Þjóðviljinn - 09.09.1976, Síða 16
Sigriður Skarphéöinsdóttir, iðn-
verkakona. (Ljósm. —eik)
3 ár frá valda-
ráni í Chile
Mótmæla-
fundur í
Reykjavík
A laugardaginn kemur, þann
11. sept. eru þrjú ár liðin frá falli
rikisstjórnar Allendes i Chile og
valdaráni þeirrar herforingja-
kliku, sem þar fer nú með völd.
1 tilefni þessa mun Alþýðu-
bandalagið I Reykjavik efna til
mótmælafundar á laugardaginn i
samvinnu við fleiri aðila.
Nánar verður skýrt frá
fundinum i blaðinu á morgun.
BLAÐ-
BERAR
óskast í eftirtalin
hverfi
Kaplaskjólsveg
Bólstaðarhlið
Lönguhlið
Brúnir
Ennfremur vantar
blaðbera víðsvegar
um bæinn
til afleysinga.
Vinsamlegast haf ið
samband við af-
greiðsluna
DJOÐVIUINN
sem þó er
lœgst
launaða
verkafólk í
landinu
Sýningin tslenskur fatnaður ’76
var opnuð i Laugardalshöli i gær.
Gerði það Sigriður Skarphéðins-
dóttir, iðnverkakona, eftir að
tveir iðnrekendur höfðu haldið
tölur um stöðu og mikilvægi
Islensks iðnaðar. Sýningin verður
opin fram á sunnudagskvöld, en á
henni sýna 30 fataframleiðendur
framleiðslu sina, og kennir þar
margra grasa.
Axel Aspelund sté fyrstur
manna í pontuna inni i Höll i gær
við opnunarathöfn sýningarinnar,
sem er fyrsta sýningin á
islenskum iðnvarningi sem
islensk iðnkynning hyggst beita
sér fyrir á nýbyrjuðu iðn-
kynningarári.
t ræðu Axels kom fram að á
árinu 1974 voru flutt hingað til
lands 194 tonn af fatnaði erlendis
frá og voru greiddar fyrir það
1286 miljónir króna. Arið 1975
voru flutt hingað til lands 215 tonn
af fatnaði og greiddar fyrir það
1656 miljónir, og sjö fyrstu mán-
uði þessa árs voru flutt inn 194
tonn af fatnaði fyrir á annan milj-
arð króna.
A árinu 1975 var sparnaður á
gjaldeyri vegna innlendrar fram-
leiðslu á fatnaði hvorki meiri né
minni en 2187 miljónir króna.
Ráöa leiötogar engu?
Formaöur Fél. Isl. iðnrekenda,
Ilavið Scheving Thorsteinsson,
lét ekki af þeim vana sinum að
brýna stjórnendur landsins til
þess að sinna málefnum iðnaðar-
Framhald á bls. 3.
Timman tapaðifyrir
Tukmakov í biðskák
og sovéski stórmeistarinn hefur
þar með tekið forystu i mótinu
t gær sigraði sovéski stór-
meistarinn Tukmakov hollend-
inginn Timman I biðskák þeirra
félaga úr 10. umferð. Þar með
hefur Tukmakov allt I einu skot-
ist upp I efsta sæti Reykjavikur-
skákmótsins en Friðrik ólafs-
son hefur einum vinningi
minna. Friðrik er þó með unna
biðskák á móti Najdorf f vasan-
um og kemur þvf að öllum Ifk-
indum til með að deila efsta sæt-
inu með einhverjum fleirum
innan tfðar.
t gær voru tefldar tvær aðrar
biðskákir. Vukcevic vann Gunn-
ar og þeir Westerinen og Vukce-
vic sömdu siðan um jafntefli i
sinni biðskák. Loks er að geta
þess að þeir Timman og Björn
sömdu f fyrrakvöld um jafntefli
I sinni biðskák, en Timman
hafði þá reynt til þrautar að
knýja fram vinning með hrók og
peð á móti biskupi og peði
Björns.
Að öðru leyti var frf hjá skák-
mönnunum i gær, en þeir tefla i
Hagaskólanum I dag klukkan
hálfsex. Argentinlumaðurinn
Najdorf tók sér þó ekki frf i gær,
hann tefldi fjöltefli f tJtvegs-
bankanum i gærkvöldi og þar -
var meðfylgjandi mynd tekin.
— gsp
Stjórn Alþýðubandalagsins í Reykjavik:
Bráðabirgðalögin bein árás
á sjómannastéttina
A fundi stjórnar Alþýðubanda-
lagsins i Reykjavik i fyrradag
voru bráðabirgðalög rfkisstjórn-
arinnar á sjómannastéttina for-
dæmd harðlega og jafnframt var-
aði stjórnin við þeirri réttinda-
skerðingu sem flest I tilbúnu
lagafrum varpi hægri stjórnar-
innar. Alyktun stjórnar Alþýðu-
bandalagsins í Reykjavik er svo-
hljóðandi:
Fundur stjórnar Alþýðubanda-
lagsins f Reykjavik haldinn 7.
september 1976 fordæmir harð-
lega þau bráðabirgðalög sem rik-
isstjórnin hefur gefið út um sjó-
mannasamningana. Stjórnin tel-
ur slika lagasetningu beina árás á
sjómannasamtökin þar sem
samningsréttur þeirra er með
lögum að engu gerður. Þessi
lagasetning er aðför að verka-
lýðshreyfingunni og sýnir ljós-
lega stéttareðli þessarar rikis-
stjórnar og hugmyndir hennar
um vald sitt til að fótum troða
sjálfsögðustu réttindi verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Um leið minnir stjórn Alþýðu-
bandalagsins i Reykjavik á, að
rikisstjórnin hefur i sumar undir-
búið lagafrumvarp um stéttarfé-
lög og vinnudeilur þar sem skerða
á stórlega réttindi vinnandi fólks
til samninga og verkfalla. Þessi
bráðabirgðalög um sjómanna-
samningana eru þvi undanfari
enn alvarlegri atlögu að Islensk-
um verkalýð. Vegna þessara at-
burða vill stjórn Alþýðubanda-
lagsins i Reykjavik skora á allt
launafólk landsins að fylkja liði til
baráttu gegn þessum ósvifnu
árásum rikisvaldsins, sem helst
minna á þvingunarlögin, sem
verkalýðshreyfingin braut á bak
aftur 1942.
Þess er ekki siður þörf nú að
verkalýðshreyfingin haldi vöku
sinni.
DIODVIJJINN
Sigriður Skarphéðinsdóttir við opnun sýningarinnar íslensk föt ’76:
Fimmtudagur 9. september 1976.
Hérna væri engin sýning
ef ekki væri iðnverkafólk
100.000 KR.
VERÐLAUN!
í 3. miljónustu
fernunni af
JRDPICANA
eru 100.000
króna verðlaun.
Fékkst þú þér
JROPICANA
í morgun?