Þjóðviljinn - 12.09.1976, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. september 1976.
aOÐVIUINN
MÁLGAGN SÓSÍALISMA,
VERKALÝÐSHREYFINGAR
OG ÞJÓÐFRELSIS.
Útgefandi: útgáfufélag Þjóöviljans
Kratnkvæmdastjóri: Kiður Bergmann
Kitstjórar: Kjartan ólafsson
Svavar Gestsson
Kréttastjóri: Kinar Karl Haraldsson
Umsjón með sunnudagsblaði:
Arni Bergmann
Kitstjórn, afgreiðsla, auglýsingar:
5kólavörðust. 19. Sími 17500 (5 Hnur)
Prentun : Blaðaprent h.f.
ÞAÐ SEM MESTU SKIPTIR
Maó Tse Tung var einn forustumanna
kinverska kommúnistaflokksins, kin-
versks verkalýðs og bænda og kinversku
byltingarinnar. Þegar kommúnistar brut-
ust til valda i Kina fór óhugur um valda-
hópa auðvaldsrikjanna. Aratugum saman
reyndu þeir að berja höfðinu við steininn.
Þeir reyndu allar hugsanlegar leiðir til
þess að koma i veg fyrir að fólk á Vestur-
löndum og i þriðja heiminum fengi að vita
að nokkurt riki væri til sem héti Kinverska
alþýðulýðveldið. Þeir lögðu sig i fram-
króka um að sannfæra allan heiminn um
gamalmennið á Tævan, leppur banda-
rikjastjómar, væri ráðamaður alls Kina-
veldis. Kinverjar fengu ekki að eiga full-
trúa hjá Sameinuðu þjóðunum, þeir fengu
ekki að hafa stjómmálasamskipti á
„diplómatiskum” grundvelli við tugi rikja
þar sem rikisstjórnirnar játuðu hina
bandarisku trú. Svo langt gekk ofstækið að
bandariskum ráðamönnum kom til hugar
að fara með gereyðingarstrið gegn kin-
verjum.
í fyrstu voru kærleikar með kinverskum
og sovéskum ráðamönnum, en um 1960
þegar slitnaði upp úr þeim samskiptum
endanlega og fjandskapur hófst milli rikj-
anna sem staðið hefur látlaust siðan, tóku
bandarikjamenn að láta sér koma til hug-
ar að hefja samskipti við Kina. En það
voru þó aðeins mjög fáir bandarikjamenn
sem voru svo skynsamir — flestir reyndu
af fremsta megni að koma i veg fyrir að
nokkuð fréttist annað en illt frá kinversk-
um kommúnistum og stjóm þeirra. Um
siðir urðu staðreyndir þó ekki umflúnar og
eftir liðlega tuttugu ára „diplómatiskan”
hráskinnaleik hlaut Kinverska alþýðulýð-
veldið sjálfsagða viðurkenningu. Þá skip-
uðust veður i lofti. Strax og bandariska
áróðursvélin snéri við blaðinu hlýddu
málpipur hennar um allan heim. Og i
staðin fyrir skitkastið og andúðina á kin-
verjum („gula hættan”) og kinverska
kommúnistaflokknum kom takmarkalaus
aðdáun og sú persónudýrkun sem blöð
höfðu áður skopast að varð þeirra hlut-
skipti með næsta grátbroslegum hætti.
Þegar Mao Tse Tung er nú látinn verða
viðbrögðin einnig I gamla kaldastriðs-
stilnum i Washington jafnt og i Moskvu. I
Washington er gert sem minnst úr sósíal-
isma i Kina, — hið sama er gert i Moskvu.
í Washington byggist afstaðan eingöngu á
fáum þáttum utanrikisstefnunnar — hið
sama er uppi á teningnum í Moskvu.
Þannig malar kaldastriðskvörnin enn og
eftir situr almenningur áttavilltur, þvi þar
sem allt er ýmist litað i svörtu eða hvitu
eru engir millivegir færir þar er aldrei
unnt að leggja hlutlægt mat á menn, við-
burði eða sögulegt þróunarferli.
Sú staðreynd sem skiptir mestu máli um
Maó Tse Tung er sú að hann var einn for-
ustumanna kinverska kommúnistaflokks-
ins sem lagði auðvaldið að velli, færði tug-
miljónum kinverja mat, — ekki með mat-
gjöfum, eins og halda mætti af skrifum
borgarasnepla siðustu árin, heldur með
þvi að gera byltingu. Maó og bandamenn
hans leystu kinverskan verkalýð og bænd-
ur úr klóm spilltrar auðstéttar. Þeim tókst
að sameina miljónirnar vegna þess að
þeir höfðu þjóðfélagsgreiningu marxism-
ans að viðmiðun og þeir skildu grundvall-
areðli þjóðfélagsins sem þeir börðust i: „1
stéttaþjóðfélagi er hver maður i einhverri
stétt og sérhver hugsun ber undantekning-
arlaust mark einhverrar stéttar.” (Maó)
Ef menn reyna að ganga fram hjá þess-
um meginstaðreyndum um Maó Tse Tung
og starf hans eru þeir að reyna að falsa,
villa um fyrir almenningi. Og raunar er sú
mynd sem dregin hefur verið upp af Maó i
fjölmiðlum kaldastriðshyggjunnar eins og
skóladæmi um vondan áróður, þar sem
allt er ýmist svart eða hvitt, þar eru engir
millivegir, ekkert rými fyrir skynsemina.
Það sem mestu skiptir nú, að mati sósi-
alista, við dauða Maós er hversu til tekst
um framhaldið. Vissulega er Maó Tse
Tung eitt stærsta nafnið i stjórnmálasögu
þessarar aldar, en það sem öllu skiptir er
kinversk alþýða, sú framtið sem hún býr
sér á komandi árum. — s.
