Þjóðviljinn - 24.11.1976, Page 7
Mi&vikudagur 24. nóvetnber 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7
Aögera mennaöaumingjum
Þing A.S.Í., fjölmennustu
samtaka islensks verkalýös,
hefst innan skamms. Þingfull-
trúar eiga litla samleið í stjórn-
málum og skiptast, eins og aðrir
landsmenn, i stuðningsmenn
mismunandi stjórnmálaflokka.
Pólitisk sundrung verkalýðs-
hreyfingarinnar er mikil harm-
saga. Þó voru deilurnar áður
milli sósialista, kommúnista og
krata, innbyrðis. Um skeið hef-
ur verið sæmilegt samkomulag
og samvinna milli Alþýðu-
bandalagsmanna og Alþýðu-
flokksmanna innan verkalýðs-
félaganna. Nú bregður hins veg-
ar svo við, að stór hópur fulltrúa
á þingi A.S.Í. eru stuðnings-
menn Sjálfstæðisflokksins.
Munar þar ekki minnstu, að
stærsta verkalýðsfélag lands-
ins, Verslunarmannafélag
Reykjavikur, hefur um langt
árabil verið undir stjórn ihalds-
ins. í heild er engin ástæða til að
ætla, að Sjálfstæðisflokkurinn
sé miklu veikari meðal félags-
manná A.S.l. en hjá kjósendum
yfirleitt.
Styrkleiki Sjálfstæðisflokks-
ins innan verkalýðshreyfingar-
innar er islenskum sósialistum
svo mikið áhyggjuefni, að und-
antekning er, ef þeir þora að
hugsa um það upphátt. Helsta
úrræði sósialista er þetta: „Við
skulum bara loka augunum og
þegar viðopnum þau aftur, sem
við gerum ekki i bráð, hefur
ihaldið misst áhrif sin meðal
verkalýðsins og við getum lcks-
ins farið að framkvæma sósial-
ismann.” Maóistar ganga enn
lengra í vitleysunni og telja
sósialista vera sina helstu
fjandmenn. Slik „stjórnlist”
dæmir sig sjálf.
A undanförnum árum og ára-
tugum hefur styrkur ihaldsins i
verkalýðshreyfingunni ekki
dvinaö heldur vaxið. Ef sosial-
istareru svo barnalegir að trúa,
að þátttaka ihaldsins i óvinsælli
rikisstjórn nægi til að rýra það
fylgi og völdum, má minna á
Viðreisnarstjórnina. Þá sat
ihaldið 12 ár i rikisstjórn. Siðan
var ihaldið utan stjórnar i 3 ár
en vann i siðustu kosningum
sinn mesta kosningasigur siðan
1933. Mennirnir skapa sögu sina
sjálfir og þvi miður eru ekki að
verki nein lögmál, sem fyrr eða
siðar munu óhjákvæmilega af-
hjúpa auðvaldið og stjórnmála-
öfl þess.
Af hverju er íhaldið
sterkt?
Ástæðurnar fyrir verkalýðs-
fylgi ihaldsins eru margar.
Ihaldið er sterkast meðal
starfsfólks i ýmsum þjónustu-
greinum, sem mjög hafa vaxið.
Sjálfstæðisbaráttan gegn Dön-
um mótaðiþá hugsun, að þjóðin
öll hefði sameiginlega hags-
muni og ætti ekki að deila inn-
byrðis. 1 Sjálfstæðisflokknum
tókst einnig að sameina marga
bændur og verkamenn, milli-
stétt bæjanna, borgarastétt og
embættismenn undir yfirskyni
sjálfstæðisbaráttu og stétta-
samvinnu. Andstæðingar
ihaldsins hafa alltaf verið
sundraðir. Fjöldahreyfingar Is-
lenskrar alþýðu, verkalýðs-
hreyfing og samvinnuhreyfing,
báru ekki gæfu til varanlegs
samstarfs. Þessir sögulegu
þættir móta enn islenskt þjóð-
félag.
En hvernig er hægt að við-
halda þeirri blekkingu, að hags-
munir verkalýðsins, sem lifir á
eigin vinnu, séu best tryggðir
með stuðningi við þá sem græða
á vinnu annarra? Ein höfuðað-
ferð ihaldsins, sú hættulegasta
og fyrirlitlegasta, er að byggja
fylgi sitt og vald á vanmætti
fólksins: innræta þá skoðun, að
enginn geti haft stjórn á þjóð-
félaginu. Lifskjörin séu háð
„ytri skilyrðum”. Kaup-
hækkanir og kjarabarátta séu
þýðingarlausar. „Þjóðarbúið
þolir þær ekki” og verðbólgan
mun örugglega eyðileggja allar
kjarabætur. Morgunblaðið
malar dag eftir dag um að
kjaraskerðing og verðhækkanir
séu eins og náttúruhamfarir,
eldgos og jarðskjálftar. Hvort
tveggja sé óviðráöanlegt. Ekki
sé hægt að kenna ríkisstjórninni
og auðvaldinu um kjara-
skerðingu frekar en veöurfarið.
