Þjóðviljinn - 24.11.1976, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 24. nóvember 1976
Þingsjá
Við umræðu í sameinuðu
þingi um litasjónvarpstil-
lögu Ellerts Schram flutti
Jónas Árnason, alingis-
maður, eftirfarandi ræðu:
Margur er hégóminn,
sem ríður húsum hjá þess-
ari þjóð og mörg er for-
dildin sem íslendingar apa
eftiröðrum þjóðum. Skelf-
ileg er sú árafta þeirra, að
þurfa endilega að kalla yf-
ir sig hverja þá plágu for-
dildarinnar, sem þjakar
aðrar þjóðir.
Sjónvarp er víða mikil
plága
Sjónvarp er mikil plága með
ýsmum þjóðum. Til eru lönd, þar
sem visindamenn rekja marga
verstu sálarkvilla fólks til þessar-
Með heiðgul eyru og
grænt ne£
ar plágu. í slikum löndum heliist
sjónvarpsefni frá mörgum stööv-
um dag og nótt yfir unga sem
gamla. Til eru þeir, sem halda þvi
fram, aö sjónvarp sé lika orðin
plága hér á landi. Ég tek ekki
undir þaö. Þvi enda þótt islenska
sjónvarpið hafi ýmsa galla, þá
hefur það marga kosti lika. Og
það er a.,.k. mikil bót i máli, að
hér er aðeins sjónvarpað á sið-
kvöldum og ekki nema 6 kvöld i
viku. Þjóðin er alveg fri við sjón-
varp einn dag vikunnar og þar að
auki einn mánuð á sumrin.
Skynsamt fólk, sem kemur hing-
að frá þeim löndum, þar sem
sjónvarpiö er orðið hvað verst
plága segir, aö þessi takmörkun á
sjónvarpssendingum sé einn
helsti kosturinn við þjóðfélag
okkar.
Meira sjónvarp
En eitt er alveg vist, að kröfur
um lengdan útsendingartima
siónvarps munu magnast. Kröfur
um fleiri stöðvar, „frjálst” sjón-
varp Og sporgöngumenn slikra
hugsjóna mun ekki skorta skraut-
leg rök. Erum við islendingar ekki
vestræn lýðræðisþjóð? Þvi skyld-
um við ekki fá að njóta sjónvarps
til jafns við aðrar vestrænar lýð-
ræðisþjóðir? Eða er nokkur þjóð
raunverulega frjáls, sem ekki á
þess kost að glápa á sjónvarp frá
morgni til kvölds? Og hégóminn
mun magnast að sama skapi og'
fordildin, sem er að verða eitt
sterkasta aflið i þessu þjóðfélagi.
Fordildartillaga
Ég lýsi andstöðu minni við
þessa þróun. Ég lýsi andstöðu
minni við þá viðleitni að gera
sjónvarp á islandi að samskonar
plágu og sjónvarp er orðið svo
viða um heim.
Tilefnið sem ég nota til þess að
gefa þessa yfirlýsingu, það er
þessi þingsályktunartill., sem hér
Frystihúseigendur
NSlEFN'
útgerðamenn-
Hreinsunarefnin frá
sápugerðinni FRIGG
hafa öðlast viðurkenningu
á íslenskum markaði
SÁÞUOZRDNI FRiatl
*NaÁ$l CADOAHREPP' SfM: SUÍ22
IP-5 er fituleysandi duft, sem
afheröir vatn, leysir eggja-
hvituefni. IP-5 inniheldur 5%
virkt hypoklorit og tærir ekki
ál. IP-5 sameinar kosti fitu-
leysandi hreinsiefna og
klórs.
G-ll, handsápulögur,
bakteríudrepandi iögur, sér-
staklega framleiddur fyrir
sápuskammtara til notkunar
fyrir frystihús og matvæla-
iönaö.
