Þjóðviljinn - 12.09.1976, Qupperneq 13
Sunnudagur 12. september 1976. ÞJÓÐVILJINN — StDA 13
RÖDD FÓLKSINS
við vinstri hreyfingum stúdenta
og verkamannaiBandarikjunum,
hvermg sjónvarpið með túlkun
sinni beinir atburðum jafnvel i
nýjan farveg. Vinstri menn sjálfir
eru svoháðir sjónvarpinu, að þeir
láta meira eða minna brenglaða
mynd þess hafa áhrif á sig, þvi
sjónvarpið er mynd þjóðarinnar
af veruleikanum. Jafnvel þátt-
takendur i mótmælaaðgerðum
hlaupa heim til sin i miðjum
aðgerðum til þess að sjá hvort
aðgerðirnar séu i fréttum sjón-
varpsins og hafi þvi gerst i raun
og veru. En i sjónvarpinu eru
hlutirnir lagðir út á ýmsan veg,
sem hentar viðkomandi fjár-
málaklikum, og svo dæmi sé
nefnt er mjög vinsælt að tengja
vinstri menn við ýmiskonar
ofbeldisfélög og sprengimeistara.
t lok athugasemda sinna segir
höfundur: Byltingasinnuð
Framhald á bls. 18.
í „Kenningum um útvarp” frá
þriðja áratugnum gagnrýnir
Brecht þýska útvarpið fyrir að
kunna ekki að notfæra sér hina
nýju útvarpstækni. Ráðamenn
þess — dyggir stuðningsmenn
kapitalismans — tali sifellt um
nýja tæknilega möguleika en noti
þá aðeins til þess að endurflytja
eitthvað, sem þegar hefur verið
skapað og þurfti ekki útvarps- eða
upptökutækni til, t.d. upptökur á
leikritum leikhúsa, tónleikum
o.s.frv. Hins vegar sé enginn
áhugi á þvi að skapa verk fyrir
hinn nýja fjölmiðil — verk, sem
hann hentaði sérstaklega fyrir og
ekki sé hægt að skapa né flytja
annarsstaðar.
Ekki er laust við að gagnrýni
Brechts eigi við enn i dag um
útvarp svo ekki sé minst á upp-
finningu sem Brecht hafði þá ekki
fengið fregnir af — sjónvarpið.
Sé farið i gegnum dagskrá
islenska sjónvarpsins til dæmis
um nokkurt timabil, kemur i ljós
að meginhluti dagskrárinnar er
einmitt upptökur á efni, sem ekki
er gert sérstaklega fyrir sjónvarp
og nyti sin betur annarsstaðar.
Notkunin á sjónvarpstækninni er
aðallega fólgin i þvi aö flytja ein-
hverskonar skugga af þvi sem er
að gerast úti i bæ inn á heimilin.
Að þröngur fjárhagur eða tima-
leysi sé meginorsökin fyrir
þessari stefnu i þáttagerð er ekki
allur sannleikurinn, þvi aðferðin
losar sjónvarpsstöðina við þá
áhættu að flytja óvart nýjar,
ferskar eða róttækar hugmyndir,
sem slæðst gætumeð frumsömdu
efni. Þessari stefnu er fylgt eftir
með þvi að hafa fáa yfirhlaðna
stjórnendur sem fyrr eða siðar
neyöast til að velja auðveldustu
leiðina — aö gera einfalda
upptöku á hinu og þessu úti i bæ
fremur en aö semja efni sérstak-
lega fyrir sjónvarp. Auk þessarar
vinnuaðferðar læra stjórnendur
þátta smám saman að fara aldrei
yfir hin borgaralegu mörk hvað
varðar hugmyndalegt og siðrænt
innihald þáttanna. Afleiðinguna
þekkja allir — skemmtiefni, sem
hlátur fylgir oftast með til
öryggis, og sérlega leiðigjarnt og
yfirdrepsfullt jómfrúarblaður um
einstök vandamál út úr sam-
hengi.
En vandamálið er ekki það, að
sjónvarpsstöð (eða aðrir fjöl-
miðlar) sé leiðinleg. Hvernig geta
fjölmiðlar verið annað en leiðin-
legir, þegar meginhlutverk
þeirra er að reka áróður fyrir
kapitalista (flokkskliku,
máttugan eriendan bandamann
o.s.frv.) og beina athygii alþýðu
manna frá þeim hlutum sem máli
skipta. Vanamáliö er það, að fjöl-
miðlarnir (þar með taldir rikis-
fjölmiðlarnir) reyna ekki aðeins
að sljóvga alþýðu manna og halda
henni i einangrun og fávisku,
heldur einnig að loka dyrunum
fyrir þvi fólki, sem hefur áhuga á
að gera þá að raunverulegum
boðskiptastofnunum.
Grein Brechts, sem minnst var
á, er birt i bókinni „Rödd
fólksins,” (Folkets röst —
Offentlig adgang til massemed-
ierne) undir ritstjórn Erik
Thygesen. Mig langar til að rekja
lauslega sumt af þvi, sem þar er
að finna, islenskum lesendum til
fróðleiks. t bókinni er safn greina
um viðleitni til lýðræðislegrar
fjölmiðlunar i ýmsum löndum.