Samkvæmt forystu ihaldsins
og Morgunblaðinu eru kjör
verkalýðsins háð óumbreytan-
legum lögmálum eingöngu,
þegar ihaldið er við völd. Um
vinstri stjórnir gegnir allt öðru
máli. Þá var rætt i Morgun-
blaðinu um „oliusamninga”
BSRB og verkalýðshreyfingin
skömmuð fyrir að sýna rikis-
stjórninni linkind. A timum
HH0
eftir Svan
Kristjánsson,
lektor
vinstri stjórna mótmæla ihalds-
kerlingar verðhækkunum, hvort
sem er i Santiago i Chile eða
Reykjavik. (Vel á minnst.
Hvernig er með allar „hús-
mæðurnar” i Sjálfstæðisflokkn-
um? Skipta þær sér bara af
stjórnmálum þegar vinstri
stjórnir sitja að völdum? Þær
hafa a.m.k. verið hljóðlátar i
mótmælum gegn verðhækkun-
um —- siðan 1974).
Mál ogfreyjur
„Allar konur geta, geta
gefið, ekið, lært að meta.
Hvort um framtið fara megi
freyjur, eftir vörðuvegi.”
Fyrir ári hóf félagsskapur, er
nefnir sig „Málfreyjur” starf-
semi sina i Keflavík. Segja má að
félagsskapur þessi fylli öll þau
skilyrði sem hið afstaðna kvenna-
ár áskildi á sinum tima, þar sem
félagsskapurinn er einungis opinn
konum. Er ekkert tillt um það að
segja, nema siður sé, hér I þessu
landi er mergð allskyns karla-
félaga, sem þó eru ekki nema ein-
kyns, eða karlkyns.
Hlutverk þessa félagsskapar er
að æfa kvenmenn i þvi að tala
málinu, æfa sig i þvi að koma
fram og auka þar með sjálfs-
traust sitt. Sú hvatningsvisa i
upphafi þessarar greinar, er
nokkurskonar leiðarljós þessa
hóps, en þær munu vera 28, sem
starfa i málfreyjudeildinni Varð-
an i Keflavik. Flestir geta félags-
menn i deildum orðið 30, siðan
þegar fleiri deildir hafa verið
stofnaðar, munu þessar deildir
mynda með sérráð. 1 þvi skyni að
kynna þennan félagsskap, komu
nokkrar suðurnesjakonur i Nor-
ræna húsið mánudagsvöldið 15.11.
Þangað komu um 20-30 reyk-
viskar konur og menn til þess að
kynna sér málflutning þessara
keflvisku brautriðjenda.
Fyrrverandiforseti Keflavikur-
deildarinnar, Erla Guðmunds-
dóttir, sem kynnt var sem úti-
vinnandi móðir, sem fulltrúi á
lagadeild hernámsliðsins þar
suðurfrá, kynnti félagsskapinn.
Erla hóf mál sittmeðþvi að skýra
frá þvi, að bandarisk kona nokkur
hafi átt hugmyndina og frum-
kvæöið að stofnun þessara sam-
taka. Aðaluppistaðan i þessum
„alþjóðlega” félagsskap urðu
nokkrir klúbbar kvenna i Kali-
forniu, sem um þessar mundir
munu hafa verið nýstofnaðir eða i
kringum 1929. Þessir klúbbar
voru sniðnir að fyrirmynd
„toastmasters”, sem einungis
voru ætlaðir körlum.
„Alþjóðasamtökin” héldu
fyrsta þing sitt i Bandarikjunum
1938. Það kom fram I máli Erlu
Guðmundsdóttur, að suðurnesja-
konur höfðu komist i kynni við
starfsemi þessa hjá hernámsliö-
inu á Miðnesheiðinni, og að þeim
hafi þótt nokkuð i þessa hugmynd
varið og voru nú komnar
með hana alla leið til höfuð-
staðarins, til þess að boða kyn-
systrum sinum þar frelsun frá
feimniog kinnroða. Þess er vissu-
lega þörf. Við islendingar erum
langt á eftir, hvað varðar þátt-
töku kvenna almennt i þjóömái-
um, þegar tekið er tillit til frænd-
þjóða okkar á Norðurlöndum. Má
i þvi sambandi benda á finnska
þingið þar sem 1/4 þingmanna
eru konur, sænska utanrikisráð-
herrann o.s.frv.
