Þjóðviljinn - 19.10.1976, Síða 4

Þjóðviljinn - 19.10.1976, Síða 4
4 SÍÐA — ÞJ<»VILJ1NN Þriöjudagur 19. október 1976 DJÚÐVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA, VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÓÐFRELSIS. Útgefandi: Útgáfuféiag Þjóöviljans. Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan Ólafsson Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meö sunnudagsblaöi: Árni Bergmann Útbreiöslustjóri: Finnur Torfi Hjör- leifsson Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólavöröust. 19. Sfmi 17500 (5 Hnur) Prentun: Bláöaprent h.f. SAMTÖK HERSTÖÐYAANDSTÆÐINGA Nú um helgina var haldin i Reykjavik landsráðstefna Samtaka herstöðvaand- stæðinga og sóttu hana hátt á þriðja hundrað manns, þar á meðal allmargt manna utan af landi, úr öllum kjör- dæmum. Mjög var áberandi hvað ungt fólk setti mikinn svip á ráðstefnuna og gefur sá baráttuhugur, sem á ráðstefnunni rikti góðar vonir um öflugt starf herstöðvaand- stæðinga á næstu mánuðum og árum. ÞING BSRB í siðustu viku lauk i Reykjavik 30. þingi Bandalags starfsmanna rikis og bæja. Á þinginu voru margar ályktanir sam- þykktar en helsta umræðuefni þingsins voru að vonum kjaramálin. 1 ályktun þingsins um kjaramál er á það bent, að frá 1. mars 1974 til 1. ágúst 1976 hafi framfærsluvisitalan hækkað um 150% en kaup opinberra starfsmanna um aðeins 40-70% á sama tima, eða sem svarar innan við helming af verðlagshækkunum. Af þessu er ljóst, að kjaraskerðingin hjá opinberum starfsmönnum nú á tveimur og hálfu ári nemur frá 32% og upp i 44%. Það samsvarar því, að af hverjum eitt þúsund krónum hefðu verið teknar 320 til 440 krónur, miðað við að verðlag hefði staðið i stað. Sá mikli órói, sem nú verður hvarvetna vart i röðum opinberra starfsmanna vegna kjaramálanna, er sannarlega ekki vakinn án tilefnis. 1 ályktun þings BSRB um kjaramál segir m.a.: „Launakjör islenskrar alþýðu eru nú orðin ein hin allra lægstu i Vestur-Evrópu. Enn sem fyrr á andstaðan gegn dvöl er- lends hers i landi okkar öflugan stuðning i nær öllum stjórnmálaflokkum. Það er verkefni Samtaka herstöðvaandstæðinga að virkja þann stuðning til alhliða, ein- huga baráttu fyrir markmiðum Samtak- anna. Á landsráðstefnunni voru Samtökum herstöðvaandstæðinga sett lög og stefnu- skrá, sem samþykkt var einróma. Framundan biða verkefnin, baráttan, Jafnframt hefur launamismunur og margháttað misræmi i launamálum stór- lega aukist”. í samþykktum þingsins kemur fram að við gerð nýs kjarasamnings á næsta ári telur það forgangsverkefnin vera sem hér segir: „1. Bætt verði að fullu kjaraskerðing undanfarinna ára, og tryggður kaup- máttur, sem sé hvergi lakari en sam- kvæmt kjarasamningi BSRB i desember 1973 i endanlegri mynd hans. 2. Samið verði um verulegar kjara- og launabætur, sem lyfti launakjörum upp af núverandi láglaunastigi. 3. Full verðtrygging verði tekin upp á laun samkvæmt óskertri framfærsluvisitölu. 4. Leiðrétt verði launamisræmi, sem orsakast af þvi að opinberir aðilar neita starfshópum innan BSRB um sambærileg kjör og rikið semur um við hliðstæða starfshópa utan samtaka opinberra starfsmanna.” Þetta voru sem sagt þau forgangsverk- efni, sem þing BSRB samþykkti hvað varðar gerð nýrra heildarkjarasamninga á næsta ári, en þá gengur BSRB i fyrsta skipti til slikra samninga að fengnum fyrir þvi, að Island verði á ný herlaust land og skipi sér á alþjóðavettvangi utan hernaðarbandalaga stórveldanna, á sama hátt og yfirgnæfandi meirihluti rikja heims. Þjóðviljinn óskar Samtökum herstöðva- andstæðinga góðs árangurs i starfi og minnir á að forsendur sigurs eru fyrst og fremst þessar: Góður einhugur i röðun- um — Raunsætt mat á aðstæðum hverju sinni — Lifandi fjöldastarf. k. þeim takmarkaða verkfallsrétti, sem nú hefur verið bundinn i lög. Ástæða er til að fagna þeirri samþykkt BSRB þingsins, að fela stjórn banda- lagsins að leita sérstaks samstarfs