Þjóðviljinn - 29.09.1976, Qupperneq 3
Miðvikudagur 29. september 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3
Mótmælav erkf all
araba 1 Israel
NASARET 28/9 (Reuter) —
Þúsundir arabiskra bæjarstarfs-
manna i tsrael lögðu niður vinnu I
tvær klukkustundir i dag, og hót-
uðu þeir að gripa til frekari að-
gerða ef rikisstjórnin ræki ekki úr
starfi embættismann, sem gert
hefur skýrslu um leiðir tii að
vinna gegn fólksfjölgun meðal
araba í tsrael.
Ibúar borga á hernumdu svæð-
unum á vesturbakka Jórdanár
gripu einnig i dag til mótmælaað-
gerða gegn þessari umdeildu
skýrslu.
Höfundur skýrslunnar, Yisrael
Koenig, er landstjóri Israels-
manna i Galileu.. Hann sagði i
skýrslu sinni að israelsmenn yrðu
að gripa til skjótra ráða til að
koma i veg fyrir að arabar yrðu
fleiri en þeir i norðurhluta Israels
um 1978. Hvatti hann til þess að
gyðingar yrðu fluttir i stærri stil
til þessara héraða, dregið yrði úr
fjölskyldubótum til stórra
arabiskra fjölskyldna og ungir og
efnilegir arabar yrðu hvattir til
að stunda nám erlendis og setjast
þar að. Þessi skýrsla var upphaf-
lega leynileg, en vinstri sinnuð
blöð I tsrael komu henni á
framfæri i byrjun þessa mán-
aðar. Miklar deilur spruttu af
henni, en Josef Burg innanrikis-
ráðherra sagði að hún túlkaði
ekki á neinn hátt stefnu stjórnar-
innar.
Verkfallið i dag var bundið við
starfsmenn meira en fjörutiu
bæjarfélaga og fór fram i friði.
Hins vegar fóru nemendur ekki i
skóla á vesturbakka Jórdanár,
reistu götuvigi og grýttu bifreiðir
israelsmanna.
Rayek Jarjoura, borgarstjóri
Nasaret, sagði blaðamönnum, að
hætta væri á meiri mótmælaað-
gerðum ef stjórnin kallaði Yisrael
Koenig ekki burt frá Galileu.
Sagði hann að tilgangur
verkfallsins i dag væri sá að
draga athygli almenningsálitsins
i heiminum að þvi óréttlæti sem
arabar i ísrael hefðu verið beittir
siðan ísraelsriki var stofnað fyrir
28 árum og mótmæla þvi að
Koenig skuli enn gegna sinni
stöðu. Væri allsherjar verkfall
Framhald á bls. 14.
Fœr landvistarleyfi
,af mannúðarástæðmn’
HAAG 28/9 (Reuter) —Hollend-
ingar hafa veitt sovéska skák-
manninum Viktor Kortsnoj
landvistarleyfi af „mannúðar-
ástæðum”, en þeir hafa hafnað
beiðni hans um að vera þar sem
pólitiskur flóttamaður, að sögn
talsmanns hollenska dóms-
málaráðuneytisins i dag.
Kortsnoj, sem er 45 ára
gamall, bað eins og kunnugt er
um hæli i Hollandi sem pólitisk-
ur flóttamaður 27. júli, eftir að
hann hafði tekið þátt i alþjóð-
legu skákmóti i Amsterdam.
Hann skýrði frá þvi að hann
hefði gagnrýnt sovéska skák-
sambandið og óttaðist að hann
fengi ekki að keppa aftur
erlendis ef hann sneri heim.
Honum var þá veitt bráða-
birgðalandvistarleyfi i sex
mánuði, meðan hollensk yfir-
völd f jölluðu um beiðni hans um
hælisem pólitiskur flóttamaður.
Talsmaður dómsmála-
ráðuneytisins sagði svo i dag:
„Beiðni Kortsnoj um að fá hæli
sem pólitiskur flóttamaður hef-
ur verið hafnað, en hins vegar
hefur ráðuneytið gefið honum
leyfi til að dveljast i Hollandi af
mannúðarástæðum”. Tals-
maðurinn sagði að þetta leyfi
hefði verið gefið út i siðustu viku
og gilti I eitt ár, en siðan mætti
framlengja það samkvæmt
beiðni. Hann neitaði að skýra
frá þvi hvers vegna Kortsnoj
hefði ekki verið veitt hæli sem
flóttamanni.
Kortsnoj, sem var talinn
þriðji besti skákmaður heims
1973, gekk i skákklúbb i Rotter-
dam eftir komu sina til Hol-
lands, og er hann nú að þjálfa
hollenska liðið fyrir olympiu-
skákmótið i Haifa i Israel, sem
fram á að fara I næsta mánuði.
