Þjóðviljinn - 19.10.1976, Side 14

Þjóðviljinn - 19.10.1976, Side 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Körfubolti Framhald af bls. 11. Þeir vilja það ekkí, hann gerir það sjálfur og IR-ingar neita aö spila leikinn. En Kristbjörn flautar leikinn á, og siðan af og dæmir KR-ingum 2-0 sigur. Skýring Kristbjörns. Kristbjörn Albertsson gaf eftir- farandi skýringu á ákvörðun sinni: „Okkur barst bréf aganefndar, um að Þorsteinn Hallgrimsson 1R væri i leikbanni næsta leik i mótinu. Ef hann spil- ar þennan leik getur hann ekki farið i leikbann annan leik, þvi það gildir aðeins fyrir þennan leik. Ef lið ætlar að leika leik meö ólöglegum leikmanni læt ég leik- inn ekki fara fram, vegna þess að ég 1. hunsa ekki úrskurð aganefndar 2 sýni samstöðu með Þráni (sem sýndi Þorsteini rauða spjaldið). 3. fer eftir sannfæringu minni og engu öðru i þessu máli.” Marinó Sveinsson, aðstoðar- dómari, vildi ekkert um málið segja, annað en það að hann færi eftir úrskurði aðaldómara. Kristbjörn i órétti. Eins og gefur að skilja, voru menn ekki á eitt sáttir um gerðir dómarans, en enginn gat bent á að hann væri að brjóta i bága við lög, en ef reglugerð um körfu- knattleiksmót er skoöuö, sést i áðurnefndri 13. gr. „Komi i ljós að leikmaður sé ólöglegur, ber félag hans ábyrgð á þvi.” Á þessu sést, að Kristbjörn hefur verið i órétti og brotið i bága við KKt, þar sem það er ekki i verkahring dómara að ákveða hvort einstaka leikmaður sé löglegur eða ekki. IR-ingar hafa ákveðið að kæra leikinn til dómstóls KKRR og þaðan fer fmálið eflaust til dómstóls KKI og þar á Kristbjörn sæti. Gaman verður að’fylgjast með framvindu mála næstu daga. G.Jóh. BSRB Framhald af bls. 12 ingum eftir óskum viðkomandi bandalagsfélaga. BSRB afli með tilstyrk banda- Ármann og KA sigruðu A Akureyri fóru fram tveir leik- ir i 2. deildarkeppninni i hand- bolta um helgina. Armann sigraöi Þór 25:21 og KA sigraði Fylki 21:17. lagsfélaganna gagna um raun- veruleg launakjör annarra og taki saman greinargerö um þróun kjaramála að undanförnu fyrir samninganefnd bandalagsins til að styðjast við varðandi mótun kröfugeröarinnar. Þingið samþykkir að beina þvi til bandalagsfélaganna að vinna aö þvi að koma á meiri festu og samræmingu varðandi stööuheiti. Þingiðleggur rika áherslu á, aö þannig verði gengið frá samning- um að tryggt sé’ aö umsamin kjaraatriði komi til framkvæmda strax við gildistöku samnings. Áiyktun starfskjaranefnd- ar um kaupmátt launa Þar sem viðskiptakjör þjóðar- innar hafa á undanförnum mán- uðum stórbatnaö og allt útlit er fyrir framhald, þeirrar þróunar, skorar 30. þing BSRB á rikis- stjórn og Alþingi að gera ráðstaf- anir til þess, að kaupmáttur launa verði þegar á þessu hausti veru- lega bættur, annað hvort meö efnahagsráöstöfunum eða beinni almennri launahækkun. Um kjarasamninga 30. þing BSRB mótmælir harð- lega þeim vinnubrögðum samn- inganefndar rikisins við gerö sér- samninga aöildarfélaganna vorið 1976, þar sem nær engin tilraun var gerð til aö ná samningum við félögin, en málinu visað til kjara- nefndar. Þingiðkrefst þess, að rikisvald- ið taki nú þegar upp samninga- viðræður'i fullri alvöru um fram- kvæmd þeirra atriða i sérkjara- samningi, sem ófrágengin eru. Tillaga um skattamál Þar sem núverandi skattalög- gjöf er torskilin og flókin og vmsir þættir bitna harkalega á íauna- fólki, er það ákveðin krafa 30. þings BSRB. 1. að atvinnurekendur og fyrir- tæki beri sinn hluta af skatta- byrðinni, sem þá að sama skapi verði létt af launþegum. 