við Alþýðusamband íslands og önnur heildar- samtök lauanfólks um samræmdar aðgerðir i kjaramálum. Það má engan veginn gleymast, að innan BSRB er nú nær eingöngu lágtekju- fólk, sem orðið hefur fyrir hrikalegri kjaraskerðingu af völdum núverandi ríkisstjórnar, — kjaraskerðingu, sem er sist minni en það kauprán, sem félags- menn verkalýðsfélaganna innan Alþýðu- sambandsins hafa mátt þola. Það er mjög mikilvægt að góð samstaða skapist milli hinna tveggja voldugu heildarsamtaka almenns launafóks á íslandi, milli Alþýðusambandsins og Bandalags starfsmanna rikis og bæja. Sú samstaða þarf að miða að þvi að vinna upp á ný það sem tapast hefur hvað lifs- kjörin snertir. Við það mikilvæga verkefni skiptir hin faglega hlið málanna vissulega miklu, en enn mikilvægara er þó, að hinn pólitiski þáttur framvindunnar sé hafður rikt i huga. k. Olafur Þórarinn. Neikvœtt uppeldisgildi Tlminn sagBi svo frá á föstu- daginn: „Ólafur Jóhannesson dóms- málaráðherra geröi efnisval islenska sjónvarpsins að Fyrifsögn úr Tfmanum á föstudag. umtalsefni á alþingi, þegar rætt var um frumvarp um rannsóknarlögreglu rikisins i neöri deild Alþingis i gær. Kvaö ráðherrann það hafa miður heppileg áhrif þegar sjónvarpiö flytti glæpina inn á heimilin með sýningu sliks efnis i óhóflegum mæli.” Sá aðili sem ber höfuðábyrgð á dagskrá islenska sjónvarpsins er útvarpsráð. Formaður þess er Þórarinn Þórarinsson rit- stjóri Timans. Fyrir nokkrum misserum birti Timinn viðtal við Ólaf Jóhannesson dómsmálaráð- herra þar sem hann lýsti þvi hvað hann aðhefðist helst i fristundum sinum. Ein tegund tómstundaiðju var honum kær- ust að sögn: að lesa góðan glæpareyfara. Um afleiðingu náins sambýlis við þess háttar tómstundaiðju segir ólafur Jóhannesson dóms- málaráðherra á alþingi skv. frásögn Morguribláðsins: „Þá hygg ég og að rangvalið efni sjónvarps, margvislegt, þar sem glæpir eru rauöi þráö- urinn, og sent er inn á hvert heimili i landinu, hafi neikvætt uppeldislegt gildi....” Fulltrúi ráðherra Vinsælasti maður Alþýðu- flokksfélags Reykjavikur er að sögn, dagblaðanna Björgvin Guðmundsson, borgarfulltrúi og formaður verðlagsnefndar. Vart ná vinsældir hans langt út fyrir Alþýöuflokksfélagið, þvi að sem formaður verðlags- nefndar er hann sérlegur full- trúi viðskiptaráðherra, ólafs Jóhannessonar. Hann er þvi einskonar verðhækkunartæki Glæpamvndir í siónvorpi hafa óhrif á börn allt niður að 2-3 ára aldri Björgvin: Verðhækkunartæki rikisstjórnarinnar — vinsælast- ur i Alþýðuflokknum. r Ik i sstjórnar i n nar og verðhækkanir eru ekki vinsælar meðal almennings um þessar mundir. Annars er fróðlegt að lesa ' vinsældalista Alþýðuflokksins. Þar er meöal annars á blaði sá maður sem Vilmundur Gylfason vill helst af öllu reka úr flokkn- um vegna þess að maðurinn á segulbandsspólur meö viðtölum við forustumenn Alþýðuflokks- ins um fjármál flokksins. Hvaö á spólunum er vita fáir, en þær hefur maöur þessi notað eins og fjárkúgarar nota vitneskju um afbrot og glæpi. Meðan hann hefur spólurnar fær hann þá sem hafa talað inn á þær til þess að kjósa sig á flokksþing Alþýðuflokksins. Styður Dagblaðið Sjálfstœð- isflokkinn? Jónas Kristjánsson ritstjóri Dagblaðsins er I Sjálf- stæöisflokkn- um. Hann gagnrýnir hins vegar þá stefnu sem „f 1 o k k s - eigendafélag- iö” hefur i frammi fyrir hönd flokksins. Hann gagnrýnir hins vegar aldrei þær aðgerðir sem sam- herjar hans i Gunnarsarmi Sjálfstæðisflokksins bera ábyrgð á. I sjónvarpsþætti vék Jónas sér undan þvi að svara þeirri spurningu hvort Dagblaöiö myndi styðja Sjálfstæðisflokk- inn I kosningum. Þess vegna verður sú spurning endurtekin hér: Eru likur til þess að Dagblaðið styðji Sjálfstæöis- flokkinn i kosningum? Jónas getur fengið pláss fyrir svar i Þjóðviljanum ef Sveinn Eyjólfs- son neitar að birta það i Dagblaöinu. — s. Jónas Kristjánsson:

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.