Olurinn. Bresk fræðslu-
mynd um þetta fallega og
fjörlega dýr, sem unir sér
jafnt i vatni sem á landi. í
mörgum löndum Evrópu er
oturinn horfinn með öllu. og
i Bretlandi eru mjög fá dýr
eftir. Talið er, að þetta sé
fyrsta heimildamyndin um
breska oturinn, en hann er
mjög var um sig og er mesl
á ferli á næturnar. Þýðanrii
og þulur Ellert Sigurbjörns-
son.
21.30 Frá ölympiuleikunum
22.15 Tekst, ef tveir viija
(Affair With A Strangeri.
Bandarisk biómynd frá ár-
inu 1953. Aðalhlutverk Jean
Simmons og Victor Mature.
William Blakley er þekktur
leikritahöfundur. Sú saga
kemst á kreik. að hann æt!i,
að skilja við konu sina, og
genir slúðurdálkahöf undur
einn sér mat úr þeirri sögu
Þýðandi Stel'án Jökulsson.
,23.40 Dagskrárlok.
Lausar stöður
Áður auglýstur umsóknarfrestur um þrjár kennarastöður
við Flensborgarskólann i Hafnarfirði, fjölbrautaskóla, er.
hér með framlengdur til 17. ágúst 1976. Kennslugreinar:
stærðfræði, efnafræði, liffræði, viðskiptagreinar, (bók-
færsla, hagfræði og skyldar greinar). Æskilegt er að um-
sækjendur geti kennt fleiri en eina námsgrein og að um-
sækjendur um kennarastöðu i stærðfræði hafi, auk stærð-
fræðimenntunar, menntun og reynslu i tölvuvinnu. —
Kennarar skulu fullnægja þeim kröfum, sem gerðar eru til
kennara i hliðstæðum námsgreinum við menntaskóla.
Laun skv. launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir, ásamt ýtarlegum upplýsingum um námsferil
og störf, skulu sendar menntamáiaráðuneytinu. Hverfis-
götu 6, Reykjavik. — Umsóknareyðublöð fást i ráðu-
neytinu.
Menntamálaráðuneytið,
3. ágúst 1976.
Starf félagsmálastjóra
hjá Akureyrarbæ er laust til umsóknar og
veitist frá 1. október næstkomandi. Fé-
lagsmálastjóri hefði með höndum rekstur
Félagsmálastofnunar bæjarins.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið prófi
félagsráðgjafa eða hafa tilsvarandi
menntun. Laun samkvæmt kjarasamningi
við Starfsmannafélag Akureyrarbæjar.
Allar nánari upplýsingar um starfið eru
veittar á Félagsmálastofnun Akureyrar,
simi 96-21000. Umsóknir sendist undirrit-
uðum fyrir 1. september n.k.
Akureyri, 30. júli 1976,
Bæjarstjóri.