Þjóðviljinn - 09.09.1976, Qupperneq 6

Þjóðviljinn - 09.09.1976, Qupperneq 6
6 StÐA — ÞJÖÐVILJINN Fimmtudagur 9. september 1976. Þessa dagana er stadd- ur hér á landi Krishnarao Shivaro Shelvankar, am- bassador Indlands í Nor- egi og á Islandi, með að- setur í Osló. I fyrrakvöld boðaði ambassadorinn fréttamenn á fund sinn á Hótel Sögu og ræddi þá ýmis þeirra mála, sem nú eru efst á baugi i föð- urlandi hans, öðru fjöl- mennasta ríki heims. Shelvankar ambassador tók á sínum tíma þátt í sjálfstæðisbaráttu ind- verja og starfaði síðan lengi sem blaðamaður, áður en hann réðist til ut- anríkisþjónustunnar. Áð- ur en hann tók við am- bassadorsembætti i Osló var hann meðal annars ambassador Indlands í Norður-Víetna m og Sovétríkjunum. Þetta er önnur heimsókn am- bassadorsins til Islands. K.S. Shelvankar — vandamál Indlands hundraö- eöa þúsundföld viö þau, sem þekkjast I Vestur-Evrópulöndum. otepit að framþróun án stórumbrota Ambassadorinn ræddi meöai annars stjórnarskrárbreytingar þær, sem nú eru á döfinni i Ind- landi og fela meðal annars i sér að vald- forsætisráöherra er stóraukið. Shelvankar am- bassador sagöi aö lengi heföu staöiö umræöur um þessar breytingar, en kvaöst ekki geta rætt þær nákvæmlega, þar eö hann heföi enn ekki lesið stjórn- arskrána I hinni nýju mynd. Ambassadorinn var siðan spurður um takmarkanir þær, sem gerðar hafa verið á frelsi indverskra blaöa. Hann svaraði þvi til aö sér, sem gömlum blaöamanni, likaöi þessar tak- markanir miöur, en á hitt væri aö lita aö áöur en þær gengu i gildi heföu blööin svo til alger- lega verið undir yfirráðum fjár- málamanna, þaö er aö segja áhrifamanna i kaupsýslu, bönk- um og iðnrekstri. Hefðu þessir aöilar notaö blöðin sem áróö- ursmiöla i þágu eigin hags- muna, svo aö þvi heföi farið fjarri aö allir skoöanahópar hefðu komist þar aö. Taldi am- bassadorinn aö i þessum efnum hefðu indversku blööin staðið vestrænum blööum mjög aö baki. Enginn væri aö visu ánægöur meö takmarkanirnar á frelsi blaöanna, en margir teldu þær nauösynlegar til aö hindra algera einokun fjármálamanna á blööunum. Ambassadorinn kvaö það al- rangt aö indverjar framleiddu kjarnorkuvopn, enda þótt þeir heföu framkvæmt kjarnorku- sprengingu. Tilgangur indverja meö kjarnorkusprengingum væri könnun á möguleikum á hagnýtingu kjarnorkunnar til friösamlegra nota, svo sem i sambandi viö leit aö náttúru- auðlindum og áveitufram- kvæmdir. Lifsnauösyn væri fyr- ir Indland aö nýta sem best allt það vatn, sem fáanlegt er i land- inu, og i sambandi viö þaö væru á döfinni áætlanir um aö tengja i eitt kerfi öll vatnakerfi landsins, þannig aö hægt yröi að færa vatn úr einum landshluta, þar sem meira en nóg væri af þvi, i annað fylki þar sem skortur væri á vatni. Varðandi kjarnorkumálin sagöi Shelvankar ambassador ennfremur, að indverjar heföu ekki skrifaö undir sáttmálann gegn útbreiöslu kjarnorku- vopna, vegna þess aö þeir teldu að i sáttmálanum fælist mis- munun milli þeirra rikja, sem lengst eru komin i tækniþróun, og annarra sem skemmra eru á veg komin i þeim efnum. Ind- land væri aö sjálfsögöu eindreg- iö þeirrar skoðunar aö kjarn- orka ætti eingöngu aö vera til friðsamlegra nota, en teldi jafn- framt aö öll riki heims ættu aö hafa jafnan aögang aö hvers- konar tækni. IJm fólksfjölgunarvandamál- iö, einn mest aðkallandi vanda Indlands, sagöi ambassadorinn aö stjórnin vildi nauöug beita nokkurskonar þvingunaraö- gerðum til aö takmarka fólks- fjölgun, en viöleitni til þess aö fá fólk af frjálsum vilja til aö tak- marka við sig barneignir heföi ekki borið nægan árangur. Ambassadorinn sagöi að eins og sakir stæöu væri ekki mat- vælaskortur i Indlandi, enda heföi veriö nægt regn siöust árin og uppskeran góö, gagnstætt þvi sem var fyrir tveim-þremur ár- um eruppskerubrestur varð. Þá hefði uppskera aukist vegna til- komu nýrra tegunda af hris- rjónum og korni, sérstaklega efði hveitiuppskeran aukist mikið. Matvælaframleiðslan heföi tvöfaldast slöan landið varö sjálfstætt og aukist heldur hraðar en fólksfjöldinn. Viðvíkjandi ástandinu i Ind- landi almennt sagöi ambassa- dorinn, að menn yröu aö minn- ast þess aö i þessu risaþjóöfé- lagi væri enn ólokið hliöstæöri þjóöfélagsþróun og önnur stærstu þjóðfélög veraldar, Kina, Sovétrikin og Bandarikin, heföu þegar gengiö i gegnum og kostaö heföu mikil umbrot. Indverjar vildu fyrir sitt leyti forðast slikar sviptingar og