Þjóðviljinn - 19.10.1976, Side 3

Þjóðviljinn - 19.10.1976, Side 3
Þriðjudagur 19. október 1976 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3 Líbanon: Er friður á næsta leiti? RIAD 18/10 Reuter — Anúar Sadat Egyptalandsforseti og Hafes al-Assad Sýrlandsforseti féllust f dag i faðma á ráðstefnu arabaleiðtoga i Riad, höfuðborg Saúdi-Arabiu. Fáleikar hafa ver- ið með þeim forsetunum i mcira en ár, en þetta þykir benda til þess að sættir hafi tekist með þeim og að þeir hafi orðið sam- mála um tillögur i þeim tilgangi að binda endi á striðið i Libanon. Ráðstefna sú, sem hérum ræð- ir, var kölluð saman að frum- kvæði Saúdi-Arabiu og Kúvæt i þeim tilgangi að stöðva borgara- styrjöldina i Libanon, sem staöið hefurnú iátján mánuði. Faðmlag þeirra forsetanna er tekið sem merki þess , að arabar séu nú sameinaðri en þeir hafa veriö frá þvi á timum siðasta striðsins við Israel i otkóber 1973. Burtséð frá rikisleiðtogum Egyptalands, Sýr- lands, Saúdi-Arabiu og Kúvæt eru á ráðstefnunni Elias Sarkis, Libanonsforseti, og Jasser Arafat, leiötogi PLO, baráttu- samtaka palestinumanna. Ennþá mun ekki hafa náðst fullt sam- komulag um friðartillögurnar, sem munu hafa verið lagöar fram af þeim Sadat og Sarkis, en á um- mælum ráðamanna er að heyra að samkomulagshorfur séu nú góðar. Assad forseti skipaði þeg- ar á laugardag sýrlensku herjun- um i Libanon aö hætta skothrið, en dagana næstu á undan hafði staðið yfir hörð sókn sýrlendinga i áttina til Beirút og Sidon. Erlingur Gislason les hlutverk djöfulsins. Don Juan í Helvíti Leiklestur á Litla sviðinu í Þjóðleikhúsinu í kvöld t kvöld, þriðjudagskvöldið (19/10) veröurfitjað upp á nýjung i starfsemi Þjóðleikhússins, en þá verður fluttur á Litla sviöinu i upplestrarformi leikþátturinn Don Juan i Helviti eftir George Bernard Shaw. Þáttur þessi er hluti af leikritinu Man and Super- man, sem i islenskri þýðingu Arna Guönasonar hefur hlotið nafnið Menn og ofurmenni. Þátt- urinn um Don Juan er draumkafli i leikritinu en sjálfstæð heild enda oft fluttur einn sér. Lcikstjóri er Baldvin Halldórsson er fjórir leikarar lesa hlutverkin: Gunnar Eyjólfsson er i hlutverki Don Ju- ans, Erlingur Gislason lcs Djöful- inn, Margrét Guðmundsdóttir önnu og Ævar R. Kvaran er i hlutverki styttunnar. Leikritið Menn og ofurmenni er meöal þekktari verka Shaws og hefur það verið flutt hér I útvarp en aldrei leikið á sviði. George Bernard Shaw er meðal kunnustu leikritahöfunda breta. Hann var af irskum ættum, fædd- ur 1856 og ólst upp i Dyflini. Um tvitugt fluttist hann til Lundúna og gaf út fyrstu skáldsögu sina 26 ára. Um skeið var hann tónlistar- myndlistar- og leiklistargagnrýn- andi og það var ekki fyrr en hann var kominnháttá fertugsaldur að hann samdi sitt fyrsta leikrit. Shaw náði 94ra ára aldri og samdi alls 53 leikrit. Alla sina ævi var hann einn umtalaðasti maður samtiðarsinnar i Bretlandi. Leik- rit Shaws einkennast oft af lifleg- um, hárbeittum og kimnifullum persónulýsingum og leiftrandi til- svörum. Mörg leikrita hans eru samin út frá félagslegum og sið- ferðilegum hugmyndarökræðum en búnum i persónulegan og lif- legan búning. Leikritið Menn og ofurmenni kom út árið 1903. Meöal annarra öndvegisverka Shaws eru Heartbreake House og Back to Methusalem en af þekkt- ari verkum hans öðrum má nefna Heilaga Jóhönnu, Barböru major, Pygmalion, Candidu og Starf frú Warren. Shaw hlaut Nóbelsverð- launin 1925. Sem fyrr segir verður fyrsti flutningur á Don Juan i kvöld kl. 20:30 og verður endurtekningin annaðkvöld. Gefi tilraun þessi góða raun er fyrirhugað framhald á og fleiri verk tekin til flutnings