Það er þvi full þörf á félags-
starfsemi sem þessari, sem kenn-
ir konum að koma fram og tala
máli sinu og berjast fyrir hugðar-
efnum sinum til jafns við karla.
Hvort það verður best gert i ein-
hæfum kvenlegum félagsskap
skal látið ósagt hér, en það' er
vafalaust ein leið af mörgum.
En það allra mikilvægasta i
þessu máli er það, að þegar starf-
semi, sem þessi, er tekin erlendis
að, eða ofan af Miðnesheiði, þá
verður að aðlaga hana islensku
umhverfi og islenskum staðhátt-
um.
Það er engin lausn að gleypa
hrátt og taka við erlendum hug-
myndum eins og þær koma fyrst
fyrir.
Þaö sem fyrst og fremst vakti
athygli mina á þessum
kynningarfundi var, hversu illa
hafði til tekist við að nota islensk
orð yfir hin ýmsu heiti innan
þessarar félagsstarfsemi. Talað
var um „aðila” þar sem við á is-
lensku erum vön að nota orðin
„félagar” eða „félagsmenn”
(konur eru lika menn). Orðið
„aðili” er nánast i merkingu
samtaka sem eru aðili að stærri
heild.
Einnig var talað um „em-
bættismenn”, en það orð nær
nánast einungis til lítils hóps
opinberra starfsmanna rikisins,
svo sem sýslumanna og bæjarfó-
geta, að ógleymdum lögreglu-
stjóra. Hér var nánast átt við
starfsmenn eða kjörna fulltrúa i
nefndir og störf þessa félags-
skapar. Orð eins og „menntunar-
nefnd” og „samfélagsnefnd”
koma einnig spánskt fyrir sjónir,
við erum vanari við „fræðslu-
nefndir” og „þjóðfélags- eöa
félagsmálanefndir.” Aftur á
móti er þýðingin á „toast-
mistress” i „málfreyjur” eins
góð og á verður kosið.
Félagsskapur þessi leggur
mikla áherslu á að félagsskapur-
inn sé opinn fólki með allar
stjórnmálaskoðanir, og að félags-
skapurinn leiði hjá sér pólitisk
mál. Fyrra atriðinu skal ég trúa,
þvi siðara ekki, þvi slikt er úti-
lokað. Flest mál, er snerta þjóð-
félagið á einn eða annan hátt,
eru pólitisk og ekkert viö þvi að
gera og einungis gott um það að
segja. Að þessu leiti verður
félagsskapurinn að horfast i augu
við staðreyndir og ekki stinga
höfðinu i sandinn.
Hvað fyrra atriðið varðar, að
félagsskapurinn sé opinn öllum
konum, þá er mikilvægt að þessi
staðhæfing verði ekki einungis
innantóm orð, og að þvi verði
staðið á raunhæfan hátt, að konur
með allar stjórnmálaskoðanir i
þessu landi, geti tekið þátt i þess-
um félagsskap. Og ef þessi
staðhæfing á að vera raunhæf, þá
verður þessi félagsskapur að
horfast i augu við þá staðreynd að
afmá verður alla möguleika á þvi
að stimpill Miðnesheiðarinnar
fylgi þessum félagsskap inn i
landið.
Að öðrum kosti læðist sú hug-
mynd að fólki, jafnt konum sem
körlum, að hér sé einungis um
nýjar leiðir og enn eina tilraun
hernámsliðsins að auka sam-
tengingu sina við húsbændur og
húsfreyjur þessa lands.
Ég lit þvi svo á, að kynningin i
Norræna húsinu hafi verið opin-
ská og heiðarleg viðleitni til þess
að losna við slika stimplun, og
kynna islenskum konum þennan
möguleika til þess að læra að
koma framog hvetja þær til þess
að taka aukinn þátt i islensku
þjóðlifi. Borgþór S. Kjærnested
„Á kross-
götum"
Stjórnandi:
Karsten Andersen
Einleikari:
Cristina Ortis
Efnisskrá:
Karl O. Runólfsson:
A Krossgötum
Róbert Schumann:
Píanókonsert i a-moll op.