Klór 10% til sótthreinsunar
og gerileyöingar viö hvers-
konar matvælaiönaö i lestum
fiskiskipa, frystihúsum og
fiskvinnslustöðvum. Til
biöndunar þvottavatns I
matvælaiönaöi.
IP-4, þvottaduft fyrir kassa-
þvottavélar. IP-4, er sótt-
hreinsandi hreinsiefni og
mjög fituleysandi.
„ Viðurkenning fæst
með árangurs-
ríkri reynslu“
Lanolin Joöófór, sótthreins-
andi handdýfa fyrir fólk I
matvælavinnslu. Inniheldur
6% joö f upplausn og lanolin.
Lanolin joöófór er alhliöa,
virkt gerileyöingarefni.
IP-225 tvlvirkur þvottalögur
hreinsar og sótthreinsar
inniheldur vætiefni og hypo
klorit. Til alhliöa sótthreins
unar og þvotta á tækjum
vinnsl uborðum, gólfum
veggjum o.þ.h.
Sápugerðin
FRIGG
Lyngási 1
Garðabæ
Sími51822
Jónas Arnason
Rœða Jónasar
Árnasonar við
litasjónvarps-
umrœðurnar
á Alþingi
liggur fyrir. Þessi till. gerir að
visu ekki ráö fyrir lengingu á út-
sendingartima sjónvarps hér á
landi. En þetta er hégómatillaga,
fordildartillaga.
Ég hef átt þess kost að horfa á
litasjónvarp erlendis. Venjulega
hafa litirnir verið svo bjagaðir,
svo afskræmdir og svo fjarri öll-
um eðliiegum litum að þetta hef-
ur verið til stórra leiðinda. Og
reyndar átakanlegt stundum.
Einu sinni sá ég sjálfan banda-
rikjaforseta með heiðgul eyru og
grænt nef. Stundum kemst ólag á
litaútsendinguna, og þá kemur
myndin allt i einu i svart-hvitu,
upp á gamla móðinn, og mikið
verður maður þá feginn.
En þetta breytir engu um það,
að almenningur i þessum löndum,
þar sem ég hef séð slikt sjónvarp,
hann sækist mjög eftir litasjón-
varpi. Hinir riku eru aö sjálf-
sögöu ekki i neinum vandræðum
með að útvega sér litasjónvarps-
tæki. Og hinir fátæku spara við
sig helstu lifsnauðsynjar til að
geta eignast sllk tæki. Þvi að for-
dildin þjakar einnig þá fátæku i
þessum iöndum, þar sem allir eru
meira og minna truflaðir af aug-
lýsingabrambolti gróðaafla.
Kapphlaupið um hégómann,
stöðutáknin, — litasjónvarpið er
eitt stöðutáknanna, — þetta kapp-
hlaup er þreytt i spreng i öllum
stéttum. Og allir eiga það sam-
merkt að sjá ekki eða vilja ekki
sjá, að margt af sjónvarpsefninu
og kannski flest af þvi kæmi
miklu betur út i svart-hvitu upp á
gamla móðinn.
Nei, við höfum margt miklu
þarfara að gera heldur en aö inn-
leiða hjá okkur litasjónvarp.
Endurbætum sjónvarps-
kerfið
Flutningsmaður lætur að þvi
liggja að tolltekjur af lita-
sjónvarpstækjum mundu tryggja
endurbætur á þvi sjónvarpskerfi,
sem fyrir er i landinu. Þar er
vissulega mikil þörf á endurbót-
um. Vissulega mikil þörf. Og að
sjálfsögðu er það hið argasta
hneyksli að á sama tima og blöð
hér á höfuðborgarsvæðinu og nú
lika ábyrgir stjórnmálamenn
ganga fram i því, að æra upp
kröfurum litasjónvarp, þá verður
fólk viða úti á landsbyggðinni að
búa við skilyrði, sem ónýta fyrir
þvi meira og minna hverja ein-
ustu sjónvarpsdagskrá. Ég get
ekki séð, að sá mikli kostnaður,
sá griðarlegi kostnaður, sem að
sjálfsögðu hlyti að fylgja þvi,
að fleyta efni litasjónvarps út yfir
alla landsbyggðina mundi auka
horfur á þvi, að bætt yrði þjón-
ustan handa landsbyggöinni á
þessu sviði. Ætli landsbyggðin
verði þar ekki aftarlega á mer-
inni eins og fyrri daginn.
