Þjóðviljinn - 12.09.1976, Page 6
6 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 12. september 1976.
Kjartan Ólafsson
Er ekki ránfuglsmerkið stolt Sjálfstæðisflokksins?
Sjálfstæði þjóðar
og siðrænar varnir
Meðal þess sem sett hefur svip
á pólitiska umræðu okkar is-
lendinga á því sumri, sem nú er
tekið að halla, eru annars vegar
hin margvislegu glæpamál og
vanmáttur dómsmálakerfis, og
hins vegar hugmyndirnar um það
að gera dvöl erlends hers i landi
okkar að stórkostlegri gróöalind
með þvi að selja landið á leigu
fyrir ærið fé til hernaöarumsvifa.
Við skulum hér lfta nokkuö á
þessi mál bæði og ihuga tengslin,
sem þarna eru á milli.
Allt eru það auðgunaraf-
brot „athafnamanna"
Svo er að sjá sem margur
maðurinn hafi vaknað við vondan
draum við að heyra um alla þá
röð fjársvikamála og hvers kyns
auðgunarafbrot, sem dregin hafa
verið fram i dagsljósið að undan-
förnu, ekki sist þar sem morð-
alda hefur fylgt i kjölfarið.
Ekki fer milli mála að siðferði-
leg upplausn hefur færst nær og
nær i þjóðfélagi okkar upp á sið-
kastið og þeim fjölgar sem
einskis svifast i þvi skyni að kom-
ast yfir æ meira fjármagn a
kostnað hinna, sem heiðarlegir
eru að minna mega sin.
Með þeirra glæpamála, sem
uppvist hefur orðið um að meira
eða minna leyti aö undanförnu
eru:
1) Meiriháttar ávisanasvik
samsærishóps, sem svikið hefur
háar upphæðir út úr banka-
kerfinu, 2) Alvarleg gjaldeyris-
svik i sambandi við innflutnings-
starfssemi (t.d. Grjótjötunsmál-
ið), 3) Hrikaleg fjársvik og bók-
haldssvindl i tengslum við rekst-
ur skemmtistaða (Klúbbmálið)
4) Margháttuð smyglmál
varðandi áfengi og eiturlyf sem
erfitt reynist að upplýsa i hvaöa
tengslum kunna að vera við aðra
fjárplógsstarfsemi og glæpi. 5)
Siðast en ekki sist heyrir þessari
upptalningu til, að hér hafa borið
að höndum morð á morð ofan, i
röð, sem enginn veit reyndar
hversu löng kann aö vera orðin nú
þegar.
Auk alls þessa blasir við sjón-
um okkar ljósar en oftast áður
siðlaus auðgunarstarfsemi i
skjóli svivirðilegra skattalaga og
hóflaus söfnun verðbólgugróða,
þar sem forréttindahópar, þjóð-
félagsins hlaða upp stóreignum út
á söfnun skulda, sem verðbólgan
siðan sér um að eyða, — en eignin
stendur eftir og hækkar I verði. 1
þessum efnum eru „rétt sam-
bönd” i bönkum og lánastofnun-
um að sjálfsögðu mikilvægust.
Margvisleg auðgunarstarf-
semi, lögmæt og ólögmæt, sem
hér hefur verið rifjuö upp og i
ýmsum tilvikum tengist alvarleg-
ustu glæpum, henni er ekki haldið
uppi af örvilnuðum brotamönn-
um, sem góðborgarar flokka
undir dreggjar þjóðfélagsins.
Nei, sú siðlausa fjárplógsstarf-
semi sem islenskur almenningur
hefur að undanförnu verið að
gera sér vaxandi grein fyrir, — sú
starfsemi er fyrst og fremst iökuð
af svokölluðum „athafnamönn-
um”, marglofuðum merkisberum
hins frjálsa framtaks.
Siðalögmál gróðahyggj- -
unnar og boðberar þess
Hvert stefnir islenskt þjóð-
félag? bað er sú spurning, sem æ
oftar heyrist borin fram á siöustu
mánuðum og árum. Eitt er vist,
— mein gróðaspillingarinnar hef-
ur náð að höggva nærri sjálfum
innviðum þjóðfélags okkar, — og
meinið sýkir út frá sér svo við
rotnun liggur hér og þar. Takist
ekki að spyrna viö fótum i tima
blasir siðferðileg upplausn við,
upplausn sem á skömmum tima
mun leiða land okkar og fólk beint
i gin alþjóðlegs auðhringavalds.
Sterk stjórnmálaöfl á íslandi
hafa lengi boðaö það siöalögmál,
að hverjum manni sé rétt og skylt
að troðast áfram i samkeppninni
um gróða og meiri gróða aö öllum
löglegum leiöum og þessi sömu
stjórnmálaöfl hafa fengið þvi ráð-
ið, aö lög landsins tryggja ,,at-
hafnamönnunum” býsna viötækt
sivgrúm i þessu skyni.