2. að beitt verði öllum hugsanleg- um ráðum til að kveða niður skattsvik i þjóðfélaginu. 3. að BSRB eigi ásamt öðrum launþegasamtökunum aöild að endurskoðun og samningu nýrra skattalaga. 4. Að höfð verði nefnd innan BSRB og i samvinnu viö önnur launþegasamtök, sem vinni að rannsókn og ráðgjöf I sambandi við skattamálin. Endurflutt Framhald af bls. 16. safns að hagkvæmri notkun nýsitækni (hljóð- og mynd- ritaöra námsgagna). 5) Akvæði er um, að Námsgagna- stofnun skuli stuðla að vexti og greiða fyrir stofnun skólabóka- 6) Stofnuö verður Námsgagna- gerð, sem verður sérstök deild i Námsgagnastofnun og fram- leiðir náms- og kennslugögn miðaö viö islenskar þarfir og Verkalýðsmálafundur að Grettisgötu 3. Verkalýðsmálaráð Aiþýöubandalagsins og verkalýðsmálanefnd Ai- þýðubandaiagsfélagsins I Reykjavik boöa til fundar I kvöld, þriöjudag- inn 19. október, kl. 20.30 að Grettisgötu 3. Rætt veröur um drög aö stefnuskrá Alþýðusambands tsiands. Fundurinn er opinn Alþýöu- bandalagsmönnum. Félagsfundur hjá Alþýðubandalaginu i Hafnarfirði Alþýöubandalagiö I Hafnarfiröi heldur félagsfund fimmtudaginn 21. október I Góötemplarahúsinu (uppi) kl. 20.30. Dagskrá: Inntakanýrra félaga. 2.Kosningfulltrúa á flokksráðsfund. 3. Ægir Sigurgeirsson ræöir bæjarmál. 4. Geir Gunnarsson ræöir um efn- iö: Vinstristjórn—hægristjórn. 5.önnurmál. stjórnin. Alþýðubandalagið Vestur-Barðastrandarsýsiu Aðalfundur Alþýðubandalagsins i Vestur-- Baröastrandarsýslu verður haldinn i Félags- heimilinu á Bildudal klukkan 4 sunnudaginn 24. október. A dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf og kosning fulltrúa á flokksráðsund Alþýðu- bandalagsins. Einnig verður rætt um stjórn- málaviðhorfið og héraðsmál. Kjartan ólafsson, ritstjóri Þjóðviljans, mætir á fundinn. — Stjórnin. Kjartan. aðstæður. 1 tengslum við Námsgagnagerð verður starf- rækt tilraunastofa. 7) Sett eru lagaákvæði um Skóla- vöruhús, er taki við hlutverki Skólavörubúðar Rikisútgáfu námsbóka og fleiri skyldum störfum sem sérstök deild i Námsgagnastofnun. 8) Lögfest er, að auk eiginlegra námsbóka skuli Rikisútgáfan gefa út handbækur og kennslu- leiöbeiningar handa kennurum, svo og ýtarbækur, þ.e. viðbótarbækur, fyrir nem- endur. 9) Akvæði er um löggildingu námsbóka og hlutverk Náms- gagnastjórnar i þvi sambandi, svo og hversu fara skuli með ágreining I slikum málum. 