Skylda innflytjenda að sjá
fyrir varahlutum
Flutningsmaður talar um það,
að nú sé orðið erfitt að útvega
varastykki i svart-hvitu sjón-
varpstækin. Flest tæki lands-
manna séu orðin 7-8 ára og það
verði að teljast eðlilegur
endingartimi. Eðlilegt sé, að
nauðsynleg endurnýjun verði
samferða upphafi útsendinga i
litum. Mitt sjónvarpstæki er 8
ára, — og er reyndar I ágætu lagi
ennþá, — og ég veit ekki til þess
að ég hafi undirgengist það við
seljandann, þegar ég keypti þetta
tæki, að næst þegar ég fengi mér
sjónvarpstæki þá skyldi það
endilega verða litasjónvarpstæki
og hann bæri þess vegna ekki
lengur neina ábyrgð á þvi, að til
væru varastykki i gamla tækið.
Ég skil ekki hvernig á þvi stend-
ur að sjónvarpið er sjálft að
smiða varastykki i sjónvarps-
tæki, ef þau eru ekki til. Það getur
vel verið að þetta sé skylda sjón-
varpsins. En ég held aö það sé þó
fyrst og fremst skylda innflytj-
endanna, að sjá viðskiptavinum
fyrir varastykkjum. Og það
myndi gilda einu, þó að við
islendingar værum orðnir einir
allra þjóða eftir með svart-hvitt
sjónvarp. innílytjendurnir yröu
þá bara sjálfir að smiða vara-
stykkin, eða sjá til þess að þau
yrðu smiðuð.
Hitt gæti aftur á móti hugsast
að einhver innflytjandi sæi sér
hag i þvi, að torvelda útvegun
varastykkja I gömlu tækin til þess
að þrýsta á fóik að kaupa ný tæki,
þ.e.a.s. litasjónvarpstæki. Það
væri reyndar ekkert nýtt i þessu
þjóðfélagi frjálsrar samkeppni.
Þjakaður af kjósendum
sinum
Ég hef leyft mér aö kalla þessa
tillögu fordildartillögu, hégóma-
tillögu. Það er þó ekki vegna þess,
að ég telji flutningsmann hennar
einhvern sérstakan hégómamann
eða fordildar. Þvert á móti. Enda
tók hann það skýrt fram, til þess
að fyrirbyggja allan misskilning,
að honum væri það siður en svo
neitt persónulegt kappsmál að fá
litasjónvarpstæki. Og ég veit það
af persónulegri viðkynningu við
manninn, að hann er tiltöiulega
laus við það að vera þjakaöur af
fordild eða hégóma. En hann er
þjakaður af öðru. Hann er þjak-
aður af kjósendum sinum, eða
vissum hluta þeirra. Hann er
þjakaður af vissum hluta reyk-
visku borgarastéttarinnar.
Vissum hluta, segi ég, því hér á
ég svo sannarlega ekki við alla
réykvisku borgarastéttina. Stór
hluti hennar er áreiðanlega sam-
mála mér i þessu efni. Þessi
ágæti þingmaður er þjakaður af
þeim hluta reykvisku borgara-
stéttarinnar, sem hefur gert for-
dildina og hégómann aö megin
inntaki llfs sins. Og það er þess
vegna fyrst og fremst, sem hann
hefur flutt þessa tillögu.
Peningaskápur óskast
Vil kaupa traustan peningaskáp.ekki mjög
stóran.
Uppl. á afgreiðslu Þjóðviljans. Simi 81333