siðar i vetur. Garnaveiki á Vestfjörðum Garnaveiki i sauðfé er komin upp á bænum Þúfum f Reykja- f j a r ð a r h r ep p i, Norður- tsaf jarðarsýslu. Garnaveiki hefur ekki áður oröið vart á Vest- fjörðum. Sæmundur Friðriksson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Sauðfjárveikivarna sagði i viðtali við blaðið, að við slátrun i slátur- húsinu á tsafirði hefði veikin fundist I tveimur kindum frá þessum bæ. Bærinn Þúfur er i varnarhólfi, sem afmarkast af girðingu úr Kollafirði á Barðaströnd i ísa- fjörð. Framkvæmdastjóri Sauðfjárveikivarna, Sigurður Sigurðarson dýralæknir, fór strax vestur og er nýkominn i bæinn. Hann tók blóðsýnishorn úr fénu og er nú veriö aö rannsaka þau á Keldum. Sæmundur sagði, að útilokaö væri að veikin hefði borist vegna samgangna við fé úr sýktum hólfum„ þar sem 4 varnar- girðingar eru á milli þessa svæöis og næsta sýkta hófls fyrir sunnan. Hann sagöi, aö garnaveiki gæti borist nánast með hverju sem væri, bæði fólki, heyi, fóöurbæti o.fl. Ekki er enn afráðið, hvað gert verður i málinu. Stundum er gripið til þess ráðs að slátra öllu fé af sýktum bæ, þegar veikin kemur upp á nýju svæði. Lika er hægt að rannsaka blóð fjárins og slátra öllu, sem grunsamlegt reynist, en bólusetja hitt. Nú er meira en helmingur alls fjár á landinu bólusettur fyrir garna- veiki, en þar sem veikinnar hefur aldrei fyrr orðið vart á Vest- fjörðum, hefur ekki þótt ástæða til að bólusetja fé þar. —hs Fræðslu- og umræðufundir Alþýðu ba nda lagsi ns í Reykja vík: Fyrsti fundurinn á fimmtudaginn Málfundanámskeið Alþýðubandalagsins i Reykjavik haustið 1976 hefst fimmtudaginn 21.10. i risinu að Grettisgötu 3, og lýkur mánudaginn 15.11. Haldnir verða fjórir fundir um fundastörf, og siðan fjórir umræðufundir um störf og stefnu Alþýðubandalagsins. Fundirnir hefjast allir kl. 20.30. Fimmtudagur 21. október Hrafn Magnússon: Stofnun félaga, lög þeirra og skipulag. Mánudagur 25. október Tryggvi Þór Aöal- steinsson: Störf fund- arstjóra, tillögur og ályktanir. Fimmtudagur 28. október Baldur Óskarsson: Um ræðumennsku. Mánudagur 1. nóvember: Málfundur Fimmtudagur 4. nóvember Ragnar Arnalds: Hvernig vinnur Alþýöubandalagið að uppbyggingu sósialisma? Mánudagur 8. nóvember Svavar Gestsson: Aróður og pólitisk barátta. Fimmtudagur 11. nóvember Guömundur Hilmars- son: Staða verkalýðs- hreyfingarinnar. Mánudagur 15. nóvember Svava Jakobsdóttir: Er hægt að losna við herinn? Hrafn Magnússon er frummælandi á f y r s t a fræðslu- og umræðufundi Alþýðubanda- 1 a g s i n s i Reykjavik aö þessu sinni. Væntanlegir þátttakendur geta látiö skrá sig á skrifstofu félagsins að Grettisgötu 3, simi 28655, eða mætt á fundina. Þátttaka er öllum heimil. Ekkja Maós sökuð um fjör ráð við hann PEKING 18/8 Reuter — t texta veggblaðs, sem fest hefur verið upp i stúdentagarði tilheyrandi Pekingháskóla, er Sjiang Sjing, ekkja Maós formanns, sökuö um að hafa reynt að ráða mann sinn af dögum, þegar hann lá banaleg- una. A veggblaði þessu er þvi einnig haldið fram að Sjiang Sjing og þeir þrir vinstrileiðtogar aörir, sem nú eru taldir vera i stofu- fangelsi, hafi beittsér gegn þvf að lik Maós yrði smurt og varðveitt I grafhýsi, sem þó hafi veriö ein- lægur vilji þjóðarinnar allrar. Veggblöð, þar sem ráöist er að þeim fjórmenningum, hafa veriö fest upp hundruðum saman i há- skólanum af stúdentum sjálfum og starfsliði háskólans. Talið er að efni veggblaðanna byggist á upplýsingum, sem yfirvöld há- skólans hafi gefið. Þar er farið hörðum orðum um þau fjórmenn- inga, sem nú er talið að haf i verið i stofufangelsi siðan 7. þ.m. Lengi vel var ekkert látið