Þjóðviljinn - 16.09.1976, Side 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. september 1976.
Evrópukeppni bikarmeistara 1976:
Keflvíkingar nær
látlaust í vörn
gegn Hamburg SV
en þjóðverjarnir skoruðu þrisvar sinnum framhjá
Þorsteini Ólafssyni og sigruðu 3:0
Kef Ivikmgar þurftu
þrisvar sinnum að sækja
knöttinn í eigið mark þegar
þeir léku gegn þýska liðinu
Hamburg SV í gærkvöldi. I
leikhléi var staðan 2-0 eftir
tvö mörk heimamanna
strax í upphafi/ og þeir
bættu svo þriðja markinu
við undir lok síðari hálf-
leiks. Allan leikinn voru
þýsku atvinnumennirnir
eðlilega mun betri, studdir
af um tuttugu þúsund
áhorfendum en kef Iviking-
um tókst vel upp í varnar-
leiknum og fengu á sig
„aðeins" þrjú mörk.
íslendingarnir áttu þó sin tæki-
færi i þessum leik lika. Undir lok
fyrri hálfleiks komst Einar
Gunnarsson inn fyrir varnar-
menn Hamburg SV og var
brugðið illilega innan vitateigs
þar sem hann stóð i opnu færi.
Mörgum þótti vitaspyrnulykt af
verknaðinum, en dómarinn var á
annarri skoöun og gerði engar at-
hugasemdir.
„Stuðmenn” Vals þinga
Stuðningsmenn Vals hafa i
sumar margsinnis og oftar en
nokkrir aörir getað hrósað sigri
og eru að sjálfsögðu yfir sig hrifn-
ir yfir frammistöðu sinna manna
I sumar. Nú hafa þeir ákveðið að
stofna formleg samtök og frá
þeim barst i gær eftirfarandi til-
kynning:
„Vegna góörar aðsóknar á
knattspyrnuleiki Vals i sumar
hafa stuðningsmenn Vals ákveðið
að stofna með sér klúbb. Mark-
mið þessa klúbbs verður að safna
stuðningsmönnum Vals saman á
Valsleikjum heima og að heiman.
Fyrirhugaður er stofnfundur
fimmtudaginn 16.9. kl. 20 i félags-
heimili Vals að Hliðarenda.
ALLIR VELKOMNIR!
Þeir sem ekki komast á fundinn
en hafa áhuga á að gerast félag-
ar, vinsamlega tilkynni þátttöku I
sima 11134.
Undirbúningsnefnd."
Reykjanesmótið í handknattleik hefst á sunnudag:
Yfir 9 hundruð þátt-
takendur í 66 liðum
og öll hús á Reykjanessvæðinu verða notuð
Þaö veröa hvorki meira
né minna en rúmlega níu
hundruð þátttakendur í
Reykjanesmótinu í hand-
knattleik sem hefst nk.
sunnudag. Samtals taka
sextíu og sex liö þátt i mót-
inu og verður keppt í sex
karlaflokkum og þremur
kvennaf lokkum. Vart þarf
að taka það fram að öll
íþróttahús í umdæminu
verða notuð undir þessa
fjölmennu keppni.
1 meistaraflokki karla taka niu
lið þátt, og er þeim skipt i A-og B-
riðil. Ákveðið var að ljúka öllum
riðlaleikjunum af á aðeins tveim-
ur sunnudögum, og litur hin
stranga dagskrá meistaraflokks
þannig út:
A-riðili B-riðill
FH Haukar
UMFN Grótta
Afturelding ÍBK
UBK Stiánan
HK
Sunnudaginn 19. septem-
ber leika eftirtalinn lið
saman:
kl. 11.00 FH - UMFN
kl. 12.15 Haukar — Grótta.
kl. 13.30 Afturelding — UBK
kl. 14.45 HK — FH
kl. 16.00 UMFN — UBK
kl. 17.15 Stjarnan — Haukar
Sunnudaginn 26. septem-
ber leika eftirtalin lið
saman:
kl. 11.00 UMFN - HK
kl. 12.15 Grótta — Stjarnan
kl. 13.30 Afturelding — FH
kl. 14.45 IBK — Stjarnan
kl. 14.45 IBK — Haukar
kl. 16.00 UBK — HK
kl. 17.15 Afturelding — UMFN
kl. 18.30 Grótta — IBK
kl. 19.45 FH — UBK
Úrslitaleikir riölanna verða til-
kynntir siöar, en þeir fara fram 1
Hafnarfiröi.
Þorsteinn Ólafsson haföi kappnóg aö gera I gærkvöldi og rúmlega þaö.
Þjóöverjarnir sóttu nær látiaust, enda léku keflvikingar varnarleik,
þótt þeir fengju á sig þrjú mörk.
Skömmu siöar dæmdi hann
siðan aukaspyrnu rétt fyrir utan
vitateig þjóðverjanna. Ólafur
Júliusson lyfti boltanum inn að
markteig og þar var Guðni
Kjartansson fyrir og skallaði rétt
yfir þverslá.
Er á leið siðari hálfleikinn juku
keflvikingar nokkuð sóknarleik
sinn og tvivegis komust þeir Jón
Ólafur og Steinar i góð færi sem
ekki nýttust þó. Þjóðverjarnir
skoruðu hins vegar sitt þriðja
mark á 32. min. seinni hálfleiks
og sigruðu þvi af miklu öryggi
eins og við var búist.
Þar með er séð fyrir endann á
áframhaldandi þátttöku IBK i
Evrópukeppninni aö sinni, þvi
telja verður harla óiiklegt að kefl-
vikingum takist að sigra þjóð-
verja með fjögurra marka mun
hér heima I lok september, er
siðari leikurinn fer fram.
Þetta er i sjöunda sinn i röð sem
IBK tekur þátt i Evrópukeppni og
15. leikur liðsins. Sannarlega frá-
bær frammistaða a-tarna.og á þó
enginn meira hrós skilið heldur
en Jón Ólafur Jónsson, sem hefur
leikið með i hvert einasta sinn!!!
Hann tók þátt i leiknum I gær-
kvöldi og skilaði sinu hlutverki
með prýði að vanda.
—gsp
Leikmenn Gróttu sluppu frá falli i 2. deild á eileftu stundu I fyrra og
fagna hér inniiega þegar þeir guiltryggöu stööu slna 11. deildinni. Þeir
eru á meöal þátttakenda I Reykjanesmótinu.