Þjóðviljinn - 24.11.1976, Qupperneq 11
Þriðjudagur 23. nóvember 1976 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 11
„Sálræn þreyta
strákanna úr
Dynamo Kiev”..,
...olh því að sovéska landsliðið dalaði mikið og
hefur undanfarið ekki sýnt þá frammístöðu sem
vonast vareftir”,segirsovéski landsliðsþjáltarinn
Nikita Simonjan, nýr þjálfari
sovéska landsliðsins i knatt-
spyrnu, er löngu frægur
fótboltakappi. Arið 1950 var
hann orðinn framvörður
Moskvuliðsins „Spartakus” og
á sóvétmeistaramótinu það ár
setti hann met i inarkatölu, 34
mörk á einu móti — það met
hefur ekki verið slegið enn.
Hann er einnig efstur á lista yfir
markahæstu menn frá upphafi
sovét ineistara móta, hefur
komið boltanum 156 sinnum i
marká þessum mótum. Fjórum
sinnum varð hann sovét-
meistari, og tvisvar sinnum tók
hann við bikar sigurvegara i
sovésku bikarkcppninni. fyrir
hönd líðsins „Spartakus”. Árið
1960 hóf hann störf scm þjálfari
og undir hans leiðsögn hefur
„Spartakus” tvisvar sinnum
unnið sovétmeistaramót. Þá
tókst honum ckki siður með
armenska liðið „Ararat” árið
1973, þegar þaö vann „tvöfallt
gull", með þvi að sigra bæði á
meistaramótinu og i bikar-
keppninni.
Undanfarin ár hefur
Simonjan gégnt stöðu vara-
formanns Knattspyrnu-
stjórnarinnar, sem fer með öll
mál er varöa knattspyrnu i
Sovétrikjunum.
— Þegar við mynduðum
landslið með mönnum úr einu
og sama liðinu, „Dinamo-Kiev”
— segir Nikita Simonjan —
voruni við ekki að æða biint i
sjóinn, heldur byggðum við á
eigin reynslu frá 1956, þegar
sovéska landsliðið, sem
samanstóö svotii eingöngu af
Spartakus-mönnum, vann sigur
á ólympiuleikunum, i fyrsta og
eina skiptið sem sovésku liði
tekst það. Kiev-strákarnir stóðu
sig lika vel i fyrstu og unnu
hvert sovéska mótið á fætur
öðru, svo og undirbúningsleiki
fyrir Evrópumeistaramótið. Eii
smám saman fóru þeir að finna
til sálrænnar þreytu og þeir
gátu æ sjaldnar sýnt veruleg
tilþrif. Af þessu stafar lélegt
gengi þeirra, t.d. fengu þeir
brons i stað guilsins sem við
liöföum vonast eftir i Montreal.
— Hafið þér fundiö einhverjar
„patentlausnir” til þess að
breyta ástandinu? Hvað ætlist
þér fyrir með liðið?
— Eg myndi ekki segja að
ætlunin væri að umbreyta öllu f
liðinu. Frekar myndi ég segja
að við ætluðum að halda áfram.
Nú þegar hefur komið i ljós að
þeir knattspyrnumeistarar sem
leika með Dinamo frá Kiev eru
að komast i sitt fyrra form.
Aður voru þaö ekki aöeins þeir-,
heldur allir leikmenn Kiev-
liðsins sem áttu öruggt sæti i
landsliöinu. En það er ekki
sama hvort um er að ræða
meistara á borð viö Oleg
Blokhin, Vladimir Onisjenko,
Viktor Kolotof, Vladimir
Veremjejef og Anatoli Konkof,
eða hvort leikmenn sem alls
ekki voru yfir gagnrýni hafnir
lentu sjálfkrafa i landsliðinu.
Þessu ástandi þurfum við að
sjálfsögðu að breyta.
— Gætuð þér útskýrt fyrir-
ætlanir ykkar nánar?
— Mér list svo á, að timabært
sé að huga bctur að mark-
vörðunum. Þar er á milli
tveggja manna að velja:
Vladimir Astapovskí úr knatt-
spyrnuliði hersins i Moskvu og
Nikolaj Gontar úr Dinamo-
Moskva. Varnarlínuna þarf
einnig að styrkja. Þar koma til
greina Sergei Olsjanski og
Vasilili Svetsof úr liði hcrsins i
Moskvu, Alexander Makhovikof
og Alexander Bubnof úr
Dinam o-Moskva og Jevgéni
Loftséf úr Spartakus. Fleiri
leikmenn munu bætast i liðið.