Hlutafélagiö er eitt i dag,annað
á morgun, en dansinn dunar
áfram og hjólið snýst. Af-
skriftirnar færa mönnum nokkra
togara, sem hreinan eignaauka á
fáum árum, þrátt fyrir „tap-
rekstur”, og með góðum sam-
böndum i lánastofnunum hlaðast
fasteignirnar upp, þótt aldrei seu
fyrir hendi þær lágmarkstekjur
sem hægt sé að krefja af tekju-
skatt.
Kerfið er fullkomiega pottþétt,
og má heita sjálfvirkt, ef menn
bara eru á „réttri braut” og
draga ekki af sér i kapphlaupinu
um gróðann samkvæmt siðalög-
máli boðbera hins „frjálsa fram-
taks”.
Og þarf svo nokkur að vera
hissa á þvi, þótt þeim fari fjölg-
andi, sem ekki láta litilfjörlegan
lagamúr hindra sig i gripdeildun-
um, þegar þeir á annað borö eru
komnir á fullan skrið?
Er ekki ránfuglsmerkið
stolt Sjálfstæðisflokksins?
Eða tóku menn eftir hæsta-
réttarlögmanninum alkunna sem
ritaði grein i annað siðdegisblað-
anna fyrir stuttu og játaði þar á
sig að hafa greitt manni 1,2
miljónir króna fyrir um það bii
ári siðan með innstæðulausum
ávisunum, og kvaðst að visu telja
þetta leitt en sá að öðru leyti ekk-
ert athugavert við aö flika þessu
athæfi sinu. Auövitað heldur
maðurinn áfram störfum hæsta-
réttarlögmanns, þótt hann játi
siik fjársvik á sig opinberlega.
Liklegra er hitt að hann verði á
morgun gerður aö lagaprófessor
eöa hæstaréttardómara.
„Vissulega fer best á þvi að
einstaklingurinn geti notið at-
hafnafrelsis i sem rikustum
mæli”, segir i forystugrein eins af
málgögnum Sjálfstæðisflokksins i
vikunni sem leið, — og þar er bætt
við: „Krafan um aukið félagslegt
vald yfir borgurunum fær ekki
staöist i okkar samfélagi”!! —
Nei, vist ekki. Eða er ekki rán-
fuglsmerkið stolt Sjálfstæðis-
flokksins?
Eigum við að selja heims-
friðnum aðgang?
Og nú skulum við bera fram
nýja spurningu. Skyldi vera eitt-
hvert samhengi milli þeirra
margvislegu auðgunarafbrota og
fjárplógsstarfsemi, sem sett
hefur svip á pólitiska umræðu að
undanförnu annars vegar og hug-
myndarinnar um að selja landið á
leigu undir erlend hernaðarum-
svif hins vegar, — máske hæst-
bjóðanda fyrir toppverð? Tæp-
lega þarf lengi að leita til að finna
þetta samhengi.
Samkvæmt siöalögmáli einka-
gróðans er allt falt fyrir peninga
og samkvæmt þvi lögmáli verður
heldur ekkert af hendi iátið nema
fyrir peninga.
Einu sinni skiptust íslendingar i
tvo hópa varðandi afstöðuna til
dvalar bandarikjahers i landi
okkar, þá sem töldu hann vera
hér til verndar hreimsfriðnum,
frelsinu, og lýöræðinu i veröld-
inni, og vildu þess vegna hafa
hann, og svo okkur hina, sem
töldum þennan her hvorki erind-
reka né verndara friðar, frelsis
eða lýöræðis, og vildum þess
vegna aö hann færi.
Nú hafa margir hins vegar
komist að þeirri niðurstöðu, að
annað hvort sé sjálfsagt að selja
vænar sneiðar af gamla Fróni
hæstbjóðanda undir hernaðarum-
svif erlendra stórvelda og fá bara
i staöinn sem mest af dollurum,
rúblum eða pundum, svo hægt sé
um sinn að striðala þá þjóð, sem
blind leiðir sjálfa sig til slátrunar,
— ellegar hitt, að menn telja sig
enn sem fyrr málsvara „vestræns
lýðræðis og frelsis”, en strengja
þess þó heit, opinberlega, að blóð-
mjólka þessi goð i eiginhags-
munaskyni, meðan aðrir falla
með vopn i hönd fyrir frelsis dýrð
og hugsjón lýðræðisins.
Eitt er vist, — hér hefur siðleys-
ið náð þvi hámarki, sem ekki
verður auðveldlega yfirstigið.
Allt á eina bók lært
Það eru siðlaus lögmál auð-
hyggjunnar, sem eru undirrótin
að þeirri flóðbylgju auðgunaraf-
brota, fjárplógsstarfsemi og
margvislegra glæpa, sem tröll-
riða þjóðfélagi okkar um þessar
mundir.
Þaö eru þessi sömu siðalögmál
einkagróöans, sem nú, einmitt
nú, knýja fram i dagsljósið
kröfuna um að landið verði selt.