54
Carl Nielsen:
Sinfónía nr. 4
Það er stundum forvitilegt að
fara aftur i timann og reyna að
vega og meta ákveðin verk sem
þá voru unnin. A einum tima eru
verk ákveðins timabils ofmetin,
en á öðrum tima sömu verk van-
metin og allt þar á milli. Það er
t.d. athyglisvert að verk þeirra
manna sem höfðu svo afdrifarik
áhrif á stefnu Islenskrar tónlistar
á fyrri hluta aldarinnar eru nú
likt og vakin af blundi eftir nokk-
urt hlé.
Eitt þessara verka er ,,A kross-
götum” eftir Karl 0 Runólfsson.
Svitan ,,A Krossgötum” er samin
á árunum 1938-’39 aðallega um
frumsamin stef. Andi verksins
hefur á sér þjóðlegt yfirbragð, en
stillinn samt fjarri þvi þunglyndi
sem einkenndi svo þjóðleg tón-
verk frá þessum tima. Meðferð
efnissins er á stundum mjög
gáskafull, en tónskáldið nær
einnig vel dapurlegum leitandi
tóni sem einkennir hægari
þættina og undirstrikar nafn svit-
unnar.
Siðan leyfa Matthias
Jóhannessen og leigupennar
Morgunblaðsins sér að skrifa
um manngildið reisn einstakl-
ingsins og fleira i þeim dúr, en
reyna jafnframt að gera menn
að aumingjum. Ekkert er
sjálfsvirðingu hvers einstak-
lings hættulegra en tilfinning
um eigin vanmátt, að hafa ekk-
ert vald á umhverfi sinu og lúta
lögmálum, sem menn skilja
ekki né geta haft áhrif á.
Það er hræsni að játa trú á
lýðræði og einstaklingsfrelsi en
vinna að þvi um leið að minnka
trú mannsins á möguleikum
sinum tilaðskilja og hafa stjórn
á eigin samfélagi.
Hlutverk sósialista
Hlutverk sósialista er að af-
hjúpa þá blekkingú að einhver
hulin og óumbreytanleg
náttúrulögmál ráði arðráni og
braski auðstéttarinnar, sem lif-
ir i vellystingum á meðan laun
vinnandi fólks hafa verið stór-
lega skert. Island er lágiauna-
land, þar sem launafólk vinnur
myrkranna á milli fyrir brýn-
ustu nauðsynjum.
Góð byrjun hjá sósialistum
væri að skýra fyrir landsmönn-
um hvernig islenskir heildsalar
stela stórfé á vöruinnflutningi
til landsins.
Guðmundur H. Garðarsson
þingmaður Sjálfstæðisflokksins
og „fulltrúi” alþýðunnar, gæti
e.t.v. komið til liðs við okkur og
útskýrt þessi „sniðugheit” fyrir
fulltrúum á þingi A.S.I., þar
sem hann á sæti.
SIGURSVEINN
MAGNÚSSON
SKRIFAR UM
TÓNLIST
Hljómsveitin flutti verkið
ágætlega og það féll i góðan jarð
veg hjá áheyrendum, svo var
einnig um næsta verk á efnis-
skránni, Pianókonsert eftir Ró-
bert Schumann. Einleikari i
þessu verki var Cristina Ortis,
leikur hennar og reyndar öll
framganga einkenndist af
áhyggjulausum gáska e.t.v. um
of fyrir svo rómantiska tónsmið,
en engu að siður var stórkostlegt
öryggi hennar og sannfæringa-
kraftur mjög hrifandi.
Christina Ortis er svo sannar-
lega stórkostlegur pianóleikari og
hlaut verðskuldað lof áheyrenda.
Sinfónia nr. 4 eftir Carl Nielsen
var siðustu á efnisskránni, verkið
er ekki ýkja langt en viöamikið og
býður upp á mjög litrika fram-
þróun. Tónskáldið teflir ýmis
fram stórum einingum eða opnar
skyndilega fyrir einstaka hljóð-
færahópa, og skiptir þá gjarnan
um áferð til að gera skiptin enn
áhrifarikari. Pákuköllin færa
verkið á annað svið og gera það
að verkum að áheyrandinn finnst
hann vera áhorfandi að æsispenn-
andi hildarleik.
Sinfónia þessi er skemmtileg og
i flutningi hennar sameinuðust
einhver þau öfl, sem úrslita-
þýðingu hafa fyrir ánægju hlust-
andans, þetta á reyndar við um
tónleikana i heild og gefur það til-
efni til nokkurrar bjartsýni, ekki
veitir heldur af,þvi þegar styttist
dagurinn og syrtir i sálinni getur
ekkert skinið skærar en endur-
minning um slika afbragðs tón-
leika.
Sigursveinn Magnússoi
Áskriftasöfnun Þjóöviljans Sími
stendur sem hæst 81333