Markmiðið er að koma upp á
skömmum tima 23-25 manna liði
sem ekki þarf aö breyta aftur á
næstunni. Að sjálfsögöu er
stillinn aöalatriðið eftir sem
áður. Hann verður að vera
nútimalegur og byggjast á þvi
að leikmennirnirgeta skipst á og
komið hver i staðinn fyrir annan
þegar á þarf að halda.
Simonjan er ekki sist þekktur
fyrir þann hæfileika sinn að
skapa gott andrúmsloft i hvaða
liði sem er. Ilann hefur lag á að
samcina vináttu og strangar
kröfur. Hann er sennilega sá
sovéskur þjálfari sem best
samband hefur við liðsmenn
sina.
Sovésku landsliðsmennirnir hafa oft fagnað sigri, en þó hefur heldur
hallað undan fæti undanfariö.
Aðstoðarmaður hans er Júrl
Sedof, sem áður fyrr lék með
honum i Spartakusi. Siðar
gerðist hann þjálfari og fékkst
einnig við visindaleg störf á
sviðiiþrótta, m.a. varð hann sér
úti um titilinn kandidat i
kennslufræöum mcð rann-
sóknum sinum á knattspyrnu-
þjáifun. Simonjan hefur lika
getið þess að nú séu visindin
komin inn i liðið, en nú þurfi
ekki lengur að berast þvi
utanfrá.
Siðasta spurningin fjallar um
framtiðarhorfur. Sovéska
landsliðið hefur lcngi verið
ofarlega á lista yfir bestu lið
heims og nú spyr ég Simonjan
hvar hann myndi skipa lands-
liðinu niður cinsog það er nú.
— 1 Evrópu myndi ég
sennilega skipa þvi í fimmta
sæti. En ef við tökum allan
heiminn, myndi það lenda i 8.-
10. sæti. Að sjálfsögðu er þetta
ekki visindalcgur útreikningur.
Arangur i knattspyrnu næst
mcð góðum leik. en ekki með
s p u r n i n g a 1 i s t u m o g
hcilabrotum. Við reynum að
sýna góðan leik.
Gennadi Radtsjúk (APN)
Liverpool komið með
fimm stiga forystu
en ennþá er það Ipswich sem
ógnar veldi „Rauða hersins”
Er að rætast úr
meðíþróttahúss-
rekstur Hauka?
í athugun að skólarnir í
bænum þiggi afnot af húsinu
Ennþá heldur Liverpool
sæti sínu í 1. deildinni og
hefur nú fimm stiga for-
skot eftir jafntefli gegn
Arsenal, en það var Rau
Kennedy sem skoraði
jöfnunarmark Liverpool
aðeins tveimur mínútum
fyrir leikslok (1:1).
