Þjóðviljinn - 16.09.1976, Blaðsíða 12
12 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 16. september 1976.
Færeyski rithöfundurinn
HEÐIN BRÚ
heldur fyrirlestur:
Det nationale arbejde pá Fœröerne
i Norræna húsinu i kvöld, 16. sept. kl.
20.30.
Verið velkomin.
NORRÆNA
HUSIÐ
F ræðsluskrif stof a
Reykjavíkur
Lifskjör I suburhluta Nigeriu hafa batnab, segir i Fiskimálum. Þar seist norsk skreib á um 1700 krónur
kilóiö. Kortiö er af Nigeriu
óskar eftir að ráða umsjónarmenn til
starfa i skólum borgarinnar. Laun skv.
kjarasamningi borgarstarfsmanna.
Umsóknum skal skila til fræðsluskrifstofu
Reykjavikur, Tjarnargötu 12, fyrir 25.
sept. n.k.
Vegna jarðarfarar
Ásgeirs Magnússonar, framkvæmda-
stjóra, verður skrifstofan lokuð á morgun,
föstudaginn 17. september 1976.
islenska járnblendifélagið hf.
Almennur umræðufundur um
Upplýsingaskyldu
stjórnvalda
verður haldinn á HÓTEL ESJU laugar-
daginn 18. september, klukkan 2 eftir
hádegi.
Auk frummælandans, Baldurs Möllers,
ráðuneytisstjóra, munu ritstjórar dag-
blaðanna og fulltrúi frá Rikisútvarpinu
flytja stuttar ræður.
Frjálsar umræður á eftir.
Allir velkomnir.
íslensk Réttarvernd
Skrifstofuþjálfun
Mímis
Starfsþjálfun fyrir fulloröna.
1. Vélritun 2. Stafsetning 3. Bókfærsla 4.
Reiknivélar 5. Afgreiðsia tollskjala og verðút-
reikningar 6. Bankaviðskipti 7. Póstur og sími
8. Lög og formálar 9. Kynning á skrifstof uvél-
um 10. Almenn skrifstof ustörf 11. Verslunar-
enska 12. Enska og íslensk bréfritun.
24 -vikna námskeið. Morguntímar — síðdegis-
tímar. Pitmans-próf. Takmarkaður fjöldi
nemenda.
Mímir — Brautarholti 4
sími 11109 og 10004 (kl. 1-7 e.h.)
-
Stóraukin skreiðar-
verkun íNoregi
á þessu ári
Orðugleikar á útflutningi
norskrar skreiðar til JSígeríu
Fyrir nokkru birti Morgunblað-
ið þá fregn að tvö norsk skip hefðu
snúið heim til Noregs frá Nigeriu
hlaðin skreið, þar sem stjórnin
þar hefði bannað uppskipun á
skreiðinni. 1 norska blaðinu Fisk-
aren frá 19. ágúst er talað um til-
raun til þvingana af hendi rikis-
stjórnar Nigeriu til að fá lækkað
verð á innfluttri skreið þangað.
En rikisstjórnin greip þá til þess
ráðs að banna uppskipun á
norskri skreið sem komin var til
Nigeriu. Þegar þetta gerðist lágu
mörg skip hlaðin skreið I höfnum
Nigeriu. öll hefði þessi skreið
verið greidd að fullu áður en
henni var skipað um borö i Noregi
og af þeirri ástæðu kom þetta
uppskipunarbann mjög á óvart.
Þegar þessi óvænta truflun kom á
skreiðarinnflutninginn tii Nigeriu
þá höfðu norðmenn selt þangað
skreið fyrir 140 milj.kr. norskra,
eða um 4.620 milj. isl. kr. sem
borgað hafði verið að fullu inn i
norska banka.
1700 kr. kílóíð
Eftir þvi sem haft er eftir erind-
reka norska útflutningsráðsins i
Nigeriu Arnold Lang, segir hann
að stjórnvöld i Nigeriu telji að
norskir skreiðarútflytjendur hirði
i sinn hlut of mikinn gróða af
skreiðarsölunni og vilji þeir fá
stærri hluta þessa hagnaðar yfir á
hendur nigeriumanna. Hinsvegar
telur hann að lækkað skreiðar-
verð mundi engin áhrif hafa á
skreiðarverð til neytenda, enda
er engin verðlagslöggjöf til i land-
inu. 1 ágústmánuði var verð á
skreið til neytenda i Nigeríu 50-55
n.kr. fyrir kílóið, eða 1650 til 1715
kr. islenskar. Skreiðarmarkaður-
inn I Nigeriu hefur venjulega
. tekið við um 60% af norskri
skreiðarframleiðslu og er þvi
mjög mikilvægur fyrir norskan
skreiðarútflutning. Það sama má
segja um útflutning á skreið héð-
an. Þegar Fiskaren birtir frétt-
ina um uppskipunarbanniö i
Nigeriu þá hefur norskt útflutn-
ingsráð ekki myndað sér neina
skoðun um framvindu þessa
máls, hver hún geti orðið, en er-
indreki þeirra i Nígeriu segir, að
áður hafi komið upp erfiðleikar i
viðskiptum þarna sem svo hafi
fundist lausn á. Hann telur að við-
horfin geti verið orðin breytt að
tveimur til þremur mánuðum
liðnum.