4. september svipti sovéska
skáksambandið Kortsnoj öllum
sovéskum titlum, þ.á m. titlin-
um stórmeistari, og krafðist
þess að alþjóöaskáksambandið
útilokaði hann frá þvi aö keppa
um heimsmeistaratitil. En
framkvæmdastjóri alþjóða-
skáksambandsins sagði að
menn kepptu um heims-
meistaratitil sem einstaklingar
en ekki sem fulltrúar einstakra
landa, og einnig að ekki væri
hægt að svipta Kortsnoj titlinum
stórmeistari sem alþjóðaskák-
sambandið hefði veitt.
Mikill hluti veraldar
býr við vatnsskort
GENF 28/9 (Reuter) — Tveir
þriðju hlutar af ibúum heims hafa
ekki nægilegar vatnsbirgðir
tryggar, að sögn Yahia Abdel
Mageed, sem skipuleggur nú á
vegum Sameinuðu þjóðanna ráð-
stefnu um vatnsnotkun.
Þetta fólk lifir aðallega i
þróunarlöndunum, sagði Mageed,
og bætti hann þvi við að al-
þjóðlega vatnsráðstefnan, sem
verður haldin i Mar del Plata i
Argentinu, myndi leitast við að
semja áætlanir um það hvernig
unnt væri að auka nothæfar
vatnsbirgðir og forðast vatns-
skort. Hann sagði að við værum
nú mitt i kreppunni, og hefði
þurrkurinn komið svo illa niður á
Sahel-svæðinu i Afriku og Vestur-
Evrópu nú i sumar vegna þess að
ekki voru til áætlanir um neitt
annað en hreinar neyðarráð-
stafanir.
Stöðug ólga
yioa a Spani
MADRID 28/9 (Reuter) —
Stúdent lést i Madrid i dag af sár-
um, sem hann fékk i kröfugöngu
gegn stjórnvöldum landsins i
gærkvöldi. Mikil ólga er nú á
Spáni eftir óeirðir og verkföll
undanfarna daga.
Carlos Gonzales Martinez, 21
árs gamall stúdent i sálfræði,
fékk skot i magann.og litur út fyr-
ir að það hafi verið menn yst til
hægri sem hleyptu skotinu af,
a.m.k. hefur lögreglan borið það
til baka að hún hafi notað byssur
þegar hún dreifði hópum stúdenta
i Madrid i gær.
Hann er 36. maðurinn sem
hefur látið lifið i pólitiskum átök-
um á Spáni siðan Franco dó i
fyrra, en sá fyrsti sem fallið hefur
i höfuðborginni sjálfri, að sögn
óopinberra heimildarmanna.
1 baskahéruðum Spánar hafa
menn lagt niður vinnu og farið i
mótmælagöngur til að krefjast
sakaruppgjafar fyrir pólitiska
fanga og minnast þess að ár er
liðið siðan fimm baskar voru
teknir af lifi. 1 dag hafa ýmsir
hópar stjórnarandstæðinga hvatt
menn til að taka upp vinnu að
nýju, og telja þeir að stjórnarand-
staðan hafi sýnt mátt sinn nægi-
lega mikið i þetta sinn. Sögðu for-
sprakkar verkfallsins að meir en
hálf miljón manna hefðu lagt nið-
ur vinnu þrátt fyrir fyrirmæli
stjórnvalda um að menn skyldu
ekki fara eftir „áróðri undir-
róðursmanna og hryðjuverka-
manna”.
Sjálfstæða dagblaðið E1 Pais
sagði i dag i ritstjórnargrein að
stjórnvöldin ættu að ganga til
samninga við stjórnarand-
stöðuna, þar sem þau væru ófær
um að ráða ein fram úr stjórn-
málakreppunni. „Þeir sem
stjórnuðu á Franco-timabilinu
geta ekki stjórnað i lýðræði af þvi
að þeir eru ekki lýðræðissinnar”,
sagði blaðið.
Meðan þetta gerðist virtist Jó-
hann-Karl Spánarkonungur sjálf-
ur láta póstmannaverkfallið til
sin taka, en það hefur nú staðið i
viku. Hann ræddi i dag við
Ingacio Acha, yfirmann póst-
mála,i konungshöllinni. I upphafi
lögðu póstmenn i Madrid einir
niöur vinnu, en verkfallið hefur
nu breiðst Ut til allra helstu borga
landsins og er talið að meir en
30.000 starfsmenn póstmála séu
nú i verkfalli.
Einnig eru horfur á ólgu á
iðnaðarsvæðunum i kringum
Barcelona, og hafa leiðtogar i
verksmiðjum i borginni Tarrasa
samþykkt að styöja verkföll i
iðnaðarsvæðinu i Sabadell. Þar
hafa nú 30.000 verkamenn úr
vefnaðar- og. vélaverksmiðjum
ýmist lagt niður vinnu eða
minnkað vinnuhraðann.