Ipswich sem sýnt hefur
mikinn styrk undanfarið
og ógnar veldi Liverpool
verulega, varð að láta sér
nægja jafntefli gegn Leeds
og Aston Villa, sem einnig
er i toppbaráttunni gerði
einnig jafntefli um síðustu
helgi. úrslit i 1. og 2. deild
urðu þá þessi:
1. deild
Arsenal — Liverpool 1-1
Aston Viila —Coventry 2-2
Bristol C. — Norwich 3-1
Everton — Derby 2-0
Ipswich Leeds 1-1
Leicester —Manch. Utd. 1-1
Manch.City — WBA 1-0
QPR — Middlesbro 3-0
Stoke—Birmingham 1-0
Sunderland —Tottenham 2-1
West Ham — Newcastle 1-2
2. deild
Burnley — Bristol Rov. 1-1
Carlisle — Millvall 0-1
Charlton - - Blackpool 1-2
Fulham — Notts Co. 1-5
Hereford - -Oldham 0-0
Hull — Plymouth 3-1
Luton — Cardiff 2-1
Nottm. For. —Chelsea 1-1
Sheff.Utd. — Orient 1-1
Southampton —Bolton 1-3
Wolves —Blackburn 1-2
Staðan er núna þessi:
I. deild
Liverpool 15 10 3 2 26-10 23
Ipswich 13 7 4 2 26-14 18
AstonV. 15 8 2 5 30-19 18
Man. City 14 6 6 2 18-11 18
Newcastle 14 66 2 20-14 18
Leicester 16 4 9 3 16-17 17
Everton 14 6 4 4 24-19 16
Leeds 15 5 6 4 20-18 16
Stoke 15 6 4 5 12-14 16
Arsenal 14 6 3 5 24-22 15
Coventry 14 5 5 4 18-16 15
Middlesbr 14 6 3 5 9-13 15
Man.Utd. 14 4 6 4 23-22 14
Birm’ham 15 6 2 7 20-20 14
QPR 15 5 4 6 20-21 14
WBA 15 5 4 6 20-21 14
BristolC. 15 4 4 7 14-17 12
Norwich 16 4 4 8 15-24 12
Derby 13 2 6 5 18-20 10
Sunderl. 14 2 5 7 12-21 9
Tottenham. 15 3 3 9 18-34 9
West Ham 15 2 3 10 15-31 7
2. deild
Chelsea 15 10 3 2 27-19 23
Blackpool 16 8 4 4 26-18 20
Bolton 15 9 2 4 27-19 20
Nott. For. 15 6 5 4 31-19 17
Wolves 15 6 5 4 33-20 17
Oldham 15 6 5 4 21-19 17
Millvall 14 7 2 5 24-18 16
Charlton 15 6 4 5 32-30 16
Notts.Co. 15 7 2 6 24-24 16
Blackburn 15 7 2 6 17-18 16
Hull 14 5 5 4 19-16 15
Sheff.Utd. 15 4 7 4 18-20 15
Fulham 15 4 6 5 20-23 14
Luton 15 6 2 7 23-26 14
BristolR. 15 4 5 6 18-21 13
Burnley 15 4 5 6 20-24 13
Cardiff 15 5 3 7 21-25 13
Plymouth 15 3 6 6 22-25 12
South’ton 15 4 4 7 24-29 12
Hereford 15 3 4 8 21-34 10
Carlisle 16 3 4 9 17-33 10
Orient 13 2 5 6 12-17 9
Eins og sagt hefur verið frá
er ekki langt siðan Haukar i
Hafnarfirði tóku i notkun eigið
iþróttahús þar i bæ, sem þeir
höfðu sjálfir reist af miklum
dugnaði og ákveðið að reka á
eigin kostnað. Var fyrirhugaö
að skólar bæjararins fengju
afnot af húsinu alla daga fyrir
greiðslu sem dyggði lang-
leiðina fyrir rekstri hússins,
en svo undariega brá við að
þrátt fyrir mikinn húsnæðis-
skort fyrir iþróttakennslu ósk-
uðu hvorki bæjaryfirvöld né
skólayfirvöld eftir aðstöðu hjá
Haukum, og munu einhverjar
„annarlegar” ástæður hafa
legið þar að baki.
Nú virðist hins vegar eitt-
hvað vera að rætast úr, þvi
Ægir Sigurgelrsson, sem á
sæti i bæjarráði Hafnarfjarð-
ar, lagði fyrir skömmu fram
eftirfarandi tillögu:
„Bæjarráð samþykkir að
fela bæjarstjórn að hefja nú
þegar viðræður við stjórn
Knattspyrnufélagsins Hauka
um leigu á Haukahusinu fyrir
iþróttakennslu á næsta skóla-
ári eða frá n.k. áramótum er
unnt er.
Með leigu á húsnæði til leik-
fimikennslu fyr; Viðistaða-
skóla um sinn, i staö nýbygg-
ingar nú þegar, gefst kostur á
að leggja aukna áherslu á
bráðnauðsynlegar fram-
kvæmdir i skólamálum svo
sem byggingu barnaskóla i
Norðurbæ (Engidalsskóla) og
viðbyggingu við Lækjarskóla
og fl. Jafnframt fást verulega
aukin not þeirra fjármuna,
sem varið hefur verið til bygg-
ingar Haukahússins og
iþróttahreyfingin i bænum
þannig studd i starfi.