10) Akvæöi um fjármögnun allra deilda Námsgagnastofnunar eru einfölduð og samræmd. Er miðað við, að allt rikisfé til stofn- og rekstrarkostnaðar verði I formi venjulegra fjár- veitinga I fjárlögum miðað við þarfir og starfsáætlanir, en sérskattar til fjármögnunar niöur lagöir. Aðrar tekjur stofnunarinnar verði eðlilegar sölu- og leigutekjur af efni og tækjum. Tekjum stofnunar- innar verði eingöngu varið i þágu þeirra verkefna, sem lögin mæla fyrir um. 11) Til þess að flýta fyrir sam- ræmdu starfi og sameiningu deilda Námsgagnastofnunar er gert ráð fyrir þvi, aö sem fyrst eftir að lögin taka gildi tengist öll starfsemi stofnunarinnar i sameiginlegu húsnæði, og verði það sem næst Kennaraháskóla Islands. Derby Framhald af Birmingham Coventry Leeds QPR Stoke Norwich Derby Bristol C. Tottenham West Ham Sunderland bls. 1Ö. 9423 15:10 10 9333 12:12 9 10 : : 4 13:14 9 9333 13:16 9 10 3 3 4 6:11 9 11 3 2 6 9:16 8 9153 15:13 7 9234 9:10 7 9225 10:22 6 10 1 3 6 7:19 5 9045 6:14 4 Chelsea Blackpool Wolves Bolton Charlton Hull Oldham Notth. For. Millwall Plymouth Fulham Blackburn Luton Bristol R. Sheff. Utd. Carlisle Southampton Notts. C. Burnley 2. deild 10 7 1 2 17:14 15 11 6 1 4 16:11 13 10 4 3 3 22:14 11 10 5 1 4 17:14 11 10 4 3 3 23:21 11 10 4 3 3 14:12 11 10 4 3 3 14:15 11 10 3 4 3 21:15 10 10 4 2 4 14:11 10 10 3 4 3 17:15 10 9 3 4 2 13:12 10 10 4 2 4 13:12 10 10 4 2 4 14:14 10 10 4 2 4 11:11 10 10 2 6 2 12:15 10 10 3 4 3 15:19 10 10 3 3 4 16:19 9 10 4 1 5 12:19 9 10 2 4 4 14:16 8 Cardiff 10 3 2 5 15:18 8 Orient 10 2 3 5 9:13 7 Hereford 10 2 2 6 12:20 6 Fimdurinn Framhald af bls. 9. Eggert Levý skólastjóri á Húnavöllum taldi heppilegra aö fræösluráðin byrjuðu á að fjalla um þessi mál og úr þvi væri timi til þess kominn að ræða um nær.‘^ skref, eins og það, sem fælist I /il- lögu Ragnars Arnalds. Jóhann Salberg Guðmundsson, sýslumaður á Sauðárkróki lét i ljósi ánægju sina með funda- haldiö. Hreyft væri hér merku máli. Nauðsynlegt, að heima- menn létu álit sitt i ljósi til leið- beiningar þingmönnum og öðrum þeim, sem siðar kæmu til með að fjalla um málið og taka ákvarð- anir. Rakti sýslumaður nokkuð sögu skólamála i Skagafiröi, sem sýndi nauðsyn þess, að Ibúar kjördæmisins létu til sin heyra, ef eitthvaö jákvætt ætti að gerast. Tryggvi Guölaugsson tók aftur til máls og mælti með fjölbrauta- skólanum, þvi „þar væri þó fólki kennt að vinna”, eins og hann komst að orði. Hörður Ingimarsson, simvirki á Sauðárkróki áleit takmörk vera fyrir þvi hvað þjóöin gæti varið miklu fé til menntamála og þvi yrði að gæta þess, að hver króna, sem til þeirra rynni, skilaði sem mestum hagnaði i aukinni menntun og manndómi nemend- anna. Jóhann L. Jóhannesson.oddviti á Silfrastöðum lét i ljósi ánægju sina yfir þvi, að þetta mál skyldi vera tekið til umræðu. En óheppi- legt væri að skipa öllu i fastar skorður frá æðri stöðum. Byrjunin ætti að vera sú, að kynna málin heimafyrir og ræða þau þar. Hlutverk grunnskólans ætti að vera það, að skapa góða undirstöðumenntun. Siðan tæki fjölbrautaskólinn við og þar skiptust nemendur i námsbrautir eftir áhuga og upplagi. En vegna fámennis þjóöarinnar gætum við ekki leyft okkur eins mikla sér- hæfingu og fjölmennari þjóðir. Hver einstaklingur þarf þvi að búa yfir sem mestri fjölhæfni. Jóhann taldi vel geta komið til mála að fjölbrautanámið færi fram á fleiri en 3-4 stöðum I kjör- dæminu. ólafur H. Kristjánsson, skóla- stjóri á Reykjum i Hrútafirði dró nokkuö I efa að umræöur um málið væru timabærar á þessum vettvangi.Ræddi um aðstöðuleysi fræðslustjóranna og taldi illa að þeim búið. Starf þeirra svifi nánast i lausu lofti. Heimamenn