framkvæma hjá sér nauðsyn- legar breytingar og umbætur á hægan og jafnan hátt. En menn yröu aö minnast þess aö ekki væri hægt að likja Indlandi viö þjóöfélög Vestur-E vrópu, smærri og stærri, og þaö væri nauösynlegt aö hafa i huga þeg- ar í Indlandi væru sett lög, sem þættu miður góð á norskan eöa islenskan mælikvarða. t Ind- landi, þar sem búa um 600 milj- ónir raanna, sem tala fjölmörg tungumál og eru sundurleitir ' hvað snertir trúarbrögð og menningu, væru öll vandamál hundraö- eöa þúsundföld á viö þaö, sem menn væru vanir i Vestur-Evrópu. Viö veröum þvi að leysa okkar vanda á þann hátt, sem hentar hjá okkur, i stað þess aö likja eftir öðrum, sagöi ambassadorinn. Um samskipti Indlands og ts- lands sagði ambassadorinn, aö hann teldi góöan grundvöll fyrir vináttu og skilningi milli þeirra. Báöar þjóöir heföu til dæmis til skamms tima átt i baráttu fyrir siálfstæði sinu og i hafréttar- málunum, sem nú eru mjög á döfinni, heföu islendingar og indverjar að likindum svipuö viöhorf. t för meö ambassadornum er eiginkona hans, frú Mary Shel- vankar, og sendiráösritari.. jþ Norrœnar fornleifa- rannsóknir í Eystribyggð á Grœnlandi 1 sumar hófust miklar forn- leifarannsóknir I Eystribyggö á Grænlandi á norrænum húsa- rústum i Qordlortqdal, en hann gengur frá Eiriksfiröi og yfir fjörö sem venjulega er kallaður tsafjöröur. Norræni menningar- sjóðurinn styrkir þessar rann- sóknir og mun þetta vera i fyrsta sinn sem öll Norðurlöndin standa i sameiningu aö forn- leifarannsóknum, lika Færeyjar og Grænland. t sumar hófu 22 fornleifafræöingar frumrann- sóknir og var einn þeirra is- lenskur, Sveinbjörn Rafnssom. Þjóöviljinn hafði samband viö hann og baö h.inn aö veita sér nánari upplýsingar um rann- sóknirnar. Sveinbjörn sagði að i Qordlortqdal sem er um 10 km langur væru 7-8 bæjarrústir og heföi ekki verið hreyft við þeim áður og ekkert vitaö um þessa byggö með vissu. Ætlunin væri að mæla nákvæmlega allar rústirnarog grafa siöan i þær til þess aö komast aö raun um til hvers húsin heföu veriö notuö, hvenær bæirnir hefðu verið i byggð og hvenær farið i eyöi. Sumar rústirnar eru mjög meö islensku sniöi og raunar svipar öllum aðstæðum til Islands t.d. gróöurfari i þessum dal, sem er blómlegur.þó aö ekki standi nú i honum byggð. Þarna hafa verið 2 kirkjur meö kringlóttum kirkjugörðum — eins og tiðkaöist á íslandi, og húsin hlaðin úr torfi og grjóti. Á nokkrum bæjanna hafa veriö scór og vegleg húsakynni. en innstu bæirnir hafa veriö smáir fjallbæir og ótrúlega hátt uppi. Tveir eöa þrír eru I yfir 200 metra hæö yfir sjávarmáli. Þá eru miklir og óhreyföir öskuhaugar viö bæina sem álit- legt er að grafa i. Sveinbjöm sagði aö þessar rannsóknir tækju nokkur ár,en I sumar var aöallega unnið að mælingum. Verkiö taföist þó nokkuð vegna þess að veður setti strik i reikninginn. Likt og hér sunnanlands á tslandi voru úrhellisrigningar flesta da'ga I ágúst. Mjög verður fariö i saumana meö tilliti til timatalsins og etv. verður hægt að sjá hvernig byggöin i Qordlortqdal, sem einhvern tima hefur heitiö is-; lensku nafni, hefur færst meöan hún stóö. Sveinbjörn Rafnsson Ekki er enn komiö á hreint hvernig aöild isiendinga aö þessum rannsóknum veröur fjármögnuö,en Sveinbjörn álitur að islenskum fornleifarann- sóknum veröi talsverður akkur I þessu samnorræna samstarfi. — GFr Frá stjórn Sambands isltbarnakennara RANGFÆRSLA SKÓL AFULLTRÚ A Stjórn Sambands islenskra barnakennara vill harðlega mótmæla þeim fullyröingum sem haföar eru eftir skólafull- trúa Reykjavikurborgar Ragn- ari Georgssyni I einu dagblaö- anna 7. sept. slðastl. En þau eru: ,,aö laun barnakennara væru nákvæmlega þau sömu og hjá kennurum viö gagnfræða- skólana”. Stjórnin vill vekja eftirtekt skólafulltrúans á eftirtöldum atriöum: 1. Kennsluskylda barnakennara er f jórum stundum meiri á viku. 2. Barnakennarar fá 3.4 stig fyr- ir hvert unniö starfsár til 1974. Veldur þaö mun hægari tilfærsl- um i launaflokkum en hjá kenn- urum 7.-9. bekkja sem fá 4 stig. 3. Alag á yfirvinnu er lægrahjá barnakennurum. 4. Barnakennarar sem kenna við 8 mán. skóla veröa aö sæta 1/12 skerðingu i launum, en ekki aðrir kennarar. Fleiri atriöi má tilgreina. Stjórnin vill eindregið hvetja alla skrifstofufulltrúa mennta- kerfisins til aö gefa réttar upp- lýsingar bæði hvað varöar kennaraskortinn og launakjör kennara.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.