Ný plata
Megasar
komin
r
a
markað
A mánudag kom i verslanir
nýjasta plata Megasar, sem ber
heitið „Fram og aftur blindgöt-
una”. Það er hið nýja útgáfu-
fyrirtæki Ingibergs Þorkelssonar
Hrim h/f, sem gefur þessa plötu
út, og eru á henni niu lög, þ.á m.
„Gamla gasstöðin við HÍemm”,
„1 speglasalinn” og „Enn (að
minnsta kosti)”. öll lög og textar
eru eftir Megas sjálfan, en undir-
leik annast sjö hljóðfæraleikarar,
sem eru flestir úr hljómsveitun-
um Eik og Celsius.
Þetta er þriðja platan, sem
Megas sendir frá sér. Fyrsta
plata hans kom út haustið 1972 og
var endurútgefin rétt fyrir jólin i
fyrra. önnur platan „Milli-
lending” kom út fyrir réttu ári, en
siðan hefur Megas tekið þátt i
starfi „Listaskáldanna vondu” og
fluttá þeirra vegum ýmis þeirra
laga sem nú koma út á glötu.
Sovétirienn
gagnrýna
tillögur
Kissingers
NEW YORK 28/9 — I ræðu
sem Andrei Gromyko, utan-
rikisráðherra Sovétrikjanna,
hélt i dag á allsherjarþingi
Sameinuðu þjóðanna gagn-
rýndi hann mjög tilraunir
Kissingers til að koma á
meirihlutastjórn svertingja i
Ródesiu. Sagði hann að reynt
væri að beita pólitiskum trúð-
leik og fégjöfum til að koma i
veg fyrir raunverulegt sjálf-
stæði i suðurhluta Afriku.
Væri allt gert til þess að berja
niður réttláta baráttu þjóð-
anna i Ródesiu og Namibiu.
Hægri menn og sýr-
lendingar hef ja stór
sókn í Líbanon
BEIRUT 28/9 (Reuter) — Miklir
bardagar geisuðu i dag I fjöllun-
um fyrir austan Beirut, eftir að
hægri sinnaöir libanir og
sýrlenskir hermenn höfðu byrjað
mjög viðtæka sókn gegn vinstri
sinnuðum libönum og
palestinuaröbum i dögun í morg-
un. Minna en sex timum eftir að
bardaginn hófst birti Yasser
Arafat, leitogi palestinuskæru-
liða, ávarp til allra arabískra
þjóðarleiðtoga og bað þá að
stööva þessi „nýju fjöldainorð”.
lleimiidarmenn meðal palestínu-
araba sögðu að hann heföi sjálfur
talað i sima við Khaled konung
Sádi-Arabiu, Gaddafi leiðtoga
Líbýu og Houari Boumedienne,
forseta Alsir.
Útvarpsstöðvar beggja aðila i
Libanor fr^ miklum
bardögum i fjöllunum og sögðu
þær, að I þeim væri beitt
bryndrekum, þungu stórskotaliði,
og eldflaugum og „óþekktar flug-
vélar” flygju yfir bækistöðvum
vinstri manna. Sagt var að þessi
nýja sókn væri ein hin mesta sem
gerð hefði verið siðan sýrlend-
ingar réðust inn i Libanon og
lögðu meir en helming landsins
undir sig.
Svo virðist sem sýrlendingar og
hægri menn hafi gert árás á
tveimur stöðum, og séu vinstri
menn klemmdir á milli tveggja
herja andstæðinganna á aðalveg-
inum milli Beirut og Damaskus.
Tilgangur sóknarinnar mun vera
sá að reka vinstri menn burt úr
fjöllunum, sem þeir náðu á sitt
vald snemma i styrjöldinm, áður
en snjór fellur á þau i næsta mán-
uði og gerir ókleift að beita þar
stórum vigvélum. Arásirnar
hófust i dögun, og skýrðu út-
varpsstöðvar frá þvi að tiu stund-
um eftir að þær hefðu hafist héldu
bardagarnir stöðugt áfram.
Þessi sókn er fyrsta tilraunin til
að breyta viglinunni i Libanon,
sem verið hefur óbreytt siðan
hægri menn tóku á sitt vald flótta-
mannabúöir palestinuaraba i Tel
al-Zaatar i Beirut. Munu sýrlend-
ingar og hægri menn stefna að þvi
að taka á sitt vald sem fyrst bæki-
stöðvar, sem vinstri menn hafa á
veginum frá Beirut til Damaskus
og hafa af þeim sökum mikla
hernaðarlega þýðingu. Útvarps-
stöð hins hægri sinnaöa
falangistaflokks tilkynnti að
þessar bækistöðvar, Hammana
Framhald á bls. 14.