uppi um það, hvað gert yrði við lik Maós, en 9. okt. var loksins tilkynnt að likið yrði smurt og lagt i grafhýsi til varðveislu. Á veggblöðunum eru ekkja Maós og hinir þrir leiðtogar Sjanghái-hópsins, Vang HUng- ven, varaformaður kommúnista- flokksins, Sjang Sjún-Sjiaó, varaforsætisráðherra og Jaó Ven- júan, helsti hugmyndafræöingur stjórnmálanefndar flokksins, sökuð um að hafa þegar fyrir lát Maós gert með sér samsæri og hafi talið sighafa möguleika á að hrifsa til sin völdin að Maó látn- um. Breyttir starfshœttir hjá MFÁ: Miðað á einstök fyrir- tækiogíbúða hverfi og siðan teknir hópar eins og t.d. fatlaðir Menningar- og fræöslusam- band alþýðu mun i vetur brydda upp á nýjung I starfi sinu. Hcfur verið ákveðið að starfrækja fræðsluhópa með nokkuð öðru sniði en til þessa og er unnið i samvinnu við hliðstæð fræðslusambönd á Noröurlöndunum. Norræni menningarmálasjóðurinn styrkir þennan ákveðna þátt fræðslusamtakanna, sem kall- 'áður er „örvandi fræöslu- starf” til aðgreiningar frá öðr- um starfsþáttum. Norrænu fræðslusamtökin munu vinna að örvandi fræðslustarfi eftir þriggja ára áætlun sem skiptist i þrjú stig. Framkvæmd verkefnisins fer fram á öllum Norðurlöndun- um samtimis og með svipuð- um hætti, nema hvað hérlend- is er starfið lang viðaminnst. Fyrsta stigið, og um leiö fyrsta árið, er framkvæmt þannig hér, aö haft var sam- band við þrjú stór iönfyrir- tæki, sem valin voru i samráði við Iöju, félag verksmiðju- fólks, og starfsmönnum þeirra boðið að taka þátt i fræðslu- hópum af þremur ólikum gerðum. Rætt var við hvern starfsmann einslega, eftir aö talað hafði verið við allt starfsfólkið á sérstökum fundi. Undirtektir foru mjög góö- ar. A vinnustööunum þremur, sem voru Ofnasmiöjan h/f, Prjónastofa önnu Þórðardótt- ur og klæöaverksmiöjan Dúk- ur h/f, virtist áhugi mikill og létu 63% þeirra sem rætt var viö skrá sig i einhvern hinna þriggja hópa. Hafa nær allir sótt fundi siðan. Talað var við 70 manns, en 44 létu skrá sig. En þessar heimsóknir á vinnustaöi verða einungis stundaðar fyrsta árið af þeim þremur, sem eru i áætlana- gerðinni. Næsta vetur er fyrir- hugaö að taka fyrir einstök ibúðahverfi, gnaga i hús og ræða við fólk, tilþess aö fá það þannig inn i fræðsluhópana. Þriðja árið er svo fyrirhugað að velja einstaka hópa i sam- vinnu við félög á borö viö sam- tök fatiaöra, blindra eða ann- arra ámóta sérhópa. Gert er ráð fyrir að hver hópur starfi i nokkrar vikur, en komiö er saman einu sinni til tvisvar i viku hverri. Aö sögn forráðamanna Menningar og fræðslusam- bands alþýöu er tilgangur þessara vinnubragöa tviþætt- ur, ef litið er á verkefnið I grófum dráttum. Annars veg- ar er með þessu móti reynt að ná til fólks sem ekki hefur áð- ur notið skipulegrar fræðslu eftir að skólanámi lauk, og hins vegar fæst, meö þvi að ræða persónulega við svo margt fólk, betri innsýn i hvers vegna sumir vilja ekki vera meö, hvort þar veldur á- hugaleysi eða annir o.s.frv. I ljósi slikrar vitneskju ætti að vera unnt aö ryöja ýmsum hindrunum Ur vegi sem meina fólki aö njóta þeirrar fræðslu sem það hefur áhuga á og skipulögö er fyrir fullorðið fólk. Þrir hópar hafa þegar farið af staö. Ölafur R. Einarsson leiðbeinir fræðsluhópi um sögu og markmiö verkalýðs- hreyfingarinnar. Ólafur Ragnar Grimsson leiðbeinir hóp um islenska þjóðfélagið. Sigurður Karlsson hefur um- sjón meö þriðja hópnum, sem starfar undir heitinu „Leik- húskynning”, og fjallar hann um upphaf leiklistar, tilgang leikhússins, hlutverk leik- stjórans o.fl., auk þess sem leikhúsin verða heimsótt. —gsp

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.