Er ástin
eiturlyf?
Margfrægt er úr bók-
menntum, fornum sem
nýjum/ að ást hafi valdið
fólki miklu hugarangri og
stundum beinlínis stórtjóni
á sál eða líkama. Má finna
á bókum ófá dæmi þess, að
menn hafi sprungið eöa
veslast upp af ástarharmi.
Og nú hafa reyndar kvatt
sér hljóðs tveir hjúskapar-
ráðunautar og halda því
blákalt fram að ástin geti
auðveldlega orðið álika
háskaleg og skæðustu eit-
urlyf.
Hjúskaparráðunautar þessir
tveir, sem gert hafa umrædda
sögulega uppgötvun, eru banda-
rikjamenn og heita Stanton Peele
og Archie Brodsky. Þeir taka til
dæmis einn ástarsjúkling, sem til
þeirra hafði leitað, þá orðinn for-
fallinn. Sjúklingur þessi var sjálf-
ur læknir og hafði reynt að eyða
úr sér einhverri andlegri
slæmsku með þvi að einbeita sér
að þvi að unna konu nokkurri og
takmarka jafnframt samskipti
sin við annað fólk. Þetta virðist
hafa gengið bærilega um skeið, en
svo skeði það, sem stundum vill
verða, að umrætt ástasamband
slitnaði. Og þá varö liðan aum-
ingja læknisins að sögn eitthvað
álika og dópista, sem dópið er
snögglega tekiö af. Hann hætti að
geta sofiö, fékk fyrir hjartað og
meira að segja vöðvakrampa.
Hann einangraði sig frá umheim-
inum og varð smámsaman sljór
og áhugalaus um hvaðeina. Segja
þeir Peele og Brodsky að ein-
kennin séu aö mörgu leyti svipuð
og hjá heróinsjúklingum, en eins
og kunnugt er telst heróin hættu-
legast og mest bráðdrepandi allra
eiturlyfja.
Skrifstofustarf
Rafveita Hafnarf jarðar óskar að ráða starfs-
kraft á skrifstofu. Áhersla lögð á vélritunar-
kunnáttu.
Laun eftir launaflokki B-7. Umsóknum skal
skilað fyrir 20. september til rafveitustjóra,
sem veitir nánari upplýsingar um starfið.
Rafveita Hafnarfjarðar.
VÍSINDI OG
SAMFÉLAG
Sem andstæðu ástarsykinnar
nefna þeir Peele og Brodsky það
sem þeir kalla „þroskaða ást.”
Mælikvarðinn á slika fyrirmynd-
arást er, segja þeir, að karl og
kona geti sofið saman með góöum
árangri, þótt svo að þau alveg
eins vildu sofa hjá einhverjum
öðrum.
Þetta allt um ástina er svo sem
ekki ný saga — en liklega er það
heldur nýtt af nálinni að þessari
„lifsins lind” sé likt við hættuleg-
ustu eiturlyf.
(Byggt á Der Spiegel)
„Ástin blind” hefur verið kölluð
„lifsins lind.” Nú er hinsvegar
komin fram sú hugmynd að hún
sé á við lifshættuleg eiturlyf!
Stærri og stærri
skammtar
Þeir Peele og Brodsky segja
ástina eiga það sammerkt með
heróini og öðrum eiturlyfjum að
sjúklingurinn þurfi alltaf stærri
og stærri skammta. Þetta standi
venjulega i sambandi við mis-
heppnun hans i sambandinu við
umheiminn, en af þeim sökum
leyti hann í stöðugt vaxandi mæli
hælis i ástinni.
„Sjúklingurinn” flýr sem sagt
heiminn á náðir ástarinnar. Hann
hugsar gjarnan sem svo: „Heim-
urinn er vissulega kaldur og and-
styggilegur. En ég á þó alltaf kon-
una mina að.”
Ástarsjúklingurinn, segja þeir
tvimenningar, verður smátt og
smátt, likt og eiturlyfjasjúkling-
urinn, áhugalaus um allt annað
en ástina sina. Þar af leiðandi
gerist hann metnaöarlaus og
hirðulitill I starfi. Og likt og eitur-
lyfjasjúklingurinn gerir hann um
siðir hvað sem er til að fá
„sprautu” frá þeim elskaða.
Eru frumburðir
metnaðargjarnir?
Meðal tiðinda af sál-
fræðingum má nefna, að
þeir telja sig komast að
þvi, að fleiri frumburðir
séu meðal forseta, vís-
indamanna og t.d. fata-
fellna en eðlilegt mætti
teljast eftir hlutlöllum.
Ban'dariskir visindamenn hafa
rannsakað áhrif systkinahópsins
á sálræna þróun og komist að
þessari niðurstöðu. Til dæmis er
tekið, að átta af niu bandarikja-
forsetum sem kosnir voru á
hættutimum voru frumburðir
hver i sinni fjölskyldu. Sálfræð-
ingarnir segja, aðfrumburðir séu
alla æfi undir miklum þrýstingi i
þá veru að þeirsýni af sér einhver
afrek, vegna þess að þegar i
bernsku séu þeir i þeirri hættu að
yngri systkini „steypi þeim af
stóli” innan fjölskyldunnar. Af-
leiðingin er sú að þeir eru allar
götur á höttum eftir virðingu og
lófataki. Og fatafellur, sem eru
frumburðir, hafa sömu tilhneig-
ingar og stjórnmálamenn, að
festa sig I sessi með góðum undir-
tektum.