þyrftu að hafa sem mest hönd i bagga með fyrirkomulagi og fram kvæmd skólamálanna. Tillögu- flutningur Ragnars Arnalds hefði vakið umræður um málið og væri það gagnlegt. Varla væri hægt að tala um fjölbrautaskóla I dreif- býlisem einn skóla heldur öéiri, þar sem hver hefði sitt ákveðna sérsvið. Sveitirnar mættu ekki hika við að krefjast sömu menntunarskilyrða og þéttbýlið. Þéttbýlið ætti ekkert hjá dreif- býlinu, nema siður væri. Sveitirnar hefðu lagt þéttbýlinu til bæði fjármuni og fólk en þar væri þó fólkið dýrmætara. Mikiö væri rætt um unglingavandamálið en það væri þó fyrst og fremst vandamál fullorðna fólksins. Ragnar Arnalds þakkaði fram- sögumönnum fyrir erindi þeirra og fundarmönnum fyrir góða fundarsókn og þátttöku i umræöum en af þeim heföi hann orðið margs visari. Sér hefði aldrei komið til hugar að þessi fundur kæmist að ákveðinni niðurstöðu um lausn málsins, en það væri nauðsynlegt aö menn ræddu það og reyndu að gera sjálfum sér og öörum ljóst hvaö þeir vildu aö við tæki að grunn- skólanáminuloknu. Væri fyllilega timabært að menn bæru saman bækursinarum þaö. Vék siðan að tillögum þeim, er hann hefði flutt um fjölbrautaskóla og tillögum ráðuneytisins og þeim mun, sem á þeim væri. Þætti sér hlutur Siglufjarðar einkennilega litill i tillögum ráðuneytisins og eins væri óviðunandi, að ekki væri gert ráð fyrir 4. bekk framhalds- skólans i kjördæminu, þ.e. loka- veturinn til stúdentsprófs. Ragnar Arnalds kvað það valda sér vonbrigðum, að aðrir þing- menn kjördæmisins skyldu ekki ÞJÓDLEIKHÚSIÐ SAUMASTOFAN i kvöld. — Uppselt. föstudag kl. 20,30. Fáar sýn. eftir STÓRLAXAR miðvikudag kl. 20,30. laugardag kl. 20,30. SKJALDHAMRAR fimmtudag kl. 20,30. Sunnudag kl. 20,30. Miðasalan i Iðnó kl. 14-20,30. Simi 1-66-20. LEIKFELAG REYKJAVtKUR "W "T ÍMYNDUNARVEIKIN i kvöld kl. 20 miðvikudag kl. 20 laugardag kl. 20 SÓLARFERÐ fimmtudag kl. 20 föstudag kl. 20. Litla sviðið: DUN JUAN 1 HELVITI Frumsýning I kvöld kl. 20,30 2. sýning miðvikudag kl. 20.30 Miðasala 13.15-20. Ný bók: Blómið blóðrauða eftir J. Linnankoski Þýðendur: Guðmundur Guð- mundsson (skólaskáld) og Axel Thorsteinsson. Bókin verður komin i flestar bóka- verslanir i þessari viku. Tilboð útgáfunnar áður aug- lýst um fimm bækur á gömlu lágu verði allar fyrir 1.000 kr. er ennþá i gildi. AUar i bandi. nánari upplýsingar i sima Bókaútgáfan Rökkur Flókagötu 15 Reykjavik, póst- hólf 956 simi 18768. (Af- greiðslutimi 9-11 og 3.30-6.30 virka daga nema laugardaga) hafa séð sér fært að mæta á fund- inum, sem raunar hefði upphaf- lega verið hugmyndin að halda fyrir hálfum mánuði, en þá verið frestað vegna tilmæla dómsmála- ráðherra. Fundarsóknin og þátt- taka manna i umræöunum sýndi hinsvegar svart á hvitu að tima- bært væri orðið fyrir ibúa kjör- dæmisins að taka framtíðar- skipulag skólamála þar til gaum- gæfilegrar ihugunar og umræðu. —mhg. Akureyri Litil ibúð óskast á leigu. Upplýsingar i simum 22509 og 21740. BLAÐBERAR óskast í eftirtalin hverfi: Reykjavík: Kvisthagi Melahverfi Melhagi *Kópavogur Skjólbraut Vinsarnlegast haf ið samband við afgreiðsluna — sírni 17500. ÞJÓÐVILJINN

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.