Hér er allt á eina bók lært, — af
einni og sömu rót. Undantekning-
ar finnast frá ölium reglum, en
þvi skal slegið föstu, aö sá sem
vill gera ættjöröina að söluvöru á
striðsmarkaði, hann er ekki lik-
legur til að duga i baráttu gegn
þeim peningavörgum viðskipta-
lifs og mafíustarfsemi, sem nú
naga rætur gamals lifstrés, sem
hér hefur staðið i 1100 ár.
Og hinn, sem fullmótaður er af
siöalögmálum auðhyggjunnar, á
sér gróða og meiri gróða að helsta
leiðarljósi i lifi og starfi, — hvi
skyldi hann svo sem ekki selja
bæði Grimsey og Reykjanes sé
gull i boði.
Tuttugu og fimm ár eru nú liðin
siðan bandariskur her steig hér á
land öðru sinni. Þá datt vist fáum
i hug að litlu skipti um erindið, —
hitt væri ráð að selja „heims-
friðnum”, aðgang ef enginn biði
betur. Siðan þá hefur margur orð-
ið af aurum api á landi hér.
Hvaö mó nú til varnar
verða vorum sóma?
Og nú er mál að stinga við fæti
og staldra við.
Ýmsir tala hátt um siðferðilega
upplausn i islensku þjóðfélagi, og
vist má slikt til sanns vegar færa.
Engin ástæða er þó til örvænting-
ar, ef mannlega er snúist á móti.
Menn verða einfaldlega að gera
sér ljóst, að þau siðræn verðmæti
sem máli skipta, verða ekki varin
né treyst án skilnings á pólitisku
samhengi.
Auðsöfnun fárra einstaklinga
langt umfram það, sem eitt þjóð-
félag getur boðið þegnum sinum
almennt er i sjálfu sér siðlaust at-
hæfi, hvað sem lagagreinum lið-
ur. Gildir það jafnt i okkar þjóð-
félagi sem öðrum, og jafnt i for-
tið, nútið sem framtið.
Gegn fjárplógsstarfsemi og
gróðaspillingu duga hins vegar
ekki predikanir, ekki orö ein,
heldur aðeins pólitiskar aðgeröir,
pólitiskt vald.
Hér ber brýna nauðsyn til, að
setja hvers kyns auösöfnun og
fjárplógsssstarfemi mun
strangari lagaskorður en fyrir
hendi eru.
Refsingar fyrir minniháttar
innbrot og smáþjófnaði unglinga
og ræfla sem vart eiga fyrir næstu
máltið ber að afnema. Slika þarf
aðeins að ala svolitið betur upp,
eða tryggja sjúkrahúsvist.
Refsingar fyrir margvisleg
auðgunarafbrot, sem fyrst og
fremst eru framin af kaldrifjuð-
um fésýslumönnum, sem hlaða
gróða á gróða ofan, — slikar refs-
ingar ber hins vegar allar að
þyngja mjög verulega, án dauða-
refsingar þó. Og tryggja verður
að dómstólar séu færir um að
gegna sinu hlutverki.
Ekki dugar bæn, heldur
bardagi
Svo þetta megi takast þurfa
pólitiskir boðberar auðhyggj-
unnar að setja ofan og vald þeirra
i þjóðfélaginu að minnka veru-
lega. An slikra pólitiskra breyt-
inga er ekki mikil von til þess að
takast megi að hreinsa út úr
verstu bælunum og fyrirbyggja
myndun nýrra.
Verkalýðshreyfingin og banda-
menn hennar þurfa að treysta af
kappi sina eigin innviði og
tryggja i hvivetna að eitrun
gróðaspillingarinnar i þjóðfélag-
inu nái ekki að sýkja raðirnar.
Skilin milii braskaralýðsins og
verkalýðshreyfingar, sem berst á
grundvelli jafnréttishugsjóna
sósialismans, þurfa að vera skýr
og ljós.
Von okkar hlýtur að vera sú að
islensk verkalýðshreyfing beri
gæfu til að taka upp nú þegar al-
hliða pólitiska sókn i samvinnu
við þau þjóðfélagsöfl, sem viö hlið
hennar vilja standa.
Alhliða pólitiska sókn, sem miöi
að þvi að hefja siðalögmál jafn-
réttishugsjónarinnar til vegs i
islensku þjóðfélagi gegn siðalög-
málum auðhyggjunnar.
Aihliða pólitiska sókn, sem miði
að þvi aö ryðja braskaralýðnum
og póiitiskum verndurum hans úr
öndvegi, en styrkja rétt og mátt
vinnandi alþýðu að sama skapi.
Þannig, og aðeins þannig, má
takast aö kalla fram þá hreinsun i
okkar þjóðfélagi, sem svo mjög er
aökallandi orðin.
Þær siðrænu varnir, sem hér
þarf að treysta svo að sjálfstæði
þjóðarinnar fái staðist, snerta
hvorki kirkjugöngur né hjú-
skaparmál, heldur er annað og
meira i þvi efni. Hér dugar ekki
bæn, heldur skelegg barátta gegn
pólitiskum ábyrgðarmönnum sið-
lausrar auögunarstarfsemi.