Undirtónn hennar er sá að með
þvi að gera hverjum og einum
kleift að framleiða efni fyrir
útvarp og sjónvarp hafi ný
upptökutækni nú þegar og eigi
eftir að auka lýðræði i fjöl-
miðlum.
Gamla röksemdin, að tækin séu
of þung til þess að fara með þau út
úr stúdióinu og of flókin til þess að
venjulegt fólk geti notað þau er að
visu úrelt orðin, en þyngsti róður-
inn er samt eftir sem áður sá að
fá efni framleitt af fólki, sem
hefur eitthvað til málanna að
leggja, birt i fjölmiðlunum. Það
er ekki nóg að hægt sé að fram-
leiða efnið, ef það á siðan að
liggja ónotað á böndum eða filmu
heima hjá höfundunum.
t inngangi rekur ritstjórinn
fortið sina sem fjölmiðlara. Hann
var dagskrármaður við Danska
utvarpið um tveggja mánaða
skeið. Vangaveltur hans um það
Uvernig hægt væri að vinna við
rikisfjölmiðla án þess að gera
málamiðlanir og án þess að verða
þátttakándi i hugmyndafræði-
legri bælingu leiddu til sálar-
kreppu. Að flýja inn í sjálfan sig
sem svo margir blaðamenn og
útvarpsmenn hafa gert þótti
honum ekki eftirsóknarverð lausn
og sagði þvi starfi sinu lausu. En
eftir brottför hans frá útvarpinu
hélt hann samt áfram að vinna
útvarpsþætti i samvinnu við
ýmsa hópa, sem höfðu áhuga á að
koma málefnum sinum á fram-
færi. Hlutverk hans var ritstjórn
og tæknileg ráðgjöf, en fólkið
sjálft vann efnið og setti fram
sinar skoðanir. Erfiðasta vanda-
málið við þessa vinnu var ótti
verkafólksins við yfirboðara sina.
Ef það vogaði sér að hafa skoðun
á vinnunni eða vinnustaðnum,
þar sem það dvaldist meirihiuta
ævinnar, gat það átt von á
refsingum eða uppsögnum. Siðar
starfaði hann við „Hljóðsmiðju”
Danska sjónvarpsins (Baand-
værksted),sem er opið öllum sem
hafa áhuga á að búa til útvarps-
þætti, en smiðjan er einmitt liður
i viðleitni til að opna útvarpið
fyrir almenning.
Svo enn sé vitnað til greinar
Brechts: Það þarf aö breyta út-
varpinu úr boðsenditæki i
boðskiptatæki. Útvarpið gæti
orðið stórkostlegasta tæki til
mannlegra samskipta, sem hægt
er að hugsa sér, ef það gæti ekki
aðeins sent út heldur einnig tekið
á móti — þ.e.a.s. fengið hlustand-
ann ekki aðeins til að hlusta
heldur lika tala og einangra hann
ekki heldur setja hann i tengsl við
samfélagið.
„16 athugasemdir um sjónvarp
og vinstri hreyfingu” eftir Todd
Gitlin tekur til athugunar
hvernig fjallað er um vinstri
menn i sjónvarpi i Bandarikj-
unum og afstöðu vinstri manna til
sjónvarpsins. Höfundur lýsir þvi,
hvernig sjónvarpið virkar eins og
róandi sprauta á hræringar i
þjóðfélaginu og hleypir gufunni af
katlinum svo ekki sjóði uppúr
með þvi að þreifa á ýmsum
málum, jafnvel hneykslismálum
á hæsta valdstigi, sem frægt er
orðið. Hann lýsir hvernig hið
bandariska „alþjóðlega” fjöl-
miðlaefni tröllriður öllum heim-
inum og gerir þjóðlegri (svo ekki
sé talað um byltingasinnaðri)
framleiðslu erfitt fyrir.Hann íýsir
nokkrum mikilvægum eigin-
leikum sjónvarpsins, þ.e.a.s.
hvernig það fer með veruleikann
almennt.Siðan rekur hann nokkur
dæmi um viðbrögð sjónvarpsins
LITRÍK OG HAGKVAM HEIMILISSAMSTÆÐA® FYRIR VIÐRÁÐANLEGT VERÐ
now
HÚSGAGNAVERZLUN
KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Laugavcgi IJ Kcykjavik sínii 25870
llla staddur er maður, sem hefur eitthvað að segja
en enga áheyrendur. En ver er á komið fyrir hlust-
anda, sem finnur engan sem hefur honum neitt að
se9Ía* (Bertolt Brecht)
skélaritvélar
G-óð skólaritvél er bezta
tryggingin fyrir góðum
árangri í vélritun.
Góð skólaritvél er hagnýt
eign, sem endist í fjölda
ára.
ROYAL skólaritvélar eru
vélar í háum gæðaflokki.
Tveggja ára ábyrgð fylgir
öllum ROYAL skólaritvélum.
GÍSLI J JOHNSEN HF
Vesturgata 45 Reykjovik
Simi 27477