Með mesta móti í ár.
Skreiðarútflutningur frá Noregi
var á þessu ári kominn upp i
10.164 tonn 18. júli i sumar, en um
það hvernig sá útflutningur skipt
ist eftir löndum hef ég ekki hand
bærar tólur. Hins vegar var út-
flutt skreið frá Noregi til Nigerii
frá 1. janúar til 1. júni 5.746 tonn
Skreiðarframleiðsla norðmanna
er með mesta móti i ár. Sam-
kvæmt opinberum skýrslum úfr
gefnum 1. ágúst sl. voru norð
menn búnir að hengja upp i skreif
84.104 tonn af hausuðum og slægð
um fiski. Veðurfar til skreiðar
verkunar var talið með hagstæð
asta móti á þeim svæðum Norður
Noregs þar sem verkun fer fram
Samkvæmt tölum frá árinu 197!
var hengt i skreið til 1. ágúst að
eins 39.709 tonn, svo hér er urr
meira en tvöföldun að ræða i
skreiðarverkun.
Verð á skreið til Italiu er nú
mjög hátt og eftirspurn talsverð.
A þennan markað fer öll besta
skreiðin bæði frá Noregi og héð-
an. Siðustu árin hafa llfskjör fólks
i Nigeriu batnað. Þetta á sérstak-
lega við um suðurhluta landsins
þar sem olfa er unnin úr jörðu i
stórum stil. Kaupgeta fólks I
þessum landshluta er orðin
nokkuð mikil, enda bendir skreið-
arverðið til neytenda, sem ég
birti hér að framan til þess að svo
sé, en það er i engu samræmi við
innkaupsverð skreiðarinnar.
Ég get ekki skilist svo við þessi
skrif min hér að ég bendi ekki á
eftirfarandi staðreyndir sem
skreiöarframleiðendur, svo og
opinber yfirvöld á tslandi þurfa
að hafa i huga og rétta sig eftir,
en það er þetta:
Norðmenn eiga nú mikla og
góða skreið og mikið af henni
verður að fara á markað i Nigeriu
þegar yfirvöld þar i landi aflétta
uppskipunarbanninu. Skreiö hér
á íslandi er ekki mikil að vöxtum
i ár og misjöfn að gæðum. Oll
skreið sem er metin i 2. gæða-
flokk sem ttaliuskreiö bæði i Nor-
egi og á Islandi fer á markað á
Italiu, eða aöra sambærilega
markaöi um gæðakröfur. Þá fer
svokallaður finnmerkurfiskur,
nái hann 2. gæðaflokki, á sama
fiskimál
^eftir Jóhann J. E. KúlcL
markað frá Noregi, það er að
segja ef markaöurinn þolir þann
innflutning á Italiu.
Héðan fer einnig á markað á
Italiu svokallaður „Eddufiskur”.
Þetta er fiskur eða á aö vera það.
Siðan hætt var að flytja út héðan
undir heitinu „Finnmerkurfisk-
ur”, eins og gert var til að byrja
með, þá gengur sá fiskur nú inn i
Eddufiskinn, þe. betri hlutann af
,,3-fiskinum”. Þetta er magur
fiskur, td. fiskur af austur-Græn-
landsmiðum, sem eftir gerðinni
getur aldrei flokkast i „Sögu”, þe.
fisk númer 2 af islenska þorsk-
stofninum. Að minu mati þá er
vandi okkar nú aðallega i þvi
fólginn gagnvart skreiðarútflutn-
ingnum að matsmenn 'séu færir
um að taka Eddufiskinn út úr
heildinni þannig að hvorki Italiu-
markaður né skreiðarmarkaður-
inn i Nigeriu sé snuðaðir. Á hvor-
ugan markaðinn má halla i út-
flutningsmatinu þvi slikt getur
haft mjög alvarlegar afleiðingar i
för með sér. En slik gæðaflokkun
er vandaverk, sem ekki aðeins
krefst mikillar þekkingar af þeim
sem verkið vinna heldur jafn-
framt lika að þeir kunni nokkur
skil á markaðskröfum og mark-
aðsástandi þess lands sem fiskinn
fær.
Verkun skreiðar krefsl
faglegrar kunnáttu
Verkun skreiðar er elsta að-
ferðin sem menn vita um að notuð
hafi verið til að fá fisk I geymslu-
hæft ástand. Þessi verkunnrað-
ferð byggist á aldalangri þróun og
reynslu kynslóðanna, mann fram
af manni. Hingað til islands flutt-
ist þessi verkunaraðferö með
landnámsmönnum frá Noregi og
þá strax var um tvennskonar
undirbúning undir skreiðarverk-
un að ræða. Annarsvegar var
fiskurinn undirbúinn undir verk-
un og þurrkun hausaöur og slægð-
ur, og var hann þá nefndur bol-
fiskur, til að greina hann frá flött-
um eða ráskornum fiski.
Ráskorinn fiskur var ýmist
þannig frágenginn að helming-
arnir voru festir saman á sporði
Framhald á bls. 14.